Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 19. september 2017.
Mál nr. S-310/2017:
S-310/2017:
Ákæruvaldið
(Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Antoni Rublev
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Játningarmál. Upptaka.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir innflutning á 348,35 grömmum af kókaíni og gert að sæta fangelsi í átta mánuði. Þá var ákærði dæmdur til að sæta upptöku á fíkniefnunum.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, höfðaði lögreglustjórinn á Suðurnesjum með ákæru, útgefinni 4. september síðastliðinn, á hendur Antoni Rublev, rússneskum ríkisborgara, fæddum [...], Kemerovo, Rússlandi.
Ákærða er gefið að sök „fíkniefnalagabrot, með því að hafa þriðjudaginn 25. júlí 2017, staðið að innflutningi á samtals 348,35 g af kókaíni, sem hafði að meðaltali 80% meðalstyrkleika, ætluðu til söludreifingar hér á landi í ágóðaskyni. Fíkniefnin flutti ákærði til landsins sem farþegi með flugi D-8566 frá Barcelona, Spáni, falin innanklæða.“
Telst háttsemi þessi varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni, með síðari breytingum, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og auglýsingu nr. 232/2001. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er gerð krafa um upptöku á framangreindum fíkniefnum. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og að gæsluvarðhaldsvist ákærða komi til frádráttar dæmdri refsivist. Þá krefst verjandi ákærða þóknunar sér til handa. Um málavexti er vísað til ákæru málsins. Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað brot sitt og var því farið með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu og eftir að sækjandi og verjandi ákærða höfðu tjáð sig stuttlega um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Sannað er með skýlausri játningu ákærða, sem er í samræmi við framlögð sakargögn, að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og er þar réttilega heimfærð til refsiákvæða. Við ákvörðun refsingar ákærða samkvæmt lögum nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni verður að leggja til grundvallar að ákærði hafi ekki verið eigandi fíkniefnanna og að hann hafi tekið að sér að flytja þau hingað til lands gegn þóknun. Að þessu virtu og með hliðsjón af dómaframkvæmd og magni og styrkleika þeirra efna sem brot ákærða tekur til þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í átta mánuði. Til frádráttar refsingunni kemur gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 26. júlí 2017 að fullri dagatölu. Með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 eru dæmd upptæk 348, 35 grömm af kókaíni. Með vísan til 1. mgr. 218. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærða gert að greiða 166.444 krónur í sakarkostnað samkvæmt yfirliti sækjanda. Þá verður ákærða að auki gert að greiða þóknun verjanda síns á rannsóknarstigi og fyrir dómi auk aksturskostnaðar, svo sem í dómsorði greinir. Við ákvörðun þóknunar hefur verið tekið tillit til virðisaukaskatts. Jón Höskuldsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Antoni Rublev, [...], sæti fangelsi í átta mánuði. Til frádráttar refsingunni kemur gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 26. júlí 2017. Ákærði sæti upptöku á 348,35 g af kókaíni. Ákærði greiði 877.648 krónur í sakarkostnað, þar af 632.400 krónur í þóknun til skipaðs verjanda síns, Jóhannesar Alberts Kristbjörnssonar hdl., og 78.624 krónur vegna aksturskostnaðar verjanda.
Jón Höskuldsson