Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 11. október 2012.
Mál nr. S-687/2012:
S-687/2012:
Ákæruvaldið
(Einar Tryggvason ftr)
gegn
Eggert Jens Birgissyni
(Hólmgeir Elías Flosason hdl)
Lykilorð
Brot gegn valdstjórninni. Líkamsárás.
Útdráttur
Ákærði dæmdur í 8 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni og líkamsárás
Mál þetta sem dómtekið var í dag er höfðað með tveimur ákærum, hinni fyrri útgefinni af ríkissaksóknara 27. ágúst 2012 og hinni síðari útgefinni 17. september 2012 af lögreglustjóranum á Hvolsvelli á hendur Eggerti Jens Birgissyni, kennitala 000000-0000, Keilisbraut 754, Reykjanesbæ, fyrir eftirtalin brot framin á lögreglustöðinni á Selfossi:
- Fíkniefnalagabrot með því að hafa, að kvöldi föstudagsins 1. júlí 2011, haft í vörslum sínum 0,36 g af maríhúana, sem lögreglumenn fundu við öryggisleit á ákærða.
M. 031-2011-1954
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
- Brot gegn valdstjórninni og líkamsárás með því að hafa, aðfaranótt laugardagsins 2. júlí 2011, í fangageymslu lögreglustöðvarinnar á Selfossi, ráðist með ofbeldi á lögreglumanninn Björn Eðvarð Grétarsson, sem var þar að gegna skyldustörfum. Ákærði sló Björn Eðvarð hnefahöggi í andlitið og skallaði hann því næst í andlitið, þá veitti hann Birni ítrekuð hnefahögg í höfuðið, og loks veitti hann Birni Eðvarði tvö hnéspörk í andlitið. Við atlöguna nefbrotnaði Björn Eðvarð, hlaut bólgu og mar á vinstra eyra og kúlu hægra megin á hnakka.
M. 033-2011-4593
Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. og 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
- Brot gegn valdstjórninni með því að hafa, aðfaranótt laugardagsins 2. júlí 2011, skömmu eftir atvik þau sem lýst er í ákærulið 2, í fangaklefa nr. 1 á lögreglustöðinni, ráðist með ofbeldi á lögreglumanninn Jóhann Valgeir Helgason, sem var þar að gegna skyldustörfum, en ákærði þreif í hálsmál Jóhanns Valgeirs og þrengdi að hálsinum og sló því næst Jóhann Valgeir hnefahöggi í andlitið, með þeim afleiðingum að nefið bólgnaði.
M. 033-2011-4593
Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Jafnframt er krafist upptöku á 0,36 g af maríhúana, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.
Einkaréttarkrafa:
Af hálfu Björns Eðvars Grétarssonar, kt. 000000-0000, gerir Grímur Hergeirsson hdl. þá kröfu að ákærði verði dæmdur til að greiða brotaþola, bætur að fjárhæð kr. 548.300,- með vöxtum skv. 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 2. júlí 2011 til þess dags er mánuður er liðinn frá birtingu bótakröfu en með dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. laga nr. 38/2001, um vexti og verðtryggingu frá þeim degi til greiðsludags. Þá er krafist greiðslu á þóknun lögmanns brotaþola að teknu tilliti til virðisaukaskatts, aðallega samkvæmt framlögðum málskostnaðarreikningi en til vara samkvæmt mati héraðsdóms.
Seinni ákæran fékk málanúmerið S/-766/201 og voru málin sameinuð við þingfestingu undir númerinu S-687/2012.
Í seinni ákærunni er sakborningurinn ákærður fyrir líkamsárás með því að hafa að kvöldi föstudagsins 1. júlí 2011 í veitingasal á Hellishólum, Rangárþingi eystra, veist að Snjólfi Fanndal Kristbergssyni, kt. 000000-0000 með því að slá hann hnefahöggi í andlitið svo hann fell við og eftir það sparkað í kvið hans þar sem hann lá í gólfinu, allt með þeim afleiðingum að Snjólfur hlaut eymsli í vinstri brjósthelmingi, sár á nefi og glóðarauga á vinstra auga.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Einkaréttarkrafa:
Í málinu gerir Jón Ármann Guðjónsson, f.h. brotaþola, Snjólfs, þá kröfu að brotamanni verði gert að greiða skaðabætur að fjárhæð 500.000 krónur.
Ákærði hefur krafist vægustu refsingar sem lög leyfa. Þá gerir verjandi kröfu um málsvarnarlaun.
Um málavexti er vísað til ákæru.
Ákærði hefur í þinghaldinu í dag játað þær sakir sem hann er borinn í ákæru. Hann hefur ekki mótmælt bótaskyldu en krafist þess að bætur verði lækkaðar verulega frá því sem krafist er. Varðandi bótakröfu brotaþolans Snjólfs Fanndal telur dómari hana svo vanbúna, bæði varðandi gögn, uppsetningu og rökstuðning að óhjákvæmilegt sé að vísa henni frá dómi án kröfu. Bótakrafa Björns Eðvarðs Grétarssonar verður tekin til greina með þeirri breytingu til lækkunar að miskabætur skv. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 lækka úr 500.000 krónum í 250.000 krónur. Þjáningabætur standa óbreyttar í 48.300 krónum.
Verður mál þetta því dæmt samkvæmt heimildarákvæði 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, en með skýlausri játningu ákærða, sem samrýmist öðrum gögnum málsins, telst sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar eru réttilega heimfært til refsiákvæða. Hvorugur málsaðili hefur gert kröfu um að aðalmeðferð fari fram.
Dómari gaf sækjanda og verjanda kost á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærði hefur lagt fram vottorð um meðferð á Sjúkrahúsinu Vogi frá 3. til 12. nóvember 2011 dvöl í eftirmeðferð á Staðarfelli frá 16. ágúst til 13.september 2011. Ákærði fer nú sameiginlega við móður með forsjá tveggja sona sinna, tveggja og þriggja ára og er í fullri vinnu.
Ákærði sem fæddur er 5. júlí 1985 á ekki að baki neinn sakaferil þar sem ofbeldi kemur við sögu. Ákærði hlaut þann 18. maí 2012 tveggja mánaða fangelsi og var sviptur ökurétti ævilangt frá þeim degi fyrir að aka sviptur ökuréttindum undir áhrifum fíkniefna (1. sbr. 2. mgr. 45a gr. umferðarlaga).
Verður síðastnefndur dómur því dæmdur upp og málin bæði tekin til meðferðar og dæmd í einu lagi eftir reglum 78. gr. sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þykir refsing ákærða nú hæfilega ákveðin 8 mánaða fangelsi. Ljóst er af málsgögnum að ákærði framdi brot sín með eins dags millibili í áfengisvímu sem hann sjálfur ber ábyrgð á að hafa komið sér í. Hann hefur sannanlega reynt að ráða bót á þeim vanda sem hún kom honum í. Vísað er til 5. og 8. tl. 1. mgr. 70. gr. laga 88/2008. Eins og staða ákærða er nú og rakið hefur verið og í ljósi þess að hann baðst strax afsökunar á framkomu sinni og lét í ljós iðrun sína, þykir að öllu virtu rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og ákveða að hún skuli niður falla að liðnum þremur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr.4. gr. laga nr. 22/1955.
Samkvæmt 218. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar eins og segir í dómsorði.
Einar Tryggvason aðstoðarsaksóknari sótti málið.
Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari kveður upp dóminn.
D ó m s o r ð:
Ákærði, Eggert Jens Birgisson, sæti fangelsi í 8 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum þremur árum frá birtingu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði allan sakarkostnað þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns Hólmgeirs Elíasar Flosasonar 151.310 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti og útlagðan kostnað samkvæmt yfirliti sækjanda vegna læknisvottorðs 17.250 krónur.
Þá skal ákærði greiða Birni Eðvarð Grétarssyni 298.300 krónur í skaðabætur, auk 87.850 króna vegna kostnaðar við að halda kröfunni til laga.
Bótakröfu Snjólfs Fanndal Kristbergssonar er vísað frá dómi.
Sveinn Sigurkarlsson