Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-1541/2021:

Ákæruvaldið

(Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Krzysztof Adamczuk,

(Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður)

Halli Sigurðssyni og

(Þorgils Þorgilsson lögmaður)

Stefáni Andra Halldórssyni

(Ásgeir Þór Árnason lögmaður)

Ávana- og fíkniefni.

Sakfellt fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, 173. gr. a almennra hegningarlaga og brot gegn lögum um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum.

Dómur

Mál þetta er höfðað með ákæru héraðssaksóknara, útgefinni 30. júní 2021, á hendur Krzysztof Adamczuk, kt. 000000-0000, […], Halli Sigurðssyni, kt. 000000-0000, […], og Stefáni Andra Halldórssyni, kt. 000000-0000, […], „fyrir eftirtalin brot:

1. [Gegn ákærðu öllum fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa að […], iðnaðarbili 21, í Hafnarfirði, í sölu- og dreifingarskyni staðið saman að framleiðslu á samtals 228,67 g af dímetýltryptamín (DMT) og framleiðslu á samtals 1827,5 ml sem innihélt efnisleyfar af dímetýltryptamín (DMT), sem lögregla fann og lagði hald á við leit að […] dagana 22., 22. og 30. nóvember 2020 og við leit að […] og […] 70, herbergi 37, í Kópavogi, þann 3. desember 2020.] Telst brot þetta varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  1. Gegn ákærða Krzysztof, fyrir brot gegn lögum um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum, með því að hafa fimmtudaginn 3. desember 2020, á […] 70 í […], haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni samtals 2100 ml af vefaukandi steralyfjum og á sama tíma að […] 13-15, íbúð 506, í […], og í bifreiðinni […], haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni samtals 505 ml og 1.374 stykki af vefaukandi steralyfjum sem lögreglan fann við leit.

    Telst brot þetta varða við 1. mgr. 2. gr., sbr. 1. mgr. 4. gr. laga um bann við tilteknum frammistöðubætandi efnum og lyfjum nr. 84/2018.

  2. Gegn Halli, fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, með því að hafa fimmtudaginn 3. desember 2020, að […] í Hafnarfirði haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 80,22 g af kókaíni og 1 ecstasy (MDMA) töflu sem lögreglan fann við leit.

    Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. breytingarlög og reglugerð.

  3. Gegn ákærða Stefáni Andra, fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, með því að hafa fimmtudaginn 3. desember 2020, að […], haft í vörslum sínum 3,94 g amfetamín, 5,36 g maríhúana og 0,41 g tóbaksblandað kannabisefni og 27 kannabisplöntur og að hafa um nokkurt skeið fram til þess dags ræktað greindar plöntur.

    Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.

    Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

    Krafist er upptöku á 228,67 g af dímetýltryptamín (DMT) og samtals 1827,5 ml af dímetýltryptamín (DMT), 80,22 g af kókaíni, 1 MDMA töflu, 3,94 g af amfetamíni, 5,36 g af maríhúana, 0,41 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 27 kannabisplöntum, með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, með síðari breytingum. Þá er krafist upptöku á samtals 2605 ml og 1374 stykkjum af vefaukandi steralyfjum sbr. 4. mgr. 4. gr. laga nr. 84/2018. Jafnframt er krafist upptöku á 2 vogum og Sony Xperia farsíma (munaskrá […]), samkvæmt heimild í 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Þá er krafist upptöku á haldlögðum fjármunum í eigu ákærða Krzysztof, samtals ISK 3.689.500,- og 1.030 US dollara, (munaskrá […] og […]) með vísan til 1. mgr. 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Að lokum er krafist upptöku á 2 brúsum af PH Buffer 7, PH meter mæli, gróðurhúsalampa, 2 straumbreytum, loftsíu, 2 hitamælum, viftu, kaffikvörn, vog og plastrúllu (munaskrá […]) sem lögregla lagði hald á í tengslum við ákærulið 4“.

    Ákærðu komu fyrir dóm og játuðu sök samkvæmt ákæru, hver samkvæmt því sem að honum sneri. Ekki þykir sérstök ástæða til að draga játningar ákærðu í efa. Telst hver þeirra sannur að sök eftir því sem hann varðar samkvæmt ákæru og hefur unnið sér til refsingar en háttsemi er rétt færð til refsiheimilda í ákæru. Fallast ber á upptökukröfur svo sem í dómsorði greinir.

    Samkvæmt sakavottorðum hafa ákærðu Hallur og Krzysztof ekki sakaferil. Sakaferill ákærða Stefáns Andra skiptir ekki máli við úrlausn málsins. Horft verður til þessa og skýlausrar játningar hvers og eins. Af hálfu ákærða Halls var sérstaklega tekið fram að hann hefði snúið lífi sínu við og væri nú í fullri vinnu.

    Ákærðu standa saman að broti því sem fjallað er um í ákærulið I. Hafa þeir þannig haft samverknað um framleiðslu efnis sem tilgreint er í 6. gr. laga nr. 65/1974. Samverknaður horfir til refsiþyngingar.

    Af hálfu ákærðu var fyrir dómi byggt á að fátt væri sannað í málinu um hættueiginleika DMT og söluskammtastærðir. Allan vafa bæri að skýra ákærðum í hag.

    Í gögnum málsins er að finna samantekt sem nánar greindur rannsóknarlögregluþjónn mun hafa tekið saman vegna rannsóknar málsins, um DMT, þar á meðal framleiðsluaðferðir og ýmsa eiginleika þess, þar á meðal hættueiginleika. Fram kemur í samantektinni að upplýsinga í samantektinni hafi fyrst og fremst verið aflað á netinu og frá Europol. Við upphaf rannsóknar málsins var ákærðu gert að sæta gæzluvarðhaldi vegna rannsóknarhagsmuna. Í framhaldi af því krafðist lögreglustjóri framlengingar en þá á grunni 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008. Var kröfunum hafnað í héraðsdómi en lögreglustjóri skaut málunum til Landsréttar. Í úrskurðum sínum í málum nr. 710- 712/2020 segir Landsréttur meðal annars að ráða megi af gögnum málsins að „hættueiginleikar DMT séu miklir“ en lögreglustjóri hafi byggt á því að það væri „öflugasta hugbreytandi vímuefnið“. Allt að einu yrði, eins og málið lægi fyrir réttinum, einkum í ljósi þeirra varna sem ákærðu hefðu byggt á um eiginleika og magn efnisins, og lögreglustjóri hefði ekki hrakið sérstaklega, ekki talið að sýnt hefði verið fram á að uppfyllt væru skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008.

    Í þessu máli hefur ekki verið farin sú leið að afla álits eða mats óháðra sérfræðinga, sbr. 1. mgr. 86. gr. og 128. gr. laga nr. 88/2008, á þeim eiginleikum DMT sem horfa mætti til við úrlausn málsins. Samantekt lögreglu gefur til kynna umtalsverða hættueiginleika DMT, en samantektin hefur alls ekki sama vægi og slík gögn geta haft.

    Þegar á allt framanritað er horft ákveðst refsing ákærða Krzysztof og ákærða Halls fangelsi í tólf mánuði en refsing ákærða Stefáns Andra fangelsi í tíu mánuði. Rétt þykir að fullnustu tíu mánaða af refsingu ákærðu Krzysztofs og Halls og átta mánaða af refsingu ákærða Stefáns Andra verði frestað og niður falli hún að liðnum þremur árum verði almennt skilorð haldið. Ákærðu sættu gæzluvarðhaldi frá 3. til 11. desember 2020 og skal sá tími dragast frá refsingu hvers og eins.

    Í málinu liggur sakarkostnaðaryfirlit, alls að fjárhæð 2.202.132 krónur og sundurliðast svo að 1.895.357 krónur og 86.815 krónur eru vegna matsgerðar rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði og 219.960 krónur vegna annars kostnaðar. Fyrir dómi byggðu ákærðu á því að engin gögn um kostnaðinn lægju fyrir í málinu. Í málinu er að finna reikning Rannsóknarstofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði að fjárhæð 86.815 krónur vegna kannabisrannsóknar og verður ákærði Stefán Andri dæmdur til greiðslu þeirrar fjárhæðar. Þá liggur fyrir reikningur að fjárhæð 219.960 krónur vegna tækniaðstoðar en ekki þykir liggja nægilega fyrir í málinu að þar sé um að ræða kostnað sem verði lagður á ákærðu. Ekki eru í málinu reikningar vegna þess 1.895.357 króna kostnaðar sem samkvæmt yfirliti féll til vegna matsgerðar rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði. Þótt fyrir liggi í málinu matsgerðir rannsóknarstofunnar þykir þessi kostnaður ekki verða lagður á ákærðu. Eins og áður var rakið hafnaði héraðsdómur á rannsóknarstigi gæzluvarðhaldskröfum sem reistar voru á 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 og getið hefur verið um niðurstöðu Landsréttar um sömu kröfur, en Landsréttur vísaði meðal annars til þeirra varna sem byggt hafði verið á af hálfu ákærðu. Þegar á allt framanritað er horft þykir rétt að ríkissjóður greiði málsvarnarlaun verjenda að hálfu á móti ákærðu. Ákveðast málsvarnarlaun með hliðsjón af umfangi málsins og tímaskýrslum verjenda svo sem í dómsorði greinir og er virðisaukaskattur innifalinn. Unnsteinn Örn Elvarsson lögmaður var verjandi ákærða Krzysztofs, Þorgils Þorgilsson lögmaður verjandi ákærða Halls og Ásgeir Þór Árnason lögmaður verjandi ákærða Stefáns Andra. Af hálfu ákæruvaldsins fór Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari með málið. Þorsteinn Davíðsson kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð

Ákærði Krzysztof Adamczuk sæti fangelsi í tólf mánuði. Fullnustu tíu mánaða af refsingunni skal frestað og niður skal hún falla að liðnum þremur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940.

Ákærði Hallur Sigurðsson sæti fangelsi í tólf mánuði. Fullnustu tíu mánaða af refsingunni skal frestað og niður skal hún falla að liðnum þremur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940.

Ákærði Stefán Andri Halldórsson sæti fangelsi í tíu mánuði. Fullnustu átta mánaða af refsingunni skal frestað og niður skal hún falla að liðnum þremur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940.

Frá refsingu hvers ákærða um sig skal draga með fullri dagatölu gæzluvarðhald sem hann sætti frá 3. til 11. desember 2020.

Ákærði Krzysztof greiði að hálfu og ríkissjóður að hálfu 2.592.220 króna málsvarnarþóknun Unnsteins Arnar Elvarssonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða.

Ákærði Hallur greiði að hálfu og ríkissjóður að hálfu 1.884.800 króna málsvarnarþóknun Þorgils Þorgilssonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða.

Ákærði Stefán Andri greiði að hálfu og ríkissjóður að hálfu 1.242.790 króna málsvarnarþóknun Ásgeirs Þórs Árnasonar lögmanns, skipaðs verjanda ákærða. Ákærði Stefán Andri greiði 86.815 króna annan sakarkostnað. Að öðru leyti greiðist sakarkostnaður úr ríkissjóði.

Upptæk eru gerð 228,67 g af dímetýltryptamín (DMT) og samtals 1827,5 ml sem innihéldu efnisleyfar af dímetýltryptamíni (DMT), 80,22 g af kókaíni, ein MDMA tafla, 3,94 g af amfetamíni, 5,36 g af maríhúana, 0,41 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, 27 kannabisplöntur, 2605 ml og 1374 stykki af vefaukandi steralyfjum, tvær vogir, Sony Xperia farsími, 3.689.500 krónur, 1.030 Bandaríkjadalir, tveir brúsar af PH Buffer 7, PH mælir, gróðurhúsalampi, tveir straumbreytar, loftsía, tveir hitamælar, vifta, kaffikvörn, vog og plastrúlla sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.

Þorsteinn Davíðsson

Heimildaskrá