Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 31. ágúst 2016.
Mál nr. S-353/2016:
Ákæruvaldið
(Jóhann Svanur Hauksson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Rebekku Rut Guðmundsdóttur
Lykilorð
Akstur án ökuréttar. Fangelsi. Játningarmál.
Útdráttur
Sakfellt fyrir umferðarlagabrot
Mál þetta, sem dómtekið var 20. október síðastliðinn, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 6. september 2016, á hendur Rebekku Rut Guðmundsdóttur, kt. [...], [...], Kópavogi, „fyrir umferðarlagabrot í Hafnarfirði með því að hafa aðfaranótt föstudagsins 25. mars 2016 ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti suður Hafnarfjarðarveg við Engidal uns aksturinn var stöðvaður. Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.“ Er þess krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Ákærða sótti þing við þingfestingu málsins, játaði sök og krafðist vægustu refsingar sem lög leyfa.
Um atvik málsins er vísað til ákæru. Ákærða hefur fyrir dómi játað brot sitt skýlaust og því var farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjandi og ákærða höfðu tjáð sig stuttlega um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Þykir sannað með játningu ákærðu, sem er í samræmi við framlögð sakargögn, að ákærða hafi gerst sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæru og er brot hennar þar rétt heimfært til refsiákvæða. Ákærða hefur því unnið sér til refsingar.
Ákærða er fædd í júlí [...] og hefur samkvæmt framlögðu sakavottorði áður gerst brotleg við refsilöggjöf, þar af þrisvar sinnum áður fyrir sams konar brot og ákærða er nú sakfelld fyrir. Með sátt hjá lögreglustjóra 10. júní 2014 samþykkti ákærða greiðslu sektar og sviptingu ökuréttar fyrir brot gegn 1., sbr. 4. mgr. 37. gr. og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga. Með dómi 5. febrúar 2015 var ákærðu gert að greiða sekt fyrir brot gegn 1. mgr. 37. gr. og 1., sbr. 4. mgr. 37. gr. og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga. Var dómurinn hegningarauki, sem og dómur 14. september 2015 þar sem ákærða var dæmd í 30 daga fangelsi fyrir brot gegn 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga og 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a umferðarlaga. Var ákærðu að auki gerð sekt og svipt ökurétti ævilangt. Loks samþykkti ákærða greiðslu sektar með sátt hjá lögreglustjóra fyrri brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
Að virtum framangreindum sakarferli ákærðu þykir refsing hennar hæfilega ákveðin fangelsi í 60 daga. Sakarkostnað leiddi ekki af málinu. Jón Höskuldsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð:
Ákærða, Rebekka Rut Guðmundsdóttir, sæti fangelsi í 60 daga.
Jón Höskuldsson