Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-72/2019:

Ákæruvaldið

(Friðrik Smári Björgvinsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Róberti

Sólberg Jósefssyni

(Halldóra Aðalsteinsdóttir lögmaður)

Brot gegn valdstjórninni. Játningarmál. Líkamsárás. Tilraun. Vopnalagabrot.

Ákærði var sakfelldur fyrir m.a. brot gegn 1. mgr. 106. gr. og 2. mgr. 218. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr., almennra hegningarlaga auk vopnalagabrots. Var honum gert að sæta fangelsi í níu mánuði en þar af var fullnustu sex mánaða refsingarinnar frestað skilorðsbundið. Loks var ákærða gert að greiða embætti ríkislögreglustjóra bætur vegna tjóns á lögreglubifreið.

Mál þetta, sem dómtekið var 11. apríl sl., höfðaði héraðssaksóknari með ákæru 7. febrúar sl. á hendur ákærða, Róberti Sólberg Jósefssyni, kt. 000000-0000, Fífumóa 7 í Reykjanesbæ: „fyrir eftirgreind brot framin í Reykjanesbæ að morgni laugardagsins 15. september 2018:

I

Fyrir   brot   gegn   valdstjórninni,   vopnalögum   og   tilraun   til   sérstaklega hættulegrar líkamsárásar, með því að hafa á heimili sínu að Fífumóa 7 ráðist með ofbeldi gegn lögreglumönnunum A og B, sem voru við skyldustörf, sveiflað öxi ítrekað í átt til þeirra og reynt þannig að valda þeim líkamstjóni og haldið áfram að ógna   lögreglumönnunum   með   sama   hætti   eftir   að   þeir   höfðu   hörfað   út   á bifreiðastæði fyrir utan Fífumóa 7 uns þeir yfirbuguðu hann.

Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. og 2. mgr. 218. gr., sbr. 1. mgr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 30. gr. sbr. 1. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.

II

Fyrir eignaspjöll, með því að hafa, í tengslum við háttsemina sem lýst er í ákærulið I, höggvið ítrekað með öxi í lögreglubifreiðina [...], þar sem hún stóð á bifreiðastæði við Fífumóa 7, með þeim afleiðingum að rúður, listar og vélarhlíf skemmdust. Telst þetta varða við 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess   er   krafist   að   ákærði   verði   dæmdur   til   refsingar   og   greiðslu   alls sakarkostnaðar. Þá er krafist upptöku á öxi sem lögreglan lagði hald á, með vísan til 1. tl. 1. mgr. 69. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.“

Í ákæru er einnig tekin upp einkaréttarkrafa embættis ríkislögreglustjóra, kt. 000000-0000,   sem   krefst   þess   að   ákærða   verði   gert   að   greiða   embættinu skaðabætur að fjárhæð 1.036.534 krónur auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá tjónsdegi þann 15. september 2018, en með dráttarvöxtum   samkvæmt   9.   gr.   laganna   að   liðnum   mánuði   frá   birtingu   til greiðsludags.

Kröfur ákærða í málinu eru þær að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa. Þá krefst verjandi ákærða hæfilegrar þóknunar sér til handa vegna verjandastarfans.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ákærði hefur játað sakargiftir og fallist á einkaréttarkröfu ríkislögreglustjóra. Var málið því tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Sannað er með skýlausri játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Gerð var geðrannsókn á ákærða meðan á rannsókn málsins stóð. Samkvæmt henni er hann sakhæfur og ekkert sem bendir til annars en að refsing geti borið árangur. Refsing ákærða verður ákveðin samkvæmt 77. gr. almennra hegningarlaga.

Ákærði er fæddur árið [...]. Samkvæmt sakavottorði ákærða hefur honum ekki áður verið gerð refsing. Við ákvörðun refsingar ber að líta til 1. og 3. töluliða 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga sem báðir horfa til þyngingar á refsingu ákærða. Aftur á móti horfa 5. og 8. töluliðir 1. mgr. sömu lagagreinar ákærða til málsbóta, sbr. skýlausa játningu hans á sakargiftum í málinu og það að hann var samvinnuþýður við lögreglu meðan á rannsókn málsins stóð. Refsing ákærða þykir að brotum hans virtum hæfilega ákveðin fangelsi í níu mánuði, en fresta skal fullnustu sex mánaða refsingarinnar og skal sá hluti falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þá verður öxi ákærða gerð upptæk eins og krafist er og nánar greinir í dómsorði.

Á grundvelli samþykkis ákærða verður hann dæmdur til þess að greiða embætti ríkislögreglustjóra 1.036.534 krónur auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 15. september 2018 til 20. apríl 2019, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr., sömu laga frá þeim degi til greiðsludags, en ákæra ásamt greinargerð kröfuhafa var birt ákærða 20. mars sl. Loks verður ákærði dæmdur til að greiða sakarkostnað, þ.m.t. málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns og málsvarnarþóknun tilnefnds verjanda á rannsóknarstigi, en þær þóknanir eru ákveðnar með virðisaukaskatti í dómsorði. Arnaldur Hjartarson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Róbert Sólberg Jósefsson, sæti fangelsi í níu mánuði, en fresta skal fullnustu sex mánaða refsingarinnar og skal sá hluti falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 Til frádráttar refsingu ákærða kemur gæsluvarðhald sem hann sætti frá 17. september 2018 til 21. september 2018, að fullri dagatölu. Ákærði sæti upptöku á þeirri öxi sem í ákæru greinir.

Ákærði   greiði   embætti   ríkislögreglustjóra   1.036.534   krónur   auk   vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 15. september 2018 til 20. apríl 2019, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr., sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Ákærði   greiði   þóknun   skipaðs   verjanda   síns,   Halldóru  Aðalsteinsdóttur lögmanns,   421.600   krónur   ásamt   40.320   krónum   vegna   útlagðs   kostnaðar,   og þóknun tilnefnds verjanda síns á rannsóknarstigi, Daníels Reynissonar lögmanns, 295.120 krónur ásamt 20.380 krónum vegna útlagðs kostnaðar. Þá greiði ákærði 634.956 krónur í annan sakarkostnað.

Arnaldur Hjartarson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 20. gr.1. mgr. 106. gr.2. mgr. 218. gr.