Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 24. júní 2009.
Mál nr. S-402/2009:
Ákæruvaldið
(Einar Tryggvason ftr)
gegn
Alfreð Atlasyni
Mál
þetta, sem tekið var til dóms 29. maí sl., er höfðað af ríkissaksóknara með
útgáfu ákæru 22. apríl 2009 gegn Alfreð Atlasyni, kt. […], […], ,,fyrir fjárdrátt í opinberu starfi, með því að
hafa misnotað stöðu sína sem fjármálastjóri bæjarsjóðs Garðabæjar og dregið
eftirtöldum þremur félögum í sinni eigu eða aðila sér tengdum, samtals kr.
9.221.324, með því að millifæra fé af bankareikningum bæjarsjóðs á
bankareikninga félaganna, eins og hér greinir:
1.
Þann 27. desember 2007 millifært kr.
378.482 af reikningi 0318-26-00050 inn á reikning einkahlutafélagsins Litfara,
kennitala 701298-2689, númer 1163-26-003378.
2.
Þann 27. desember 2007 millifært kr.
324.841 af reikningi 0318-26-00050 inn á reikning einkahlutafélagsins Litfara,
kennitala 701298-2689, númer 1163-26-003378.
3.
Þann 24. janúar 2008 millifært kr.
725.837 af reikningi 0546-26-00001 inn á reikning einkahlutafélagsins Litfara,
kennitala 701298-2689, númer 1163-15-200527.
4.
Þann 27. maí 2008 millifært kr.
5.924.664 af reikningi 0318-26-00050 inn á reikning einkahlutafélagsins NEF,
kennitala 520171-0109, númer 515-26-4479.
5.
Þann 25. júlí 2008 millifært kr.
1.867.500 af reikningi 0318-26-00050 inn á reikning sameignarfélagsins Audit,
kennitala 441001-3390, númer 1158-26-004410.
Telst
þetta varða við 1. mgr. 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 138.
gr. sömu laga.
Þess
er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls
sakarkostnaðar.“
Ákærði krefst vægustu refsingar.
Ákærði hefur skýlaust játað að hafa
framið þau brot er honum eru gefin að sök og er játning hans studd sakargögnum
í öllum atriðum. Sök hans telst því sönnuð og eru brotin rétt færð til
refsiákvæðis í ákæru. Málið verður því dæmt samkvæmt 1. mgr. 164. gr. laga um
meðferð sakamála nr. 88/2008.
Ákærði hefur ekki áður sætt refsingu.
Við ákvörðun refsingar er þess að gæta að ákærði hefur verið sakfelldur fyrir
að draga sér umtalsverða fjárhæð. Hann var opinber starfsmaður í skilningi 138.
gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og ber að beita refsiþyngingarákvæði
þeirrar lagagreinar. Á hinn bóginn verður litið til þess að ákærði gerði enga
tilraun til að leyna fjárdrættinum. Þá hefur ákærði játað brot sitt
hreinskilningslega og lét af starfi vegna þess. Hann endurgreiddi féð að öllu
leyti skömmu eftir starfslok. Að öllu framangreindu virtu þykir refsing ákærða
hæfilega ákveðin 6 mánaða fangelsi en eftir atvikum þykir rétt að fresta
fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá
uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra
hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Engan sakarkostnað leiddi af málinu.
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari
kveður upp dóm þennan.
Dómsorð
Ákærði, Alfreð Atlason, sæti fangelsi í 6 mánuði en fresta
skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá
(Helgi Birgisson hrl)
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði dæmdur í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt.
Mál þetta, sem tekið var til dóms 29. maí sl., er höfðað af ríkissaksóknara með útgáfu ákæru 22. apríl 2009 gegn Alfreð Atlasyni, kt. […], […], ,,fyrir fjárdrátt í opinberu starfi, með því að hafa misnotað stöðu sína sem fjármálastjóri bæjarsjóðs Garðabæjar og dregið eftirtöldum þremur félögum í sinni eigu eða aðila sér tengdum, samtals kr. 9.221.324, með því að millifæra fé af bankareikningum bæjarsjóðs á bankareikninga félaganna, eins og hér greinir:
- Þann 27. desember 2007 millifært kr. 378.482 af reikningi 0318-26- 00050 inn á reikning einkahlutafélagsins Litfara, kennitala 701298-2689, númer 1163-26-003378.
- Þann 27. desember 2007 millifært kr. 324.841 af reikningi 0318-26- 00050 inn á reikning einkahlutafélagsins Litfara, kennitala 701298-2689, númer 1163-26-003378.
- Þann 24. janúar 2008 millifært kr. 725.837 af reikningi 0546-26-00001 inn á reikning einkahlutafélagsins Litfara, kennitala 701298-2689, númer 1163-15- 200527.
- Þann 27. maí 2008 millifært kr. 5.924.664 af reikningi 0318-26-00050 inn á reikning einkahlutafélagsins NEF, kennitala 520171-0109, númer 515-26- 4479.
- Þann 25. júlí 2008 millifært kr. 1.867.500 af reikningi 0318-26-00050 inn á reikning sameignarfélagsins Audit, kennitala 441001-3390, númer 1158-26- 004410.
Telst þetta varða við 1. mgr. 247. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 138. gr. sömu laga.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Ákærði krefst vægustu refsingar.
Ákærði hefur skýlaust játað að hafa framið þau brot er honum eru gefin að sök og er játning hans studd sakargögnum í öllum atriðum. Sök hans telst því sönnuð og eru brotin rétt færð til refsiákvæðis í ákæru. Málið verður því dæmt samkvæmt 1. mgr. 164. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
Ákærði hefur ekki áður sætt refsingu. Við ákvörðun refsingar er þess að gæta að ákærði hefur verið sakfelldur fyrir að draga sér umtalsverða fjárhæð. Hann var opinber starfsmaður í skilningi 138. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og ber að beita refsiþyngingarákvæði þeirrar lagagreinar. Á hinn bóginn verður litið til þess að ákærði gerði enga tilraun til að leyna fjárdrættinum. Þá hefur ákærði játað brot sitt hreinskilningslega og lét af starfi vegna þess. Hann endurgreiddi féð að öllu leyti skömmu eftir starfslok. Að öllu framangreindu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 6 mánaða fangelsi en eftir atvikum þykir rétt að fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Engan sakarkostnað leiddi af málinu.
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð
Ákærði, Alfreð Atlason, sæti fangelsi í 6 mánuði en fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Gunnar Aðalsteinsson