Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-7/2019:

Ákæruvaldið

(Súsanna Björg Fróðadóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Erfan

Khalid Abdalla

I

(Jóhannes Albert Kristbjörnsson lögmaður)

Fangelsi. Skjalafals.

Ákærði sakfelldur fyrir skjalafals.

Mál þetta, sem þingfest var 14. febrúar 2019 og dómtekið sama dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum 7. janúar 2019 á hendur ákærða, Erfan Khalid Abdalla, fæddum [...], ríkisborgara Írak‚ „ fyrir skjalafals, með því að hafa, föstudaginn 7. desember 2018, framvísað við lögreglu, í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, í blekkingarskyni bresku vegabréfi nr. [...] á nafni A, Fd. [...] í Bretlandi, með gildistíma [...], sem reyndist breytifalsað er ákærði kom í vegabréfaskoðun vegna flugs til Kanada.

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Við þingfestingu málsins kvaðst ákærði heita Erfan Khalid Abdalla, en ekki Erdan Khalid Abdall, eins og ritað er í ákæru og ýmsum öðrum skjölum málsins. Sækjandi viðurkenndi að nafn ákærða væri rangt skráð í ákæru og nokkrum öðrum málsskjölum.

Ákærði játar sök og krefst þess aðallega að honum verði ekki gerð refsing, en til vara krefst hann vægustu refsingar sem lög leyfa, og að refsing hans verði þá bundin skilorði. Þá krefst hann þess að þóknun skipaðs verjanda verði að öllu leyti greidd úr ríkissjóði, eða a.m.k. að hluta til.

II

Eins og áður greinir játaði ákærði brot sitt án undandráttar. Fær játning hans stoð í gögnum málsins. Var því farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og skipuðum verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Samkvæmt því þykir sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og er þar réttilega heimfærð til refsiákvæða.

Engra gagna nýtur við um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi, en eins og fram er komið kveðst hann vera ríkisborgari Írak. Verður við ákvörðun refsingar tekið mið af því, sem og skýlausri játningu ákærða. Á hinn bóginn þykir ekki unnt að taka tillit til skýringa ákærða um ástæður verknaðar hans, þar sem engra gagna nýtur við þeim til stuðnings. Þykja því ekki efni til þess að víkja frá fastmótaðri dómvenju í málum sem þessum. Verður refsing ákærða samkvæmt því ákveðin fangelsi í 30 daga. Til frádráttar refsingunni kemur gæsluvarðhald sem ákærði sætti frá 8. til 12. desember 2018 að fullri dagatölu.

Með hliðsjón af úrslitum málsins og vísan til 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til greiðslu sakarkostnaðar. Er þar um að ræða þóknun skipaðs verjanda hans, Jóhannesar Alberts Kristbjörnssonar lögmanns, 341.000 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, auk ferðakostnaðar lögmannsins, 27.610 krónur. Ingimundur Einarsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Erfan Khalid Abdalla, sem fæddur er [...], sæti fangelsi í 30 daga. Til frádráttar refsingunni kemur gæsluvarðhald sem ákærði sætti frá 8. til 12. desember 2018 að fullri dagatölu.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Jóhannesar Alberts Kristbjörnssonar lögmanns, 341.000 krónur, svo og ferðakostnað lögmannsins, 27.610 krónur.

Ingimundur Einarsson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 155. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.1. mgr. 235. gr.