Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 19. apríl 2017.
Mál nr. S-290/2016:
Ákæruvaldið
(Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
X og
(Jón Egilsson hrl)
Svavari Þór Sverrissyni
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Sönnun. Sönnunarmat. Upptaka.
Útdráttur
Annar tveggja ákærðu sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot en hinn sýknaður þar sem sök hans þótti ekki sönnuð. Refsing ákveðin 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Mál þetta, sem dómtekið var 24. febrúar sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu 23. ágúst 2016, á hendur ákærðu X, kt. [...], nú til heimilis að [...] í [...], og Svavari Þór Sverrissyni, kt. [...], [...] í [...].
Í I. kafla ákæru er ákærðu báðum gefið að sök fíkniefnabrot með því að hafa miðvikudaginn 16. mars 2016 í [...], „í sölu og dreifingarskyni, haft í vörslum sínum 109 kannabisplöntur, 1.374,20 g af afskornum kannabisplöntum og 504,35 g af maríhúana sem lögregla fann við leit í sumarbústaðnum [...] og lagði hald á og hafa um nokkurt skeið til þess dags staðið að ræktun greindra plantna.“ Er háttsemin í ákæru talin varða við 2. gr., sbr., 5. og 6. gr. og 4. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002. Í II. kafla ákæru er ákærða Svavari Þór gefið að sök fíkniefnabrot með því að hafa miðvikudaginn 16. mars 2016 í Reykjavík „haft í vörslum sínum 2,56 g af amfetamíni og 9,80 g af maríhúana sem lögregla fann við húsleit að [...] og lagði hald á.“ Er háttsemin í ákæru talin varða við 2. gr., sbr., 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Kröfur ákæruvalds í málinu eru þær að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá verði framangreind fíkniefni, sem hald var lagt á, gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 23/2001. Enn fremur er þess krafist að ákærðu sæti upptöku samkvæmt 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 á 10 gróðurhúsalömpum, 4 viftum, 9 straumbreytum, 2 loftsíum og 6 tímarofum sem lögregla lagði hald á og að ákærði Svavar Þór verði dæmdur til að sæta upptöku á 2.170.000 krónum og 955 evrum, sem sé ætlaður ágóði af sölu og meðferð fíkniefna, samkvæmt 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 69. gr. b. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði X krefst aðallega sýknu af kröfum ákæruvalds en til vara að honum verði gerð lág sektarrefsing. Til þrautavara krefst ákærði þess að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa og að refsingin verði öll bundin skilorði. Þá krefst verjandi ákærða hæfilegrar þóknunar sér til handa sem greidd verði úr ríkissjóði.
Ákærði Svavar Þór krefst sýknu af þeim sakargiftum samkvæmt ákærulið I að hann hafi haft þar tilgreindar plöntur og fíkniefni í vörslum sínum í sölu og dreifingarskyni. Að öðru leyti krefst ákærði þess að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa. Þá krefst ákærði Svavar Þór þess að kröfum ákæruvalds um upptöku á 2.170.000 krónum og 955 evrum verði hafnað. Að endingu krefst ákærði þess að sakarkostnaður verði að hluta lagður á ríkissjóð, þar með talin hæfileg þóknun verjanda hans til handa.
I
Við leit lögreglu í sumarhúsi að [...] í [...] 16. mars 2016 kom í ljós að á neðri hæð hússins fór fram kannabisræktun og þurrkun á tilbúnum kannabisefnum. Var ræktunin á þremur stigum. Í herbergi voru ungar plöntur, græðlingar, á ganginum plöntur í ræktun og í öðru herbergi voru blómstrandi plöntur. Lögregla haldlagði kannabisplönturnar, búnað til ræktunarinnar og tilbúið efni sem var í þurrk. Enn fremur haldlagði lögregla tvær málningarfötur sem innihéldu tilbúin kannabisefni, en föturnar fundust í frystiskáp á efri hæð hússins.
Sumarhúsið að [...] var í eigu [...] sem er í eigu ákærða X. Ákærðu hafa báðir haldið því fram að ákærði Svavar Þór hafi haft sumarhúsið á leigu og hefur ákærði Svavar Þór borið að hann hafi haldið þar heimili. Báðir ákærðu voru í sumarhúsinu þegar leit lögreglu fór fram. Voru ákærðu handteknir og fluttir á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Í kjölfarið framkvæmdi lögregla húsleit á heimili ákærða X að [...] í [...] þar sem haldlagðir voru fjármunir úr peningaskáp, fartölva og bókhaldsgögn. Fjármununum var samkvæmt gögnum málsins skilað aftur til ákærða.
Hinn 17. mars 2016 tók lögregla skýrslu af ákærða X að viðstöddum verjanda. Einnig var tekin skýrsla af ákærða Svavari Þór, sem ekki óskaði eftir því að verjandi yrði viðstaddur yfirheyrsluna.
Í kjölfar skýrslutöku af ákærða Svavari Þór framkvæmdi lögregla húsleit í íbúð að [...] í [...] og lagði þar hald á 2.170.000 krónur og 955 evrur sem fundust í bakpoka í svefnherbergi íbúðarinnar. Íbúðin var í eigu [...] en það félag er í eigu ákærða X. Vísaði ákærði Svavar Þór á fjármunina og hafði í fórum sínum lykil að íbúðinni, en dóttir hans hafði íbúðina á leigu samkvæmt framlögðum leigusamningi. Lögregla haldlagði jafnframt kannabisefni, sem fundust í sama bakpoka og peningarnir, og einnig amfetamín og kannabisefni sem fundust í eldhússkáp.
Kannabisplönturnar og þau efni sem fundust í aðgerðum lögreglu voru send tæknideild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu til rannsóknar. Samkvæmt efnaskýrslu tæknideildar voru haldlagðar samtals 109 kannabisplöntur að [...], þar af 29 sem voru 2 til 11 cm á hæð og vigtuðu samtals 9,6 grömm, 40 sem voru 30 til 60 cm á hæð og vigtuðu samtals 830,80 grömm og 40 sem voru 66 til 106 cm á hæð og vigtuðu samtals 15.291,50 grömm, 1.374,20 grömm af kannabisplöntuhlutum, skunkum á stönglum, og 504,35 grömm af maríhúana. Sýnishorn kannabisplantnanna voru send Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands til nánari rannsóknar. Í matsgerð rannsóknastofunnar frá 18. apríl 2016 kemur fram að í fyrsta sýninu, fjórum grænum plöntum að þyngd 0,80 grömm, hafi þyngd sýnis eftir þurrkun verið 0,32 grömm og magn tetrahýdrókannabínóls í þurru sýni numið 25 mg/g. Kemur fram að reiknað magn tetrahýdrókannabínóls í sýninu við komu nemi 10 mg/g. Þá kemur fram að í öðru sýninu, þremur grænum plöntum að þyngd 98,5 grömm, hafi þyngd sýnis eftir þurrkun verið 20,22 grömm og magn tetrahýdrókannabínóls í þurru sýni numið 10 mg/g. Kemur fram að reiknað magn tetrahýdrókannabínóls í sýninu við komu nemi 2,1 mg/g. Í þriðja sýninu, þremur grænum blómstrandi plöntum að þyngd 1301,10 grömm, hafi þyngd sýnis eftir þurrkun verið 347,17 grömm og magn tetrahýdrókannabínóls í þurru sýni numið 49 mg/g. Kemur fram að reiknað magn tetrahýdrókannabínóls í sýninu við komu nemi 13 mg/g.
Samkvæmt efnisskýrslu tæknideildar fundust samtals 7,28 grömm af maríhúana í herbergi að [...], 2,52 grömm af sama efni í skáp í borðstofu hússins og 2,56 grömm af amfetamíni.
II
Við fyrirtöku málsins 7. október 2016 neitaði ákærði X sök hvað varðaði þá háttsemi að umrædd fíkniefni og plöntur hefðu verið í hans vörslum og ætluð til sölu og dreifingar. Ákærði sagði að einungis hefði verið fyrirhugað að hann fengi lítinn hluta umræddrar ræktunar til eigin neyslu vegna bakverkja. Hinn 7. desember sl. lagði verjandi ákærða fram greinargerð í málinu þar sem þessi afstaða ákærða var áréttuð og skýrð. Ákærði hefur þannig neitað að hafa átt umrædd fíkniefni og að hafa komið að meintri sölu eða dreifingu á þeim. Þá hafi ákærði X ekki haft vörslur efnanna, enda hafi ákærði Svavar Þór haft sumarhúsið á leigu og hann einn haft lyklavöld. Aðkoma ákærða X að málinu hafi ekki verið önnur en sú að vera hugsanlegur neytandi lítils hluta efnanna.
Við aðalmeðferð málsins kvaðst ákærði X hafa vitað af ræktun meðákærða að [...] en litið undan og í staðinn hefði meðákærði ætlað að gauka að honum 2-5 grömmum, „þannig að ég sló til“. Fram kom hjá ákærða að hann hefði glímt við mikla verki vegna brjóskloss og notað við þeim sterk verkjalyf. Læknir hefði síðan einhverju sinni bent honum á að nota „gras“ í því skyni að lina verkina.
Ákærði sagðist hafa verið staddur að [...] umræddan dag þar sem hann hefði tekið rúnt með ákærða Svavari Þór sem ætlað hefði að ná sér í föt. Kvaðst ákærði hafa komið áður að [...]. Það hefði hins vegar ekki verið oft og hefði hann ekki haft lykla að húsnæðinu á þessum tíma. Ákærði neitaði því að hafa komið að uppsetningu ræktunarinnar eða haft nokkra aðkomu að henni. Aðspurður um hvort kvittun frá [...] sem fundist hefði á heimili hans við leit væri tilkomin vegna kaupa á búnaði fyrir ræktunina svarði ákærði því til að hann teldi svo ekki vera. Hann ætti þó til að taka „eyðublöð og krota á og var ekkert að spá hvort ég hefði fundið það í rusli eða eitthvað.“ Góða fjárhagsstöðu sína sagði ákærði X tilkomna vegna fasteignaviðskipta og útleigu íbúða.
Við skýrslugjöf hjá lögreglu 17. mars 2016 kom fram hjá ákærða X að hann hefði sett upp ræktun að [...] ásamt Svavari um síðustu áramót og lýsti því að hún hefði samanstaðið af börkum, ljósum og plöntum í pottum í herbergi á neðri hæð hússins. Ákærði sagðist ekki hafa lagt til þann búnað sem notaður hefði verið við ræktunina og ekki lagt út fjármuni. Taldi ákærði búnaðinn vera úr Innigörðum. Ræktunin hefði byrjað með græðlingum og hefði meðákærði reddað þeim. Taldi ákærði að 40 til 45 plöntur hefðu verið í blómstrun en hann kvaðst ekki þekkja til fjölda plantna á gangi. Ákærði sagðist ekki hafa gert sér grein fyrir því hversu mikið hann fengi úr ræktuninni en uppskeruna hefði hann ætlað að eiga á lagar fyrir sjálfan sig. Vísaði ákærði til þess að hann væri haldinn verkjum í baki og að kannabisefni færu betur í hann en verkjalyf. Aðspurður kvaðst ákærði ekki vita hversu mikið magn af efni hefði verið í þurrk en taldi 5 plöntur hafa verið klipptar niður um tveimur til þremur dögum fyrr. Þá lýsti ákærði því að kannabisefni sem fundist hefði í íbúðinni og geymt hefði verið í fötum í frystiskáp. Taldi ákærði að um 300 grömm væri að ræða. Þetta væri gamalt efni sem meðákærði hefði átt lengi og boðið upp á. Þeir Svavar Þór hefðu ætlað að „fara að reykja þetta og njóta áður en þið komuð“. Kom fram hjá ákærða að hann hefði komið um þrisvar til fjórum sinnum upp í [...] síðasta mánuðinn.
Fyrir dómi gaf ákærði gaf þá skýringu á þessum framburði sínum hjá lögreglu að þar sem hann hefði haft vitneskju um ræktunina „og af því ég leit undan þá leit ég sem ég væri þátttakandi þannig, upplifði það þá og náttúrulega undir pressu líka.“ Sagði ákærði að hluta til ranglega eftir sér haft í skýrslu lögreglu og að hluta til hefði hann ekki gefið rétt svör. Þær upplýsingar sem hann hefði gefið lögreglu hefði hann fengið frá ákærða Svavari Þór.
III
Við fyrirtöku málsins 27. október 2016 kvaðst ákærði Svavar Þór kannast við að hafa í umræddu sumarhúsi verið með kannabisplöntur í ræktun til eigin nota. Tók ákærði þó fram að fjöldi plantnanna væri ranglega tilgreindur í ákæru. Einungis hefði verið um að ræða 45 kannabisplöntur. Ákærði viðurkenndi að hafa átt það maríhúana sem fundist hefði í húsinu, sem hann sagðist hafa ætlað til eigin nota. Þá tók ákærði fram að hann hefði átt allar þær plöntur og öll þau efni sem fundist hefðu í bústaðnum. Ákærði neitaði öðrum sökum sem á hann voru bornar. Þá mótmælti ákærði kröfu ákæruvalds um upptöku fjármuna.
Við aðalmeðferð málsins áréttaði ákærði Svavar Þór að hann hefði átt ræktunina í sumarhúsinu einn. Sumarhúsið hefði hann haft á leigu í um átta mánuði og haldið þar heimili. Kvaðst ákærði hafa verið þar staddur í umrætt skipti til að sækja sér föt og hefði meðákærði slegist í för með honum. Játaði ákærði að eiga þær kannabisplöntur sem fundust hefðu við leit lögreglu í sumarhúsinu en sagði fjölda planta í blómstrun hafa verið 45 talsins. Annað hefði verið dauðir græðlingar. Ákærði kvaðst sjálfur hafa komið upp ræktuninni en gat ekki sagt til um hvað það hefði kostað.
Ákærði játaði að eiga það maríhúana sem fundist hefði í frysti í sumarhúsinu og sagði efnið vera úr fyrri ræktun hans. Ákærði játaði einnig að hafa átt það efni sem hengt hefði verið upp í sumarhúsinu og sagði allt efnið hafa verið ætlað til eigin nota. Ákærði kvaðst hafa neytt um það bil fjögurra gramma af kannabisefnum daglega. Þá hefði hann fengið fólk í heimsókn sem fengið hefði að reykja hjá honum. Aðspurður kvað ákærði Svavar Þór meðákærða hafa átt að fá lítilræði úr þessari ræktun til verkjastillingar. Ákærði kvaðst hafa þekkt meðákærða í um 4 til 5 ár og hefði hann af og til unnið fyrir meðákærða í smíðavinnu. Síðar í framburði sínum kvaðst ákærði þó ekki hafa rætt ræktunina við ákærða X en að hann staðið í þeirri trú að meðákærði hefði haft grun um hana. Áréttaði ákærði Svavar Þór að meðákærði hefði ekki haft nokkra aðkomu að ræktuninni. Spurður út í þann framburð ákærða X fyrir lögreglu að þeir hefðu ætlað að reykja efni úr frystinum, kvað ákærði það ekki hafa verið rætt. Það gæti þó passað, sem fram hefði komið hjá X hjá lögreglu, að hann hefði boðið upp á efnin og að þeir hefðu ætlað að reykja saman.
Ákærði Svavar Þór játaði við aðalmeðferð málsins að hafa átt þau kannabisefni sem fundist hefðu í bakpoka í íbúð að [...] í [...]. Efnið sagði hann hafa verið ætlað til eigin nota. Þá kvað ákærði mjög líklegt að amfetamín sem fundist hefði í íbúðinni tilheyrði honum einnig. Ákærði neitaði því hins vegar að þeir peningar sem verið hefðu í bakpokanum, og lögregla lagði hald á, væru afrakstur fíkniefnasölu. Um væri að ræða sparnað vegna vinnu og afgangs gjaldeyri vegna utanferða. Peningana hefði hann geymt í töskunni af þeirri ástæðu að bú hans hefði verið tekið til gjaldþrotaskipta og að hann ætti því hvorki bankareikning né greiðslukort. Hann hefði því þurft að hafa peningana hjá sér eða fela þá.
Auk ákærðu gáfu skýrslu fyrir dómi lögreglumennirnir A, B og C. Þá gáfu einnig skýrslu starfsmenn tæknideildar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, D og E. Ekki þykir þörf á að rekja framburð vitnanna sérstaklega að öðru leyti en því að D og E staðfestu fjölda þeirra plantna sem haldlagðar voru í sumarhúsinu að [...] og tæknideild lögreglustjóra fékk til rannsóknar. Þá var það hald lögreglumannanna að ákærði Svavar Þór hefði haft dvalarstað að [...]. Ræktuninni að [...] lýstu lögreglumennirnir sem fagmannlegri.
IV
Í I. lið ákæru er ákærðu báðum gefið að sök að hafa haft í vörslum sínum „í sölu og dreifingarskyni“, alls 109 kannabisplöntur, 1.374,20 grömm af afskornum kannabisplöntum og 504,35 grömm af maríhúana, sem lögregla fann við leit í sumarhúsi að [...] í [...]. Ákærði Svavar Þór hefur viðurkennt að hafa átt þær plöntur og þau efni sem fundust í sumarhúsinu en neitar að hafa haft efnin í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni. Byggir ákærði Svavar Þór á því að þar sem hann sé einungis ákærður fyrir að hafa haft plönturnar og efnin undir höndum í sölu- og dreifingarskyni en ekki ákærður sérstaklega fyrir vörslur þeirra beri að sýkna hann af ákæruliðnum. Þá telur ákærði Svavar Þór fjölda plantna ranglega tilgreindan í ákæru.
Við mat á því hvort sök ákærða Svavars Þórs teljist að öllu leyti sönnuð samkvæmt ákærulið I verður að horfa til þess að ákærði hefur játað að hafa staðið að ræktun kannabisplantna í sumarhúsinu að [...]. Dómurinn telur að leggja verði til grundvallar í málinu að ákærði Svavar Þór hafi haft sumarhúsið á leigu, enda hefur ákæruvaldið ekki hnekkt framburði ákærðu í þá veru. Þá hefur ákærði Svavar Þór gengist við því að eiga allar þær plöntur og efni sem þar fundust. Með vísan til gagna málsins og framburðar A lögreglumanns og D og E, starfsmanna tæknideildar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, telst fjöldi plantna og magn efnis sem fannst í sumarhúsinu réttilega tilgreint í ákæru. Þegar horft er til umfangs ræktunarinnar og niðurstöðu matsgerðar Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands er að mati dómsins ljóst að ræktunin gat gefið af sér umtalsvert magn fíkniefna. Framburður ákærða Svavars Þórs um að hann hafi ætlað kannabisefnin til eigin nota þykir að því gættu afar ótrúverðugur. Þá bera gögn málsins og framburður lögreglumannanna A, B og C með sér að ræktunin hafi verið fagmannleg, sbr. meðal annars þann búnað sem haldlagður var, og að húsnæðið hafi að meginstefnu til verið nýtt til þess að hýsa ræktun. Samkvæmt öllu þessu telur dómurinn sannað, svo ekki verði vefengt með skynsamlegum rökum, sbr. 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, að ákærði Svavar Þór hafi haft umræddar kannabisplöntur og kannabisefni í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni. Verður ákærði því sakfelldur fyrir þá háttsemi, sem í ákæru er réttilega heimfærð til refsiákvæða.
Ákærði X neitar sök í málinu. Í skýrslu sinni fyrir dómi kvaðst hann enga aðkomu hafa haft að ræktuninni að [...]. Einungis hafi staðið til að ákærði Svavar Þór léti hann fá lítilræði af kannabisefnum til verkjastillingar. Framburður ákærða Svavars Þórs við aðalmeðferð málsins var um þetta atriði að mestu á sömu lund.
Málatilbúnaður ákæruvaldsins á hendur ákærða X hvílir að stærstum hluta á því að ákærði hafi játað sök við skýrslutöku hjá lögreglu í kjölfar húsleitar að [...] hinn 16. mars 2016. Í skýrslunni er hins vegar hvergi að finna játningu ákærða X á ræktun fíkniefna í sölu- og dreifingarskyni. Þá er í skýrslunni, eins og í framburði ákærða fyrir dómi, til þess vísað að ákærði hefði haft í hyggju að fá efni úr ræktuninni til persónulegra nota, til verkjastillingar vegna bakverkja. Þrátt fyrir þetta má samt sem áður fallast á það með ákæruvaldinu að framburður ákærða X, svo sem hann birtist í því sem bókað er eftir honum í skýrslu lögreglu, samrýmist í ýmsum atriðum ekki framburði hans fyrir dómi. Hefur ákærði gefið á þessu misræmi ákveðnar skýringar, eins og reifað er í kafla II. hér að framan.
Þrátt fyrir ofangreint misræmi í framburði ákærða X telur dómurinn ekki verða framhjá því litið að ákærði Svavar Þór hefur frá upphafi gengist við því að hafa átt þær kannabisplöntur og kannabisefni sem lögregla haldlagði í sumarhúsinu að [...]. Hefur ákærði Svavar Þór verið staðfastur í þeirri frásögn sinni að hann hafi einn staðið að ræktuninni og að ákærði X hafi enga aðkomu átt að henni.
Samkvæmt 108. gr. laga nr. 88/2008 hvílir sönnunarbyrði um sekt ákærða og atvik, sem telja má honum í óhag, á ákæruvaldinu. Að gættri þessari grundvallarreglu sakamálaréttarfars þykir að virtum stöðugum framburði meðákærða Svavars Þórs og þeim gögnum sem frammi liggja í málinu ekki verða slegið föstu gegn neitun ákærða X, svo ekki verði vefengt með skynsamlegum rökum, sbr. 1. mgr. 109. gr. laga nr. 88/2008, að ákærði X hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákærulið I. Samkvæmt því og þar sem ekki kom til þess að ákærði X fengi í sínar vörslur til eigin nota efni úr ræktun meðákærða þykir ekki annað fært en sýkna ákærða X af öllum kröfum ákæruvalds í málinu.
Í II. kafla ákæru er ákærða Svavari Þór gefið að sök að hafa miðvikudaginn 16. mars 2016 í Reykjavík haft í vörslum sínum 2,56 grömm af amfetamíni og 9,80 grömm af maríhúana sem lögregla haldlagði við leit að [...] í [...].
Ákærði Svavar Þór játaði fyrir dómi að hafa átt það maríhúana sem fannst í bakpoka í herbergi í íbúðinni að [...]. Þá sagði ákærði það amfetamín sem fannst í íbúðinni „mjög líklega“ vera frá honum komið og upplýsti að það hefði fundist í skáp fyrir ofan ísskáp í íbúðinni. Fyrir liggur að á sama stað fundust 2,52 grömm af fyrrnefndum 9,80 grömmum af maríhúana.
Dómurinn telur í ljós leitt að ákærði hafi haft aðgang að umræddri íbúð og að hann hafi haft þar dvalarstað. Samkvæmt því og að öllu framangreindu virtu þykir komin fram lögfull sönnun þess að ákærði hafi haft öll umrædd fíkniefni í vörslum sínum. Ráða má af gögnum málsins að fíkniefnin hafi verið haldlögð 17. mars 2016 en ekki 16. mars 2016. Verður ákærði allt að einu sakfelldur fyrir brotið, enda hefur vörn hans ekki verið áfátt vegna þessarar misritunar í ákæru, sbr. ákvæði 2. málsliðar 1. mgr. 180. gr. laga nr. 88/2008, og er brotið réttilega heimfært til refsiákvæða í ákæru.
V
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins var ákærði Svavar Þór með dómi Héraðsdóms Reykjaness 16. júlí 2013 dæmdur í 90 daga fangelsi fyrir fíkniefnabrot, en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Verður til þessa litið við ákvörðun refsingar ákærða, sbr. 5. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Til málsbóta horfir hins vegar fyrir að ákærða að hann játaði sök í málinu að verulegu leyti, sbr. 8. tölulið 1. mgr. 70. gr. sömu laga. Samkvæmt þessu og að brotum ákærða virtum þykir refsing hans hæfilega ákveðin samkvæmt 77. gr. laganna 12 mánaða fangelsi. Eftir atvikum og þar sem ákærði stóðst skilorð samkvæmt fyrrnefndum dómi Héraðsdóms Reykjaness þykir mega fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
VI
Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilgreindra lagaákvæða í ákæru verða gerðar upptækar 109 kannabisplöntur, 1.374,20 grömm af afskornum kannabisplöntum, 514,15 grömm af maríhúana, 2,56 grömm af amfetamíni, 10 gróðurhúsalampar, 4 viftur, 9 straumbreytar, 2 loftsíur og 6 tímarofar sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
Í ákæru er þess einnig krafist að ákærði Svavar Þór sæti upptöku á 2.170.000 krónum og 955 evrum sem ákæruvaldið segir vera ætlaðan ágóða af sölu og meðferð fíkniefna. Ákærði hefur fyrir dómi gefið ákveðnar skýringar á því hvernig þessir fjármunir eru til komnir. Þá var það magn maríhúana sem fannst í sömu tösku og fjármunirnir ekki umfram neysluskammta fyrir ákærða sjálfan. Einnig er til þess að líta að í fórum ákærða fundust engir munir eða gögn sem benda sérstaklega til þess að ræktun ákærða hafi verið komin að einhverju leyti í sölu þegar lögregla stöðvaði hana. Að öllu þessu gættu þykir ákæruvaldinu ekki hafa tekist að sanna að umræddir fjármunirnir séu ávinningur af sölu fíkniefna. Kröfu ákæruvalds um upptöku þeirra verður því hafnað.
Samkvæmt úrslitum málsins, sbr. 1. mgr. 218. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður ákærða Svavari Þór gert greiða sakarkostnað samkvæmt framlögðu yfirliti lögreglustjóra, samtals 265.561 krónu. Ákærði greiði einnig þóknun skipaðs verjanda síns í málinu, Jóhannesar Alberts Kristbjörnssonar hdl., sem hæfilega þykir ákveðin með þeim hætti sem í dómsorði greinir.
Með sömu rökum og að ofan greinir greiðist þóknun skipaðs verjanda ákærða X, Jóns Egilssonar hrl., úr ríkissjóði, en þóknunin þykir að teknu tilliti til tímaskýrslu verjanda hæfilega ákveðin með þeim hætti sem í dómsorði greinir.
Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari. Fyrir uppsögu dómsins var gætt 1. mgr. 184. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði X skal sýkn af öllum kröfum ákæruvalds í málinu.
Ákærði Svavar Þór Sverrisson sæti fangelsi í 12 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Kröfu ákæruvalds um upptöku á 2.170.000 krónum og 955 evrum er hafnað.
Ákærði Svavar Þór Sverrisson sæti upptöku á 109 kannabisplöntum, 1.374,20 grömmum af afskornum kannabisplöntum, 514,15 grömmum af maríhúana, 2,56 grömmum af amfetamíni, 10 gróðurhúsalömpum, 4 viftum, 9 straumbreytum, 2 loftsíum og 6 tímarofum.
Þóknun skipaðs verjanda ákærða X, Jóns Egilssonar hrl., 758.880 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum, greiðist úr ríkissjóði.
Ákærði Svavar Þór Sverrisson greiði 927.185 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda síns, Jóhannesar Alberts Kristbjörnssonar hdl., 604.500 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum, og ferðarkostnað verjandans, 57.124 krónur.
Kristinn Halldórsson Rétt endurrit staðfestir Héraðsdómur Reykjaness 19. apríl 2017.