Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 23. mars 2015.
Mál nr. S-42/2015:
Ákæruvaldið
(Guðrún Sveinsdóttir aðstoðarsaksóknari)
gegn
Benedikt Bragasyni
(Guðmundur St. Ragnarsson hdl)
Lykilorð
Brot gegn valdstjórninni. Fangelsi. Reynslulausn.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn valdstjórninni.
Mál þetta, sem var þingfest 23. febrúar 2015 en dómtekið 16. mars 2015, er höfðað með ákæru Ríkissaksóknara, útgefinni 12. janúar 2015, gegn Benedikt Bragasyni, kennitala 000000-0000, Kirkjuvöllum 7, Hafnarfirði, „fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að hafa, laugardaginn 16. nóvember 2013, í kjölfar þess að ákærði var handtekinn og færður í lögreglubifreið við Frakkastíg í Reykjavík, hótað lögreglumanninum A, líkamsmeiðingum með því að segja; „ég skal brjóta á þér andlitið“, auk þess að hafa skömmu síðar, á leið að lögreglustöðinni við Hverfisgötu, ítrekað hótað lögreglumönnunum B, A og C lífláti.“
Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað brot sitt. Farið var með málið samkvæmt ákvæðum 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda ákærða, hafði verið gefinn kostur á því að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun refsingar. Ákærði krafðist vægustu refsingar. Hafi hann játað háttsemi sína bæði fyrir lögreglu og fyrir dómi auk þess sem hann lýsti því fyrir dóminum að hann sæi eftir háttsemi sinni. Þá lagði ákærði fram læknisvottorð þar sem fram kom að ákærði ætti við áfengissjúkdóm að stríða og í tengslum við þann sjúkdóm brygðist hann stundum við áreiti með ofsareiði, sem væri ekki í eðli hans. Sé hann nú að reyna að ná stjórn á sjúkdómi sínum með stuðningi AA-samtakanna og sé nú fyrst sjálfur orðinn meðvitaður um þann sjúkdóm. Einnig var lagt fram vottorð frá trúnaðarmanni ákærða þar sem fram kemur að ákærði sé nú í 12 spora kerfi AA-samtakanna og hafi sýnt mikinn dugnað í þeirri vinnu að halda sjúkdóminum niðri. Þá var upplýst fyrir dómi að ákærði væri með vilyrði frá VIRK-endurhæfingu um þátttöku hjá þeim.
Játning ákærða er í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann því sakfelldur fyrir brot sín. Háttsemin er í ákæru réttilega færð til refsiákvæða.
Ákærði er fæddur í ágúst árið 1970. Samkvæmt sakavottorði ákærða hefur honum 13 sinnum verið gerð refsing frá árinu 1998. Þau brot sem áhrif hafa á refsingu ákærða nú, er dómur 8. október 2010 frá Salzburg í Austurríki, þar sem ákærði var dæmdur í skilorðsbundna refsingu til fimm ára, fyrir tilraun til mótspyrnu gegn valdstjórninni. Í dómi Hæstaréttar frá 15. desember 2011 var ákærði var dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir brot gegn ýmsum ákvæðum umferðarlaga auk þess sem dómur Héraðsdóms Reykjaness frá 12. desember 2008 var dæmdur upp vegna skilorðsrofs, en í þeim dómi hafði ákærði verið dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir brot gegn ákvæðum 173. gr. a almennra hegningarlaga og ákvæðum vopnalaga. Ákærða var veitt reynslulausn á eftirstöðvum þeirrar refsingar eða 225 daga. Ákærði hefur með broti sínu nú, rofið þá reynslulausn. Ber að taka upp nefnda 225 daga, sbr. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 49/2005 um fullnustu refsinga, og ákveða refsingu í einu lagi fyrir brot þau, sem nú er dæmt um og með hliðsjón af þeirri fangelsisrefsingu sem óafplánuð er, samkvæmt reglum 60. gr. almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar verður litið til þess að ákærði játaði brot sitt greiðlega og lýsti yfir eftirsjá. Þá lagði ákærði fram vottorð þess efnis að hann væri að reyna að ná stjórn á áfengissjúkdómi sínum. Að þessu virtu og með hliðsjón af 77. gr. sömu laga, er refsing ákærða ákveðin fangelsi í 10 mánuði. Ekki eru efni til að skilorðsbinda refsinguna.
Með vísan til 1. mgr. 218. gr. laga um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til að greiða þóknun skipaðs verjanda síns, sem ákveðin er að meðtöldum virðisaukaskatti eins og í dómsorði greinir. Annan sakarkostnað leiddi ekki af meðferð málsins.
Bogi Hjálmtýsson, héraðsdómari dæmir mál þetta.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Benedikt Bragason, sæti fangelsi í 10 mánuði.
Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar héraðsdómslögmanns, 140.000 krónur.
Bogi Hjálmtýsson