Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 22. ágúst 2008.
Mál nr. S-854/2008:
Ákæruvaldið
(Alda Hrönn Jóhannsdóttir ftr)
gegn
Nour Al-Denbhjt fd. 01.09.1989
(Ásbjörn Jónsson hdl)
Lykilorð
Útdráttur
Dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir skjalafals
Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum 22. ágúst 2008 gegn Nour Al-Denbhjt, fæddur 1. september 1989, írönskum ríkisborgara, ,,fyrir misnotkun skjala, með því að hafa þann 19. ágúst 2008, við vegabréfaeftirlit á Keflavíkurflugvelli framvísað gagnvart landamæralögreglu á Keflavíkurflugvelli í blekkingarskyni spænsku vegabréfi nr. AB369260, ökuskírteini nr. 47888684-Q og kennivottorði með nr. 47888684-Q á nafni Aleix Selles Vidal, fæðingardagur 22.09.1987.
Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. mgr. 157. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.”
Með skýlausri játningu ákærða þykir sannað að hann hafi framið brot þau sem honum eru gefin að sök og réttilega eru færð til refsiákvæða í ákæru. Refsing ákærða, sem ekki hefur fyrr sætt refsiviðurlögum svo vitað sé, þykir hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga. Ákærði greiði allan kostnað sakarinnar, sem er málsvarnarlaun skipaðs verjanda hans, Ásbjörns Jónssonar hdl., 90.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð
Ákærði, Nour Al-Denbhjt, sæti fangelsi í 45 daga.
Ákærði greiði kostnað sakarinnar sem er málsvarnarlaun skipaðs verjanda, Ásbjörns Jónssonar hdl., 90.000 krónur., og er þá virðisaukaskattur innifalinn.
Gunnar Aðalsteinsson