Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-880/2013:

Ár 2013, mánudaginn 7. október, er á dómþingi

máli nr. S-880/2013:

Ákæruvaldið

(Alda Hrönn Jóhannsdóttir ftr)

gegn

Safar Ali Nazari

svofelldur;

D Ó M U R

Mál

þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á

Suðurnesjum, útgefinni 27. september 2013, á hendur Safar Ali Nazari, sagður

vera fæddur 1. júlí 1996, afgönskum ríkisborgara, fyrir skjalafals, með því að hafa, þann 28. ágúst 2013, framvísað við

landamæralögreglu í flugstöð Leifs Eiríkssonar, í blekkingarskyni, er hann var

á leið til Toronto í Kanada með flugi FI603, breytifölsuðu vegabréfi nr.

JR3161314 frá Suður-Kóreu, á nafni Il Bhum Park, f.d. 16.12.1990, útgefnu þann

18.03.2009 með gildistíma til 18.03.2019.

Telst þessi háttsemi ákærða

varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og

til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Um málavaxtalýsingu er skírskotað til ákæru.

Ákærði játaði brot sitt skýlaust fyrir dóminum eins og

því er lýst í ákæru. Þykir með játningu ákærða, sem á sér stoð í öðrum gögnum

málsins, sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem ákært er fyrir og

er brot ákærða rétt heimfært til refsiákvæða í ákærunni. Ákærði krafðist

vægustu refsingar sem lög leyfa og jafnframt að hún verði skilorðsbundin í

ljósi aldurs hans og játningar.

upplýsingar liggja fyrir um það hvort ákærði hefur áður gerst sekur um

refsiverða háttsemi. Í gögnum málsins liggur fyrir rannsókn tannfræðilegra

gagna vegna aldursgreiningar ákærða. Segir í matinu: „Við mat á aldri af

aðstæðum í munni og klínískri reynslu teljum við hann geti verið á aldursbilinu

25-35 ára.“  Þá segir einnig í forsendum:

„Allir endajaxlar eru fullmyndaðir og með lokaðar rætur og samkvæmt aðferð

Kullman með þroskastig Ac eða 7, og aldurinn því a.m.k. 19.2 ár og staðalfrávik

1.0 ár. Samkvæmt aðferð Liversidge er aldurinn 19.53 ár og staðalfrávik 1.08 ár

og aðferð Mincer 20.35 ár og staðalfrávik 2.03 ár. Ef tekin eru meðaltöl

þessara þriggja aðferða fæst að aldurinn er að minnsta komist 19.7 ár og

staðalfrávik 1.4 ár.“ Í niðurstöðum matsins segir að það sé mat þeirra að

ákærði sé eldri en tvítugur og sennilega nær þrítugu. Telja þeir nánast

útilokað að uppgefinn aldur, sautján ár og tveir mánuðir standist.

Með hliðsjón af ofangreindu og þrátt fyrir

staðalfrávik ákærða í hag, verður að telja að hann sé allavega orðinn átján ára

gamall.

Við ákvörðun refsingar er litið til þess að ákærði

hefur gengist við broti sínu. Þá er litið til þess að ekkert liggur fyrir um

það að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Með hliðsjón af

framangreindu og dómaframkvæmd þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í

(Snorri Snorrason hdl)

Skjalafals.

Ákærði sakfelldur fyrir að framvísa breytifölsuðu vegabréfi á leið sinni úr landi.

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum, útgefinni 27. september 2013, á hendur Safar Ali Nazari, sagður vera fæddur 1. júlí 1996, afgönskum ríkisborgara, fyrir skjalafals, með því að hafa, þann 28. ágúst 2013, framvísað við landamæralögreglu í flugstöð Leifs Eiríkssonar, í blekkingarskyni, er hann var á leið til Toronto í Kanada með flugi FI603, breytifölsuðu vegabréfi nr. JR3161314 frá Suður-Kóreu, á nafni Il Bhum Park, f.d. 16.12.1990, útgefnu þann 18.03.2009 með gildistíma til 18.03.2019.

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Um málavaxtalýsingu er skírskotað til ákæru.

Ákærði játaði brot sitt skýlaust fyrir dóminum eins og því er lýst í ákæru. Þykir með játningu ákærða, sem á sér stoð í öðrum gögnum málsins, sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem ákært er fyrir og er brot ákærða rétt heimfært til refsiákvæða í ákærunni. Ákærði krafðist vægustu refsingar sem lög leyfa og jafnframt að hún verði skilorðsbundin í ljósi aldurs hans og játningar.

Í málinu liggur ekki fyrir sakavottorð. Engar upplýsingar liggja fyrir um það hvort ákærði hefur áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Í gögnum málsins liggur fyrir rannsókn tannfræðilegra gagna vegna aldursgreiningar ákærða. Segir í matinu: „Við mat á aldri af aðstæðum í munni og klínískri reynslu teljum við hann geti verið á aldursbilinu 25-35 ára.“ Þá segir einnig í forsendum: „Allir endajaxlar eru fullmyndaðir og með lokaðar rætur og samkvæmt aðferð Kullman með þroskastig Ac eða 7, og aldurinn því a.m.k. 19.2 ár og staðalfrávik 1.0 ár. Samkvæmt aðferð Liversidge er aldurinn 19.53 ár og staðalfrávik 1.08 ár og aðferð Mincer 20.35 ár og staðalfrávik 2.03 ár. Ef tekin eru meðaltöl þessara þriggja aðferða fæst að aldurinn er að minnsta komist 19.7 ár og staðalfrávik 1.4 ár.“ Í niðurstöðum matsins segir að það sé mat þeirra að ákærði sé eldri en tvítugur og sennilega nær þrítugu. Telja þeir nánast útilokað að uppgefinn aldur, sautján ár og tveir mánuðir standist.

Með hliðsjón af ofangreindu og þrátt fyrir staðalfrávik ákærða í hag, verður að telja að hann sé allavega orðinn átján ára gamall. Við ákvörðun refsingar er litið til þess að ákærði hefur gengist við broti sínu. Þá er litið til þess að ekkert liggur fyrir um það að ákærði hafi áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Með hliðsjón af framangreindu og dómaframkvæmd þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga. Með hliðsjón af áralangri dómvenju og aldri ákærða þykja ekki vera efni til að skilorðsbinda refsinguna. Þá bera að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar sbr. 218. gr. laga nr. 88/2008, sem er þóknun skipaðs verjanda hans, Snorra Snorrasonar hdl., sem þykja hæfilega ákveðin 150.600 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.

Dóm þennan kveður upp Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari.

Dómsorð:

Ákærði, Safar Ali Nazari, afganskur ríkisborgari, skal sæta fangelsi í 30 daga.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Snorra Snorrasonar hdl. 150.600 krónur.

Ástríður Grímsdóttir.

Rétt endurrit staðfestir Héraðsdómur Reykjaness 7. október 2013

Heimildaskrá