Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-3172/2023:

Ákæruvaldið

(Ásmundur Jónsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Maxence Paul Daniel Joannes

D Ó M U R

I

(Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)

Ávana- og fíkniefni. Fíkniefnalagabrot.

Ákærði sakfelldur fyrir innflutning á 2.078,72 g af kókaíni til landsins og gert að sæta fangelsi í þrjú ár. Hin ólögmætu fíkniefni gerð upptæk.

Mál þetta, sem dómtekið var 1. desember 2023, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á Suðurnesjum 27. nóvember síðastliðinn á hendur Maxence Paul Daniel Johannes, fæddum […], ríkisborgari […]: „fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa laugardaginn 30. september 2023, staðið að innflutningi á samtals 2.078,72 g af kókaíni, með styrkleika 77-84%, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni en fíkniefnin flutti ákærði til […] sem farþegi með flugi nr. […], frá Brussel í Belgíu til Keflavíkurflugvallar, falin í fjórum niðursuðudósum í farangurstösku sem ákærði hafði meðferðis.

Telst brot þetta varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.“

Gerir ákæruvaldið þá kröfu að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Þá er krafist upptöku á samtals 2.078,72 g af kókaíni með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

II

Fyrir dómi játaði ákærði skýlaust þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og samþykkti upptökukröfu ákæruvaldsins. Í ljósi játningar ákærða var farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og málið tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda hafði gefist færi á að tjá sig stuttlega um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og að gæsluvarðhald sem hann hefur sætt frá 1. október síðastliðnum komi að fullu til frádráttar dæmdri refsingu. Þá krefst verjandi þóknunar sér til handa.

III

Með skýlausri játningu ákærða fyrir dómi, sem ekki þykir ástæða til að draga í efa, enda fær hún stoð í gögnum málsins, er sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þykir þar réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Samkvæmt upplýsingum ákæruvaldsins mun ákærði, sem fæddur er í júní 2002, ekki áður hafa sætt refsingu hér á landi, en ekkert liggur fyrir um að honum hafi verið gerð refsing annars staðar. Við ákvörðun refsingar verður jafnframt horft til ungs aldurs ákærða og þess að ákærði hefur játað sök í málinu, án undandráttar sem og þess að ákærði virðist hafa gert sér far um að aðstoða lögreglu við rannsókn málsins. Á hinn bóginn horfir til refsiþyngingar að um er að ræða umtalsvert magn af mjög sterku fíkniefni með afar mikla hættueiginleika sem ákærði flutti til landsins til söludreifingar í ágóðaskyni.

Að öllu þessu virtu og með vísan til dóma í sambærilegum málum, einkum dóms Hæstaréttar Íslands 11. maí 2017 í máli nr. 209/2017, þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í þrjú ár.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er fallist á upptökukröfu ákæruvaldsins eins og hún er sett fram í ákæru og nánar greinir í dómsorði. Þá verður ákærði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar málsins í samræmi við sakarkostnaðaryfirlit lögreglustjóra dagsett 16. nóvember síðastliðinn auk málsvarnarlauna skipaðs verjanda síns, Unnsteins Arnar Elvarssonar lögmanns sem þykja hæfilega ákveðin að meðtöldum virðisaukaskatti auk aksturskostnaðar verjandans líkt og í dómsorði greinir.

Af hálfu ákæruvalds sótti málið Ásmundur Jónasson, aðstoðarsaksóknari.

Þórhallur Haukur Þorvaldsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Maxence Paul Daniel Joannes, sæti fangelsi í þrjú ár. Til frádráttar refsivist kemur að fullri dagatölu gæsluvarðhald sem hann hefur sætt frá 1. október 2023.

Upptæk eru gerð 2.078, 72 grömm af kókaíni sem lagt var hald á við rannsókn málsins.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Unnsteins Arnar Elvarssonar lögmanns, 753.300 krónur, aksturskostnað verjandans, 12.690 krónur og annan sakarkostnað, 394.290 krónur.

Þórhallur Haukur Þorvaldsson

Heimildaskrá

Dómaskrá