Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 9. október 2014.
Mál nr. S-3/2014:
Ár
2014, fimmtudaginn 9. október, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjaness, sem háð er
Ákæruvaldið
(Karl Ingi Vilbergsson ftr)
gegn
Viktoríu
Áskelsdóttur
svohljóðandi
Mál
þetta, sem þingfest var 28. janúar 2014 og dómtekið 12. september sl., var
höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri
21. desember 2013, á hendur Viktoríu Áskelsdóttur, kt. 000000-0000, Álakvísl
7b, Reykjavík, fyrir brot gegn lögreglulögum, með því að hafa mánudaginn 21.
október 2013, um kl. 15:10, í Garðahrauni í Garðabæ, neitað að hlýða ítrekuðum
fyrirmælum lögreglu um að flytja sig um set, en ákærða var stödd á vinnusvæði,
þar sem unnið var að lagningu nýs Álftanesvegar, rétt norðnorðvestan við Garðastekk.
Telst brotið varða við 19. gr., sbr. 41. gr., lögreglulaga nr. 90/1996. Þess er
krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Ákærða mætti
við þingfestingu málsins þann 28. janúar sl. og neitaði sök. Skilaði ákærða
greinargerð þann 24. febrúar sl. og krafðist þá þess að málinu yrði vísað frá
dómi en til vara sýknu. Þá krafðist ákærða þess að sækjandi málsins, Karl Ingi
6. gr., laga nr. 88/2008, en ákærða hygðist leiða sækjanda sem vitni í
væntanlegri aðalmeðferð málsins. Fór málflutningur um þessa kröfu ákærðu fram,
framhaldi eftir fresti til að leggja fram frekari gögn, sem hún gerði í
þinghaldi 5. júní sl. Fór aðalmeðferð fram þann 11. og 12. september sl. og var
málið dómtekið að málflutningi loknum.
Málsatvik.
Óumdeilt
er að unnið var um þessar mundir í Garðahrauni eða Gálgahrauni eins og það er
nefnt í Garðabæ við lagningu nýs vegar til Álftaness. Hefur sú vegalagning sætt
Lykilorð
Mannréttindasáttmáli Evrópu. Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing. Stjórnarskrá. Stjórnvaldsákvörðun.
Útdráttur
Brot gegn lögreglulögum.
Mál þetta, sem þingfest var 28. janúar 2014 og dómtekið 12. september sl., var höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri 21. desember 2013, á hendur Viktoríu Áskelsdóttur, kt. 000000-0000, Álakvísl 7b, Reykjavík, fyrir brot gegn lögreglulögum, með því að hafa mánudaginn 21. október 2013, um kl. 15:10, í Garðahrauni í Garðabæ, neitað að hlýða ítrekuðum fyrirmælum lögreglu um að flytja sig um set, en ákærða var stödd á vinnusvæði, þar sem unnið var að lagningu nýs Álftanesvegar, rétt norðnorðvestan við Garðastekk. Telst brotið varða við 19. gr., sbr. 41. gr., lögreglulaga nr. 90/1996. Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Ákærða mætti við þingfestingu málsins þann 28. janúar sl. og neitaði sök. Skilaði ákærða greinargerð þann 24. febrúar sl. og krafðist þá þess að málinu yrði vísað frá dómi en til vara sýknu. Þá krafðist ákærða þess að sækjandi málsins, Karl Ingi Vilbergsson aðstoðarsaksóknari, viki sæti í málinu með vísan til 26. gr., sbr. 6. gr., laga nr. 88/2008, en ákærða hygðist leiða sækjanda sem vitni í væntanlegri aðalmeðferð málsins. Fór málflutningur um þessa kröfu ákærðu fram, í máli nr. S- 2/2014, sem er nákvæmlega eins mál og þetta mál, þann 24. mars sl. og var kröfum ákærða í því máli hafnað. Var sú niðurstaða staðfest í dómi Hæstaréttar Íslands í málinu nr. 254/2014 þann 8. maí sl. Ákærða óskaði í framhaldi eftir fresti til að leggja fram frekari gögn, sem hún gerði í þinghaldi 5. júní sl. Fór aðalmeðferð fram þann 11. og 12. september sl. og var málið dómtekið að málflutningi loknum.
Málsatvik.
Óumdeilt er að unnið var um þessar mundir í Garðahrauni eða Gálgahrauni eins og það er nefnt í Garðabæ við lagningu nýs vegar til Álftaness. Hefur sú vegalagning sætt mótmælum og einstaklingar mótmælt henni með því að mæta á vinnusvæði Vegagerðarinnar og reynt að tefja eða stöðva vegalagninguna. Undir rekstri málsins lýstu ákærðu öll, í málum S-1/2014 til og með S-9/2014, því að þau hafi verið í Gálgahrauni umrætt sinn í mótmælaskyni og hafi mótmælin verið friðsamleg en það sé stjórnarskrárbundinn réttur hvers manns að tjá sig opinberlega og halda uppi friðsamlegum mótmælum. Enginn ágreiningur er um það að þátttaka ákærðu í ofangreindum mótmælum hafi verið á friðsamlegum nótum. Þá er ekki ágreiningur um það að umræddan dag hafi Vegagerðin hafið ruðning í Gálgahrauni fyrir nýju vegastæði. Samkvæmt því sem næst verður komist hafi lögreglu verið gert viðvart deginum áður eða samdægurs um að hætta væri á að mótmælin, sem voru daglega í Gálgahrauni, myndu hugsanlega tefja eða koma í veg fyrir framkvæmdir. Hafi lögreglan því verið með viðbúnað og komið á svæðið umræddan morgun.
Þá liggur fyrir að eftir að verktakar hófu vinnu þá hafi merkingar utan um væntanlegt vinnusvæði, eftir framgangi verksins, verið færðar til þannig að ljóst væri hvar vinnuvélar færu um. Við þá framkvæmd hafi mótmælendur verið komnir inn fyrir merkt vinnusvæði og á svæði þar sem jarðvinna færi fram.
Þá er ekki um það deilt að lögreglan hafi gefið fyrirmæli í gjallarhorn um að mótmælendum væri gert að rýma vinnusvæðið. Sumir gerðu það en aðrir ekki. Þá er það sammerkt með öllum málunum að öll ákærðu voru handtekin fyrr um morguninn fyrir að óhlýðnast fyrirmælum lögreglunnar. Ágreiningur er um hvort lögreglan hafi gefið hverjum og einum ákærðu fyrirmæli og viðvörun um handtöku ef þau hlýddu ekki þessum fyrirmælum og þá hvort þau hafi verið innan eða utan merkts vinnusvæðis.
Í upplýsingaskýrslu lögreglu um atvikið segir að búið hafi verið að rýma vinnusvæðið og gefa skýr fyrirmæli með gjallarhorni þannig að allir hafi heyrt bein fyrirmæli lögreglu um að koma ekki inn á vinnusvæðið og trufla ekki vinnu á svæðinu. Búið hafi verið að fara með fólk út af vinnusvæðinu en sumir þeirra snúið aftur og meðal þeirra hafi verið ákærða. Ákærða hafi skyndilega hlaupið undir borða sem afmarkaði vinnusvæðið og hafi henni verið skipað að stoppa og fara til baka. Hún hafi virt þau fyrirmæli að vettugi og haldið áfram. Hafi ákærða verið handtekin og borin á börum út af svæðinu. Þá liggur fyrir upplýsingaskýrsla vegna handtöku ákærðu fyrr um morguninn og segir þar að ákærða hafi skyndilega hlaupið undir borða, sem afmarkaði vinnusvæði, og virt fyrirmæli um að yfirgefa svæðið að vettugi. Hafi lögreglumaður þurft að grípa hana og halda henni svo að hún myndi ekki hlaupa alla leið að vinnuvél sem var að vinna í nokkurra metra fjarlægð frá lögreglumanninum. Hafi ákærða látið mjög illa og hafi tveir lögreglumenn þurft að halda henni kyrfilega á milli sín þar sem hún var leidd frá vinnusvæðinu og yfir í lögreglubifreið þar sem hún hafi verið handtekin.
Í skýrslu ákærðu hjá lögreglu vegna seinna tilviksins kvaðst hún hafa hrasað í hrauninu og rekið fótinn í gjótu og við það snúið sig á fæti. Þá hafi lögreglumaður komið og spurt hvort hún gæti gengið en hún neitað því. Ákærða hafi þá verið sett á börur og handtekin í kjölfarið.
Skýrslur fyrir dómi.
Ákærða kom fyrir dóminn og kvaðst engin fyrirmæli hafa fengið hjá lögreglu um að yfirgefa svæðið og ekki vita ástæðu þess að hún var handtekin umrætt sinn. Ákærða kvaðst hafa staðið á þröngri hraunnibbu ásamt fleira fólki og hún hrasað í brekku og ekki getað stöðvað sig og dottið inn fyrir snúru og snúið á sér fótinn. Lögreglan hafi komið að henni og spurt hana hvort hún gæti gengið og hún neitað því og þá verið tilkynnt um handtöku. Aðspurð um að haft sé eftir lögreglu að hún hafi stefnt í veg fyrir jarðýtu kvaðst ákærða ekki vita hvað væri verið að tala um. Ákærða kvaðst ekki hafa farið inn á vinnusvæðið. Kvaðst ákærða hafa verið sett á börur og borin út af svæðinu og færð í fangaklefa í kjölfar þess. Ákærða kvaðst hafa verið handtekin áður fyrr um daginn.
Vitnið A lögreglumaður kom fyrir dóminn og kvaðst hafa tekið þátt í nokkrum handtökum. Fólk hafi fengið skýr fyrirmæli um að fara út af vinnusvæðinu. Ákærða hafi fengið bein fyrirmæli um að yfirgefa svæðið en hún hafi hlaupið inn á svæðið í átt að vinnuvél. Lögreglumenn hafi náð henni og beðið hana að fara út af svæðinu, sem hún hafi ekki orðið við, og hafi hún sagst vera meidd. Ákærða hafi því verið borið á börum að lögreglubifreiðinni en þegar þangað var komið hafi hún getað staðið upp og gengið óhölt. Vitnið kvað mótmælin annars hafa verið friðsöm. Ekki hafi verið búið að ákveða að handtaka nafngreinda aðila fyrr um daginn heldur eingöngu þá aðila sem ekki færu að fyrirmælum lögreglu.
Vitnið B lögreglumaður kom fyrir dóminn og kvað ákærðu hafa farið inn fyrir lokun svæðisins. Tveir lögreglumenn hafi farið til hennar og hún beðin um að færa sig. Því hafi hún neitað. Fyrirmælin hafi verið ítrekuð en ákærða ekki sinnt því. Vitnið kvaðst ekki muna til þess að ákærða hafi sagst vera meidd á fæti, hún hafi neitað að standa upp og því verið sett á börur og borin út í bifreið en hún hafi gengið ein og óstudd þegar komið var með hana að lögreglubifreiðinni. Fullyrðingu verjanda ákærðu um að ákærða hafi verið á leið út af svæðinu, þegar hún var handtekin, kvað vitnið vera ranga.
Vitnið C kom fyrir dóminn og kvaðst hafa gengið með ákærðu meðfram merkta svæðinu og þær verið staddar í brekku og merkin verið fyrir neðan brekkuna. Einhvern veginn hafi ákærða misst fótanna eða henni skrikað fótur og ekki náð fótfestu og runnið niður brekkuna og dottið inn fyrir snæri sem var fyrir neðan. Um leið hafi lögreglumenn verið komnir og tilkynnt henni að hún væri handtekin. Vitnið kvað merkingar hafa verið færðar til af verktaka og lögreglu en fólk hafi alltaf verið fyrir utan merkingar. Ákærða hafi því dottið inn fyrir merkta svæðið. Vitnið kvaðst sjálft hafa verið handtekið fyrir um morguninn vegna sömu háttsemi.
Vitnið D, lögreglumaður og stjórnandi á vettvangi, kom fyrir dóminn og kvaðst hafa verið stjórnandi aðgerða á vettvangi. Kvaðst vitnið aðspurt ekki muna hversu lengi undirbúningur aðgerða hafi staðið en lögregla hafði margoft verið búin að fara á svæðið vegna mótmæla á fyrri stigum. Aðspurt um sektargerðir frá föstudeginum 18. september 2013 kvaðst vitnið ekki geta svarað fyrir um tilkomu sektargerða í málinu. Aðspurt um það hvort búið hafi verið að ákveða fyrirfram hvaða einstaklinga ætti að handtaka á mánudeginum kvað vitnið það alls ekki vera rétt.
Vitnið hafi ekkert vitað um það á föstudeginum hvað myndi gerast á mánudeginum en vitnið hafi fengið fyrirmæli á mánudagsmorgninum um að fara á vettvang vegna mótmælanna. Þá hafi enginn vitað um það hvernig verkefni lögreglunnar yrði eða myndi þróast. Vitnið kvað lögregluna hafa margítrekað reynt að fá fólkið til að fara af vettvangi en það ekki gengið eftir. Þegar ákærðu hafi verið handtekin höfðu þau öll verið handtekin fyrr um morguninn og færð af svæðinu, svo að lögreglan hafi verið búin að reyna vægari úrræði áður en til handtöku kom. Þau sem hafi verið handtekin hafi öll verið innan vinnusvæðis en hins vegar skipti það yfirleitt ekki máli hvort fólk sé innan afmarkaðs svæðis eða ekki sé á annað borð nauðsynlegt að beita 19. gr. lögreglulaga. Kvað vitnið að í þessu tilviki hafi öllum verið gefin almenn fyrirmæli um að yfirgefa vinnusvæðið. Þeir sem ekki hafi hlýtt þeim fyrirmælum hafi fengið í framhaldi skýr fyrirmæli frá lögreglu um að yfirgefa svæðið og hafi því ekki verið hlýtt hafi fólk verið handtekið og flutt af svæðinu.
Vitnið E kom fyrir dóminn og kvaðst hafa heyrt þegar lögregla beindi þeim fyrirmælum til mótmælenda að yfirgefa vinnusvæði. Kvaðst vitnið sjálft hafa sætt handtöku. Vinnusvæðið hafi eingöngu verið markað með keilum og böndum og hafi svæðið sífellt verið á hreyfingu. Taldi vitnið að bæði mótmælendum og lögreglu hafi stundum stafað hætta af vinnuvélum innan svæðisins.
Framburður annarra vitna hefur ekki þýðingu fyrir úrslit máls þessa.
Önnur sönnunargögn.
Upplýsingaskýrsla lögreglu liggur fyrir í málinu og er hún rakin undir kaflanum „málsatvik“. Þá liggur fyrir skýrsla lögreglu um handtöku ákærðu fyrr um morguninn eða kl. 11:00. Var ákærða þá borin út af vinnusvæði, sem búið var að loka af og ákærða neitaði að yfirgefa, en var sleppt að því loknu.
Skýrsla lögreglu vegna síðari handtökunnar liggur einnig fyrir og þá mótmælti ákærða því að hafa farið inn á merkt vinnusvæði, heldur hafi hún dottið þangað og mótmælti því að hafa ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu.
Ákærða lagði fram fjölda ljósmynda sem teknar voru umræddan dag en eru þó ótímasettar. Þá lagði ákærða einnig fram myndband, sem sett hafði verið saman um mótmælin í Gálgahrauni og handtökur og úr fréttatíma RÚV. Að auki lagði ákærða fram útskrift úr fésbókarsíðu F og athugasemdir við fésbókarsíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Ákærða lagði fram ljósmyndir, sem sýna hvar hún situr meðal fólks á jörðinni og drekkur úr bolla, og ljósmynd þar sem fjórir lögreglumenn bera hana yfir hraunið. Engar dagsetningar né tímasetningar eru á þessum ljósmyndum. Af framburði ákærðu sjálfrar eru þessar myndir frá því fyrir hádegi þennan dag og af fyrri handtökunni.
Forsendur og niðurstöður.
Ekki er ágreiningur um að ákærða, ásamt fleira fólki, var í Gálgahrauni umrætt sinn í þeim tilgangi að mótmæla væntanlegri vegagerð í gegnum hraunið.
Samkvæmt 1. mgr. 73. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 eru allir frjálsir skoðana sinna og sannfæringar og skv. 2. mgr. á hver maður rétt á að láta í ljós hugsanir sínar, en ábyrgjast verður hann þær fyrir dómi. Þetta segir að tjáningarfrelsið er takmarkað þannig að það gengur ekki lengra en önnur stjórnarskrárvarin réttindi manna, t.d. varðandi eignarétt og almannaheill. Í máli þessu höfðu þar til bær stjórnvöld tekið ákvörðun um að leggja veg um Gálgahraun og ekki liggur annað fyrir í málinu en að þau hafi haft þar til bær réttindi og heimildir til að leggja umþrættan veg. Þá liggur fyrir að lögregla eða framkvæmdaraðili Vegagerðarinnar færði til merkingar, sem voru keilur og borðar, eftir því sem verkið vannst. Þýddi það að færa þurfti merkingar til sem afmörkuðu fyrirhugað vinnusvæði. Við það hafi einhver hluti mótmælenda lent innan merkinga á væntanlegu vinnusvæði. Af myndbandi því, sem ákærða lagði sjálf fram, má sjá og heyra lögreglu ítrekað biðja mótmælendur í gegnum gjallarhorn að fara út af vinnusvæðinu. Hefur það ekki farið fram hjá neinum þeirra sem voru í næsta nágrenni lögreglu.
Ákærða krefst sýknu í máli þessu og kveðst ekki hafa óhlýðnast fyrirmælum lögreglu. Í málinu liggur fyrir fjöldi ljósmynda sem ákærða lagði fram. Eru þær teknar af fréttaveitum og af einstaklingum, sem ekki liggur fyrir hverjir eru. Verður að taka ljósmyndum þessum með fyrirvara um sönnunargildi þeirra, en ekki er ljóst af þeim hvenær dags eða í hvaða tilgangi þær voru teknar.
Málsvörn ákærðu byggist á því að aðgerðir lögreglu hafi stangast á við stjórnarskrá Íslands og Mannréttindasáttmála Evrópu. Vísar ákærða í 73. og 74. gr. stjórnarskrár Íslands nr. 33/1944 og 10. og 11. gr. Mannréttindasáttmálans. Hafi aðgerðir lögreglu haft það eina markmið að koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli ákærðu og annarra sem þar hafi verið staddir. Þá hafi aðgerðir lögreglu haft annarlegan tilgang sem hafi verið sá að fá fólk til að gerast brotlegt við lög og í þeim tilgangi að geta brotið mótmælin á bak aftur. Í því skyni hafi lögregla stækkað afmarkað svæði jafnóðum og búið var að vísa fólki út fyrir fyrra svæði. Í kjölfarið hafi lögregla gripið til alvarlegra aðgerða sem hafi verið handtökur og frelsissviptingar og í mörgum tilfellum vistun í fangaklefa.
Ákærða byggir á því að hún hafi átt stjórnarskrárbundinn rétt til að mótmæla, svo framarlega sem það væri gert á friðsaman hátt. Engu ofbeldi hafi verið beitt í umrætt sinn og þá hafi hún ekki sýnt neinn mótþróa þegar lögreglan handtók hana. Þá taldi ákærða þá hagsmuni sína og réttindi til að halda uppi lögmætum mótmælum meiri en þá hagsmuni Vegagerðarinnar að eyðileggja Gálgahraun. Þá hafi skilyrði 19. gr. lögreglulaga ekki verið uppfyllt, enda hafi ákærða mátt vera þarna þar sem um lögmætan tilgang var að ræða og hún hafi verið utan merkts svæðis og að auki hafi hún ekki verið ógnandi né hafi verið um uppþot að ræða.
Af myndskeiði sem ákærða lagði fram má sjá að nokkrir mótmælendur leggjast flötum beinum á jörðina rétt fyrir framan tönn jarðýtunnar og hlusta á lögreglumann vísa þeim burt af svæðinu en þau mótmæla. Engar tímasetningar eru á myndbandinu svo að ekki er ljóst hvort um var að ræða mótmæli fyrir eða eftir hádegi. Hins vegar sjást vel afmarkanir svæðisins með keilum og borðum sem átti ekki að dyljast neinum sem horfði yfir athafnasvæðið. Þá heyrist einnig á myndskeiðinu að lögregla hvetur fólk ítrekað í gjallarhorni að fara út fyrir vinnusvæðið.
Ákærðu Viktoríu er gefið að sök að hafa ekki hlýtt fyrirmælum lögreglu í umrætt sinn en hún kvaðst hafa verið í hrauninu í lögmætum tilgangi þegar hún var handtekin. Þá hafi ákærða dottið inn fyrir merkt svæði og snúið á sér ökklann þannig að hún hafi ekki getað staðið upp og gengið út af svæðinu. Lögreglan hafi þá handtekið hana í framhaldi.
Samkvæmt framburði vitnanna A og B lögreglumanna hljóp ákærða inn á svæðið umrætt sinn og varð ekki við beiðni þeirra um að fara út fyrir svæðið. Þá kvaðst vitnið B ekki kannast við að ákærða hafi verið meidd á fæti, enda hafi hún gengið óstudd að lögreglubifreiðinni þegar þau voru komin þangað. Vitnið A kvaðst muna að ákærða hafi sagst vera meidd á fæti, en hún hafi neitað að standa upp og því verið sett á börur og borin út í bifreið en hún hafi gengið ein og óstudd þegar komið var með hana að lögreglubifreiðinni. Meta verður framburð vitnisins C í ljósi þess að hún hafði sjálf verið handtekin fyrr um daginn og verður ekki loku fyrir það skotið að vitnisburður hennar sé hlutdrægur. Verður niðurstaða máls þessa ekki byggð á framburði hennar.
Í ákærunni er ákært fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu og brotið talið varða við 19. gr., sbr. 41. gr., lögreglulaga. Margar lærðar greinar hafa verið skrifaðar um rétt einstaklinga til skoðana- og tjáningarfrelsis og er sá réttur bundinn í 73. gr. stjórnarskrár Íslands nr. 33 frá 1944 en þar segir í 1. mgr.: „Allir eru frjálsir skoðana sinna og sannfæringar.“ Í 2. mgr. segir að hver maður eigi rétt á að láta í ljós hugsanir sínar, en ábyrgjast verði hann þær fyrir dómi. Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi megi aldrei í lög leiða. Í 3. mgr. segir að tjáningarfrelsi megi aðeins setja skorður með lögum í þágu allsherjarreglu eða öryggis ríkisins, til verndar heilsu eða siðgæði manna eða vegna réttinda eða mannorðs annarra, enda teljist þær nauðsynlegar og samrýmist lýðræðishefðum.
Samkvæmt 15. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 er lögreglu heimilt að hafa afskipti af borgurunum í því skyni að halda uppi almannafriði og allsherjarreglu, til að gæta öryggis einstaklinga og almennings eða til að afstýra brotum eða stöðva þau. Í þessu skyni er lögreglu m.a. heimilt að vísa fólki á brott eða fjarlægja það og fara inn á svæði í einkaeign og fyrirskipa brottflutning fólks af þeim. Í 19. gr. er síðan að finna almennt ákvæði sem kveður á um skyldu borgaranna til að hlýða fyrirmælum lögreglunnar. Það er meginregla íslenskrar stjórnskipunar að enginn geti komið sér hjá því að hlýða yfirvaldsboði í bráð þótt hann vefengi heimildir stjórnvalda, sbr. 60. gr. stjórnarskrárinnar. Þótt ákærða teldi sig hafa ástæðu til að draga í efa að heimilt væri að ganga svo langt sem raun ber vitni við vegaframkvæmdir, veitti það ekki rétt til að hindra framkvæmdir hennar á þann hátt, sem ákærða gerði. Í máli þessu liggur fyrir að ákærða hlýddi ekki augljósum fyrirmælum lögreglu um að fara út af vinnusvæði og láta af aðgerðum sínum að því marki sem hún gekk á rétt annarra til að halda áfram lögmætum framkvæmdum og voru aðgerðir lögreglu því nauðsynlegar í umrætt sinn og samrýmast heimildum 3. mgr. 73. gr. stjórnarskrárinnar.
Ákærðu átti að vera fullljóst að hún var að fara gegn fyrirmælum lögreglu. Þá breytir engu þótt ákærða hafi ekki neitað að yfirgefa svæðið, heldur felast í þeirri háttsemi einni að standa ekki upp og yfirgefa svæðið þegar henni var fyrirskipað það, þannig að lögregla hafi þurft að bera ákærðu af svæðinu, mótmæli við fyrirmælum lögreglu.
Af framburði vitnanna Ólafs og Péturs lögreglumanna um atvikið og því að ákærða gekk óstudd þegar að lögreglubifreiðinni kom, telur dómurinn fullsannað að ákærða hafi ekki farið að fyrirmælum lögreglu þegar hún var handtekin. Hefur ákæruvaldið fært fram lögfulla sönnun þess að ákærða hafi gerst brotleg eins og greinir í ákæru og verður henni gerð refsing fyrir. Er háttsemin réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærðu hefur ekki verið gerð refsing áður. Þrátt fyrir að ákærða hafi verið í friðsamlegum mótmælum í Gálgahrauni umrætt sinn, þá verður sá tilgangur ekki metinn henni til refsilækkunar í máli þessu þar sem mótmæli ákærðu gengu lengra en stjórnarskrárvarinn réttur hennar var. Er þeirri málsástæðu hafnað.
Er refsing ákærðu ákveðin 100.000 krónur í sekt til ríkissjóðs, sem ákærðu ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæta ella fangelsi í átta daga. Ákærða greiði allan sakarkostnað, sem eru málflutningslaun skipaðs verjanda hennar, Ragnheiðar E. Þorsteinsdóttur hdl., sem þykja hæfilega ákveðin 150.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Ákærða, Viktoría Áskelsdóttir, greiði 100.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms þessa en sæti ella fangelsi í átta daga.
Ákærða greiði allan sakarkostnað, sem eru málflutningslaun skipaðs verjanda hennar, Ragnheiðar E. Þorsteinsdóttur hdl., 150.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ástríður Grímsdóttir.
Rétt endurrit staðfestir Héraðsdómur Reykjaness 9.10. 2014.