Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-315/2018:

Ákæruvaldið

(Guðmundur Þ. Steinþórsson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Mamuka Metreveli

Fangelsi. Skilorð. Þjófnaður. Útivist.

Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað. Refsing ákærða ákveðin fangelsi í tvo mánuði en fullnustu hennar frestað skilorðsbundið í tvö ár.

Mál þetta, sem dómtekið var 5. september sl., höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru 5. júní 2018 á hendur ákærða, Mamuka Metreveli, fæddum […], með dvalarstað að Airport Inn, Reykjanesbæ; „fyrir þjófnaðarbrot, með því að hafa: 1) Þriðjudaginn 15. ágúst 2017, í verslun Nettó að Miðvangi 41, Hafnarfirði, í félagi við A, fd. […] og B, fd. […], stolið matvöru samtals að andvirði kr. 27.190,- Telst þessi háttsemi varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Mál 007-2017-47209

2) Sunnudaginn 8. október 2017, í verslun 66° norður í Skeifunni, Reykjavík, í félagi við C, fd. […], stolið tveimur útivistarjökkum af gerðinni Vatnajökull, samtals að andvirði kr. 66.000,- Telst þessi háttsemi varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Mál 007-2017-61183

3) Mánudaginn 9. október 2017, í verslun Elko í Skeifunni, Reykjavík, í félagi við C, fd. […], stolið Sennheiser heyrnartólum að andvirði kr. 11.895,- Telst þessi háttsemi varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Mál 007-2017-61183

4) Fimmtudaginn 21. desember 2017, í verslun Hagkaupa að Larsenstræti 5, Selfossi, í félagi við D, fd. […]og E, fd. […], stolið varningi samtals að andvirði kr. 112.881,- Nánar tiltekið var um að ræða eftirfarandi:

Munanr. Lýsing Andvirði kr.
456113 Weather Report parkaúlpa 13.999
456115 Weather Report dúnúlpa 8.999
456116 F&F úlpa 7.490
456119 Dolce&Gabbana ilmvatn 14.999
456120 Emperio Armani ilmvatn 11.399
456121 DKNY ilmvatn 10.399
456122 Gucci ilmvatn 12.699
456123 Michael Kors ilmvatn 11.999
456124 Lancome ilmvatn 9.999
456125 Textile straumsnúra 999
Multi trimmer hársnyrtitæki, 2 stk 9.900 Samtals kr. 112.881

Telst þessi háttsemi varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Mál 318-2017-14003

5) Þriðjudaginn 9. janúar 2018, í verslun Bónus að Smiðjuvegi, Kópavogi, í félagi við D, fd. […] og E, fd. […], stolið 11 pakkningum af kjúklingabringum, samtals að verðmæti kr. 16.255,-. Telst þessi háttsemi varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Mál 007-2018-3400

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

Forsendur og niðurstaða:

Fyrirkall í máli þessu var gefið út 29. júní 2018 og birt ákærða 30. ágúst 2018. Við þingfestingu málsins 5. september sl. sótti ákærði ekki þing og var málið þá dómtekið á grundvelli 1. mgr. 161. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Með vísan til þess ákvæðis verður dómur lagður á málið þrátt fyrir útivist ákærða þar sem framlögð gögn þykja nægileg til sakfellingar og önnur skilyrði ákvæðisins eru einnig uppfyllt í málinu. Brot ákærða teljast því sönnuð og varða þau við tilgreint lagaákvæði í ákæru.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærða ekki áður verið gerð refsing. Refsing ákærða þykir eftir fyrirmælum 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og að brotum hans virtum réttilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði. Eftir atvikum þykir mega fresta fullnustu refsingar ákærða og skal refsingin falla niður að   liðnum   tveimur   árum   frá   uppkvaðningu   dóms   þessa   að   telja   haldi   ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Með vísan til sakfellingar ákærða, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður honum gert að greiða sakarkostnað málsins. Ákærði dæmist því til að greiða þóknun tilnefnds verjanda á rannsóknarstigi málsins, Sverris Sigurjónssonar lögmanns, sem með hliðsjón af fyrirliggjandi tímaskýrslu þykir hæfilega ákveðin svo sem í dómsorði greinir.

Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði,   Mamuka   Metreveli,   sæti   fangelsi   í   tvo   mánuði,   en   fresta   skal fullnustu   refsingarinnar   og   skal   hún   falla   niður   að   liðnum   tveimur   árum   frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærði greiði þóknun tilnefnds verjanda á rannsóknarstigi málsins, Sverris Sigurjónssonar lögmanns, 137.020 krónur.

Kristinn Halldórsson