Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. Q-1/2017:

Q-1/2017:

Dánarbú A

(Hulda Rós Rúriksdóttir hrl)

gegn

dánarbúi B

C,

D,

E og

F

Krafa sóknaraðila um úrlausn á

ágreiningi sem reis við einkaskipti á varnaraðila, dánarbúi B, barst með bréfi,

dagsettu 30. desember 2016, sem móttekið var af dóminum 5. janúar 2017.

Sóknaraðili er dánarbú A, kt. 000000-0000,

sem var síðast til heimilis að [heimilisfang].

Varnaraðilar eru dánarbú B, kt. 000000-0000,

síðast til heimilis að [heimilisfang], C, kt. 000000-0000, [heimilisfang]., D, 000000-0000,

[heimilisfang]., E, kt. 000000-0000, [heimilisfang], og F, kt. 000000-0000, [heimilisfang].

Sóknaraðili krefst þess að við

úthlutun úr dánarbúi B, kt. 000000-0000, komi í hlut sóknaraðila, dánarbús A,

kt. 000000-0000, 7.637.822 krónur.

Þá krefst sóknaraðili

málskostnaðar að skaðlausu óskipt úr hendi varnaraðila.

Dómkröfur varnaraðila eru þær að

sú ákvörðun dánarbúsins standi, sem tekin hafi verið af öllum erfingjum þess,

að við útborgun arfsins til erfingjans A verði frádregnar 2.616.200 krónur

vegna yfirtöku hennar á útistandandi kröfu búsins og 1.000.000 króna vegna

sérstakrar óskar erfingjans um greiðslu til þriðja aðila og varðveislu á þeirri

fjárhæð og gjöf með fyrirvara.

Þá krefjast varnaraðilar

málskostnaðar úr hendi sóknaraðila.

I

B lést 30. mars 2016 og veitti sýslumaðurinn

í Reykjavík erfingjum hennar heimild til einkaskipta 26. apríl 2016. Erfingjar B

voru börn hennar, þau C, D, E, A og F.

Erfingjar B munu hafa verið

sammála um að fá endurskoðanda móður sinnar, Guðmund R. Óskarsson, til að

annast um skiptin á dánarbúinu og útbjó hann erfðafjárskýrslu og

bráðabirgðaeinkaskiptagerð. Helstu eignir búsins voru fasteign, bankainnistæður

og þá var talin á meðal eigna búsins útistandandi krafa að fjárhæð 2.616.200

krónur. Til skipta komu samtals 38.299.112 krónur. Gert var ráð fyrir að hver

og einn erfingi stæði skil á erfðafjárskatti af sínum arfshluta.

Dóttir B, A, andaðist 22. ágúst

2016. Sonur hennar og eini erfingi er G, kt. 000000-0000. Veitti sýslumaðurinn

á höfuðborgarsvæðinu honum heimild til einkaskipta á dánarbúi móður sinnar 28.

september 2016.

Einkaskiptum á dánarbúi B var

ekki lokið þegar A lést, en úthlutun arfs mun hafa farið fram að mestu leyti.

Samkvæmt úthlutunargerð var gert ráð fyrir að A tæki yfir áðurgreinda útistandi

kröfu dánarbúsins. Samkvæmt úthlutunargerðinni nam arfshlutur systkina A í

peningum 7.637.822 krónum til hvers um sig, en arfshluti A í peningum nam 5.021.622

krónum eða sem nemur mismuninum á 7.637.822 krónum og fjárhæð hinnar

útistandandi kröfu, 2.616.200 krónum.

Varnaraðilar halda því fram að A

hafi fram að andláti sínu tekið þátt í uppgjöri dánarbús móður þeirra og rætt

það ítarlega við systkini sín. Á meðal þess sem um hafi verið rætt hafi verið

útistandandi krafa dánarbúsins á hendur G, syni A, en um hafi verið að ræða

peningalán, sem B hafði veitt G í tveimur hlutum. Hafi Ar óskað sérstaklega

eftir því að við útborgun arfsins skyldi lánsfjárhæðin dregin frá greiðslu á

arfi til sín. Hafi frágangur erfðafjárskýrslu, einkaskiptagerð og úthlutun

arfsins verið í samræmi við þessa ósk hennar.

Lán þessi hafi B veitt dóttursyni

sínum, G, á árinu 2011 að hans ósk. Samkvæmt gögnum málsins tók B tvö lán hjá Gildi-lífeyrissjóði,

(Sveinn Sveinsson hrl)

Dánarbú - Úthlutun. Einkaskipti á dánarbúi.

Leyst var úr ágreiningi, sem reis við einkaskipti á dánarbúi

Krafa   sóknaraðila   um   úrlausn   á   ágreiningi   sem   reis   við   einkaskipti   á varnaraðila, dánarbúi B, barst með bréfi, dagsettu 30. desember 2016, sem móttekið var af dóminum 5. janúar 2017.

Sóknaraðili er dánarbú A, kt. 000000-0000, sem var síðast til heimilis að [heimilisfang].

Varnaraðilar   eru   dánarbú   B,   kt.   000000-0000,   síðast   til   heimilis   að [heimilisfang], C, kt. 000000-0000, [heimilisfang]., D, 000000-0000, [heimilisfang].,   E,   kt.   000000-0000,   [heimilisfang],   og   F,   kt.   000000-0000, [heimilisfang].

Sóknaraðili krefst þess að við úthlutun úr dánarbúi B, kt. 000000-0000, komi í hlut sóknaraðila, dánarbús A, kt. 000000-0000, 7.637.822 krónur.

Þá   krefst   sóknaraðili   málskostnaðar   að   skaðlausu   óskipt   úr   hendi varnaraðila.

Dómkröfur varnaraðila eru þær að sú ákvörðun dánarbúsins standi, sem tekin hafi verið af öllum erfingjum þess, að við útborgun arfsins til erfingjans A verði frádregnar 2.616.200 krónur vegna yfirtöku hennar á útistandandi kröfu búsins og 1.000.000 króna vegna sérstakrar óskar erfingjans um greiðslu til þriðja aðila og varðveislu á þeirri fjárhæð og gjöf með fyrirvara. Þá krefjast varnaraðilar málskostnaðar úr hendi sóknaraðila.

I

B lést 30. mars 2016 og veitti sýslumaðurinn í Reykjavík erfingjum hennar heimild til einkaskipta 26. apríl 2016. Erfingjar B voru börn hennar, þau C, D, E, A og F.

Erfingjar B munu hafa verið sammála um að fá endurskoðanda móður sinnar, Guðmund R. Óskarsson, til að annast um skiptin á dánarbúinu og útbjó hann erfðafjárskýrslu og bráðabirgðaeinkaskiptagerð. Helstu eignir búsins voru fasteign, bankainnistæður og þá var talin á meðal eigna búsins útistandandi krafa að fjárhæð 2.616.200 krónur. Til skipta komu samtals 38.299.112 krónur. Gert var ráð fyrir að hver og einn erfingi stæði skil á erfðafjárskatti af sínum arfshluta.

Dóttir B, A, andaðist 22. ágúst 2016. Sonur hennar og eini erfingi er G, kt. 000000-0000.   Veitti   sýslumaðurinn   á   höfuðborgarsvæðinu   honum   heimild   til einkaskipta á dánarbúi móður sinnar 28. september 2016.

Einkaskiptum á dánarbúi B var ekki lokið þegar A lést, en úthlutun arfs mun hafa farið fram að mestu leyti. Samkvæmt úthlutunargerð var gert ráð fyrir að A tæki yfir áðurgreinda útistandi kröfu dánarbúsins. Samkvæmt úthlutunargerðinni nam arfshlutur systkina A í peningum 7.637.822 krónum til hvers um sig, en arfshluti A í peningum nam 5.021.622 krónum eða sem nemur mismuninum á 7.637.822 krónum og fjárhæð hinnar útistandandi kröfu, 2.616.200 krónum.

Varnaraðilar halda því fram að A hafi fram að andláti sínu tekið þátt í uppgjöri dánarbús móður þeirra og rætt það ítarlega við systkini sín. Á meðal þess sem um hafi verið rætt hafi verið útistandandi krafa dánarbúsins á hendur G, syni A, en um hafi verið að ræða peningalán, sem B hafði veitt G í tveimur hlutum. Hafi Ar óskað sérstaklega eftir því að við útborgun arfsins skyldi lánsfjárhæðin dregin frá   greiðslu   á   arfi   til   sín.   Hafi   frágangur   erfðafjárskýrslu,   einkaskiptagerð   og úthlutun arfsins verið í samræmi við þessa ósk hennar.

Lán þessi hafi B veitt dóttursyni sínum, G, á árinu 2011 að hans ósk. Samkvæmt gögnum málsins tók B tvö lán hjá Gildi-lífeyrissjóði, þar sem hún var sjóðfélagi. Annað lánið var tekið 23. september 2011 og var að fjárhæð 1.000.000 króna og hitt sömu fjárhæðar var tekið tekið 12. október sama ár. Bæði lánin voru til 25 ára og var fasteign B, Y, sett að veði. Varnaraðilar halda því fram að ætlunin hafi verið sú að B fengi greiðsluseðlana senda mánaðarlega til sín, en að G skyldi greiða þá. Hafi B sagt tveimur barna sinna að hún geymdi greiðslukvittanir í sérstakri skúffu og í hvert skipti sem B greiddi afborgun af lánunum fengi hann kvittun úr skúffunni. Við andlát B hafi verið fjöldi kvittana í skúffunni.

Andvirði umræddra lána hafi verið lagt inn á reikning B. Í fyrra skiptið hafi lánsfjárhæðin verið færð inn á reikning G, en í síðara skiptið hafi andvirði lánsins verið tekið út af A í peningum.

Þá kveða varnaraðilar að á meðan á skiptum á dánarbúi móður þeirra stóð hafi A rætt við bróðurdóttur sína, H, um dánarbússkiptin, en þær hafi verið góðar vinkonur. Hafi A farið fram á það við H að við útborgun arfsins til hennar yrði hluta hans eða 1.000.000 króna ráðstafað inn á bankareikning í vörslum H og skyldi reikningurinn vera bundinn í þrjú ár. Hafi A viljað eiga varasjóð í vörslum Hog hafi vilji hennar staðið til þess að þessir fjármunir rynnu til H að sér látinni, þ.e. væri A ekki búin að eyða þeim áður. Hér hafi því verið um gjafagerning að ræða í lifanda lífi, sem háður hafi verið fyrirvara.

Að   sögn   varnaraðila   var   gengið   frá   greiðslum   til   allra   erfingjanna   á framangreindum forsendum og aðeins haldið eftir 600.000 krónum í búinu til að mæta ókomnum útgjöldum, svo sem skattgreiðslum. Hinn 12. júlí 2016 hafi allir erfingjarnir fengið greiddar 6.000.000 króna nema A, sem hafi fengið greiddar 3.000.000 króna inn á reikning sinn og 1.000.000 króna inn á geymslureikning hjá H. Þessar greiðslur hafi verið byggðar á samþykki allra erfingjanna. Áðurgreind útistandandi   krafa,   sem  A  hafi   óskað   eftir   að   yfirtaka,   hafi   verið   dregin   frá peningagreiðslum til hennar.

Erfðafjárskýrslan hafi síðan verið afhent sýslumanni 23. ágúst 2016. G, sonur A, hafi gert athugasemdir við uppgjör dánarbúsins og látið stöðva afgreiðslu erfðafjárskýrslunnar hjá sýslumanni.

Í kjölfarið hófust að sögn sóknaraðila samskipti hans við fyrirsvarsmann erfingja, F, og síðar lögmann varnaraðila til þess að afla nánari upplýsinga og gagna að baki ætlaðri skerðingu á arfshluta A. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir og áskoranir hafi varnaraðilar ekki fært fram nein haldbær gögn til styrktar þeirri staðhæfingu erfingja B að A hafi óskað eftir því eða unað því að arfshluti hennar yrði skertur með þeim hætti sem greinir í téðri erfðafjárskýrslu frá 28. ágúst 2016, en hún sé ekki undirrituð af hálfu A.

II

Sóknaraðili kveðst hafna þeirri fullyrðingu varnaraðila að A hafi ætlað að „taka á sig“ tvö lán, sem B heitin hafi tekið haustið 2011 hjá Gildi lífeyrissjóði, hvort að fjárhæð 1.000.000 króna. Andvirði annars lánsins, 990.000 krónum, hafi B ráðstafað til G, sonar A, en B hafi með því viljað aðstoða barnabarn sitt. Ekki liggi fyrir frekari gögn að baki þessu en útgefin veðskuldabréf og millifærslukvittun, dagsett 6. október 2011.

Þá hafi því einnig verið borið við að A hafi óskað eftir því við bróður sinn að   1.000.000   króna   af   arfshluta   hennar   eftir   móður   þeirra   yrði   ráðstafað   til bróðurdóttur hennar. Bróðir A hafi af því tilefni millifært 1.000.000 króna af sínum reikningi inn á sparnaðarreikning dóttur sinnar í júlímánuði 2016. Hann haldi því fram að þetta hafi verið gert með þessum hætti þar sem A hafi verið á sjúkrahúsi og því ekki átt heimangengt. Hafi þetta verið gert með þeim formerkjum að um eins konar varasjóð A yrði að ræða, sem geymdur yrði inni á lokaðri bók bróðurdóttur hennar, sem hún myndi síðan eignast að A látinni.

Þessum   útskýringum   að   baki   fyrirhugaðri   skerðingu   á   arfshluta  A,   nú dánarbús A, sé með öllu mótmælt af hálfu dánarbúsins. Ekkert liggi fyrir um það hvort ráðstöfunin eigi að helgast af því að A hafi í lifanda lífi afsalað sér arfi að hluta eða hafnað arfi að hluta. Þá liggi heldur ekki fyrir gögn eða upplýsingar sem renni   stoðum   undir   áðurgreindar   fullyrðingar   varnaraðila   um   millifærslu   á 1.000.000 króna af reikningi bróður A inn á reikning dóttur hans nokkrum vikum fyrir   andlát   A   og   sem   leiða   eigi   til   viðbótarskerðingar   á   arfshluta   A   sem áðurgreindri fjárhæð nemur. Sé slíkum málatilbúnaði, þótt óljós sé, vísað á bug með öllu. Frekari greiðslum til dánarbús A hafi verið hafnað af hendi samerfingja hennar. Um 600.000 krónum muni vera óráðstafað úr dánarbúinu og muni 1/5 þess renna til dánarbús A.

III

Varnaraðilar   byggja   á   því   að   áðurgreind   erfðafjárskýrsla   og   drög   að einkaskiptagerð hafi verið í samræmi við vilja allra erfingjanna. Þeir hafi setið fundi um skipti á dánarbúinu þar sem m.a. hafi verið til umræðu áðurgreind lán til G. Hafi A á fundum þessum boðist til að yfirtaka kröfu á hendur honum.

Eftir að A hafði samþykkt að taka yfir áðurgreinda útistandandi kröfu dánarbúsins á hendur G hafi bankainnistæðum dánarbúsins verið skipt á milli erfingja. Kveðast varnaraðilar vísa til þess að greiðslur til erfingja í júní og júlí sýni að greiðslur til A voru lægri en til annarra erfingja eða sem nemi fjárhæð hinnar útistandandi   kröfu.   Hafi   greiðslurnar   verið   í   samræmi   við   ákvörðun   allra erfingjanna og engar athugasemdir hafi verið gerðar við þær fyrr en sonur A hafði fengið heimild til einkaskipta á dánarbúi hennar.

Varnaraðilar halda því fram að G hafi óskað eftir því að B amma hans tæki lán hjá lífeyrissjóði sínum, sem hann myndi síðan greiða af á hverjum gjalddaga. Vísa varnaraðilar til þess að andvirði annars lánsins hafi runnið beint inn á reikning G, en andvirði hins lánsins hafi móðir hans tekið út af reikningi B í peningum. Byggja varnaraðilar á því að B, þá á níræðisaldri, hafi enga ástæðu haft til að taka lán nema til að endurlána G. Hún hafi sjálf ekki verið fjárhagslega í stakk búin til að endurgreiða lánin, enda hefði henni varla enst aldur til að endurgreiða þau, en lánin hafi verið til 25 ára. Þá benda varnaraðilar á að móðir þeirra hafi ekki haft fjárhagslegt bolmagn til að taka á sig greiðslubyrði af lánunum og vísa í því sambandi   til   framlagðrar   yfirlýsingar   endurskoðanda   hennar   til   margra   ára, Guðmundar R. Óskarssonar.

Einnig vísa varnaraðilar til framlagðrar yfirlýsingar K, vinkonu A, en þar segi m.a. eftirfarandi: „A ræddi oftsinnis við mig um lán, sem G hafði fengið hjá ömmu sinni. Hafði A miklar áhyggjur af því, að lánið þyrfti að gera upp, þegar móðir hennar félli frá. Eftir að móðir A féll frá sagði hún mér, að hún hefði ákveðið að yfirtaka kröfuna á son sinn við skipti á búi móður sinnar. Nefndi hún, að þetta væru um 2,6 milljónir króna. Þetta kom til tals nokkrum sinnum, og er ég þess fullviss, að þetta var skýlaus vilji hennar og ákvörðun.“

Halda varnaraðilar því fram að hér sé vísað til áðurgreindrar útistandandi kröfu dánarbúsins á hendur G, sem A hafi óskað eftir að yfirtaka við skiptin á dánarbúi móður þeirra. Yfirlýsing K byggi einnig undir þá fullyrðingu varnaraðila að A hafi samþykkt yfirtöku á kröfunni.

Að því er varðar greiðslu dánarbúsins á 1.000.000 króna inn á reikning H byggja varnaraðilar á því að sú greiðsla hafi verið innt af hendi með fullum vilja og að ósk A. Hafi hún lýst því yfir að hún hefði áhuga á að eiga varasjóð á reikningi sem bundinn væri til þriggja ára og væri ekki á hennar nafni. Hafi fjárhæðin verið lögð inn á sérstakan sparnaðarreikning til 36 mánaða í Íslandsbanka 12. júlí 2016 og sé fjárhæðin þar enn.

Af hálfu varnaraðila er því haldið fram að A hafi lýst því yfir að væru þessir peningar enn til þegar hún félli frá skyldu þeir renna til H. Í því sambandi vísa varnaraðilar til yfirlýsingar áðurnefndrar K þar sem segi m.a.: „Varðandi þá peninga, sem greiddir voru inn á reikning H bróðurdóttur A, þá sagði hún mér, að hún hefði ákveðið að leggja til hliðar milljón eða þar um bil sem varasjóð, sem G ætti ekki að vita um eða komast í. „Ef ég drepst má stelpan eiga þetta, af því hann er búinn að fá nóg“. Þetta voru hennar óbreyttu orð.“

Byggja varnaraðilar á því að hér hafi verið um gjafagerning í lifanda lífi að ræða, með fyrirvara.

Varnaraðilar   mótmæla   kröfufjárhæðinni   sem   sett   sé   fram   í   málinu, 7.637.822 krónum, og telja að hún fái alls ekki staðist. Ljóst sé að ef dánarbúið á ekki umrædda útistandandi kröfu lækki heildareignir búsins og greiðslur til hvers erfingja um sig lækki sem því nemi.

Til stuðnings máli sínu vísa varnaraðilar til erfðalaga nr. 8/1962 og laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda gerninga. Hvað varðar málskostnaðarkröfuna vísa varnaraðilar til 129. og 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

IV

Í máli þessu er um það deilt hvort A, sem nú er látin, hafi við skipti á dánarbúi móður sinnar yfirtekið ætlaða kröfu dánarbúsins á hendur syni sínum, G, að fjárhæð 2.616.200 krónur. Þá er um það deilt hvort vilji A hafi staðið til þess að 1.000.000   króna   af   arfshluta   hennar   í   dánarbúinu   yrði   lögð   inn   á   bundinn bankareikning á nafni bróðurdóttur hennar, H, sem hafi átt að varðveita féð og eignast það eða það sem eftir yrði af því að A látinni.

Eins og fram hefur komið lést B, kt. 000000-0000, hinn 30. mars 2016, en börn hennar og einu erfingjar voru varnaraðilar, C, D, E og F og systir þeirra A. Með beiðni, dagsettri 7. apríl 2016, sem undirrituð er af öllum systkinunum, óskuðu   þau   eftir   leyfi   sýslumannsins   á   höfuðborgarsvæðinu   til   einkaskipta   á dánarbúi móður sinnar. Með beiðninni veittu þau jafnframt systur sinni, E, „umboð til að koma fram af hálfu okkar og í nafni dánarbúsins í samskiptum við aðra, þar á meðal ráðstöfun eigna, viðtöku andvirðis þeirra og opinbera skýrslugerð og til að taka   við   tilkynningum   í   okkar   þágu   vegna   dánarbúsins.“   Sýslumaður   veitti systkinunum leyfi til einkaskipta á dánarbúinu 26. apríl 2016. Fram hefur komið að systkinin hófu strax að skipta eignum dánarbúsins og settu fasteign hinnar látnu að Y á sölu.

Samkvæmt gögnum málsins var fyrsta greiðsla vegna sölu á fasteigninni innt af hendi til dánarbúsins 15. júní 2016 og að frádregnum áðurgreindum tveimur lánum sem hvíldu á fasteigninni nam hún 1.274.026 krónum. Var þeirri fjárhæð skipt sama dag á milli allra erfingjanna að undanskilinni A, þ.e. á milli C, D, E og F og komu 318.507 krónur í hlut hvers um sig.

Fyrir   liggur   í   málinu   að   sumarið   2016   var   A   orðin   langt   leidd   af krabbameini, sem greindist fyrst á árinu 2007. Samkvæmt gögnum málsins lagðist hún inn á Landspítalann 10. júlí 2016 vegna slappleika í tengslum við sjúkdóm sinn.

Hinn   11.   júlí   2016   barst   önnur   kaupsamningsgreiðslan   vegna   sölu   á fasteigninni að Boðahlein 3, og var hún að fjárhæð 31.500.000 krónur. Daginn eftir var 28.000.000 króna skipt á milli systkinanna þannig að í hlut C, D, E og F komu 6.000.000 króna til hvers um sig, en í hlut A komu 3.000.000 króna og þá var 1.000.000 króna greidd inn á reikning H.

Hinn 4. ágúst 2017 barst dánarbúinu lokagreiðslan vegna sölu á fasteigninni að Y og var hún að fjárhæð 3.364.826 krónur. Hafði afsal þá verið gefið út vegna sölunnar.

Tæpum   þremur   vikum   síðar   eða   aðfaranótt   22.   ágúst   2016   lést  A  á Landspítalanum, en þar hafði hún legið frá 10. júlí sama ár.

Hinn 23. ágúst 2017 undirritaði E, fyrir sína hönd og annarra erfingja, erfðafjárskýrslu vegna skipta á dánarbúi B þar sem á meðal eigna búsins er talin útistandandi krafa, „ÁH-krafa“ að fjárhæð 2.616.200 krónur. Var erfðafjárskýrslan móttekin hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu 24. ágúst 2016.

Hinn 26. ágúst 2016 var 6.298.882 krónum skipt á milli erfingjanna þannig að í hlut C, D, E og F komu 1.319.315 krónur til hvers um sig, en í hlut A komu 1.021.622   krónur.   Haldið   var   eftir   í   búinu   um   700.000   krónum   til   að   mæta óvæntum útgjöldum.

Fram hefur komið að E var erlendis í fimm vikur fyrri hluta sumars 2016 og í fjarveru hennar tók F við greiðslum vegna sölu á fasteigninni að Y og voru þær lagðar inn á bankareikning á hans nafni. Þá hefur komið fram að hann sá um að skipta þeim greiðslum á milli systkina sinna. Samkvæmt gögnum málsins greiddi F 1.000.000 króna af sínum reikningi og inn á reikning dóttur sinnar, H, hinn 12. júlí 2016. Í skýrslu sinni fyrir dóminum sagðist F hafa innt þessa greiðslu af hendi að beiðni A.

Eins og áður greinir er á því byggt af hálfu varnaraðila að A heitin hafi lýst því yfir að hún vildi eiga varasjóð á reikningi sem bundinn væri til þriggja ára og væri ekki á hennar nafni. Hafi hún óskað eftir því að 1.000.000 króna af arfshluta sínum í dánarbúi móður sinnar yrði lögð inn á reikning á nafni bróðurdóttur sinnar H. Enn fremur hafi A lýst því yfir að væru þessir peningar eða hluti af þeim enn til þegar hún félli frá skyldu þeir renna til H. Óumdeilt er að 1.000.000 króna var lögð inn á bundinn reikning á nafni H 12. júlí 2016 og að sú fjárhæð er þar enn.

Varnaraðili F bar um það fyrir dóminum að A hafi sett fram áðurgreinda ósk í samtali þeirra 11. júlí 2016 eða daginn eftir að hún var lögð inn á sjúkrahús. Áður hafi A verið búin að ræða þetta við H, þ.e. að hún mætti eiga þá fjárhæð sem væri á reikningnum þegar hún félli frá, en á sama veg bar áðurgreind H.

Samkvæmt   framangreindu   er   á   því   byggt   að   um   hafi   verið   að   ræða munnlegt gjafaloforð sem ekki hafi verið ætlast til að kæmi til framkvæmdar fyrr en að A látinni. Um dánargjöf var því að ræða í skilningi 54. gr. erfðalaga nr. 8/1962,   en   samkvæmt   því   ákvæði   gilda   um   dánargjafir   sömu   reglur   og   um erfðaskrár,   sbr.   34.-53.   gr.   í   VI.   kafla   laganna.   Ljóst   er   að   áðurgreint   ætlað gjafaloforð A fullnægir ekki þeim reglum sem gilda um form erfðaskráa, sbr. 40.- 44. gr. erfðalaga. Telst því ósannað að A hafi ánafnað bróðurdóttur sinni H eftir sinn dag allt að 1.000.000 króna af arfshluta sínum í dánarbúi B.

Þá byggja varnaraðilar á því að A heitin hafi við skipti á dánarbúi móður þeirra samþykkt að taka yfir ætlaða kröfu dánarbúsins á hendur syni sínum, G, að fjárhæð 2.616.200 krónur. Kom fram í skýrslu E og F að A systir þeirra hefði tekið fullan þátt í skiptum á dánarbúi móður þeirra og að sammæli hefðu verið um allar ráðstafanir sem átt hefðu sér stað við skiptin, m.a. um sölu fasteignarinnar, skipti á innbúi og að A tæki yfir ætlaða kröfu dánarbúsins á hendur syni sínum. Enginn ágreiningur hafi því verið um skiptin á dánarbúinu. Fullyrðingar varnaraðila um að A heitin hafi tekið þátt í skiptum á dánarbúinu fær stuðning í skýrslu sonar A, G, fyrir dóminum, en hann kvaðst hafa komið tvisvar eða þrisvar sinnum að Y eftir andát ömmu sinnar til að aðstoða móður sína og færa henni flutningakassa, en þá hafi móðir hans og varnaraðilar unnið þar að skiptum á innbúinu. Einnig kvaðst hann   hafa   heyrt   móður   sína   ræða   um   búskiptin   við   systur   sína   E   þegar   sú síðarnefnda heimsótti hana á sjúkrahúsið. Þá fær sú fullyrðing varnaraðila að A hafi á einhverjum tímapunkti við skiptin á dánarbúi móður þeirra lýst yfir þeim vilja sínum að taka yfir ætlaða kröfu dánarbúsins á hendur G stoð í framburði vitnisins K, æsku- og trúnaðarvinkonu A heitinnar, en óumdeilt er að mikill samgangur var á milli þeirra.

Á hinn bóginn verður ekki fram hjá því litið að ekki hafði verið gengið frá einkaskiptagerð í dánarbúi B þegar A heitin lést, en í málinu liggja einungis fyrir óundirrituð drög að slíkri gerð. Fram hefur komið að afsal vegna sölu á fasteigninni var gefið út í lok júlí og að dánarbúinu barst uppgjörsgreiðsla vegna sölunnar 4. ágúst   2016.  Var   því   ekkert   að   vanbúnaði   að   erfingjar   gengju   frá   skriflegum samningi sín á milli um skiptin, einkaskiptagerð, þar sem tíundað yrði í einstökum atriðum hvaða eignir kæmu til skipta, hvaða skuldbindingar hvílt hafi á búinu, hvað hver erfingjanna fengi í sinn hlut við skiptin og hvaða skuldbindingar hver þeirra kynni að taka að sér, sbr. 1.-5. tölulið 1. mgr. 93. gr. laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl., en fram hefur komið að A heitin var vel áttuð andlega allt til enda, þótt líkamlegri heilsu hennar hefði hrakað mjög í lok sumars. Þar sem þau drög að einkaskiptagerð,   sem   frammi   liggja   í   málinu,   höfðu   ekki   verið   undirrituð   af erfingjum í búinu þegar A féll frá þykir skorta á sönnur þess að hún hafi samþykkt yfirtöku á ætlaðri kröfu dánarbúsins á hendur syni hennar, þ.e. að frá arfshluta hennar skyldi draga áhvílandi fasteignalán að viðbættum þeim afborgunum sem inntar höfðu verið af hendi af lánunum eða samtals 2.616.200 krónur. Þessi atriði komu   ekki   fram   í   erfðafjárskýrslu   dánarbúsins,   sem   auk   þess   var   undirrituð samkvæmt umboði eftir að A lést. Hvorki verður talið að eignir búsins hafi verið óverulegar eða að einkaskiptin hafi verið einföld með vísan til þess sem að framan greinir og verður því ekki talið að 3. mgr. 93. gr. laga nr. 20/1991 geti átt við í þessu tilviki. Samkvæmt framangreindu var einkaskiptum á dánarbúi B ekki lokið þegar A féll frá, sbr. 1. mgr. 95. gr. laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl. Með vísan til þess og alls framangreinds verður því að telja ósannað að A heitin hafi við skipti á dánarbúi móður sinnar samþykkt að yfirtaka ætlaða kröfu dánarbúsins á hendur syni sínum að áðurgreindri fjárhæð. Eins og málið liggur fyrir verður að miða við að hin ætlaða útistandandi krafa dánarbúsins hafi skipst að jöfnu á milli erfingjanna eins og aðrar eignir búsins. Þá verður eins og að framan greinir eigi lagt til grundvallar í málinu að Álfheiður heitin hafi ráðstafað allt að 1.000.000 króna til bróðurdóttur sinnar eftir sinn dag.

Með hliðsjón af öllu framangreindu er fallist á dómkröfur sóknaraðila, þ.e. að við úthlutun úr dánarbúi B komi í hlut sóknaraðila, dánarbús A, 7.637.822 krónur, þ.e. 1/5 hluti arfs í peningum, 7.114.582 krónur, og 1/5 hluti arfs í ætlaðri útistandandi kröfu, 523.240 krónur. Innbúsmunum hefur þegar verið skipt á milli erfingja og er ekki ágreiningur um að í hlut hvers erfingja hafi komið 1/5 hluti arfs í innbúi að verðmæti 22.000 krónur.

Með hliðsjón af atvikum málsins þykir rétt að hvor aðila um sig beri sinn kostnað af málinu.

Ragnheiður Bragadóttir héraðsdómari kveður upp úrskurðinn. Við uppkvaðningu úrskurðar var gætt ákvæða 1. mgr. 115. gr. laga nr. 91/1991, sbr. 2. mgr. 131. gr. laga nr. 20/1991.

Ú r s k u r ð a r o r ð :

Fallist er á kröfu sóknaraðila, dánarbús A, um að við úthlutun úr dánarbúi B, komi í hlut sóknaraðila 1/5 hluta arfs í peningum, 7.114.582 krónur, og 1/5 hluta arfs í ætlaðri útistandi kröfu, 523.240 krónur eða samtals 7.637.822 krónur. Málskostnaður fellur niður.

Ragnheiður Bragadóttir Rétt endurrit staðfestir:

Héraðsdómur Reykjaness, 22. nóvember 2017,