Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-305/2014:

Ár 2014, fimmtudaginn 16. október, er á dómþingi

máli nr. S-305/2014:

Ákæruvaldið

(Áslaug Þórarinsdóttir ftr)

gegn

Styrmi H.

Snæfeld Kristinssyni

svofelldur

d ó m u r :

(Steinn S. Finnbogason hdl)

Játningarmál. Líkamsárás. Miskabætur.

Sakfelling fyrir líkamsárás

Mál þetta, sem þingfest var 19. júní sl. og dómtekið 2. október sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri 3. júní 2014, á hendur Styrmi H. Snæfeld Kristinssyni, kt. 000000-0000, Álfaskeiði 117, Hafnarfirði, „fyrir líkamsárás með því að hafa sunnudaginn 2. mars 2014 á útisvæði fyrir fanga aftan við Hegningarhúsið við Skólavörðustíg 9 í Reykjavík, slegið A, kt. 000000- 0000, ítrekað í andlit og höfuð, allt með þeim afleiðingum að hann hlaut nefbeinabrot, tognun og ofreynslu á hálshrygg, mar og sár í andliti kringum auga vinstra megin, bjúg í efri hluta sjónhimnu á vinstra auga og sár í munni.

Telst þetta varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Einkaréttarkrafa:

Þá gerir B, hrl., f.h. A, kt. 000000-0000, kröfu um að ákærði verði dæmdur til greiðslu miskabóta að fjárhæð kr. 1.000.000 auk vaxta skv. 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, frá 2. mars 2014 þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en síðan dráttarvaxta skv. 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga, frá þeim degi til greiðsludags. Þá er krafist bóta vegna kostnaðar við lögmannsaðstoð eftir mati dómara eða skv. síðar framlögðum reikningi auk álags er nemi virðisaukaskatti af þóknuninni.“

Ákærði kom fyrir dóminn 10. september sl. og játaði skýlaust sök. Að beiðni sakflytjenda var málinu frestað til 2. október sl. Var í kjölfar þess farið með málið samkvæmt ákvæðum 164. gr. laga nr. 88/2008 og var það tekið til dóms 2. október sl. án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og viðurlög. Ákærði krafðist vægustu refsingar. Er játning ákærða í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir brot sín en þau eru í ákæru rétt færð til refsiákvæða. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Ákærði á sér sögu afbrota frá árinu 1993. Ákærði var dæmdur til fjögurra mánaða fangelsis þann 2. desember 1994 fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Voru tveir mánuðir refsingarinnar skilorðsbundnir til þriggja ára. Var í því máli tveggja mánaða skilorðsbundinn dómur vegna þjófnaðar dæmdur með í því máli. Þann 22. febrúar 1999 var ákærði aftur dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisrefsingar fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga og þann 15. júlí 2013 var ákærði dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga, þar af níu mánuði skilorðsbundna til fjögurra ára. Var í því máli þrjátíu daga skilorðsbundin refsing dæmd upp. Lauk ákærði afplánun á þeim dómi 11. maí 2014. Með broti sínu, sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir nú, rauf ákærði skilorð dómsins frá 15. júlí 2013. Samkvæmt 3. mgr. 71. gr. laga nr. 19/1940 voru ítrekunaráhrif dómsins frá 2. desember 1994, ekki fallin niður þegar ákærði var aftur dæmdur fyrir sama hegningarlagabrot 22. febrúar 1999. Þá voru samkvæmt sama lagaákvæði ítrekunaráhrif þess dóms ekki fallin niður er ákærði hlaut dóm fyrir sams konar brot 15. júlí 2013. Er því um þriðju ítrekun að ræða nú. Varðar brot ákærða fangelsisrefsingu. Þá rauf ákærði skilorð dómsins frá 15. júlí 2013, og ber því skv. 60. gr. laga nr. 19/1940 að dæma skilorðið upp. Er refsing ákærða nú ákveðin fangelsi í tólf mánuði. Með hliðsjón af sakaferli ákærða og því sem að ofan er rakið þykir ekki tilefni til að skilorðsbinda refsinguna. Ákærði er dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar, sem er vegna læknisvottorða 64.000 krónur, og þóknun skipaðs verjanda hans, Steins S. Finnbogasonar hdl., 244.725 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Í málinu gerir A kröfu um að ákærði verði dæmdur til að greiða honum 1.000.000 króna í miskabætur ásamt tilgreindum vöxtum og kostnað við að halda kröfunni uppi.

Í læknisvottorði C, dagsettu 20. mars 2014, segir m.a. í niðurstöðum: „Eftir beinamyndir er ljóst að sjúklingur er nefbrotinn en ekki með aðra áverka sem fram koma á myndum. Sjúklingur fær mjúkan hálskraga og er með tognun í hálsinum. Þegar hann á að útskrifast þá kvartar hann um minnkaða sjón á vinstra auganu“. Þá segir undir kaflanum Greiningar: „Nefbeinabrot S02.2. Tognun og ofreynsla á hálshrygg, S13.4. Mar og smá sár í andliti, kringum auga vinstra megin, S05.1. Framhaldsrannsóknir áætlaðar annars vegar hjá augnlæknum strax daginn eftir og síðan hjá HNE læknum til að rétta nefbrot eftir viku – 10 daga.“

Í læknisvottorði D, dagsettu 24. mars 2014, segir í samantekt: „A fékk högg á vinstra auga, augnumgjörð var bólgin, sjón skert og í sjónhimnu var bjúgur. Við endurkomu rúmri viku síðar var sjón orðin mikið betri (70% sjónskerpa). Það var engin meðferð, nema að A var ráðlagt að taka því rólega og nota kalda bakstra og verkjalyf. Við fyrstu komu mældist sjón einnig skert á hæ. auga en við endurkomu var sjónin á hæ. auga eðl.; engin áverkamerki sáust á hæ. auga.“

Af ofangreindu er ekki vafi um að brotaþoli hefur hlotið miska vegna árásar ákærða, sem var algjörlega tilefnislaus. Með vísan til 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 verður ákærði dæmdur til að greiða brotaþola miskabætur sem þykja hæfilega ákveðnar 400.000 krónur. Af gögnum málsins verður ekki annað ráðið en að ákærða hafi verið birt bótakrafan við birtingu fyrirkalls þann 10. júní 2014. Verður ákærði því dæmdur til að greiða ákærða vexti samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 2. mars 2014 til 10. júlí 2014 en með dráttarvöxtum skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr., sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Þá ber einnig að dæma ákærða til að greiða ákærða kostnað við að halda bótakröfunni uppi, sbr. 3. mgr. 176. gr. laga nr. 88/2008, sem þykir hæfilegur 225.900 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Styrmir H. Snæfeld Kristinsson, sæti fangelsi í tólf mánuði.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, samtals 308.725 krónur, þar með talda þóknun skipaðs verjanda síns, Steins S. Finnbogasonar hdl., 244.725 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Ákærði greiði A 400.000 krónur í miskabætur ásamt vöxtum skv. 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 2. mars 2014 til 10. júlí 2014 en með dráttarvöxtum skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr., sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Ákærði greiði B hrl., fyrir hönd brotaþola, 225.900 krónur í málskostnað. Hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts.

Ástríður Grímsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 60. gr.3. mgr. 71. gr.1. mgr. 218. gr.2. mgr. 218. gr.
Lög nr. 20/1981 11. gr.
Lög nr. 50/1993 Skaðabótalög 26. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 1. mgr. 6. gr.8. gr.1. mgr. 8. gr.9. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 1. mgr. 6. gr.9. gr.164. gr.3. mgr. 176. gr.