Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 7. nóvember 2016.
Mál nr. S-153/2016:
S-153/2016:
Ákæruvaldið
(Ólafur Hallgrímsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Aðalgeiri Georg Daða Johansen og
(Rútur Örn Birgisson hdl)
Kristni V. Johansen
Lykilorð
Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing. Skilorð.
Útdráttur
Stjórnarmaður og framkvæmdastjóri og daglegur stjórnandi einkahlutafélags voru sakfelldir fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum í rekstri félagsins og dæmdir til að sæta fangelsi sem var skilorðsbundið. Þá vorui þeir einnig dæmdir til að greiða sekt til ríkissjóðs.
Mál þetta, sem dómtekið var 10. október síðastliðinn, er höfðað með ákæru héraðssaksóknara, útgefinni 19. apríl 2016, á hendur Aðalgeiri Georg Daða Johansen, kt. [...], [...],[...], og Kristni V. Johansen, kt. [...], [...], [...], „fyrir meiri háttar brot gegn skattalögum í rekstri einkahlutafélagsins Kóngsklöpp, kt. [...], á hendur ákærða Kristni sem framkvæmdastjóra og aðalmanni í stjórn, og á hendur ákærða Aðalgeiri sem daglegum stjórnanda, með því að hafa:
- Eigi staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskattsskýrslum einkahlutafélagsins á lögmæltum tíma vegna uppgjörstímabilanna júlí – ágúst rekstrarárið 2013 til og með september – október rekstrarárið 2014 og hafa eigi staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti sem innheimtur var í rekstri einkahlutafélagsins vegna sömu uppgjörstímabila í samræmi við fyrirmæli IX. kafla laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, samtals að fjárhæð kr. 7.382.183 sem sundurliðast sem hér greinir:
Vangoldinn
VSK
Árið 2013 júlí - ágúst kr. 1.009.164
| september – október | kr. | 986.916 |
| nóvember – desember kr. | 1.148.715 | |
| Samtals Árið 2014 | kr. | 3.144.795 |
| janúar - febrúar | kr. | 1.097.106 |
| mars - apríl | kr. | 711.640 |
| maí - júní | kr. | 678.207 |
| júlí - ágúst | kr. | 724.298 |
| september – október | kr. | 1.026.137 |
Samtals kr. 4.237.388 Samtals alls: kr. 7.382.183
- Eigi staðið ríkissjóði skil á skilagreinum einkahlutafélagsins vegna staðgreiðslu opinberra gjalda á lögmæltum tíma vegna greiðslutímabilanna frá og með september rekstrarárið 2013 til og með nóvember rekstrarárið 2014 og hafa eigi staðið ríkissjóði skil á staðgreiðslu opinberra gjalda, sem haldið var eftir af launum starfsmanna einkahlutafélagsins vegna sömu greiðslutímabila í samræmi við fyrirmæli III. kafla laga um staðgreiðslu opinberra gjalda nr. 45/1987, samtals að fjárhæð kr. 5.195.055 hvað varðar ákærða Aðalgeir og kr. 4.8816.195 hvað varðar ákærða Kristin, sem sundurliðast sem hér greinir:
Vangoldin staðgreiðsla
Aðalgeir
Vangoldin staðgreiðsla
Kristinn
Árið 2013 september kr. 396.259 kr. 399.600
| október | kr. | 430.605 | kr. | 433.946 |
| nóvember | kr. | 387.668 | kr. | 391.009 |
| desember | kr. | 507.134 | kr. | 510.475 |
| kr. | 1.721.666 | kr. | 1.735.030 | |
| febrúar | kr. | 308.570 | kr. | 252.538 |
| mars | kr. | 305.338 | kr. | 249.306 |
| apríl | kr. | 328.629 | kr. | 272.597 |
| maí | kr. | 401.020 | kr. | 344.988 |
| júní | kr. | 385.125 | kr. | 329.093 |
| júlí | kr. | 239.994 | kr. | 183.962 |
| ágúst | kr. | 183.465 | kr. | 127.433 |
| september | kr. | 160.693 | kr. | 160.693 |
| október | kr. | 349.274 | kr. | 349.274 |
| nóvember | kr. | 266.674 | 266.674 | |
| kr. | 3.473.389 | kr. | 3.081.165 | |
| Samtals alls: | kr. | 5.195.055 | kr. | 4.816.195 |
Árið 2014 janúar kr. 544.607 kr. 544.607 Framangreind brot ákærðu teljast varða við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 39/1995, sbr. einnig:
a) 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, sbr. 3. gr. laga nr. 42/1995 og 3. gr. laga nr. 134/2005, að því er varðar 1. tölulið ákæru.
b) 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 2. gr. laga nr. 42/1995 og 1. gr. laga nr. 134/2005, að því er varðar 2. tölulið ákæru.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Ákærði Aðalgeir Georg Daði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa. Verjandi ákærða krefst þóknunar sér til handa sem greidd verði úr ríkissjóði.
Ákærði Kristinn gerir þá kröfu að I. kafla ákærunnar verði vísað frá dómi. Að öðru leyti er þess krafist að ákærði verði sýknaður af kröfum ákæruvaldsins, en til vara að hann verði dæmdur til vægustu refsingar sem lög leyfa. Verjandi ákærða krefst þóknunar og að allur sakarkostnaður verði lagður á ríkissjóð.
I
Ákæra í málinu er byggð á lögreglurannsókn sem fram fór á grundvelli bréfs skattrannsóknarstjóra ríkisins til héraðssaksóknara 5. febrúar 2016 og þeirra rannsóknargagna sem því fylgdu.
Ákærði Aðalgeir Georg Daði hefur skýlaust játað að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru.
Ákærði Kristinn neitar sök. Byggist málsvörn hans einkum á því að hann hafi ekki haft nein afskipti af rekstri einkahlutafélagsins Kóngsklappar og skattskilum þess, heldur hafi hann aðeins verið skráður sem framkvæmdastjóri félagsins og stjórnarmaður að nafninu til. Hafi hann ekki í reynd sinnt störfum sem framkvæmdastjóri og verið óvirkur stjórnarmaður, en rekstur félagsins hafi að öllu leyti verið í höndum meðákærða svo sem fram komi í gögnum málsins. Hafi meðákærði séð um að skila skýrslum um virðisaukaskatt og skilagreinum vegna staðgreiðslu opinberra gjalda og annast greiðslur gjaldanna.
II
Ákærðu gáfu báðir skýrslu fyrir dómi við aðalmeðferð málsins. Í skýrslu ákærða Kristins kom fram að hann hefði séð um verklegan þátt í starfsemi félagsins. Hann væri menntaður netagerðarmaður og hefði unnið við það. Hann hafi verið skráður framkvæmdastjóri og aðalmaður í stjórn til að redda meðákærða. Kvaðst ákærði ekki vilja breyta neinu af því sem haft væri eftir honum í skýrslum lögreglu og skattrannsóknarstjóra. Aðkoma hans að fjármálum og framkvæmdastjórn Kóngsklappar ehf. hefði engin verið. Hann hefði ekki gert sér grein fyrir lögboðnum skyldum sem því fylgdi að vera framkvæmdastjóri og aðalmaður í stjórn. Aðspurður kvaðst ákærði ekki hafa haft nein áhrif á það hvaða reikningar voru greiddir. Þá hafi hann ekki aflað sér neinna upplýsinga um stöðu félagsins og hvorki hafa þekkingu né reynslu af rekstri félaga. Í skýrslu ákærða Aðalgeirs Georgs Daða kom fram að hann hefði gefið fulltrúa sýslumanns fyrirmæli um það að innborganir Kóngsklappar ehf. ættu að fara inn á staðgreiðslu opinberra gjalda og virðisaukaskatts, en það hefði ekki verið gert. Þá kom fram í framburði hans að meðákærði Kristinn hefði ekki haft neina aðkomu að fjármálum félagsins.
III
Með játningu ákærða Aðalgeirs Georgs Daða, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, hafa verið færðar viðhlítandi sönnur fyrir sakargiftum á hendur honum samkvæmt ákæru. Fram er komið að ákærði Kristinn V. Johansen var skráður framkvæmdastjóri og stjórnarmaður Kóngsklappar ehf. þann tíma sem ákæra málsins tekur til. Stjórnarmenn einkahlutafélags bera almennt ábyrgð á því að skipulag þess og starfsemi sé jafnan í réttu og góðu horfi, sbr. 1. og 3. mgr. 44. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. Þar á meðal ber þeim að sjá til þess að nægilegt eftirlit sé haft með bókhaldi og meðferð fjármuna félags. Framkvæmdastjóri einkahlutafélags ber einnig ábyrgð samkvæmt 44. gr. laganna, og skal hann meðal annars annast daglegan rekstur og sjá um að bókhald sé fært í samræmi við lög og venjur og að meðferð eigna félags sé með tryggilegum hætti.
Ekki er ástæða til að draga í efa framburð ákærða Kristins um að hann hafi í reynd ekki komið að rekstri félagsins þrátt fyrir að hafa verið skráður framkvæmdastjóri þess og stjórnarmaður, en sá framburður hans fær stuðning í framburði meðákærða Aðalgeirs Georgs Daða. Í tilviki Kristins verður þó ekki litið fram hjá þeim skyldum sem að lögum hvíla á skráðum framkvæmdastjóra einkahlutafélags og áður er gerð grein fyrir. Samkvæmt því og með hliðsjón af dómum Hæstaréttar Íslands í málunum nr. 413/2011 og 284/2012 er við það miðað að ákærðu hafi sameiginlega borið ábyrgð á þeim brotum í starfsemi umrædds félags sem lýst er í ákæru. Sjónarmið ákærða Kristins um að I. kafla ákærunnar verði vísað frá dómi að því er hann varðar eru byggð á því að ekki hafi verið tekið tillit til tapaðra krafna einkahlutafélagsins sem breytt hefðu stofni virðisaukaskattsskuldar félagsins. Þessi sjónarmið eru ekki studd sönnunargögnum. Þvert á móti kemur fram í tölvubréfi skiptastjóra þrotabús Kóngsklappar ehf. til lögreglu 14. mars 2016 að engar vísbendingar hafi komið fram við skiptin um að félagið ætti útistandandi kröfur sem þyrfti að innheimta. Eru því engin efni til að fallast á það með ákærða Kristni að vísa eigi frá dómi I. kafla ákærunnar að því er hann varðar. Að þessu fráteknu lúta varnir ákærðu í málinu í engu að tölulegum grundvelli þess.
Brot ákærðu eru réttilega heimfærð í ákæru til 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, með áorðnum breytingum. Sektir í málum af þeim toga sem hér um ræðir eru bundnar lögbundnu lágmarki, sbr. 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda. Er hið lögbundna lágmark tvöföldun þeirrar skattfjárhæðar sem greiðsla er vanrækt á. Þá eiga undanþáguákvæði frá fésektarlágmarki 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 og 2. mgr. 30. gr. laga nr. 45/1987 í engu við um þau vanskil á virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinberra gjalda sem ákært er fyrir. Að því virtu verða brot ákærðu talin meiri háttar og varða þannig einnig við 1. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
IV
Ákærði Kristinn hefur ekki áður sætt refsingu. Þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði. Rétt þykir að fresta fullnustu þessarar refsingar ákærða og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi hann almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Þá verður honum að auki gert að greiða sekt til ríkissjóðs, sem þykir, með vísan til þess sem áður er rakið um vanskil á greiðslu virðisaukaskatts og staðgreiðslu opinberra gjalda, hæfilega ákveðin 17.000.000 króna, en um vararefsingu fer samkvæmt því sem í dómsorði greinir. Ákærði Aðalgeir Georg Daði Johansen hefur tvívegis hlotið dóm fyrir sambærileg brot, síðast 30. júní 2010. Var ákærði þá dæmdur í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Þykir refsing hans í ljósi atvika hæfilega ákveðin fangelsi í sex mánuði, en rétt þykir að fresta fullnustu þeirrar refsingar og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Þá verður ákærða að auki gert að greiða sekt til ríkissjóðs, sem þykir með vísan til þess sem áður er rakið um vanskil á greiðslu virðisaukaskatts og staðgreiðslu opinberra gjalda, hæfilega ákveðin 18.000.000 króna, en um vararefsingu fer samkvæmt því sem í dómsorði greinir.
Ákærðu verður gert að greiða málsvarnarlaun skipaðra verjenda sinna, sem ákveðin eru að meðtöldum virðisaukaskatti eins og greinir í dómsorði. Ekki verður séð að annar sakarkostnaður hafi fallið til vegna málsins. Dóm þennan kveður upp Jón Höskuldsson héraðsdómari.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Aðalgeir Georg Daði Johansen, sæti fangelsi í sex mánuði. Fresta skal fullnustu þeirrar refsingar og hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði greiði 18.000.000 króna í sekt til ríkissjóðs. Verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins skal ákærði í hennar stað sæta fangelsi í 180 daga.
Ákærði, Kristinn V. Johansen, sæti fangelsi í fimm mánuði. Fresta skal fullnustu þeirrar refsingar og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærði greiði 17.000.000 króna í sekt til ríkissjóðs. Verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins skal ákærði í hennar stað sæta fangelsi í 170 daga. Ákærði Aðalgeir Georg Daði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Rúts Arnar Birgissonar héraðsdómslögmanns, 613.800 krónur. Ákærði Kristinn greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Sigurðar Freys Sigurðssonar héraðsdómslögmanns, 715.100 krónur.
Jón Höskuldsson