Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 21. desember 2016.
Mál nr. S-524/2016:
Ákæruvaldið
(Halldór Rósmundur Guðjónsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Aurel Cerri
Lykilorð
Fangelsi. Játningarmál. Skjalafals.
Útdráttur
Ákærði var dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir skjalafals.
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, var höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á Suðurnesjum 8. þessa mánaðar, á hendur Aurel Cerri, fæddum [...], albönskum ríkisborgara, „fyrir skjalafals, með því að hafa, mánudaginn 5. desember 2016, framvísað við lögreglu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Sandgerði, í blekkingarskyni, ítölsku kennivottorði nr. [...], á nafni A, fd. [...], útgáfudagur 5. ágúst 2015, sem reyndist breytifalsað, þ.e. falsað að hluta, er ákærði kom í vegabréfaskoðun vegna flugs [...] til Aberdeen, Skotlandi“ og að hafa þannig brotið gegn 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Samkvæmt ákæru er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Um málsatvik er skírskotað til ákæru.
Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað að hafa framið það brot sem honum er gefið að sök og var farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 og það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig í stuttu máli um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Sannað er með skýlausri játningu ákærða, sem er í samræmi við framlögð sakargögn, að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem saksókn á hendur honum tekur til samkvæmt framansögðu og er háttsemin réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði hefur því unnið sér til refsingar.
Ákærði hefur verið samvinnuþýður í málinu, hvort tveggja á rannsóknar stigi og fyrir dómi, og er það virt honum til málsbóta. Þá nýtur engra gagna við um að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Að þessu gættu og með hliðsjón af dómaframkvæmd þykir refsing ákærða réttilega ákveðin fangelsi í þrjátíu daga. Engan sakarkostnað leiddi af meðferð málsins. Hákon Þorsteinsson, aðstoðarmaður dómara, dæmir mál þetta.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Aurel Cerri, fæðingardagur [...], sæti fangelsi í þrjátíu daga. Hákon Þorsteinsson