Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-8/2014:

Ár

2014, fimmtudaginn 9. október, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjaness, sem háð er

Ákæruvaldið

(Karl Ingi Vilbergsson ftr)

gegn

Önnu

Maríu Lind Geirsdóttur

svohljóðandi

Mál

þetta, sem þingfest var 28. janúar 2014 og dómtekið 12. september sl., var

höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri

21. desember 2013, á hendur Önnu Maríu Lind Geirsdóttur, kt. 000000-0000,

Rauðagerði 50, Reykjavík, fyrir brot gegn lögreglulögum, með því að hafa

mánudaginn 21. október 2013, um kl. 13:02, í Garðahrauni í Garðabæ, neitað að

hlýða ítrekuðum fyrirmælum lögreglu um að flytja sig um set, en ákærða var

stödd á vinnusvæði, þar sem unnið var að lagningu nýs Álftanesvegar, rétt

norðnorðvestan við Garðastekk. Telst brotið varða við 19. gr., sbr. 41. gr.,

lögreglulaga nr. 90/1996. Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og

til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Ákærða mætti við

þingfestingu málsins þann 28. janúar sl. og neitaði sök. Skilaði ákærða

greinargerð þann 24. febrúar sl. og krafðist þá þess að málinu yrði vísað frá

dómi en til vara sýknu. Þá krafðist ákærða þess að sækjandi málsins, Karl Ingi

6. gr., laga nr. 88/2008, en ákærða hygðist leiða sækjanda sem vitni í

væntanlegri aðalmeðferð málsins. Fór málflutningur um þessa kröfu ákærðu fram,

framhaldi eftir fresti til að leggja fram frekari gögn, sem hún gerði í þinghaldi

5. júní sl. Fór aðalmeðferð fram þann 11. og 12. september sl. og var málið

dómtekið að málflutningi loknum.

Málsatvik.

Óumdeilt

er að unnið var um þessar mundir í Garðahrauni, eða Gálgahrauni eins og það er

nefnt, í Garðabæ við lagningu nýs vegar til Álftaness. Hefur sú vegalagning

sætt mótmælum og einstaklingar mótmælt henni með því að mæta á vinnusvæði

Vegagerðarinnar og reynt að tefja eða stöðva vegalagninguna. Undir rekstri

málsins lýstu ákærðu öll, í málum S-1/2014 til og með S-9/2014, að þau hafi

verið í Gálgahrauni umrætt sinn í mótmælaskyni og hafi mótmælin verið

friðsamleg en það sé

stjórnarskrárbundinn

réttur hvers manns að tjá sig opinberlega og halda uppi friðsamlegum mótmælum.

Enginn ágreiningur er um það að þátttaka ákærðu í ofangreindum mótmælum hafi

verið á friðsamlegum nótum. Þá er ekki ágreiningur um það að umræddan dag hafi

Vegagerðin hafið ruðning í Gálgahrauni fyrir nýju vegastæði. Samkvæmt því sem

næst verður komist hafi lögreglu verið gert viðvart deginum áður eða samdægurs

um að hætta væri á að mótmælin, sem voru daglega í Gálgahrauni, myndu

hugsanlega tefja eða koma í veg fyrir framkvæmdir. Hafi lögreglan því verið með

viðbúnað og komið á svæðið umræddan morgun.

Þá liggur fyrir að eftir að

verktakar hófu vinnu þá hafi merkingar utan um væntanlegt vinnusvæði, eftir

framgangi verksins, verið færðar til þannig að ljóst væri hvar vinnuvélar færu

um. Við þá framkvæmd hafi mótmælendur verið komnir inn fyrir merkt vinnusvæði

og á svæði þar sem jarðvinna færi fram.

Þá er ekki um það deilt að lögreglan

hafi gefið fyrirmæli í gjallarhorn um að mótmælendum væri gert að rýma

vinnusvæðið. Sumir gerðu það en aðrir ekki. Þá er það sammerkt með öllum

málunum að öll ákærðu höfðu verið handtekin fyrr um morguninn fyrir að

óhlýðnast fyrirmælum lögreglunnar. Ágreiningur er um hvort lögreglan hafi gefið

hverjum og einum ákærðu fyrirmæli og viðvörun um handtöku ef þau hlýddu ekki

(Skúli Bjarnason hrl)

Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing. Stjórnarskrá. Stjórnvaldsákvörðun.

Brot gegn lögreglulögum.

Mál þetta, sem þingfest var 28. janúar 2014 og dómtekið 12. september sl., var höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri 21. desember 2013, á hendur Önnu Maríu Lind Geirsdóttur, kt. 000000-0000, Rauðagerði 50, Reykjavík, fyrir brot gegn lögreglulögum, með því að hafa mánudaginn 21. október 2013, um kl. 13:02, í Garðahrauni í Garðabæ, neitað að hlýða ítrekuðum fyrirmælum lögreglu um að flytja sig um set, en ákærða var stödd á vinnusvæði, þar sem unnið var að lagningu nýs Álftanesvegar, rétt norðnorðvestan við Garðastekk. Telst brotið varða við 19. gr., sbr. 41. gr., lögreglulaga nr. 90/1996. Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Ákærða mætti við þingfestingu málsins þann 28. janúar sl. og neitaði sök. Skilaði ákærða greinargerð þann 24. febrúar sl. og krafðist þá þess að málinu yrði vísað frá dómi en til vara sýknu. Þá krafðist ákærða þess að sækjandi málsins, Karl Ingi Vilbergsson aðstoðarsaksóknari, viki sæti í málinu með vísan til 26. gr., sbr. 6. gr., laga nr. 88/2008, en ákærða hygðist leiða sækjanda sem vitni í væntanlegri aðalmeðferð málsins. Fór málflutningur um þessa kröfu ákærðu fram, í máli nr. S- 2/2014 sem er nákvæmlega eins mál og þetta mál, þann 24. mars sl. og var kröfum ákærða í því máli hafnað. Var sú niðurstaða staðfest í dómi Hæstaréttar Íslands í málinu nr. 254/2014 þann 8. maí sl. Ákærða óskaði í framhaldi eftir fresti til að leggja fram frekari gögn, sem hún gerði í þinghaldi 5. júní sl. Fór aðalmeðferð fram þann 11. og 12. september sl. og var málið dómtekið að málflutningi loknum.

Málsatvik.

Óumdeilt er að unnið var um þessar mundir í Garðahrauni, eða Gálgahrauni eins og það er nefnt, í Garðabæ við lagningu nýs vegar til Álftaness. Hefur sú vegalagning sætt mótmælum og einstaklingar mótmælt henni með því að mæta á vinnusvæði Vegagerðarinnar og reynt að tefja eða stöðva vegalagninguna. Undir rekstri málsins lýstu ákærðu öll, í málum S-1/2014 til og með S-9/2014, að þau hafi verið í Gálgahrauni umrætt sinn í mótmælaskyni og hafi mótmælin verið friðsamleg en það sé stjórnarskrárbundinn réttur hvers manns að tjá sig opinberlega og halda uppi friðsamlegum mótmælum. Enginn ágreiningur er um það að þátttaka ákærðu í ofangreindum mótmælum hafi verið á friðsamlegum nótum. Þá er ekki ágreiningur um það að umræddan dag hafi Vegagerðin hafið ruðning í Gálgahrauni fyrir nýju vegastæði. Samkvæmt því sem næst verður komist hafi lögreglu verið gert viðvart deginum áður eða samdægurs um að hætta væri á að mótmælin, sem voru daglega í Gálgahrauni, myndu hugsanlega tefja eða koma í veg fyrir framkvæmdir. Hafi lögreglan því verið með viðbúnað og komið á svæðið umræddan morgun.

Þá liggur fyrir að eftir að verktakar hófu vinnu þá hafi merkingar utan um væntanlegt vinnusvæði, eftir framgangi verksins, verið færðar til þannig að ljóst væri hvar vinnuvélar færu um. Við þá framkvæmd hafi mótmælendur verið komnir inn fyrir merkt vinnusvæði og á svæði þar sem jarðvinna færi fram.

Þá er ekki um það deilt að lögreglan hafi gefið fyrirmæli í gjallarhorn um að mótmælendum væri gert að rýma vinnusvæðið. Sumir gerðu það en aðrir ekki. Þá er það sammerkt með öllum málunum að öll ákærðu höfðu verið handtekin fyrr um morguninn fyrir að óhlýðnast fyrirmælum lögreglunnar. Ágreiningur er um hvort lögreglan hafi gefið hverjum og einum ákærðu fyrirmæli og viðvörun um handtöku ef þau hlýddu ekki þessum fyrirmælum og þá hvort þau hafi verið innan eða utan merkts vinnusvæðis.

Í upplýsingaskýrslu lögreglu um atvikið segir að ákærða hafi setið inni á afmörkuðu vinnusvæði og verið beðin um að víkja af svæðinu en þar sem hún hafi ekki hlýtt því hafi hún verið borin af svæðinu og flutt í lögreglubifreið.

Í yfirheyrslu hjá lögreglu kvaðst ákærða ekki hafa talið sig vera að brjóta lög en viðurkenndi að hafa fengið skýr fyrirmæli frá lögreglu um að yfirgefa svæðið en ekki farið að þeim.

Þá liggur fyrir að ákærða var handtekin fyrr um morguninn fyrir sömu háttsemi og þurfti þá einnig að bera hana út af svæðinu.

Skýrslur fyrir dómi.

Ákærða kom fyrir dóminn og kvaðst ekki muna til þess að hafa fengið fyrirmæli frá lögreglu um að víkja af svæðinu umrætt sinn en ákærða kvaðst muna eftir öskrum um að standa upp og þetta hafi verið ringulreið. Framburður ákærðu fyrir lögreglu var borinn undir hana þar sem hún kvaðst viðurkenna að hafa ekki farið að fyrirmælum lögreglu og kvaðst hún hafa verið með mígrenikast. Framburður ákærðu fyrir lögreglu um að fyrirmælin sem henni voru gefin hafi verið skýr og hún hafi skilið hvað lögreglan var að meina var borinn undir ákærðu. Kvaðst ákærða ekki muna eftir þessu. Ákærða kvaðst einnig hafa verið handtekin fyrr um morguninn. Ákærða kvaðst aðspurð bara hafa staðið úti í þessu hrauni og kvaðst muna að hún hafi hugsað: „þeir eru bara að búa til girðingu utanum mig“ og svo muni hún að lögreglumenn þyrptust utan um hana og henni sagt að standa upp og að hún gæti víst gengið. Ákærða lýsti ýtarlega aðferðum lögreglu eftir handtökuna, sem hefur ekki áhrif við úrslit máls þessa.

Vitnið A lögreglumaður kom fyrir dóminn og kvaðst ekki muna sérstaklega eftir ákærðu í máli þessu. Kvað hún alla hafa fengið fyrirmæli um að yfirgefa afmarkað vinnusvæði og ef fólk sinnti því ekki þá hafi það fengið frekari fyrirmæli. Ef fólk hafi ekki farið sjálfviljugt út af svæðinu hafi það verið handtekið.

Vitnið B lögreglumaður kom fyrir dóminn og kvaðst hafa verið á vettvangi umrætt sinn. Kvað hann ákærðu hafa fengið í upphafi fyrirmæli ásamt öllum öðrum um að yfirgefa svæðið. Vitnið hafi sjálft gefið ákærðu fyrirmæli um að yfirgefa vinnusvæðið, sem hún hafi neitað að gera. Ákærða hafi því verið handtekin í kjölfarið.

Vitnið C, lögreglumaður og stjórnandi á vettvangi, kom fyrir dóminn og kvaðst hafa verið stjórnandi aðgerða á vettvangi. Kvaðst vitnið aðspurt ekki muna hversu lengi undirbúningur aðgerða hafi staðið en lögregla hefði margoft verið búin að fara á svæðið vegna mótmæla á fyrri stigum. Aðspurt um sektargerðir frá föstudeginum 18. september 2013 kvaðst vitnið ekki geta svarað fyrir um tilkomu sektargerða í málinu. Aðspurt um það hvort búið hafi verið að ákveða fyrirfram hvaða einstaklinga ætti að handtaka á mánudeginum, kvað vitnið það alls ekki vera rétt. Vitnið hafi ekkert vitað um það á föstudeginum hvað myndi gerast á mánudeginum en vitnið hafi fengið fyrirmæli á mánudagsmorgninum um að fara á vettvang vegna mótmælanna. Þá hafi enginn vitað um það hvernig verkefni lögreglunnar yrði eða myndi þróast. Vitnið kvað lögregluna hafa margítrekað reynt að fá fólkið til að fara af vettvangi en það ekki gengið eftir. Þegar ákærðu hafi verið handtekin höfðu þau öll áður verið handtekin fyrr um morguninn og færð af svæðinu, svo að lögreglan hafi verið búin að reyna vægari úrræði áður en til handtöku kom. Þau sem hafi verið handtekin hafi öll verið innan vinnusvæðis en hins vegar skipti það yfirleitt ekki máli hvort fólk sé innan afmarkaðs svæðis eða ekki sé á annað borð nauðsynlegt að beita 19. gr. lögreglulaga. Kvað vitnið að í þessu tilviki hafi öllum verið gefin almenn fyrirmæli um að yfirgefa vinnusvæðið. Þeir sem ekki hafi hlýtt þeim fyrirmælum hafi fengið í framhaldi skýr fyrirmæli frá lögreglu um að yfirgefa svæðið og hafi því ekki verið hlýtt hafi fólk verið handtekið og flutt af svæðinu.

Vitnið D kom fyrir dóminn og kvaðst hafa heyrt þegar lögregla beindi þeim fyrirmælum til mótmælenda að yfirgefa vinnusvæðið. Kvaðst vitnið sjálft hafa sætt handtöku. Vinnusvæðið hafi eingöngu verið markað með keilum og böndum og hafi svæðið sífellt verið á hreyfingu. Taldi vitnið að bæði mótmælendum og lögreglu hafi stundum stafað hætta af vinnuvélum innan svæðisins.

Önnur sönnunargögn.

Upplýsingaskýrsla lögreglu liggur fyrir í málinu og er hún rakin í kaflanum „málsatvik“. Var ákærða þá borin út af vinnusvæði, sem búið var að loka af og ákærða neitaði að yfirgefa, handtekin og flutt á lögreglustöð.

Ákærða lagði fram fjölda ljósmynda sem teknar voru umræddan dag en eru þó ótímasettar. Þá lagði ákærða einnig fram myndband, sem sett hafði verið saman um mótmælin í Gálgahrauni og handtökur og úr fréttatíma RÚV. Að auki lagði ákærða fram útskrift úr fésbókarsíðu E og athugasemdir við fésbókarsíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Forsendur og niðurstöður.

Ekki er ágreiningur um að ákærða, ásamt fleira fólki, var í Gálgahrauni umrætt sinn í þeim tilgangi að mótmæla væntanlegri vegagerð í gegnum hraunið.

Samkvæmt 1. mgr. 73. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 eru allir frjálsir skoðana sinna og sannfæringar og skv. 2. mgr. á hver maður rétt á að láta í ljós hugsanir sínar, en ábyrgjast verður hann þær fyrir dómi. Þetta segir að tjáningarfrelsið er takmarkað þannig að það gengur ekki lengra en önnur stjórnarskrárvarin réttindi manna, t.d. varðandi eignarétt og almannaheill. Í máli þessu höfðu þar til bær stjórnvöld tekið ákvörðun um að leggja veg um Gálgahraun og ekki liggur annað fyrir í málinu en að þau hafi haft þar til bær réttindi og heimildir til að leggja umþrættan veg. Þá liggur fyrir að lögregla eða framkvæmdaraðili Vegagerðarinnar færði til merkingar, sem voru keilur og borðar, eftir því sem verkið vannst til. Þýddi það að færa þurfti til merkingar sem afmörkuðu fyrirhugað vinnusvæði. Við það hafi einhver hluti mótmælenda lent innan merkinga á væntanlegu vinnusvæði. Af myndbandi því, sem ákærða lagði sjálf fram, má sjá og heyra lögreglu ítrekað biðja mótmælendur í gegnum gjallarhorn að fara út af vinnusvæðinu. Hefur það ekki farið fram hjá neinum þeirra sem voru í næsta nágrenni lögreglu.

Ákærða krefst sýknu í máli þessu og kveðst ekki hafa óhlýðnast fyrirmælum lögreglu. Í málinu liggur fyrir fjöldi ljósmynda sem ákærða lagði fram. Eru þær teknar af fréttaveitum og af einstaklingum sem ekki liggur fyrir hverjir eru. Verður að taka ljósmyndum þessum með fyrirvara um sönnunargildi þeirra, en ekki er ljóst af þeim hvenær dags eða í hvaða tilgangi þær voru teknar en fyrir liggur að ákærða var handtekin bæði fyrir og eftir hádegi þennan sama dag.

Málsvörn ákærðu byggist á því að aðgerðir lögreglu hafi stangast á við stjórnarskrá Íslands og Mannréttindasáttmála Evrópu. Vísar ákærða í 73. og 74. gr. stjórnarskrár Íslands nr. 33/1944 og 10. og 11. gr. Mannréttindasáttmálans. Hafi aðgerðir lögreglu haft það eina markmið að koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli ákærðu og annarra sem þar hafi verið staddir. Þá hafi aðgerðir lögreglu haft annarlegan tilgang sem hafi verið sá að fá fólk til að gerast brotlegt við lög og í þeim tilgangi að geta brotið mótmælin á bak aftur. Í því skyni hafi lögregla stækkað afmarkað svæði jafnóðum og búið var að vísa fólki út fyrir fyrra svæði. Í kjölfar þess hafi lögregla gripið til alvarlegra aðgerða sem hafi verið handtökur og frelsissviptingar og í mörgum tilfellum vistun í fangaklefa.

Ákærða byggir á því að hún hafi átt stjórnarskrárbundinn rétt til að mótmæla, svo framarlega sem það væri gert á friðsaman hátt. Engu ofbeldi hafi verið beitt í umrætt sinn og þá hafi hún ekki veitt neinn mótþróa þegar lögreglan handtók hana. Þá taldi ákærða þá hagsmuni sína og réttindi til að halda uppi lögmætum mótmælum meiri en þá hagsmuni Vegagerðarinnar að eyðileggja Gálgahraun. Þá hafi skilyrði 19. gr. lögreglulaga ekki verið uppfyllt, enda hafi ákærða mátt vera þarna þar sem um lögmætan tilgang var að ræða og hún hafi verið utan merkts svæðis og að auki hafi hún ekki verið ógnandi né hafi verið um uppþot að ræða.

Af myndskeiði sem ákærða lagði fram má sjá að nokkrir mótmælendur leggjast flötum beinum á jörðina rétt fyrir framan tönn jarðýtunnar og hlusta á lögreglumann vísa þeim burt af svæðinu en þau mótmæla. Engar tímasetningar eru á myndbandinu svo að ekki er ljóst hvort um var að ræða mótmæli fyrir eða eftir hádegi. Hins vegar sjást vel afmarkanir svæðisins með keilum og borðum, sem átti ekki að dyljast neinum sem horfði yfir athafnasvæðið. Þá heyrist einnig á myndskeiðinu að lögregla hvetur fólk ítrekað í gjallarhorni til að fara út fyrir vinnusvæðið.

Ákærðu, Önnu Maríu Lind, er gefið að sök að hafa ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu í umrætt sinn en hún kvaðst fyrir dóminum ekki muna eftir því að henni hafi verið gefin nein fyrirmæli. Við skýrslutöku hjá lögreglu kvaðst ákærða hafa fengið skýr fyrirmæli um að yfirgefa vinnusvæðið og hafi hún skilið þau. Ákærða hafði verið handtekin fyrr um morguninn vegna sömu háttsemi og í ljósi þess mátti henni vera fulljóst í hverju aðgerðir lögreglu fólust.

Vitnin C og D staðfestu báðir fyrir dóminum að ákærðu hafi verið gefin skýr fyrirmæli um að yfirgefa svæðið áður en til handtöku kom. Þá staðfesti vitnið B lögreglumaður að ákærða hafi fengið bein fyrirmæli frá sér um að yfirgefa vinnusvæðið, sem hún hafi ekki hlýtt og hafi lögreglan þurft að bera hana út af svæðinu.

Í ákærunni er ákært fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu og brotið talið varða við 19. gr., sbr. 41. gr., lögreglulaga. Margar lærðar greinar hafa verið skrifaðar um rétt einstaklinga til skoðana- og tjáningarfrelsis og er sá réttur bundinn í 73. gr. stjórnarskrár Íslands nr. 33 frá 1944 en þar segir í 1. mgr.: „Allir eru frjálsir skoðana sinna og sannfæringar.“ Í 2. mgr. segir að hver maður eigi rétt á að láta í ljós hugsanir sínar, en ábyrgjast verði hann þær fyrir dómi. Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi megi aldrei í lög leiða. Í 3. mgr. segir að tjáningarfrelsi megi aðeins setja skorður með lögum í þágu allsherjarreglu eða öryggis ríkisins, til verndar heilsu eða siðgæði manna eða vegna réttinda eða mannorðs annarra, enda teljist þær nauðsynlegar og samrýmist lýðræðishefðum.

Samkvæmt 15. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 er lögreglu heimilt að hafa afskipti af borgurunum í því skyni að halda uppi almannafriði og allsherjarreglu, til að gæta öryggis einstaklinga og almennings eða til að afstýra brotum eða stöðva þau. Í þessu skyni er lögreglu m.a. heimilt að vísa fólki á brott eða fjarlægja það og fara inn á svæði í einkaeign og fyrirskipa brottflutning fólks af þeim. Í 19. gr. er síðan að finna almennt ákvæði sem kveður á um skyldu borgaranna til að hlýða fyrirmælum lögreglunnar. Það er meginregla íslenskrar stjórnskipunar að enginn geti komið sér hjá því að hlýða yfirvaldsboði í bráð þótt hann vefengi heimildir stjórnvalda, sbr. 60. gr. stjórnarskrárinnar. Þótt ákærða teldi sig hafa ástæðu til að draga í efa að heimilt væri að ganga svo langt sem raun ber vitni við vegaframkvæmdir, veitti það ekki rétt til að hindra framkvæmdir hennar á þann hátt, sem ákærða gerði. Í máli þessu liggur fyrir að ákærða hlýddi ekki augljósum fyrirmælum lögreglu um að fara út af vinnusvæðinu og láta af aðgerðum sínum að því marki sem hún gekk á rétt annarra til að halda áfram lögmætum framkvæmdum og voru aðgerðir lögreglu því nauðsynlegar í umrætt sinn og samrýmast heimildum 3. mgr. 73. gr. stjórnarskrárinnar.

Ákærðu átti að vera fullljóst að hún var að fara gegn fyrirmælum lögreglu, enda hafði hún verið handtekin fyrr um morguninn vegna sömu háttsemi. Þá er með framburði vitnanna B, C og D færð fram lögfull sönnun þess að ákærða hafi í fyrstu fengið almenn fyrirmæli frá lögreglu um að færa sig af vinnusvæði og síðar beint frá lögreglumanni en hún ekki hlýtt því. Styðst sá framburður við framburð ákærðu fyrir lögreglu þann sama dag.

Telur dómurinn engu máli skipta hvort merkingar hafi verið komnar áður eða eftir að lögregla lagði fyrir ákærðu að yfirgefa svæðið, þar sem henni mátti vera fullljóst að þegar lögreglan bað hana að fara af svæðinu var ákærða þá þegar innan merkinga um vinnusvæði.

Þá breytir engu þótt ákærða hafi ekki neitað að yfirgefa svæðið, heldur felast í þeirri háttsemi einni að standa ekki upp og yfirgefa svæðið þegar henni var fyrirskipað það, með þeim afleiðingum að lögregla þurfti að bera ákærðu af svæðinu, mótmæli við fyrirmælum lögreglu.

Telur dómurinn ákæruvaldið hafa fært fram lögfulla sönnun þess að ákærða hafi gerst brotleg eins og greinir í ákæru og verður henni gerð refsing fyrir. Er háttsemin réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærðu hefur ekki verið gerð refsing áður. Þrátt fyrir að ákærða hafi verið í friðsamlegum mótmælum í Gálgahrauni umrætt sinn, þá verður sá tilgangur ekki metinn henni til refsilækkunar í máli þessu þar sem mótmæli ákærðu gengu lengra en stjórnarskrárvarinn réttur hennar var. Er þeirri málsástæðu ákærðu hafnað.

Er refsing ákærðu ákveðin 100.000 krónur í sekt til ríkissjóðs, sem ákærðu ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæta ella fangelsi í átta daga. Ákærða greiði allan sakarkostnað, sem eru málflutningslaun skipaðs verjanda hennar, Skúla Bjarnasonar hrl., sem þykja hæfilega ákveðin 150.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærða, Anna María Lind Geirsdóttir, greiði 100.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæti ella fangelsi í átta daga.

Ákærða greiði allan sakarkostnað, sem eru málflutningslaun skipaðs verjanda hennar, Skúla Bjarnasonar hrl., 150.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ástríður Grímsdóttir Rétt endurrit staðfestir Héraðsdómur Reykjaness 9.10. 2014.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 33/1944 Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands 10. gr.11. gr.19. gr.41. gr.60. gr.73. gr.1. mgr. 73. gr.3. mgr. 73. gr.74. gr.
Lög nr. 90/1996 Lögreglulög 15. gr.19. gr.41. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 6. gr.26. gr.