Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-441/2011:

Ákæruvaldið

(Sigrún Inga Guðnadóttir ftr)

gegn

Olgeiri Guðbergi Valdimarssyni og

Ægi Þór Þrastarsyni

Mál

þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af

lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 22. mars 2011 á hendur Olgeiri G,

Valdimarssyni, kt. […], Suðurgötu 45, Hafnarfirði, og Ægi Þór Þrastarsyni, kt. […],

Lynghvammi, Hafnarfirði, fyrir eftirtalin brot:

I.

Ákærðu

báðum fyrir hegningarlagabrot í Hafnarfirði með því að hafa þann 27. júlí 2010

í félagi við óþekktan aðila í heimildarleysi tekið bifreiðina […] þar sem hún

stóð við Lækjarhvamm 1 og notað hana með þeim hætti að Olgeir ók henni um ýmsar

götur í Hafnarfirði og svo aftur að Lækjarhvammi þar sem þeir stöðvuðu aksturinn

og umráðamenn bifreiðarinnar náðu til þeirra en lögregla kom á vettvang skömmu

síðar.

Þetta

er talið varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1.

gr. laga nr. 20/1956.

II.

Ákærða

Ægi Þór fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni með því að hafa í sama

skipti og greinir í I. kafla haft í vörslum sínum 3,52 grömm af tóbaksblönduðu

kannabisefni sem hann framvísaði lögreglu.

Telst

þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr.

65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14.

gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr.

233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Þess

Ávana- og fíkniefni. Játningarmál. Nytjastuldur. Upptaka.

Tveir ungir menn voru dæmdir í eins mánaðar fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir brot gegn 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga og annar mannanna einnig fyrir fíkniefnalagabrot.

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 22. mars 2011 á hendur Olgeiri G, Valdimarssyni, kt. […], Suðurgötu 45, Hafnarfirði, og Ægi Þór Þrastarsyni, kt. […], Lynghvammi, Hafnarfirði, fyrir eftirtalin brot:

I.

Ákærðu báðum fyrir hegningarlagabrot í Hafnarfirði með því að hafa þann 27. júlí 2010 í félagi við óþekktan aðila í heimildarleysi tekið bifreiðina […] þar sem hún stóð við Lækjarhvamm 1 og notað hana með þeim hætti að Olgeir ók henni um ýmsar götur í Hafnarfirði og svo aftur að Lækjarhvammi þar sem þeir stöðvuðu aksturinn og umráðamenn bifreiðarinnar náðu til þeirra en lögregla kom á vettvang skömmu síðar.

Þetta er talið varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 20/1956.

II.

Ákærða Ægi Þór fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni með því að hafa í sama skipti og greinir í I. kafla haft í vörslum sínum 3,52 grömm af tóbaksblönduðu kannabisefni sem hann framvísaði lögreglu.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er þess krafist að gerð verði upptæk fíkniefni sem lögregla lagði hald á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Ákærðu krefjast vægustu refsingar er lög leyfa.

Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Ákærðu hafa skýlaust játað brotin. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að þeir eru sekir um þá háttsemi sem þeim er gefin að sök og eru brot þeirra rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði Olgeir er fæddur í maí 1992 en ákærði Ægir Þór í júní 1992. Samkvæmt sakavottorði ákærðu hafa þeir ekki áður gerst sekir um refsiverða háttsemi og þeir hafa skýlaust játað brot sín. Að þessu virtu þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í einn mánuð, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum tveimur árum frá birtingu dómsins haldi ákærðu almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Þá skal ákærði Ægir Þór sæta upptöku á 3,52 g af tóbaksblönduðu kannabisefni.

Dóm þennan kveður upp Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari.

D ó m s o r ð:

Ákærðu, Olgeir Guðbergur Valdimarsson og Ægir Þór Þrastarson, sæti hvor um sig fangelsi í 1 mánuð, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún niður falla að liðnum tveimur árum frá birtingu dómsins haldi ákærðu almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði Ægir Þór sæti upptöku á 3,52 g af tóbaksblönduðu kannabisefni.

Sandra Baldvinsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 259. gr.