Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-243/2022:

Ákæruvaldið

(Árni Bergur Sigurðsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Sigurjóni Þórissyni

(Snorri Sturluson lögmaður)

Fangelsi. Ökuréttarsvipting.

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og nytjastuld.

Dómur

Mál þetta, sem þingfest var 2. mars 2022 og dómtekið 1. apríl 2022, höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru 1. febrúar 2022, á hendur Sigurjóni Þórissyni, kt. 000000-0000, […]; „fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 21. janúar 2021, ekið bifreiðinni […] óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 270 ng/ml og MDMA 50 ng/ml) vestur Reykjanesbraut í Hafnarfirði, við Álftanesveg, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. M: […] Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.“

Hinn 1. apríl sl. var sakamál nr. S-635/2022 þingfest og sameinað máli þessu, sbr. heimild í 1. mgr. 169. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Málið höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru 29. mars 2022 á hendur ákærða; „fyrir nytjastuld með því að hafa, fimmtudaginn 11. nóvember 2021, á tannlæknastofu við […] tekið kveikjuláslykla að bifreiðinni […] úr jakkavasa jakka á tannlæknastofunni og í kjölfarið heimildarlaust tekið bifreiðina og ekið henni að Öldusölum í Kópavogi, þar sem lögregla fann bifreiðina.

Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. M: […] Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Ákærði krefst þess í málinu að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa og að horft verði til skýlausrar játningar hans fyrir dómi. Þá krefst verjandi ákærða hæfilegrar þóknunar sér til handa vegna verjandastarfans.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Ákærði mætti við fyrirtöku málsins 1. apríl sl. og játaði brot sín án undandráttar. Játning hans fær stoð í framlögðum gögnum. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Ákærði er fæddur í […] og á að baki nokkurn sakaferil samkvæmt framlögðu sakavottorði. Við ákvörðun refsingar ákærða nú er sérstaklega til þess að líta að ákærði gekkst undir sektargerð 14. desember 2012 til greiðslu 75.000 krónu sektar og var sviptur ökurétti í fjóra mánuði fyrir brot gegn 1. og 2. mgr. 45. gr. og 59. gr. þágildandi umferðarlaga. Ákærði gekkst undir sektargerð 30. maí 2013 til greiðslu 60.000 krónu sektar fyrir brot gegn 1. mgr. 48. gr. þágildandi umferðarlaga. Þá gekkst ákærði undir viðurlagaákvörðun 17. október 2018 til greiðslu 140.000 krónu sektar og sviptingar ökuréttar í 12 mánuði frá 17. október 2018 fyrir brot gegn 1. sbr. 2. mgr. 45. gr. a umferðarlaga sem framið var 9. ágúst 2017.

Með hliðsjón af framangreindu og atvikum máls þykir refsing ákærða nú hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga. Eftir atvikum þykir mega fresta 30 daga refsingarinnar og skal sá hluti falla niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Í ljósi framangreinds og með vísan til 99. og 101. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, er ákærði sviptur ökurétti ævilangt.

Samkvæmt 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 ber að dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað, alls 329.223 krónur. Um er að ræða kostnað vegna blóðsýnatöku, rannsóknar Háskóla Íslands á blóðsýnum og þóknun skipaðs verjanda ákærða, Snorra Sturlusonar lögmanns 251.100 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Erna Björt Árnadóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ:

Ákærði Sigurjón Þórisson, sæti fangelsi í 60 daga en fresta skal fullnustu 30 daga refsingarinnar og skal sá hluti falla niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940.

Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.

Ákærði greiði 329.223 krónur í sakarkostnað þar meðtalda þóknun skipaðs verjanda síns Snorra Sturlusonar lögmanns, 251.100 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Erna Björt Árnadóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 57. gr.1. mgr. 259. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.1. mgr. 169. gr.1. mgr. 235. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 45. gr.2. mgr. 45. gr. a1. mgr. 48. gr.2. mgr. 50. gr.59. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.