Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 29. janúar 2020.
Mál nr. E-1197/2018:
Lárus Finnbogason og
Guðmundur Kjartansson
(Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður)
gegn
D&T sf. og
Deloitte ehf.
(Ólafur Eiríksson, Partners Counsel lögmaður)
Lykilorð
Félag. Afhending gagna. Sameignarfélag.
Útdráttur
Stefnendur kröfðust þess að þeim yrði veittur aðgangur að gögnum og upplýsingum sameignarfélags og einkahlutafélags að viðlögðum dagsektum. Fallist var á kröfu stefnenda að hluta.
Dómur
Mál þetta, sem tekið var til dóms 5. desember sl., er höfðað 30. nóvember 2018.
Stefnendur eru Lárus Finnbogason, Brekkubæ 35, Reykjavík og Guðmundur Kjartansson, Hjálmakri 3, Garðabæ.
Stefndu eru D&T sf. og Deloitte ehf., Smáratorgi 3, Kópavogi.
Dómkröfur stefnenda eru eftirfarandi: A. Aðalsök: Stefnendur krefjast þess, hvor um sig, að aðalstefnda D&T sf. verði gert að veita þeim aðgang að eftirfarandi gögnum og upplýsingum að viðlögðum 200.000 króna dagsektum til hvors stefnanda um sig:
- Afrit af fundargerðum allra stjórnarfunda D&T sf. á tímabilinu 1. janúar 2016 til 30. september 2018.
- Afrit af fundarboðunum allra félagsfunda (meðeigendafunda) í D&T sf. á tímabilinu 1. janúar 2016 til 30. september 2018.
- Afrit allra fundargagna sem lögð voru fram til A-félagsmanna í D&T sf. fyrir eða á félagsfundum D&T sf. á árinu 2018, meðal annars eftirfarandi gögn: a) Ársreikninga fyrir D&T sf. og dótturfélögin Deloitte ehf. og Blásali ehf. fyrir reikningsárið 1. júní 2017 – 31. maí 2018. b) Endanlega samþykkt skjal fyrir reikningsárið 2017/2018 yfir verðmæti hverrar úthlutaðrar einingar og hvernig einingar, verðmæti þeirra (heildar úthlutun til eigenda), laun og aðrir launaliðir, ásamt hagnaðarhlut skiptast á einstaka félagsmenn D&T sf.
c) Endanlega samþykkt skjal um einingaúthlutun til einstakra A-félagsmanna fyrir reikningsárið 2018/2019. d) Upplýsingar um endanlega höfuðstólsúthlutun til B-félagsmanna fyrir reikningsárin 2016/2017 og 2017/2018.
- Afrit af fundargerðum allra félagsfunda í D&T sf. á tímabilinu 1. janúar 2016 til 30. september 2018.
- Afrit af fundargerðum allra funda nefndar um stjórn/eigendaráð (Partners Counsel) hjá D&T sf. á tímabilinu frá júní 2017 til 30. september 2018.
- Yfirlit yfir stöðu viðskiptareikninga stefnenda hjá D&T sf. miðað við 30. september 2018.
- Gögn um einkunnagjöf A-eigenda, hvers um sig, sem einingaúthlutun fyrir fjárhagsárið 2017-2018 á A-félagsmannafundi 17. ágúst 2017 var byggð á, þ.m.t. gögn um forsendur einkunnagjafar og önnur undirbúnings- og undirgögn.
- Upplýsingar og gögn í tengslum við undirbúning meintrar innlausnar á eignarhlutum stefnenda í D&T sf. Stefnendur krefjast þess jafnframt, hvor um sig, að aðalstefnda D&T sf. verði gert að veita þeim aðgang að eftirfarandi gögnum og upplýsingum að viðlögðum 200.000 króna dagsektum til hvors stefnanda um sig:
- Afrit af fundargerðum allra stjórnarfunda dótturfélagsins Deloitte ehf. á tímabilinu 1. janúar 2016 til 30. september 2018.
- Verksamninga og sölureikninga á rekstrarárinu 2017/18 vegna þriggja verkefna; við kaup á Gadus, sölu á Hreinsitækni og Krauma verkefnis, auk upplýsinga úr bókhaldi hvaða kostnaður hafði fallið á þessi verkefni fram til 31. maí 2017 og hvað þau verk voru metin á mikið sem birgðir verka í vinnu í ársreikningi 31. maí 2017.
- Gögn vegna styrks frá Deloitte alþjóðafélagi sem dótturfélagið Deloitte ehf. fékk greiddan í mars 2017 og gögn og upplýsingar um skuld sem færð var á móti, í bókhaldi dótturfélagsins Deloitte ehf., auk fylgiskjala við þær færslur.
- Upplýsingar um fjárhæðir orlofsgreiðslna dótturfélagsins Deloitte ehf. til A-félagsmanna sem ekki var tekið tillit til sem launa í skjölum yfir verðmæti hverrar úthlutaðrar einingar og hvernig einingar, verðmæti þeirra (heildar úthlutun til eigenda), laun og aðrir launaliðir, ásamt hagnaðarhlut skiptast á einstaka félagsmenn aðalstefnda fyrir reikningsárin 2013/2014 til og með 2017/2018.
Þá er þess krafist að stefnendum, hvorum um sig, verði tildæmdur málskostnaður úr hendi stefnda. B. Varasök:
Í varasök krefjast stefnendur þess, hvor um sig, að varastefnda Deloitte ehf. verði gert að veita stefnendum aðgang að eftirfarandi gögnum og upplýsingum að viðlögðum 50.000 króna dagsektum til hvors stefnanda um sig:
- Afrit af fundargerðum allra stjórnarfunda Deloitte ehf. á tímabilinu 1. janúar 2016 til 30. september 2018.
- Verksamninga og sölureikninga á rekstrarárinu 2017/18 vegna þriggja verkefna; við kaup á Gadus, sölu á Hreinsitækni og Krauma verkefni, auk upplýsinga úr bókhaldi hvaða kostnaður hafði fallið á þessi verkefni fram til 31. maí 2017 og hvað þau verk voru metin á mikið sem birgðir verka í vinnu í ársreikningi 31. maí 2017.
- Gögn vegna styrks frá Deloitte alþjóðafélagi sem Deloitte ehf. fékk greiddan í mars 2017 og gögn og upplýsingar um skuld sem færð var á móti, í bókhaldi Deloitte ehf., auk fylgiskjala við þær færslur.
- Upplýsingar um fjárhæðir orlofsgreiðslna Deloitte ehf. til A-félagsmanna sem ekki var tekið tillit til sem launa í skjölum yfir verðmæti hverrar úthlutaðrar einingar og hvernig einingar, verðmæti þeirra (heildar úthlutun til eigenda), laun og aðrir launaliðir, ásamt hagnaðarhlut skiptast á einstaka félagsmenn aðalstefnda fyrir reikningsárin 2013-2014 til og með 2017/2018.
Þá er þess krafist að stefnendum, hvorum um sig, verði tildæmdur málskostnaður úr hendi stefnda.
Stefndu krefjast sýknu og greiðslu málskostnaðar in solidum úr hendi stefnenda.
Upphafleg aðalkrafa stefndu var að málinu yrði vísað frá dómi. Með úrskurði dómsins 26. júní 2019 var krafa stefndu tekin til greina og var málinu vísað frá dómi og stefnendum gert að greiða stefndu óskipt málskostnað. Með úrskurði Landsréttar 3. september 2019 í málinu númer 541/2019 var úrskurður héraðsdóms felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar. Aðalmeðferð í málinu fór fram 5. desember 2019 og var málið sem fyrr segir dómtekið þann dag.
I
Stefnendum máls þessa var sagt upp störfum með tveimur bréfum forstjóra varastefnda Deloitte ehf. 19. desember 2017 og var lýst yfir innlausn á stofnfjárhlutum þeirra í aðalstefnda D&T sf. Varastefndi heldur því fram að hann hafi greitt stefnendum laun í uppsagnarfresti og aðrar greiðslur að fullu eins og þeir áttu rétt á. Stefndu segja uppgjöri stefnenda gagnvart varastefnda lokið og þar með réttarsambandi þeirra. Innlausn á stofnfjárhlutum stefnenda hafi farið fram með útgáfu tveggja skuldabréfa til hvors þeirra 29. desember 2017. Fullyrða stefndu að þar hafi verið um fullnaðaruppgjör að ræða vegna eignarhlutar stefnenda í aðalstefnda D&T sf. Samhliða fullnaðaruppgjöri við stefnendur hafi lokið félagsaðild stefnenda í aðalstefnda D&T sf. og réttarsambandi á milli aðila.
Stefnendur mótmæltu því að uppsögn þeirra og innlausn á stofnfjárhlutum þeirra hafi verið lögmæt. Benda stefnendur á að óljóst sé hvort forstjóri Deloitte ehf. hafi haft umboð til að segja upp ráðningarsamningi þeirra við varastefnda. Einnig telja stefnendur að forsendur uppgjörs séu rangar en þeir telja ljóst að töluverðar eignir hafi verið til staðar við ætlaðan brottrekstur þeirra sem þeim hafi borið réttmæt hlutdeild í. Þá hafa stefnendur mótmælt réttmæti fjárhagslegs uppgjörs af hálfu aðalstefnda D&T sf. Benda þeir á að tekjur hafi verið vantaldar og að tilteknir hluthafar hafi fengið ofgreitt af fjármunum félagsins. Hafi það leitt til þess að stefnendur hafi fengið minna í sinn hlut en þeir hafi átt rétt á.
Með bréfi 26. janúar 2018 óskuðu stefnendur eftir tilteknum upplýsingum og gögnum frá stefndu. Var beiðni stefnenda svarað með bréfi 24. maí 2018 án þess að umbeðin gögn væru afhent. Stefnendur halda því að fram að til að þeim sé mögulegt að leggja mat á lögmæti uppsagnar þeirra hjá varastefnda Deloitte ehf. og á lögmæti innlausnar á stofnfjárhluta þeirra í aðalstefnda D&T sf., og réttmæti fjárhagsuppgjörs, hafi stefnendur ítrekað óskað eftir nánar tilgreindum upplýsingum og gögnum frá stefndu. Stefnendur ítrekuðu sjónarmið sín í bréfi til lögmanns stefndu 12. júlí 2018. Bréfinu mun ekki hafa verið svarað af stefndu.
Í greinargerð stefndu segir að stefnendur hafi óskað eftir því að ákveðin gögn yrðu afhent stefnendum. Það hafi þó verið fyrst með stefnu sem hafi verið krafist afhendingar á stærstum hluta gagnanna. Áður hafi aðeins verið krafist afhendingar á þeim gögnum sem tilgreind séu í kröfulið númer 6. Gögn þau sem um ræði, það er viðskiptareikningar stefnenda hjá stefndu, hafi verið afhent stefnendum með tölvupósti 29. janúar 2019.
Í stefnu segir að rekstur Deloitte-samstæðunnar á Íslandi sé byggður á nokkrum samningum og félagauppbyggingu sem í grundvallaratriðum miðist við að aðalstefndi D&T sf. sé sameignarfélag í eigu hluta þeirra endurskoðenda og annarra sérfræðinga sem þar starfi, en þar á meðal hafi verið stefnendur. Samkvæmt stofnsamningi sé eigendum skipt í A-meðeigendur og B-meðeigendur. Reksturinn fari fram í varastefnda, einkahlutafélaginu Deloitte sem sé í eigu fyrrnefnds sameignarfélags og erlends félags, Deloitte NWE LLP. Ráðningarsamningar við starfsmenn, þar með talið eigendur, séu gerðir á vegum einkahlutafélagsins. Til 1. júní 2017 hafi aðalstefndi verið eini hluthafi varastefnda, en þá hafi verið gerðar nokkrar breytingar á eignarhaldi sem tengist nánari samvinnu á alþjóðavettvangi með tilkomu Deloitte NWE LLP í eigendahópinn o.fl. Í einkahlutafélaginu (varastefnda) sé 3.510.001 hlutur. Þar af eigi sameignarfélagið, þ.e. aðalstefndi, nú 3.510.000 hluti, sem allir séu í B-flokki, en Deloitte NWE LLP einn hlut sem sé í A-flokki. Sama stjórn og sami forstjóri sé í báðum félögunum samkvæmt samningunum.
II
Málsástæður og lagarök stefnenda
Stefnendur kveðast gera kröfur í aðal- og varasök. Í aðalsök séu dómkröfur í tveimur liðum. Verði ekki fallist á síðari kröfuliðinn að öllu leyti sé kröfum beint að varastefnda, vegna þeirra kröfuliða sem út af standi. Samkvæmt aðalkröfu krefjist stefnendur þess, hvor um sig, að aðalstefnda D&T sf. verði gert að afhenda þeim þau gögn og upplýsingar sem tilgreindar séu í dómkröfum, að viðlögðum dagsektum.
Kröfur gegn aðalstefnda byggi stefnendur einkum á 20. gr. laga nr. 50/2007 um sameignarfélög. Samkvæmt 3. mgr. 20. gr. laganna geti félagsmaður, með hæfilegum fyrirvara, krafist þess að fá að skoða hvers konar gögn félags, þar á meðal rannsaka reikninga félagsins og gögn sem tengist reikningsgerð og bókhaldi. Stefndu hafi ekki svarað óskum stefnenda um aðgang að tilgreindum gögnum þrátt fyrir að hafa haft nægt ráðrúm til þess.
Þá byggi stefnendur á því að sem félagsmenn í sameignarfélagi eigi þeir óskoraðan rétt til aðgangs að þeim upplýsingum og gögnum sem tilgreind séu í dómkröfu. Byggi sá víðtæki upplýsingaréttur, sem sameigendum sé tryggður í 20. gr. laga um sameignarfélög, meðal annars á ábyrgð félagsmanna gagnvart félaginu en félagsmenn beri ábyrgð á öllum skuldum félagsins, einn fyrir alla og allir fyrir einn. Auk þess varði gögnin stefnendur sérstaklega umfram aðra, þar sem þau tengist með beinum hætti aðdraganda uppsagnar þeirra og forsendum uppgjörs við þá. Þar sem ekki hafi verið réttilega staðið að uppsögn, innlausn og fjárhagsuppgjöri við þá, séu þeir enn félagsmenn í aðalstefnda D&T sf. Verði ekki fallist á með stefnendum að þeir séu enn félagsmenn í aðalstefnda D&T sf. byggi stefnendur kröfu sína á því að þeir hafi óumdeilanlega verið félagsmenn í aðalstefnda D&T sf. á þeim tíma sem gögnin varði. Upplýsingarétturinn sé því skýr samkvæmt 20. gr. laga um sameignarfélög. Verði af einhverjum sökum ekki fallist á það byggi stefnendur á lögjöfnun frá 20. gr. laga um sameignarfélög og almennum reglum félagaréttar.
Augljóst sé að stefnendur hafi lögvarða hagsmuni af því að fá aðgang að umbeðnum gögnum til að gæta réttar síns gagnvart félögunum við innlausn á hlutum þeirra en stefnendur hafi mótmælt fjárhagslegu uppgjöri á grundvelli innlausnarinnar. Meginreglan sé að félagsmaður, sem sé genginn úr sameignarfélagi, beri áfram ábyrgð á þeim skuldbindingum félagsins sem stofnað hafi verið til áður en hann gekk úr félaginu. Eigi stefnendur einnig rétt á aðgangi að umbeðnum gögnum á þeim grundvelli. Almenna reglan sé sú að verðmeta skuli allar eignir félagsins við brottvikningu félagsmanns, sbr. 5. mgr. 26. gr. laga um sameignarfélög en 33. gr. laganna gildi við slíkar aðstæður. Þannig séu ríkar kröfur gerðar til þess að uppgjör við félagsmenn sé rétt.
Fyrsti liður dómkröfu stefnenda:
Umkrafðar upplýsingar og gögn varði málefni félagsins. Beiðni stefnenda um gögn frá aðalstefnda D&T sf., í liðum 1 - 5 í dómkröfu stefnenda, lúti að upplýsingum í tengslum við félagsfundi í aðalstefnda D&T sf., á tímabilinu 1. janúar 2016 til 30. september 2018. Ljóst sé að stefnendur sem félagsmenn, eigi óskoraðan rétt til slíkra upplýsinga enda fari félagsfundur ávallt með æðsta vald í málefnum sameignarfélags og eigi allir félagsmenn rétt á að sækja fund, taka þar til máls og beita þar atkvæðisrétti sínum, sbr. 9. og 12. gr. laga um sameignarfélög. Stefnendur hafi óumdeilanlega verið félagsmenn aðalstefnda D&T sf. á fyrrgreindu tímabili. Stærstur hluti þessara gagna hafi ekki verið aðgengilegur fyrir stefnendur við starfslok en þau sem hafi verið það, hafi verið vistuð á ákveðnu eigendasvæði á innra neti félagins sem stefnendur hafi ekki haft aðgang að eftir brottrekstur þeirra sem hafi borið mjög brátt að. Það sama gildi um fundargerðir stjórnarfunda og annarra nefnda.
Ekki sé skylt að skipa stjórn í sameignarfélagi. Sé það gert sé upplýsingaskylda stjórnar þó rík gagnvart félagsmönnum. Ráðist það af því að í sameignarfélögum sé ekki gert ráð fyrir aðskilnaði á milli eignaraðildar og áhrifa, eins og gerist í öðrum tegundum félaga með takmarkaðri ábyrgð hluthafa. Því eigi stefnendur óskoraðan rétt til afrita af stjórnarfundargerðum og ekki síður eigi félagsmenn aðgang að fundargerðum funda stjórna dótturfélaga og annarra nefnda, sem starfi innan vébanda félagsins.
Stefnendur hafi hagsmuni af því að fá þau grundvallargögn um félagið sem krafist sé í þessum liðum vegna tímabilsins frá byrjun árs 2016 til 30. september 2018. Stefnendum hafi verið sagt upp störfum hjá varastefnda Deloitte ehf. í desember 2017 og jafnframt lýst yfir innlausn á stofnfjárhlutum þeirra í aðalstefnda D&T sf. Stefnendur telji sig hafa fengið vangreitt frá félaginu við uppgjör, meðal annars vegna ákvarðana sem teknar hafi verið á tímabilinu, til að mynda um greiðslur til félagsmanna, innlausn á hlutum þeirra og afgreiðslu stjórnareininga á tilteknum reikningum og samningum, svo sem vegna styrks frá alþjóðafélaginu Nordic samnings og NWE samnings.
Beiðni stefnenda varði einnig gögn sem tengist reikningum og bókhaldi félagsins. Samkvæmt 5. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald skuli bókhaldsskyldir aðilar, þar með talin sameignarfélög, haga bókhaldi sínu á skýran og aðgengilegan hátt og semja ársreikninga í samræmi við lög, reglugerðir og settar reikningsskilareglur. Í 20. gr. laga um sameignarfélög sé sérstaklega tekið fram að félagsmenn eigi rétt á að rannsaka reikninga félagsins og gögn sem tengist reikningsgerð og bókhaldi. Á þessum grundvelli hafi aðalstefnda D&T sf. borið að leggja fram yfirlit yfir stöðu viðskiptareikninga stefnenda hjá aðalstefnda D&T sf., miðað við 30. september 2018, sbr. lið 6 í dómkröfu.
Þá liggi fyrir að fjármunum félagsins hafi verið úthlutað til félagsmanna án þess að stefnendur hafi haft tækifæri til að taka afstöðu til þeirrar fjárúthlutunar. Hafi sú úthlutun leitt til lægri úthlutunar til stefnenda en ýmissa annarra eigenda þótt nákvæmar fjárhæðir séu stefnendum ekki ljósar.
Í lið 7 í dómkröfu stefnenda sé farið fram á gögn um einkunnagjöf A-eigenda, hvers um sig, sem einingaúthlutun fjárhagsárið 2017-2018 á A-félagsmannafundi 17. ágúst 2017 hafi verið byggð á, þar með talin gögn um forsendur einkunnagjafar og önnur undirbúnings- og undirgögn. Þessi gögn myndi hluta af forsendum fyrir úthlutun á eignum til félagsmanna og eigi stefnendur ríkan rétt til að fá upplýsingar um slík atriði sem varði þeirra eigin eignir og afkomu.
Loks sé í lið 8 óskað upplýsinga og gagna í tengslum við undirbúning innlausnar á eignarhlutum stefnenda í aðalstefnda D&T sf. Hafi stefnendur hagsmuna að gæta af því að fá aðgang að þeim gögnum, vegna ágreinings um lögmæti uppsagnar og innlausnar á eignarhlutum stefnenda í aðalstefnda D&T sf.
Annar liður dómkröfu stefnenda:
Stefnendur kveðast byggja á því í öðrum lið dómkröfu að aðalstefnda D&T sf. beri að afhenda tilgreind gögn. Stefnendur hafi verið félagsmenn í aðalstefnda D&T sf. sem aftur sé eigandi alls hlutafjár varastefnda Deloitte ehf. Gögnin varði með beinum hætti innlausn hluta stefnenda hjá aðalstefnda D&T sf. Telji stefnendur hafið yfir vafa að aðalstefndi D&T sf. hafi tilgreind gögn undir höndum. Rekstur Deloitte samstæðunnar fari fram innan vébanda einkahlutafélagsins og hafi bein áhrif á uppgjör á grundvelli eignarhluta félagsmanna í aðalstefnda D&T sf. Sama stjórn sé í báðum félögum og sami framkvæmdastjóri. Fundir stjórnareininga félaganna séu haldnir samhliða. Sé þannig byggt á því að félögin séu eitt í fjárhagslegu tilliti gagnvart félagsmönnum í D&T sf. og sé því rétt að beina beiðni stefnenda um gögn, sem félagsmanna aðalstefnda D&T sf., að því félagi.
Í fyrsta lagi sé farið fram á afhendingu fundargerða stjórnarfunda dótturfélagsins Deloitte ehf. á tímabilinu 1. janúar 2016 til 30. september 2018, sbr. lið 1 í dómkröfu stefnenda í varasök. Stefnendur hafi lögvarða hagsmuni, sem félagsmenn í aðalstefnda, að fá fundargerðir stjórnarfunda dótturfélagsins Deloitte ehf. á tímabilinu. Ákvarðanir á stjórnarfundum hafi bein áhrif á uppgjör við stefnendur. Stefnendur hafi borið því við að framkvæmdastjóri stefndu hafi ekki haft umboð til að segja upp ráðningarsamningum við stefnendur en uppsögnin og innlausn hluta stefnenda hjá aðalstefnda séu beintengd. Stefnendur hafi því margvíslega hagsmuni af því að fá umbeðin gögn afhent, sbr. einnig röksemdir vegna krafna um afhendingu sambærilegra gagna er varði stjórnkerfi aðalstefnda D&T sf. beint.
Í öðru lagi sé óskað verksamninga og endanlegra reikninga úr bókhaldi dótturfélagsins Deloitte ehf. vegna þriggja verkefna; Gadus verkefnis, sölu á Hreinsitækni og Krauma verkefnis, auk upplýsinga úr bókhaldi dótturfélagsins Deloitte ehf. um kostnað og á hvaða fjárhæð þau verk hafi verið metin sem birgðir verka í vinnu í ársreikningi 31. maí 2017. Félagsmenn í aðalstefnda, þar á meðal stefnendur, hafi gert athugasemdir um færslu þeirra verkefna í bókhald og ársreikning varastefnda. Hafði færsla verkanna, með greindum hætti, haft áhrif á úthlutun til hluthafa félagsins og hafi stefnendur því lögvarða hagsmuni af kröfunni.
Í þriðja lagi sé farið fram á upplýsingar úr bókhaldi og öll tengd fylgiskjöl vegna styrks frá Deloitte alþjóðafélagi sem dótturfélagið Deloitte ehf. hafi fengið greiddan í mars 2017. Þá sé farið fram á önnur gögn vegna þessa, þar með talið yfirlýsingu eða samning við Deloitte alþjóðafélag. Við færslu styrksins í bókhald dótturfélagsins Deloitte ehf. hafi verið færð skuld á móti, sem sé algjörlega órökstudd færsla og röng að mati stefnenda. Hafi þetta haft áhrif á afkomu sem aftur hafi haft bein fjárhagsleg áhrif á stefnendur við hagnaðarskiptingu 2016/2017 og fjárhagsuppgjör við innlausn. Lögvarðir hagsmunir séu því til staðar.
Í fjórða lagi sé farið fram á upplýsingar úr bókhaldi um orlofsgreiðslur dótturfélagsins Deloitte ehf. til A-félagsmanna D&T sf. sem ekki hafi verið tekið tillit til sem launa, eins og átt hafi að gera samkvæmt reglum félagsins um skiptingu hagnaðar, í skjölum yfir verðmæti hverrar úthlutaðrar einingar og hvernig einingar, verðmæti þeirra (heildar úthlutun til eigenda), laun og aðrir launaliðir, ásamt hagnaðarhlut skiptist á einstaka félagsmenn aðalstefnda vegna reikningsáranna 2013/2014 til og með 2017/2018. Hafi þetta haft áhrif á hagnaðarskiptingu til eigenda og þannig bein fjárhagsleg áhrif á stefnendur við skiptingu hagnaðar þessi ár. Lögvarðir hagsmunir séu því til staðar.
Verði ekki að öllu leyti fallist á kröfu stefnenda í aðalsök sé kröfum í seinni lið dómkröfu beint að Deloitte ehf. í varasök.
Gagnvart varastefnda Deloitte ehf. byggi stefnendur kröfu sína á almennum reglum félagaréttar. Stefnendur séu hvoru tveggja endanlegir eigendur og launamenn hjá varastefnda Deloitte ehf. Stefnendur hafi lögvarða hagsmuni af því að fá afrit af umbeðnum gögnum og upplýsingum enda ljóst að mati stefnenda að brottvikning þeirra hafi verið ólögmæt svo og fjárhagslegt uppgjör á grundvelli hennar og innlausnar. Hafi þeir því hagsmuna að gæta.
Gögnin varði óumdeilanlega þann tíma sem stefnendur hafi verið starfsmenn og óbeinir eigendur félagsins og hafi þeir hagsmuni af því að fá aðgang að gögnunum vegna ágreinings um brottvikningu, innlausn og fjárhagslegt uppgjör. Stefnendur hafi reynt að beita áhrifum sínum sem félagsmenn í aðalstefnda, sem eiganda alls hlutafjár í varastefnda, til að fá tilgreind gögn í hendur en án árangurs. Sé þeim því ekki annað fært en að beina kröfum að félaginu.
Um nánara efni beiðna um gögn og röksemda þar um, sé vísað til umfjöllunar í aðalkröfu en kröfur í varasök séu að öllu leyti þær sömu og í seinni lið dómkröfu í aðalsök utan þess að hverjum kröfunum sé beint.
Aðild til sóknar byggist á 1. mgr. 19. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Samkvæmt ákvæðinu sé fleiri en einum heimilt að sækja mál í félagi ef dómkröfur þeirra eigi rætur að rekja til sama atviks, aðstöðu eða löggernings. Aðstaða stefnenda sé að öllu leyti sú sama enda hafi þeim verið sagt upp á sama tíma og eigi jafnan rétt til aðgangs að gögnum og upplýsingum til að leggja mat á lögmæti uppsagnarinnar. Stefnendur geri hvor um sig samhljóða dómkröfu, sem sett sé fram í einu lagi. Þannig geri stefnendur hvor um sig kröfu um afhendingu gagna að viðlögðum 200.000 króna dagsektum og greiðslu málskostnaðar. Aðild til varnar byggist einnig á 1. mgr. 19. gr. laganna, með vísan til málsatvika en stefndu hafi byggt á því að við uppsögn á ráðningarsamningi varastefnda Deloitte ehf. við stefnendur hafi þeim borið að sæta innlausn á hlutum hjá aðalstefnda D&T sf. Eru því skilyrði til samlagsaðildar uppi varnarmegin, enda sömu atvik og aðstaða að baki málshöfðuninni. Varaaðild byggi á heimild 2. mgr. 19. gr. laganna.
Dómkröfur stefnenda byggja á 4. mgr. 114. gr. laga nr. 91/1991 þar sem kveðið sé á um heimild til að verða við kröfu um að skylda verði lögð á stefnda til annars en peningagreiðslu að viðlögðum dagsektum.
III
Málsástæður og lagarök stefndu.
Aðalkrafa stefnenda gegn aðalstefnda D&T sf.:
Sýknukrafa aðalstefnda D&T sf. er byggð á eftirfarandi málsástæðum og lagarökum.
Stefnendur eru ekki félagsmenn:
Í stefnu byggi stefnendur á því að þeir séu ennþá félagsmenn í aðalstefnda D&T sf. og að þeir eigi rétt á gögnum félagsins á grundvelli 3. mgr. 20. gr. laga um sameignarfélög. Ákvæði 3. mgr. 20. gr. laga um sameignarfélög kveði á um rétt félagsmanna til þess að fá að skoða hvers konar gögn félagsins, þar á meðal rannsaka reikninga félagsins og gögn sem tengist reikningsgerð og bókhaldi. Ákvæðið kveði þannig eingöngu á um rétt félagsmanna til að fá að skoða hvers konar gögn félagsins. Ekki komi fram í ákvæðinu að félagsmenn eigi rétt á að fá gögn afhent með neinum hætti frá sameignarfélagi. Þannig virðist þessi réttur eingöngu ná til þess að fá að skoða og kynna sér gögn félags. Þrátt fyrir þetta komi fram í stefnu að málið sé höfðað um skyldu stefndu til að afhenda upplýsingar og gögn að viðlögðum dagsektum.
Stefnendum hafi verið sagt upp störfum hjá varastefnda Deloitte ehf. 19. desember 2017 og hafi samhliða verið lýst yfir innlausn á stofnfjárhlutum þeirra í aðalstefnda D&T sf. Í kjölfar uppsagnarinnar og innlausnarinnar þá hafi þátttöku stefnenda sem félagsmanna í aðalstefnda D&T sf. lokið og séu þeir því ekki félagsmenn lengur. Sé því byggt á því að ákvæði 3. mgr. 20. gr. laga um sameignarfélög geti ekki átt við í þessu tilviki og geti stefnendur ekki byggt neinn rétt á því ákvæði. Skýrt komi fram að eingöngu sé um að ræða rétt sem félagsmenn hafi og sé ekkert svigrúm til frávika frá því í ákvæðinu.
Í málatilbúnaði stefnenda virðist byggt á því að þessi réttur geti einnig náð til fyrrverandi félagsmanna í sameignarfélagi. Þessu hafni aðalstefndi D&T sf. Ákvæðið sé skýrt um að það nái eingöngu til félagsmanna í sameignarfélagi og sé þar átt við núverandi félagsmenn. Hvorki verði ráðið af lögskýringargögnum eða orðanna hljóðan að ákvæðið geti einnig náð til fyrrverandi félagsmanna í sameignarfélagi. Þannig verði ekki séð að löggjafinn hafi ráðgert að þessi réttur næði einnig til fyrrverandi félagsmanna. Aðalstefndi D&T sf. telji þannig augljóst að ef löggjafinn hefði viljað að fyrrverandi félagsmenn ættu einhvern upplýsingarétt þá hefði það án vafa verið tekið fram og jafnframt fjallað um einhverjar takmarkanir á þeim rétti. Þannig sé augljóst að slíkur réttur hefði aldrei verið án víðtækra takmarkana enda verði að telja það óeðlilegt að fyrrverandi félagsmenn kunni að eiga jafn víðtækan upplýsingarétt og aðgengi að gögnum sameignarfélags og núverandi félagsmenn.
Aðalstefndi D&T sf. kveðst einnig byggja á því að engin heimild standi til þess að fyrrum félagsmenn þess eigi rétt á upplýsingum frá félaginu eða að aðrir félagsmenn aðalstefnda D&T sf. beri upplýsingaskyldu gagnvart stefnendum. Sé það jafnframt í samræmi við almennar reglur félagaréttar varðandi upplýsingarétt hluthafa. Þannig sé ekki gert ráð fyrir því að fyrrverandi hluthafar njóti réttar til þess að kalla eftir upplýsingum á grundvelli þess að þeir hafi eitt sinn verið hluthafar.
Jafnframt byggi aðalstefndi D&T sf. á því að lögjöfnun frá 20. gr. laga um sameignarfélög sé ekki tæk. Stefnendur hafi með engu móti gert grein fyrir því á hvaða grundvelli slík lögjöfnun sé tæk eða með hvaða hætti skilyrði lögjöfnunar séu uppfyllt. Efnisinntak ákvæðis 20. gr. laga um sameignarfélög sé mjög skýrlega afmarkað og eigi eingöngu við um félagsmenn í sameignarfélagi. Aðalstefndi D&T sf. telji því að ekki sé mögulegt að lögjafna slíku ákvæði enda hljóti að mega telja að hefði löggjafinn viljað að fyrrum félagsmenn ættu rétt til upplýsinga frá sameignarfélagi þá hefði slíkt verið tekið fram. Af þessu telji stefnendur að með gagnályktun sé hægt að slá því föstu að fyrrverandi félagsmenn í sameignarfélögum eigi engan rétt til upplýsinga á grundvelli fyrri þátttöku sinnar í slíku félagi.
Jafnframt virðist stefnendur byggja á lögjöfnun frá almennum reglum félagaréttar. Að mati aðalstefnda D&T sf. verði ekki byggt á slíkum málatilbúnaði með lögjöfnun. Ekki sé ljóst hvað átt sé við. Ef átt sé við upplýsingarétt hluthafa almennt þá liggi fyrir að slíkur réttur sæti miklum takmörkunum. Þannig sé eingöngu um að ræða rétt sem hluthafar eigi. Hvergi sé gert ráð fyrir því að fyrrverandi hluthafar geti krafist upplýsinga frá félagi á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög eða laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. Jafnframt skuli þess getið að reglur félagaréttar um upplýsingarétt hluthafa nái eingöngu til þess að upplýsingar séu lagðar fram á hluthafafundi.
Í stefnu sé jafnframt vísað til þess að almenna reglan sé sú að verðmeta skuli allar eignir félagsins við brottvikningu félagsmanns og vísi stefnendur til 5. mgr. 26. gr. laga um sameignarfélög og telji að við slíkar aðstæður gildi ákvæði 33. gr. sömu laga. Þessu mótmæli aðalstefndi D&T sf. og sé vísað til þess að í 3. gr. laga um sameignarfélög komi fram að ákvæði laganna séu frávíkjanleg ef slíkt sé sérstaklega tekið fram og jafnframt að ákvæði III. kafla um stjórnkerfi og réttarstöðu félagsmanna séu frávíkjanleg. Þannig sé gert ráð fyrir því í löggjöfinni að félagsmenn geti með samningi samið með öðrum hætti en kveðið sé á um í lögunum. Í 4. mgr. 33. gr. laga um sameignarfélög komi fram að víkja megi frá ákvæðum þeirra með samningi. Sé það í samræmi við eðli sameignarfélaga, sem byggist að meginstefnu til á samningum og samkomulagi félagsmanna.
Í 5. gr. samkomulags A-félagsmanna aðalstefnda D&T sf. hafi sérstaklega verið samið um hvert væri inn- og útgönguverð félagsmanna og með hvaða hætti staðið væri að útgöngu. Þar segi að við útgöngu skuli greiða út útgönguverð stofnverðs auk sérgreinds höfuðstóls með skuldabréfum sem bundin séu neysluverðsvísitölu. Vextir af skuldabréfi vegna útgönguverðs skuli vera 4% en vextir af skuldabréfi vegna uppgjörs á sérgreindum höfuðstól skuli vera 5%. Í báðum tilvikum skuli afborgunartími bréfanna vera tíu ár. Báðir stefnendur hafi ritað undir samkomulagið. Sambærilegar reglur eigi við í þeim samningum sem félagsmenn í aðalstefnda D&T sf., þar með talið stefnendur, hafi undirgengist 1. júní 2017.
Aðalstefndi D&T sf. bendi því á að tilvísanir stefnenda um að verðmeta skuli allar eignir félagsins við brottvikningu félagsmanns standist ekki. Jafnframt hafni aðalstefndi D&T sf. að slíkar tilvísanir geti verið grundvöllur fyrir því að fyrrverandi félagsmenn geti fengið aðgang að gögnum á grundvelli lögvarinna hagsmuna. Stefndu byggi jafnframt á því að í öllu falli geti stefnendur ekki átt rétt til aðgangs eða afhendingar gagna er snúi að persónulegum málefnum annarra félagsmanna D&T sf. og upplýsingum um viðskiptamenn stefndu. Slíkt væri brot á trúnaðarskyldum stefndu gagnvart félagsmönnum D&T sf., viðskiptavinum stefndu og þagnarskylduákvæði 30. gr. laga nr. 79/2008 um endurskoðendur.
Að auki telji stefndu að þar sem stefnendur krefjist að stórum hluta til aðgangs að eða afhendingar ótilgreindra gagna, samanber orðalagið „allra“, „gögn um“, „upplýsingar og gögn í tengslum við“, en ekki ákveðinna skjala þá sé ekki hægt að verða við kröfum stefnenda. Ekki sé hægt að fullnusta slíkt dómsorð og hvað þá að meta, að teknu tilliti til dagsektarkröfu, hvort stefndu hefðu orðið við slíkri kröfu. Sé slík krafa ekki dómtæk og beri því að sýkna stefndu.
Loks telji stefndu, á grundvelli X. kafla laga nr. 91/1991, að dómstóll hafi enga heimild til þess að skylda aðila dómsmáls til að veita „aðgang að“ eða að afhenda skjöl. Ákvæði kaflans, þá sérstaklega 67.-69. gr. og dómafordæmi, séu skýr um að engin heimild sé til slíks þegar aðilar eigi í dómsmáli.
Annar liður aðalkröfu stefnenda:
Í öðrum lið aðalkröfu stefnenda sé þess krafist að aðalstefndi D&T sf. veiti stefnendum aðgang að gögnum og upplýsingum er varði varastefnda Deloitte ehf. Þannig vísi stefnendur til þess að þeir hafi verið félagsmenn í aðalstefnda D&T sf. sem aftur sé eigandi alls hlutafjár varastefnda Deloitte ehf. Vísað sé til og byggt á sömu málsástæðum og varðandi fyrri lið aðalkröfu stefnenda. Sé áréttað að aðalstefndi D&T sf. sé ekki eigandi alls hlutafjár í varastefnda Deloitte ehf. Aðalstefndi D&T sf. hafni því að fyrrum félagsmenn þess geti átt nokkurn rétt til þess að kalla eftir upplýsingum er varði varastefnda Deloitte ehf. Engin lagarök standi til þess að félagsmenn í sameignarfélagi geti kallað eftir upplýsingum er varði dótturfélög eða önnur félög sem sameignarfélag kunni að vera hluthafi í. Það sé kveðið með skýrum hætti á um það í lögum nr. 138/1994 hver sé upplýsingaréttur hluthafa og ljóst að aðrir en hluthafar eigi engan rétt til að kalla eftir upplýsingum og gögnum frá einkahlutafélögum.
Jafnvel þótt að fallist yrði á það að stefnendur kynnu að eiga einhvern rétt á að fá aðgang að upplýsingum er varði aðalstefnda D&T sf. standi engar röksemdir til að gögn er varði varastefnda Deloitte ehf. og tilgreind séu í öðrum lið aðalkröfu stefnenda, verði afhent stefnendum eða þeim veittur aðgangur að þeim. Engin stoð finnist fyrir slíku, hvorki í lögum nr. 91/1991 né í lögum nr. 138/1994, auk þess sem ekki sé gert ráð fyrir því í lögum nr. 50/2007 um sameignarfélög að félagsmenn geti kallað eftir öðrum upplýsingum en þeim er varði félagið sjálft. Þar undir séu ekki dótturfélög eða önnur félög er sameignarfélag kunni að eiga hlutdeild í. Jafnframt sé vandséð, ef fallist yrði á kröfu stefnenda, hvernig slíkt ætti að fara fram. Ljóst sé að upplýsingaréttur hluthafa í einkahlutafélagi sé talsvert takmarkaður. Þannig sé ráðgert að hluthafi í einkahlutafélagi geti óskað eftir upplýsingum „um þau málefni sem skipta máli um mat á ársreikningi félagsins og stöðu þess að öðru leyti eða áhrif geta haft á afstöðu hluthafa til mála er ákvörðun á að taka um á fundinum“, sbr. 1. mgr. 66. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. Réttur hluthafa til upplýsinga sé þannig verulega takmarkaður og raunar takmarkast hann einnig við það að veiting slíkra upplýsinga sé ekki til tjóns fyrir félagið að mati félagsstjórnar. Það sé því ljóst að bíða yrði eftir hluthafafundi varastefnda Deloitte ehf. til að kalla eftir slíkum upplýsingum.
Fullyrðingum stefnenda um að yfir vafa sé hafið að aðalstefndi D&T sf. hafi þau gögn sem tilgreind séu í öðrum lið aðalkröfu stefnenda sé hafnað sem ósönnuðum. Vakin sé athygli á því að aðalstefndi D&T sf. sé hluthafi í varastefnda Deloitte ehf. og því ekki um sama lögaðila að ræða.
Varakrafa stefnenda gegn varastefnda Deloitte ehf.:
Varastefndi Deloitte ehf. geri þá kröfu að verða sýknaður af öllum kröfum stefnenda. Byggi varastefndi sýknukröfu sína á sömu málsástæðum og aðalstefndi D&T sf. í aðalsök eftir því sem við geti átt. Að öðru leyti byggi varastefndi Deloitte ehf. sýknukröfu sína á eftirfarandi málsástæðum og lagarökum:
Í fyrsta lagi á aðildarskorti, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991. Í málatilbúnaði stefnenda komi fram að þeir byggi kröfu sína í varasök gegn varastefnda Deloitte ehf. á „almennum reglum félagaréttar“. Jafnframt sé vísað til þess að stefnendur séu „hvoru tveggja endanlegir eigendur og launamenn“ hjá félaginu. Bent sé á hvað það varði að stefnendur séu hvorki endanlegir eigendur né launamenn hjá varastefnda. Endanlegum eigendum sé ekki veittur neinn réttur í íslenskri löggjöf sem á sé byggjandi.
Byggi varastefndi Deloitte ehf. á því að kröfum stefnenda sé ranglega beint að sér þar sem hann eigi enga aðild eða aðkomu að því hvort stefnendur kunni að eiga rétt til gagna frá aðalstefnda D&T sf. eða hvort þeir kunni að teljast félagsmenn í því félagi. Stefnendur hafi aldrei verið hluthafar í varastefnda Deloitte ehf. Samkvæmt lögum nr. 138/1994 um einkahlutafélög nái upplýsingaréttur eingöngu til hluthafa sem geti kallað eftir tilteknum upplýsingum á hluthafafundi einkahlutafélaga. Stefnendur hafi verið starfsmenn og launamenn hjá varastefnda Deloitte ehf. til 19. desember 2017 er þeim hafi verið sagt upp störfum. Enginn réttur standi til þess að fyrrum starfsmenn geti krafið vinnuveitanda um þau atriði sem fram komi í kröfugerð stefnenda. Því sé ljóst að stefnendur geti aldrei átt neinn rétt til gagna og/eða upplýsinga frá varastefnda. Jafnframt vísi varastefndi til þess að verulega skorti á rökstuðning stefnenda fyrir því hvers vegna aðilar sem hafi ekki verið hluthafar í félaginu eigi rétt á upplýsingum og gögnum. Eingöngu sé vísað til almennra reglna félagaréttar í málatilbúnaði stefnenda og því óljóst við hvað sé átt. Engin stoð verði fundin fyrir því í almennum reglum félagaréttar að fyrrum starfsmenn einkahlutafélaga geti krafist upplýsinga á slíkum grundvelli.
Í stefnu byggi stefnendur á því að þeir hafi lögvarða hagsmuni af því að fá aðgang að umbeðnum gögnum til að gæta réttar síns gagnvart varastefnda Deloitte ehf. Þessu hafni varastefndi. Stefnendur séu fyrrum starfsmenn varastefnda. Þó stefnendur kunni að hafa verið félagsmenn í aðalstefnda D&T sf. þá séu þeir hvorki né hafi verið hluthafar í varastefnda Deloitte ehf. Ekkert liggi fyrir um það að ekki hafi verið staðið réttilega að uppsögn stefnenda frá varastefnda Deloitte ehf. auk þess sem þeir hafi fengið starfstengdar greiðslur að fullu gerðar upp. Því sé hafnað kröfum þeirra um að þeir eigi sérstakra hagsmuna að gæta og eigi því að fá gögn er varði varastefnda afhent.
Að öðru leyti sé vísað til umfjöllunar að framan um upplýsingarétt hluthafa í einkahlutafélögum. Þannig sé ljóst að stefnendur geti ekki átt neinn rétt til þess að kalla eftir upplýsingum og/eða gögnum frá varastefnda Deloitte ehf. Þannig geti ekki verið til staðar lögvarðir hagsmunir fyrir stefnendur til að fá slík gögn afhent.
Hvað lagarök varðar vísa stefndu einkum til laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, laga nr. 50/2007 um sameignarfélög, laga nr. 2/1995 um hlutafélög, laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög auk almennra meginreglna félagaréttar. Krafa um málskostnað er byggð á XXI. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.
IV
Niðurstaða
Í máli þessu krefjast stefnendur þess samkvæmt aðalsök, hvor um sig, að aðalstefnda verði gert að afhenda þeim, þau gögn og upplýsingar sem tilgreindar eru í dómkröfu að viðlögðum dagsektum. Krafa stefnenda er einkum reist á 20. gr. laga nr. 50/2007 um sameignarfélög og almennum reglum félagaréttar um rétt félagsmanns til aðgangs að gögnum félags. Vísa stefnendur til þess að félagsmenn í sameignarfélagi eigi óskoraðan rétt til aðgangs að þeim gögnum og upplýsingum sem tilgreindar eru í dómkröfum. Um sé að ræða víðtækan upplýsingarétt sem sameigendum sé tryggður í 20. gr. fyrrnefndra laga sem byggi meðal annars á ábyrgð félagsmanna gagnvart félaginu, en félagsmenn beri ábyrgð á öllum skuldum félagsins, einn fyrir alla og allir fyrir einn. Þá varði gögnin stefnendur sérstaklega umfram aðra þar sem þau tengist aðdraganda uppsagnar þeirra og forsendur þess uppgjörs sem gert var við þá við uppsögn. Byggi stefnendur á því að þar sem ekki hafi verið réttilega staðið að uppsögn, innlausn og fjárhagsuppgjöri við þá, séu þeir félagsmenn í aðalstefnda D&T sf. eða hafi óumdeilanlega verið á er þeim var sagt upp. Þá vísa stefnendur til þess að þeir hafi lögvarða hagsmuni að því að fá aðgang að gögnum til að gæta réttar síns gagnvart félögunum við innlausn á hlutum þeirra en stefnendur hafi mótmælt fjárhagslegu uppgjöri á grundvelli innlausnarinnar.
Bæði aðalstefndi og varastefndi mótmæla öllum sjónarmiðum stefnenda, krefjast sýknu og byggja meðal annars á því að stefnendur séu ekki félagsmenn aðalstefnda D&T sf. Stefnendum hafi verið sagt upp störfum 19. desember 2017 og samhliða lýst yfir innlausn á stofnfjárhlutum þeirra í aðalstefnda D&T sf. Í kjölfar þess hafi lokið þátttöku stefnenda sem félagsmanna í aðalstefnanda D&T sf. og geti þeir ekki byggt á því að við eigi ákvæði 3. mgr. 20. gr. laga um sameignarfélög.
Svo sem áður er fram komið var máli þessu vísað frá dómi með úrskurði dómsins 26. júní 2019. Var úrskurðurinn felldur í gildi með úrskurði Landsréttar í málinu nr. 541/2019 og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar. Var talið að málatilbúnaður stefnenda uppfyllti skilyrði 1. og 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og þann áskilnað d. og e. liða 1. mgr. 80. gr. sömu laga um skýran og glöggan málatilbúnað og kröfur. Í nefndum úrskurði Landsréttar segir: „...til þess að staðreyna hvort staðið hafi verið rétt að starfslokum og uppgjöri sóknaraðila hafa þeir hagsmuni af því að fá aðgang að gögnum og upplýsingum um starfsemi félaganna.“ Og ennfremur segir þar: „Kröfur sóknaraðila um aðgang að gögnum hjá varnaraðilanum D&T sf. beinast meðal annars að fundargerðum stjórnar- og félagsfunda, fundarboðum, ársreikningum og gögnum um ákvörðun um úthlutun hagnaðar. Augljóst er að þessi gögn geta skipt máli við ákvörðun um það hvort réttilega var staðið að ákvörðunum um innlausn á eignarhlutum sóknaraðila og útreikningi á uppgjöri við þá. Samkvæmt þessu hafa sóknaraðilar með málatilbúnaði sínum sýnt fram á að þeir hafi hagsmuni af því að fá afhent frá aðalstefnda D&T sf. „að minnsta kosti nokkurn hluta þeirra gagna sem krafist er.“
Í málatilbúnaði stefnenda kemur fram að uppbygging félagasamstæðu D&T sf. og Deloitte ehf. sé með þeim hætti að allir uppsafnaðir sjóðir og hagnaður einkahlutafélagsins tilheyri sameignarfélaginu. Reikningsár samstæðunnar sé frá 1. júní til 31. maí. Uppgjör á milli félaganna fari þannig fram að sameignarfélagið fái allan hagnað einkahlutafélagsins sem aftur sé úthlutað til eigenda sameignarfélagsins samkvæmt fyrirfram skilgreindu reiknilíkani. Byggi þetta á rekstrarniðurstöðu ársreiknings. Hagnaði sé skipt á milli eigenda samkvæmt einingafjölda sem aftur byggi á forsendum um frammistöðu viðkomandi eigenda. Um þetta sé fjallað á félagsfundum í sameignarfélaginu. Með málssókn þessari freisti stefnendur þess að fá þær upplýsingar sem þeir þurfi á að halda vegna úthlutunar og uppgjörs til þeirra á grundvelli eignarhlutar þeirra í sameignarfélaginu í tilefni starfsloka sinna.
Dómkröfur stefnenda eiga rætur að rekja til þess að þeim var sagt upp störfum hjá varastefnda Deloitte ehf. 19. desember 2017. Var lýst yfir innlausn á hlut stefnenda í aðalstefnda D&T sf. Mótmæltu stefnendur lögmæti uppsagnarinnar og yfirlýsingar um innlausn og vísa meðal annars til þess að forstjóra varastefnda hafi skort umboð til að segja upp ráðningarsamningi þeirra við varastefnda Deloitte ehf. Þá telja stefnendur að forsendur uppgjörs séu rangar og fullyrða að töluverðar eignir hafi verið til staðar í Deloitte ehf. þegar þeim var sagt upp störfum og þeim beri réttmæt hlutdeild í þeim eignum. Einnig telja stefnendur tekjur vantaldar og tilteknir hluthafar hafi fengið ofgreitt af fjármunum félagsins sem leitt hafi til þess að stefnendur hafi fengið minna í sinn hlut.
Í 1. mgr. 20. gr. laga nr. 50/2007 um sameignarfélög segir að félagsmönnum í sameignarfélagi sé skylt að veita öðrum félagsmönnum án ástæðulauss dráttar upplýsingar sem þeir búa yfir um starfsemi félagsins. Hvílir upplýsingaskylda 1. mgr. á stjórn eða eftir atvikum framkvæmdastjóra félags, sbr. 2. mgr. Þá segir í 3. mgr. að félagsmaður geti með hæfilegum fyrirvara krafist þess að fá að skoða hvers konar gögn félags, þar á meðal að rannsaka reikninga félagsins og gögn sem tengjast reikningsgerð og bókhald. Í greininni er kveðið á um ríka upplýsingaskyldu til félagsmanna í sameignarfélagi sem skýrð er í athugasemdum með frumvarpi því er varð að fyrrgreindum lögum um sameignarfélög með vísan til ábyrgðar félagsmanna á skuldbindingum félagsins. Af því leiðir að félagsmenn eiga að meginreglu til ríkan rétt á upplýsingum um málefni félags. Þá segir einnig að það leiði af trúnaðarskyldu félagsmanna innbyrðis og gagnvart félaginu að þeim beri að eigin frumkvæði að veita öðrum félagsmönnum upplýsingar sem þeir búa yfir og hafa þýðingu fyrir starfsemi félagsins. Einnig segir í sömu athugasemdum að skyldan til að veita félagsmönnum upplýsingar sé mjög þýðingarmikil og sé staða félagsmanna í sameignarfélagi talsvert ólík stöðu hluthafa sem hvorki fari með beinar stjórnunarheimildir né bera persónulega ábyrgð á skuldbindingum hlutafélaga.
Stefnendur voru félagsmenn og áttu eignarhlut í aðalstefnda D&T sf. til ársloka 2017. Þá voru þeir starfsmenn varastefnda Deloitte ehf., dótturfélags aðalstefnda. Greinir aðila á um það hvort réttur til upplýsinga samkvæmt 20. gr. laga nr. 50/2007 sé til staðar eftir að félagsmaður gengur úr sameignarfélagi. Málatilbúnaður stefnenda er byggður á því að stefnendur séu enn félagsmenn í aðalstefnda en því hafnar aðalstefndi og bendir á að stefnendum hafi verið sagt upp störfum hjá varastefnda 19. desember 2017 og stofnfjárhlutur þeirra í aðalstefnda innleystur. Hafi þar með lokið þátttöku stefnenda sem félagsmanna í aðalstefnda.
Með fyrrnefndum úrskurði Landsréttar í málinu nr. 541/2019 var leyst úr deilu aðila með þeim orðum að „...þótt manni hafi verið tilkynnt innlausn á hlutum í sameignarfélagi hefur hann ríka hagsmuni af því að hafa aðgang að upplýsingum um hvernig staðið var að ákvörðun um þá innlausn en samkvæmt samþykktum sameignarfélagsins og samningum á milli sameigenda gilda um slíka innlausn sérstakar reglur. Þá liggur fyrir að félagsmaður ber ábyrgð á skuldbindingum sameignarfélags sem hafa orðið til áður en hann gekk úr félaginu, sbr. 3. mgr. 30. gr. laga nr. 50/2007. Upplýsingar sem tengjast ákvörðun um innlausn á eignarhlut í sameignarfélagi og efni þess uppgjörs svo og stöðu á skuldbindingum tengjast augljóslega rétti manns sem félagsmanns. Þessi réttindi til upplýsinga verða ekki skert af þeim sem stjórna félaginu eða öðrum félagsmönnum eftir að aðila hefur verið vikið úr félagi, nema sérstakar röksemdir standi til þess, svo sem samkeppnissjónarmið eða að upplýsingarnar séu augljóslega ekki tengdar þeim hagsmunum sem fyrrverandi félagsmaður hefur.“ Í úrskurði Landsréttar segir einnig að stefnendur hafi „ótvírætt lögvarða hagsmuni af því að fá aðgang að upplýsingum og gögnum frá [ ... ] D&T sf. sem varða þá hagsmuni sem um er deilt í málinu.“
Samkvæmt framangreindu liggur fyrir, að eins og háttar til í málinu, geta stefnendur reist kröfur sínar á 20. gr. laga nr. 50/2007 um sameignarfélög þrátt fyrir að vera ekki lengur félagsmenn í aðalstefnda og eiga þar með skýlausan rétt til þess að skoða gögn og upplýsingar aðalstefnda D&T sf. um hvernig staðið var að ákvörðun um innlausn á hluta þeirra, þar á meðal að rannsaka reikninga félagsins og gögn sem tengjast reikningsgerð og bókhaldi, sbr. 3. mgr. 20. gr. laganna.
Í aðalsök málsins er krafist aðgangs að tilteknum gögnum frá aðalstefnda á tilteknu tímabili 2016 - 2018 að viðlögðum 200.000 króna dagsektum.
Eins og áður hefur komið fram var stefnendum sagt upp störfum 19. desember 2017 og jafnframt lýst yfir innlausn á stofnfjárhlutum þeirra í D&T sf. Á þeim tíma voru umkrafðar upplýsingar í tengslum við stjórnarfundi, félagsfundi og nefndarfundi í sameignarfélaginu á tímabilinu 1. janúar 2016 til 30. september 2018 ekki aðgengilegar fyrir stefnendur en samkvæmt stofnsamningi fyrir D&T sf. er æðsta vald félagsins í höndum lögmætra félagsfunda félagsins. Þá voru eðli málsins samkvæmt ekki fyrirliggjandi fjárhagsupplýsingar, ársreikningar eða uppgjör á milli einkahlutafélagsins og sameignarfélagsins vegna rekstrarársins 1. júní 2017 til 31. maí 2018. Framangreindar upplýsingar verður að telja nauðsynlegar til að unnt hafi verið að gera upp við stefnendur samkvæmt þeim samningum sem giltu á milli eigenda í félögunum. Með vísan til þess sem að framan er rakið verða dómkröfur stefnenda samkvæmt fyrri hluta aðalkröfu, kröfuliðum 1 til 5 að því er varðar D&T sf., teknar til greina.
Samkvæmt kröfulið 6 í fyrri hluta aðalkröfu vegna D&T sf., krefjast stefnendur upplýsinga um stöðu á viðskiptareikningi miðað við 30. september 2018. Í stofnsamningi D&T sf., sem er meðal gagna málsins, kemur fram að aðalfundur félagsins skuli halda fyrir lok október ár hvert. Á aðalfundi skal ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til samþykktar. Þá skal tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap og um útgreiðslur til félagsmanna. Með vísan til þessa telur dómurinn að stefnendur skuli fá upplýsingar um stöðu á viðskiptareikningi eins og hún var 30. september 2018.
Í kröfulið 7 í fyrri hluta aðalkröfu vegna D&T sf. krefjast stefnendur gagna um einkunnagjöf A-eigenda, hvers um sig auk undirbúnings- og fylgigagna. Í 2. gr. samkomulags A-félagsmanna D&T sf., en stefnendur eru A-félagsmenn, kemur fram að rekstrarniðurstöðu ársreiknings skuli skipt á milli þeirra með tilteknum hætti. Framkvæmdastjóri félagsins reiknar út hagnaðarskiptinguna og gerir tillögu til stjórnar um útgreiðslu til félagsmanna. Þetta er að hluta til sá grunnur sem fjárhæð greiðslu til stefnenda skal byggja á við útgöngu þeirra úr félaginu við starfslok samkvæmt 7., sbr. 5. gr. fyrrnefnds samkomulags. Samkvæmt þessu telur dómurinn að stefnendur skuli fá umkrafðar upplýsingar frá D&T sf. samkvæmt kröfulið 7.
Með kröfulið 8 í fyrri hluta aðalkröfu vegna D&T sf., er krafist upplýsinga og gagna í tengslum við undirbúning ætlaðrar innlausnar á eignarhlutum stefnenda í aðalstefnda. Með vísan til þess sem greinir hér að framan varðandi kröfuliði 6 og 7 verður ekki séð að nokkur rök réttlæti að aðgangur stefnenda að gögnum þessum og upplýsingum verði takmarkaður. Verður því tekin til greina krafa stefnenda í aðalsök um aðgang að gögnum og upplýsingum í kröfulið 8 vegna D&T sf. Verður aðalstefnda því gert að veita stefnendum, hvorum um sig, aðgang að framangreindum gögnum og upplýsingum eins og krafist er samkvæmt kröfuliðum 1 - 8 að viðlögðum dagsektum eins og greinir í dómsorði.
Í seinni hluta aðalkröfu stefnenda er þess krafist að aðalstefndi D&T sf. veiti stefnendum aðgang að neðangreindum gögnum og upplýsingum sem varða varastefnda Deloitte ehf. Eins og fram er komið er einkahlutafélagið rekstrarfélag sameignarfélagsins og því er starfsemi félaganna samtvinnuð. Einnig hefur komið fram að uppsafnaðir sjóðir og hagnaður einkahlutafélagsins tilheyri sameignarfélaginu. Í 1. kröfulið í seinni hluta aðalkröfu krefjast stefnendur þess að D&T sf. veiti þeim afrit af fundargerðum allra funda Deloitte ehf. á tímabilinu 1. janúar 2016 til 30. september 2018. Þeir vísa til þess að ákvarðanir á stjórnarfundum Deloitte ehf. hafi bein áhrif á uppgjör við þá. Að breyttu breytanda telur dómurinn að hér eigi við sömu rök og rakin voru undir umfjöllun í fyrri hluta aðalkröfu undir kröfuliðum 1 til 5.
Í 2. lið í seinni hluta aðalkröfu krefjast stefnendur þess að fá afhentar upplýsingar og gögn vegna verksamninga og sölureikninga á árinu 2017/2018 vegna þriggja tiltekinna verkefna auk tilgreindra upplýsinga úr bókhaldi vegna þessara verkefna. Kveða stefnendur að félagsmenn D&T sf. hafi gert athugasemdir við færslu þessara verkefna í bókhald og ársreikning Deloitte ehf. Færsla verkanna hafi því haft áhrif á úthlutun til hluthafa einkahlutafélagsins. Að mati dómsins hafa stefnendur ekki heimild til að fá aðgang að eða afrit af þessum gögnum. Kemur þar tvennt til. Annars vegar að um er að ræða gögn vegna þriðju aðila en aðgangur að upplýsingum um þessa aðila verður að vera þannig að réttindi þeirra, þar á meðal með tilliti til samkeppnissjónarmiða, verði tryggð. Í öðru lagi verður að telja að færsla verkanna í bókhald Deloitte ehf. hafi sömu áhrif á alla eigendur sameignarfélagsins D&T en ekki aðeins stefnendur. Verður því ekki séð að stefnendur hafi aðra hagsmuni af því hvernig færslu verkefnanna er háttað en aðrir sameigendur D&T sf. Í 3. lið seinni hluta aðalkröfu er farið fram á aðgang að gögnum vegna styrks frá Deloitte alþjóðafélagi sem Deloitte ehf. er sagt hafa fengið greiddan í mars 2017 og gögn og upplýsingar um skuld sem færð hafi verið á móti í bókhaldi Deloitte ehf., auk fylgiskjala við færslurnar. Stefnendur rökstyðja þessa kröfu með því að skuldfærslan hafi verið algerlega órökstudd og röng að þeirra mati. Hafi þeir lögvarða hagsmuni af því að fá umrædd gögn og upplýsingar þar sem þetta hafi haft bein fjárhagsleg áhrif á stefnendur við uppgjör við útgöngu þeirra úr D&T sf. Dómurinn vísar hér til þess að umrædd skuldfærsla í bókhald Deloitte ehf. hafi haft sömu áhrif á alla eigendur D&T sf. en ekki aðeins stefnendur. Fjárhagsuppgjör við stefnendur hafi því ekki verið byggð á öðrum sjónarmiðum en útreikningar á greiðslum hagnaðarhlutdeildar til annarra eigenda sameignarfélagsins samkvæmt 2. gr. samkomulags A-félagsmanna D&T sf. Með vísan til þessa telur dómurinn að stefnendur hafi ekki hagsmuni til að fá aðgang að eða afrit af þessum gögnum.
Í 4. lið í seinni hluta aðalkröfu er krafist upplýsinga um fjárhæðir orlofsgreiðslna Deloitte ehf. til A-félagsmanna D&T sf. sem ekki hafi verið tekið tillit til sem launa í skjölum yfir verðmæti úthlutunar og hvernig nánar tilgreindar fjárhæðir hafi skipst á milli einstakra félagsmanna D&T sf. fyrir reikningsárin 2013/2014 til og með 2017/2018. Að mati stefnenda hafi þetta haft áhrif á hagnaðarskiptingu til eigenda og þannig bein fjárhagsleg áhrif á stefnendur við hagnaðarskiptingu umrædd ár. Að mati dómsins verður hér að líta til þess að stefnendum var sagt upp störfum í lok árs 2017. Ekki hefur annað komið fram en að stefnendur haft aðgang að umkröfðum upplýsingum vegna rekstraráranna 2013/2014, 2014/2015 og 2016/2017. Gera verður ráð fyrir því að þeir hafi gert þær athugasemdir sem þeir töldu efni til á þeim tíma og ágreiningur, ef einhver var, hafi komið til kasta félagsfunda eftir því sem efni stóðu til. Á hinn bóginn verður að telja að stefnendur hafi lögvarða hagsmuni af því að fá aðgang að umkröfðum gögnum vegna reikningsársins 2017/2018.
Verður aðalstefnda samkvæmt ofangreindri umfjöllun um liði 1 – 4 í seinni hluta aðalkröfu gert að afhenda stefnendum, hvorum um sig, afrit af fundargerðum allra funda Deloitte ehf. á tímabilinu 1. janúar 2016 til 30. september 2018. Þá skal aðalstefndi veita aðgang að þeim gögnum og upplýsingum sem krafist er samkvæmt kröfulið 4 að hluta til, að viðlögðum dagsektum eins og nánar greinir í dómsorði.
Af framangreindu leiðir að ekki ber nauðsyn til að fjalla um kröfu stefnenda í varasök málsins sem eru að öllu leyti þær sömu og í síðari lið dómkröfu í aðalsök.
Eftir framangreindum úrslitum málsins og með vísan til 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála verður stefndu gert að greiða stefnendum óskipt málskostnað sem þykir hæfilega ákveðinn 1.200.000 krónur til hvors þeirra um sig.
Af hálfu stefnenda flutti málið Jón Gunnar Ásbjörnsson lögmaður og Ólafur Eiríksson lögmaður fyrir stefndu.
Jón Höskuldsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan að gættu ákvæði 1. mgr. 115. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.
D ó m s o r ð
Aðalstefndi, D&T sf., skal veita stefnendum, Lárusi Finnbogasyni og Guðmundi Kjartanssyni, hvorum um sig, aðgang að eftirfarandi gögnum og upplýsingum að viðlögðum 50.000 króna dagsektum til hvors stefnanda um sig:
- Afrit af fundargerðum allra stjórnarfunda D&T sf. á tímabilinu 1. janúar 2016 til 30. september 2018.
- Afrit af fundarboðunum allra félagsfunda (meðeigendafunda) í D&T sf. á tímabilinu 1. janúar 2016 til 30. september 2018.
- Afrit allra fundargagna sem lögð voru fram til A-félagsmanna í D&T sf. fyrir eða á félagsfundum D&T sf. á árinu 2018, þar á meðal: a) Ársreikninga fyrir D&T sf. og dótturfélögin Deloitte ehf. og Blásali ehf. fyrir reikningsárið 1. júní 2017 – 31. maí 2018. b) Endanlega samþykkt skjal fyrir reikningsárið 2017/2018 yfir verðmæti hverrar úthlutaðrar einingar og hvernig einingar, verðmæti þeirra (heildar úthlutun til eigenda), laun og aðrir launaliðir, ásamt hagnaðarhlut skiptast á einstaka félagsmenn D&T sf. c) Endanlega samþykkt skjal um einingaúthlutun til einstakra A-félagsmanna fyrir reikningsárið 2018/2019. d) Upplýsingar um endanlega höfuðstólsúthlutun til B-félagsmanna fyrir reikningsárin 2016/2017 og 2017/2018.
- Afrit af fundargerðum allra félagsfunda í D&T sf. á tímabilinu 1. janúar 2016 til 30. september 2018.
- Afrit af fundargerðum allra funda nefndar um stjórn/eigendaráð (Partners Counsel) hjá D&T sf. á tímabilinu frá júní 2017 til 30. september 2018.
- Yfirlit yfir stöðu viðskiptareikninga stefnenda hjá D&T sf. miðað við 30. september 2018.
- Gögn um einkunnagjöf A-eigenda, hvers um sig, sem einingaúthlutun fyrir fjárhagsárið 2017-2018 á A-félagsmannafundi 17. ágúst 2017 var byggð á, þ.m.t. gögn um forsendur einkunnagjafar og önnur undirbúnings- og undirgögn.
- Upplýsingar og gögn í tengslum við undirbúning meintrar innlausnar á eignarhlutum stefnenda í D&T sf. Aðalstefndi, D&T sf., skal veita stefnendum, hvorum um sig, aðgang að eftirfarandi gögnum og upplýsingum að viðlögðum 50.000 króna dagsektum til hvors stefnenda um sig:
- Afrit af fundargerðum allra stjórnarfunda dótturfélagsins Deloitte ehf. á tímabilinu 1. janúar 2016 til 30. september 2018.
- Upplýsingar um fjárhæðir orlofsgreiðslna dótturfélagsins Deloitte ehf. til A- félagsmanna sem ekki var tekið tillit til sem launa í skjölum yfir verðmæti hverrar úthlutaðrar einingar og hvernig einingar, verðmæti þeirra (heildar úthlutun til eigenda), laun og aðrir launaliðir, ásamt hagnaðarhlut skiptast á einstaka félagsmenn aðalstefnda fyrir reikningsárið 2017/2018.
Aðalstefndi, D&T sf., og varastefndi, Deloitte ehf., greiði stefnendum, Lárusi Finnbogasyni og Guðmundi Kjartanssyni, óskipt 1.200.000 krónur í málskostað til hvors um sig.
Jón Höskuldsson