Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 18. janúar 2013.
Mál nr. S-314/2012:
S-314/2012:
Ákæruvaldið
(Karl Ingi Vilbergsson aðstoðarsaksóknari)
gegn
Hans Aðalsteini Helgasyni,
(Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl)
Jens Trygga Jenssyni,
(Reynir Logi Ólafsson hdl)
Jóni Ólafi Róbertssyni,
(Sigurvin Ólafsson hdl)
Sigmundi Geir Helgasyni og
(Sveinn Guðmundsson hrl)
Sturlu Reynissyni
(Guðmundur St. Ragnarsson hdl)
Lykilorð
Játningarmál. Líkamsárás. Miskabætur. Upptaka.
Útdráttur
Ákærðu sakfelldir fyrir líkamsárás og miskabætur dæmdar.
Mál þetta, sem dómtekið var þann 14. þ.m., er höfðað með ákæru útgefinni af ríkissaksóknara 16. apríl 2012 á hendur Hans Aðalsteini Helgasyni, kennitala 000000-0000, Vesturbergi 6, Reykjavík, Jens Tryggva Jenssyni, kennitala 000000- 0000, Teigabyggð 3, Hafnarfirði, Jóni Ólafi Róbertssyni, kennitala 000000-0000, Klukkubergi 23, Hafnarfirði, Sigmundi Geir Helgasyni, kennitala 000000-0000, Vesturbergi 6, Reykjavík, og Sturlu Reynissyni, kennitala 000000-0000, Háholti 11, Hafnarfirði, fyrir eftirfarandi hegningarlagabrot:
- Á hendur ákærðu öllum fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa föstudaginn 3. september 2010, innandyra á verkstæðinu Pit Stop að Rauðhellu 11 í Hafnarfirði, í félagi veist að Trausta Þórarinssyni, elt hann upp á aðra hæð húsnæðisins, slegið hann með kylfu í höfuð og líkama og hrint honum á glervasa sem brotnaði, allt með þeim afleiðingum að Trausti hlaut skurð á hvirfli, sem sauma þurfti með 6 sporum, mar og bólgu á vinstri framhandlegg og löngutöng.
Telst háttsemi ákærðu varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
M. 007-2010-56774
- Á hendur ákærða Jens Tryggva fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 5. mars 2011, á skemmtistaðnum Risinu við Tryggvagötu í Reykjavík, kastað bjórglasi í vinstri vanga Sigurðar Inga Jónassonar, með þeim afleiðingum að bjórglasið brotnaði, ýtt honum upp að vegg og tekið hann kverkataki, allt með þeim afleiðingum að Sigurður Ingi hlaut sár og skurði á andliti og hálsi sem sauma þurfti með samtals 38 sporum, yfirborðsáverka í hársverði, tognun á hálsvöðvum, varanlega sköddun á taugum til vinstri raddbands og lömun á vinstra raddbandi.
Telst háttsemi ákærða varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
M. 007-2011-13778
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Einkaréttarkrafa:
Af hálfu Sigurðar Inga Jónassonar, kennitala 000000-0000, er þess krafist að ákærði Jens Tryggvi verði dæmdur til greiðslu miskabóta, samtals að fjárhæð krónur 800.000 með vöxtum skv. 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 5. mars 2011, en síðan með dráttarvöxtum skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. vaxtalaga, frá þeim tíma er mánuður er liðinn frá því að krafan er birt árásarmanni til greiðsludags. Þá er þess jafnframt krafist að árásarmanni verði gert að greiða málskostnað skv. síðar framlögðum málskostnaðarreikningi að viðbættum 25,5% virðisaukaskatti, fyrir að halda fram bótakröfu sinni í málinu.
Mál nr. S-444/2012, sem var höfðað á hendur ákærða Sigmundi Geir Helgasyni, með ákæru útgefinni 23. maí 2012 var sameinað þessu máli í þinghaldi þann 1. júní 2012, sbr. heimild í 1. mgr. 169. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, og málin eftirleiðis rekin undir málsnúmeri þessa máls. Í ákærunni frá 23. maí 2012 er ákærði Sigmundur Geir sakaður um fíkniefnalagabrot, með því að hafa mánudaginn 17. október 2011, á dvalarstað sínum að Vesturbergi 6 í Reykjavík haft í vörslum sínum 23 kannabisplöntur, 0,8 g af amfetamíni og 5 ml. af anabólískum sterum af gerðinni Trenbolon sem lögreglumenn fundu við leit.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er krafist upptöku á 23 kannabisplöntum, 0,8 g af amfetamíni og 5 ml. af anabólískum sterum af gerðinni Trenbolon, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Jafnframt er krafist upptöku á 4 gróðurhúsalömpum, 2 blásurum, 1 mæli, 3 vatnsdælum, 4 tjaldsúlum og 1 filter samkvæmt 7. mgr. 5. gr. sömu laga.
Ákærðu krefjast allir vægustu refsingar er lög leyfa. Ákærði Jens Tryggvi hefur ekki mótmælt miskabótakröfu Sigurðar Inga Jónassonar sem fram kemur í ákæruskjali en gerir án nánari rökstuðnings kröfu um lækkun hennar. Ákærði Sigmundur Geir hefur ekki andmælt upptökukröfu sem höfð er uppi á ákæru frá 23. maí 2012.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda, réttargæslumanni brotaþola og verjendum ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Um málavexti er vísað til ákæru.
Ákærðu hafa skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningum ákærðu og öðrum gögnum málsins að þeir er sekir um þá háttsemi sem þeim er gefin að sök og eru brot þeirra rétt heimfærð til refsiákvæðis í ákærum. Engar óskir hafa komið fram um að fram fari aðalmeðferð í málinu.
Ákærði Hans Aðalsteinn Helgason er fæddur 10. júlí 1990. Hann hlaut þann 28. október 2009 30 daga fangelsisdóm skilorðsbundinn til tveggja ára fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga og 37. og 1. sbr. 2. mgr. 45a gr. og 48. gr. umferðarlaga. Þann 30. október 2012 var hann dæmdur í níu mánaða fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára fyrir brot gegn 264. gr. almennra hegningarlaga og skilorðsdómurinn frá 28. október 2009 dæmdur upp. Brot ákærða nú er framið áður en dómur gekk þann 30. október 2012. Ber því nú að dæma ákærða hegningarauka, og dæma upp skilorðsdóminn frá 30. október 2012 og gera ákærða refsingu í einu lagi, sbr. 60. og 78. gr. almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar ákærða verður litið til þess að brot hans var framið í félagi við meðákærðu og er það virt til refsiþyngingar, sbr. 2. mgr. 70. gr. sömu laga. Ákærði hefur hins vegar játað brot sitt og er það virt honum til málsbóta. Jafnframt ber að horfa til aldurs ákærða, sbr. 4. tl. 70. gr., en hann var liðlega tvítugur að aldri er hann framdi brot sitt.
Er refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 12 mánuði. Rétt þykir að fresta fullnustu refsingarinnar, og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum frá birtingu dómsins, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði Jens Tryggvi Jensson er fæddur 28. júlí 1989. Samkvæmt sakavottorði hans var hann á árinu 2007 dæmdur til þess að greiða sekt vegna umferðarlagabrots. Á árinu 2008 var hann dæmdur í fangelsi í fimm mánuði, skilorðsbundið í þrjú ár, fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Hinn 9. nóvember 2009 var ákærða gerð sekt með lögreglustjórasátt fyrir umferðarlagabrot og sviptur ökurétti. Með dómi 12. nóvember 2010 var ákærði dæmdur í níu mánaða fangelsi, þar af voru sjö mánuðir skilorðsbundnir í þrjú ár, fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr., 1. mgr. 218. gr., 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga og umferðarlagabrot. Skilorðsdómurinn frá 19. febrúar 2008 var þá dæmdur upp. Þá var ákærði dæmdur 19. apríl 2011 til að sæta fangelsi í tólf mánuði, en þar af voru níu mánuðir skilorðsbundnir í þrjú ár, fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. og 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Skilorðsdómurinn frá 12. nóvember 2010 var dæmdur upp. Með dómi frá 30. október 2012 var ákærði dæmdur í þriggja ára fangelsi, fyrir brot gegn 155.gr., 254. og 247. gr. almennra hegningarlaga. Skilorðadómur frá 19. apríl 2011 var þá dæmdur upp. Ákærða verður nú dæmdur hegningarauki, sbr. 60. sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar ákærða verður litið til þess að brot hans samkvæmt 1. ákærulið var framið í félagi við meðákærðu og er það virt til refsiþyngingar, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Brot ákærða samkvæmt 2. ákærulið er sérstaklega hættuleg líkamsárás sem hafði í för með sér varanlegar og alvarlegar afleiðingar vegna taugaskaða og lömunar. Ekki er um það deilt að ákærði eigi við ofvirkni og athyglisbrest að stríða sem getur leitt til skerðingar á yfirvegun við áreiti. Ákærði hefur játað brot sín og er það virt honum til málsbóta.
Að öllu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðinn fangelsi í sex mánuði. Ekki eru nein skilyrði til þess skilorðsbinda fullnustu refsingarinnar.
Ákærði hefur viðurkennt skyldu sína til þess að greiða Sigurði Inga Jónassyni miskabætur skv. 26. gr. skaðabótalaga en talið kröfu hans of háa. Í ljósi þeirra alvarlegu afleiðinga sem hlutust af árás ákærða á brotaþola þykir fjárhæð miskabótakröfu í hóf stillt og verður því á hana fallist og ákærði dæmdur til þess að greiða Sigurði miskabætur, samtals að fjárhæð krónur 800.000 með vöxtum skv. 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 5. mars 2011, en síðan með dráttarvöxtum skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. vaxtalaga, frá 23. júní 2012 til greiðsludags. Þá skal ákærði greiða þóknun lögmanns Sigurðar Inga fyrir að halda fram bótakröfu í málinu, en hún þykir hæfilega ákveðinn 251.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærði Jón Ólafur Róbertsson er fæddur í júlí 1989 og var því 21 árs gamall er hann framdi brot sitt. Hann gekkst undir viðurlagaákvörðun í desember 2008 fyrir eignaspjöll og í nóvember 2010 gekkst hann undir sátt fyrir ölvunarakstur. Þá var ákærði dæmdur í sjö mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, þann 30. október sl. fyrir fjármunabrot. Með dómi sem gekk þann 20. desember 2012 fékk ákærði tveggja ára óskilorðsbundinn fangelsisdóm og með þeim dómi var dómurinn frá 30. október sl. dæmdur upp. Ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir hættulega líkamsárás og félagi með öðrum meðákærðu. Brot ákærða nú var framið áður en sá dómur gekk. Ákærði hefur játað brot sitt og verður það virt honum til málsbóta.Verður ákærða nú dæmdur hegningarauki, sbr. 60. gr., sbr. 78. gr., almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar ber að líta til 1., 3., 5., 6., 7., og 8. tl. 1. mgr. 70. gr. og 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Að öllu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðinn fangelsi í tvo mánuði. Ekki eru nein skilyrði til þess skilorðsbinda fullnustu refsingarinnar.
Ákærði Sigmundur Geir Helgason er fæddur 1984. Hefur honum sjö sinnum verið gerð refsing fyrir ýmis brot. Í mars 2006 var hann dæmdur í 30 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir fíkniefnalagabrot. Í febrúar 2007 gekkst hann undir tvær sáttir fyrir umferðarlagabrot. Í maí 2009 gekkst hann undir viðurlagaákvörðun fyrir ýmis umferðarlagabrot, m.a. fíkniefnaakstur. Í september 2009 var hann dæmdur til greiðslu sektar fyrir umferðarlagabrot og fíkniefnaakstur og í nóvember 2010 gekkst hann undir sátt fyrir umferðarlagabrot. Ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir hættulega líkamsárás í félagi með meðákærðu auk brots gegn fíkniefnalöggjöfinni. Ákærði á sér engar málsbætur aðrar en að hafa játað brot sín. Við ákvörðun refsingar ber að líta til 1., 3., 6., 7. og 8. tl. 1. mgr. 70. gr. og 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Að öllu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðinn fangelsi í tvo mánuði. Ekki kemur til greina að skilorðsbinda fullnustu refsingarinnar. Þá verður ákærða gert að sæta upptöku á fíkniefnum og tólum og tækjum þeim tengdum eins og krafist er í ákæruskjali frá 23. maí 2012, eins og nánar greinir í dómsorði. Upptökunnar á fíkniefnunum er krafist á grundvelli samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 en á tólum og tækjum þeim tengdum á grundvelli 7. mgr. 5. gr. sömu laga.
Ákærði Sturla Reynisson er fæddur 17. ágúst 1990. Samkvæmt sakavottorði hlaut hann níu mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm þann 2. nóvember 2012 fyrir þrjár líkamsárásir. Brot ákærða nú er framið áður en sá dómur gekk. Ber því nú að dæma ákærða hegningarauka, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga, en skilorðsdómurinn frá 2. nóvember 2012 er dæmdur upp og ákærða gerð refsing í einu lagi, sbr. 60. sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga. Við ákvörðun refsingar ákærða verður litið til þess að brot hans var framið í félagi við meðákærðu og er það virt til refsiþyngingar, sbr. 2. mgr. 70. gr. Ákærði hefur hins vegar játað brot sitt og er það virt honum til málsbóta. Jafnframt ber að horfa til aldurs ákærða, sbr. 4. tl. 70. gr., en hann var liðlega tvítugur að aldri er hann framdi brot sitt.
Er refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 12 mánuði. Rétt þykir að fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum frá birtingu dómsins, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Eftir þessum úrslitum skal samkvæmt ákvæðum 218. gr. laga um meðferð sakamála ákærðu gert að greiða allan sakarkostnað.
Ákærði Hans Aðalsteinn Helgason greiði sem sakarkostnað þóknun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hæstaréttarlögmanns, 502.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærði Jens Tryggvi Jensson greiði 558.250 krónur í sakarkostnað, þar með talda þóknun skipaðs verjanda síns, Reynis Loga Ólafssonar héraðsdómslögmanns, 502.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti og 56.250 króna kostnað við öflun læknisvottorða vegna brotaþola.
Ákærði Jón Ólafur Róbertsson greiði sem sakarkostnað þóknun skipaðs verjanda síns, Sigurvins Ólafssonar héraðsdómslögmanns, 502.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærði Sigmundur Geir Helgason greiði sem sakarkostnað þóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Guðmundssonar hæstaréttarlögmanns, 502.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ákærði Sturla Reynisson greiði sem sakarkostnað skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar héraðsdómslögmanns, 502.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Af hálfu ákæruvaldsins sótti málið Karl Ingi Vilbergsson aðstoðarsaksóknari lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Dóm þennan kveður upp Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari.
D ó m s o r ð:
Ákærði Jens Tryggvi Jensson sæti fangelsi í 6 mánuði.
Ákærði Jón Ólafur Róbertsson sæti fangelsi í 2 mánuði.
Ákærði Sigmundur Geir Helgason sæti fangelsi í 2 mánuði.
Ákærði Hans Aðalsteinn Helgason sæti fangelsi í 12 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum tveimur árum frá birtingu dómsins, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði Sturla Reynisson sæti fangelsi í 12 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum tveimur árum frá birtingu dómsins, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði Jens Tryggvi skal greiða Sigurði Inga Jónassyni 800.000 krónur í miskabætur, með vöxtum skv. 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 5. mars 2011, en síðan með dráttarvöxtum skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. vaxtalaga, frá 23. júní 2012 til greiðsludags. Þá skal ákærði greiða þóknun lögmanns Sigurðar Inga, Agnars Þórs Guðmundssonar, 251.000 krónur.
Ákærði Jens Tryggvi Jensson greiði 558.250 krónur í sakarkostnað, þar með talda þóknun skipaðs verjanda síns, Reynis Loga Ólafssonar héraðsdómslögmanns, 502.000 krónur og 56.250 krónur vegna kostnaðar við öflun læknisvottorða vegna brotaþola.
Ákærði Jón Ólafur Róbertsson greiði sem sakarkostnað þóknun skipaðs verjanda síns, Sigurvins Ólafssonar héraðsdómslögmanns, 502.000 krónur.
Ákærði Sigmundur Geir Helgason greiði sem sakarkostnað þóknun skipaðs verjanda síns, Sveins Guðmundssonar hæstaréttarlögmanns, 502.000 krónur.
Ákærði Hans Aðalsteinn Helgason greiði sem sakarkostnað þóknun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hæstaréttarlögmanns, 502.000 krónur.
Ákærði Sturla Reynisson greiði sem sakarkostnað þóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar héraðsdómslögmanns, 502.000 krónur.
Ákærði Sigmundur Geir Helgason skal sæta upptöku á 23 kannabisplöntum, 0,8 g af amfetamíni og 5 ml. af anabólískum sterum af gerðinni Trenbolon, 4 gróðurhúsalömpum, 2 blásurum, 1 mæli, 3 vatnsdælum, 4 tjaldsúlum og 1 filter.
Sveinn Sigurkarlsson