Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 29. júní 2017.
Mál nr. S-119/2017:
Ákæruvaldið
(Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hilmari Péturssyni
Lykilorð
Brot gegn valdstjórninni. Fangelsi. Játningarmál. Skilorð.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni og dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.
„fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa laugardaginn 20. ágúst 2016 á skemmtistaðnum Paddýs að Hafnargötu 38, Reykjanesbæ, ráðist með ofbeldi á lögreglumanninn A, sem þar var við skyldustörf, tekið í hnífavesti hans og hrist hann þar til A náði að slíta hendur hans af vestinu, en ákærði greip þá aftur í vestið hans, svo harkalega að það rifnaði af honum. Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Kröfur ákærða í málinu eru þær að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa.
Ákærði kom fyrir dóm 1. júní sl. og játaði brot sitt samkvæmt ákæru héraðssaksóknara. Í ljósi þess ákvað dómari að fara með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og taka það til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.
Forsendur og niðurstaða:
Ákærði játaði brot sitt samkvæmt ákæru lögreglustjóra í þinghaldi 1. júní sl. samkvæmt áðursögðu. Játning ákærða samrýmist framlögðum gögnum og telst brot hans því sannað. Brot ákærða varðar við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, svo sem réttilega er vísað til í ákæru.
Sakaferill ákærða hefur engin áhrif á ákvörðun refsingar hans nú. Þá hefur hann játað sök án undandráttar. Samkvæmt því og að broti ákærða virtu þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Eftir atvikum þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Með vísan til sakfellingar ákærða, sbr. 1. mgr. 218. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður honum gert að greiða þóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar Óla Björgvinssonar hrl., sem eftir umfangi málsins þykir hæfilega ákveðin svo sem í dómsorði greinir, en af framlögðum gögnum verður ekki ráðið að annan sakarkostnað hafi leitt af rannsókn og rekstri málsins. Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Hilmar Pétursson, sæti fangelsi í 30 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar Óla Björgvinssonar hrl., 94.860 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum.
Kristinn Halldórsson