Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 22. janúar 2008.
Mál nr. S-53/2008:
S-53/2008:
Ákæruvaldið
(Sævar Lýðsson fulltrúi)
gegn
John Joseph Murphy fd. 24.01. 1971
Málið
þetta er höfðað með ákæru
lögreglustjórans á Suðurnesjum, útgefinni í dag, á hendur ákærða, John Joseph
Murphy, breskum ríkisborgara, 000000 0000 Burley Road, Anfield, Liverpool,
Englandi
,,fyrir fjársvik, með því að hafa á tímabilinu 16. september 2005
til 13. janúar 2008 svikið út í 13 skipti farmiða að andvirði alls kr.
1.447.060,- hjá flugfélaginu Icelandair ehf., Reykjavíkurflugvelli, með því að
láta skuldfæra heimildarlaust andvirði
farmiðanna rafrænt á heimasíðu þess á
veraldarvefnum á greiðslukortareikninga annars fólks, en ákærði hafði komist
yfir nöfn þess og númer reikninga af greiðslukvittunum, og flaug ákærði með
flugfélaginu hverja flugleið fyrir þá
fjárhæð sem tilgreind er:
Tími fjársvika
Flugleið Fjárhæð í erlendri mynt Krónur
16. sept. 2005 London-Keflavík- GBP 1143,20 140.000
London
20. sept. 2005 London-Keflavík- GBP 716 88.100
London
6. des. 2005
London-Keflavík- GBP
618,80 76.000
London
9. ágúst 2006 Breyting á farmiða DKK
1000 12.500
9. ágúst 2006 Kef-Kaupm.höfn- USD 1814,84 114.000
Bergen-Keflavík
4. sept. 2006 London-Keflavík- GBP 532,50 65.800
London
Lykilorð
Útdráttur
Sakfelldur fyrir fjársvik. Sæti fangelsi í 6 mánuði.
Málið þetta er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum, útgefinni í dag, á hendur ákærða, John Joseph Murphy, breskum ríkisborgara, 000000 0000 Burley Road, Anfield, Liverpool, Englandi ,,fyrir fjársvik, með því að hafa á tímabilinu 16. september 2005 til 13. janúar 2008 svikið út í 13 skipti farmiða að andvirði alls kr. 1.447.060,- hjá flugfélaginu Icelandair ehf., Reykjavíkurflugvelli, með því að láta skuldfæra heimildarlaust andvirði farmiðanna rafrænt á heimasíðu þess á veraldarvefnum á greiðslukortareikninga annars fólks, en ákærði hafði komist yfir nöfn þess og númer reikninga af greiðslukvittunum, og flaug ákærði með flugfélaginu hverja flugleið fyrir þá fjárhæð sem tilgreind er:
Tími fjársvika Flugleið Fjárhæð í erlendri mynt Krónur 16. sept. 2005 London-Keflavík- GBP 1143,20 140.000 London 20. sept. 2005 London-Keflavík- GBP 716 88.100 London 6. des. 2005 London-Keflavík- GBP 618,80 76.000 London 9. ágúst 2006 Breyting á farmiða DKK 1000 12.500 9. ágúst 2006 Kef-Kaupm.höfn- USD 1814,84 114.000 Bergen-Keflavík 4. sept. 2006 London-Keflavík- GBP 532,50 65.800 London 25. sept. 2006 Manchester-Keflavík- 97.560 Manchester 3. des. 2006 Arlanda-Keflavík- 156.300 Manchester 3. des. 2006 Kaupmannahöfn-Bergen 75.140 18. des. 2006 Glasgow-London- 183.460 Keflavík-London-Glasgow 26. okt. 2007 Keflavík- USD 1839 115.500 Manchester 9. nóv. 2007 Arlanda-Keflavík- GBP 612,90 75.400 Manchester 19. nóv. 2007 Manchester-London- GBP 1406,10 172.900 Keflavík-Manchester 13. jan. 2008 Keflavík- GBP 577,40 74.400 Manchester Samtals kr. 1.447.060,-.
Telst þetta varða við 248. gr. hegningarlaga nr. 19, 1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.”
Icelandair ehf. krefst þess að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaðabóta kr. 1.947.060,- sem skiptist í kr. 1.447.060 vegna ógreiddra farseðla og kr. 500.000 í kostnað vegna fjársvikanna.
Mál þetta er dæmt samkvæmt heimildarákvæði 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, en með skýlausri játningu ákærða, sem samrýmist öðrum gögnum málsins, telst sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er réttilega færð til refsiákvæða.
Ákærði á ekki að baki neinn sakaferil. Þykir refsing hans hæfilega ákveðin 6 mánaða fangelsi. En frá refsingunni dregst gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 16. janúar sl. til dagsins í dag.
Ákærði hefur samþykkt greiðslu skaðabóta til Icelandair að fjárhæð 1.447.060 og verður hann dæmdur til greiðslu þeirra. Loks ber að dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað sem nemur málsvarnarlaunum skipaðs verjanda hans, Lárentsínusar Kristjánssonar hrl., 248.500 krónur auk ferðakostnaðar 13.600 krónur eða alls 261.100 krónur.
Sævar Lýðsson ftr. lögreglustjóra á Suðurnesjum fór með saksókn í málinu.
Dómari er Sveinn Sigurkarlsson héraðsdómari.
DÓMSORÐ
Ákærði, John Joseph Murphy, sæti fangelsi í 6 mánuði. Frá refsingunni dregst gæsluvarðhald sem ákærði hefur sætt frá 16. janúar sl. til dagsins í dag.
Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Lárentsínusar Kristjánssonar hrl., 248.500 krónur auk ferðakostnaðar, 13.600 krónur eða alls 261.100 krónur og hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.
Ákærði greiði Icelandair 1.447.060 krónur í skaðabætur.
Sveinn Sigurkarlsson Rétt endurrit staðfestir Héraðsdómur Reykjaness 22. janúar 2008.