Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 20. febrúar 2018.
Mál nr. S-447/2017:
S-447/2017:
Ákæruvaldið
(Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Aðalheiði Huldu Jónsdóttur
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærða, sem játaði sök fyrir dómi, var dæmd í 45 daga fangelsi og svipt ökurétti ævilangt fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Mál þetta, sem var dómtekið 25. janúar 2018, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum dags. 20. nóvember 2017 á hendur ákærðu, Aðalheiði Huldu Jónsdóttur, kt. 000000-0000, [...]; ,,Fyrir eftirtalin umferðarlagabrot framin á árinu 2017, með því að hafa:
- Miðvikudaginn 15. mars, ekið bifreiðinni [...], óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna ( í blóði mældist amfetamín 325 ng/ml) um Víkurbraut við Aðalbraut og á bifreiðastæði við Aðalbraut, Grindavík.
- Laugardaginn 6. maí, ekið bifreiðinni [...], óhæf til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna ( í blóði mældist metýlfenidat 35 ng/ml og í þvagi fannst amfetamín) suður Kirkjubraut, við HVE, Akranesi, uns aksturinn var stöðvaður við Kirkjubraut 21. Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006, , sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar, sbr. 1. mgr. 101. gr. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. lög nr. 44/1993, lög nr. 57/1997 og lög nr. 69/2007.
I
Við fyrirtöku málsins 25. janúar 2018 játaði ákærða skýlaust að hafa gerst sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæru. Í ljósi játningar ákærðu ákvað aðstoðarmaður dómara að fara með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var málið tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.
II
Svo sem að framan er rakið hefur ákærða játað sök í málinu. Játning hennar samrýmist gögnum málsins að mati dómsins. Umferðarlagabrot ákærðu teljast því sönnuð og eru þau réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærða er fædd árið 1975. Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærðu tvívegis verið gerð refsing vegna brota á 45. gr. a. umferðarlaga nr. 50/1987. Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 11. september 2013 var ákærðu gert að greiða 70.000 krónur í sekt og sæta sviptingu ökuréttar í fjóra mánuði frá 11. september 2013 að telja. Þá gekkst ákærða undir sektargerð hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum 29. ágúst 2016 þess efnis að ákærða greiddi 70.000 króna sekt og sætti sviptingu ökuréttar í þrjá mánuði frá 29. ágúst 2016 að telja.
Samkvæmt framansögðu hefur ákærða því tvisvar áður brotið gegn ákvæði 45. gr. a. umferðarlaga. Samkvæmt því og að brotum ákærðu virtum þykir refsing hennar samkvæmt dómvenju réttilega ákveðin fangelsi í 45 daga.
Með vísan til framangreinds ber, í samræmi við kröfugerð ákæruvalds og með vísan til 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, að svipta ákærðu ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.
Á grundvelli sakfellingar ákærðu, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður henni gert að greiða allan sakarkostnað málsins. Ákærða dæmist því til að greiða sakarkostnað málsins, samtals 114.085 krónur.
Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð:
Ákærða, Aðalheiður Hulda Jónsdóttir, sæti fangelsi í 45 daga. Ákærða er svipt ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja. Ákærða greiði 114.085 krónur í sakarkostnað.
Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir