Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 4. apríl 2008.
Mál nr. S-321/2008:
S-321/2008:
Ákæruvaldið
(Hulda María Stefánsdóttir ftr)
gegn
Kjartan Árni Þórarinssyni
Víðir Hermannssyni
Þórarinn Ingimundarsyni
Málið, sem var dómtekið
28. mars, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni
11. mars sl., á hendur Kjartani Árna Þórarinssyni, kt. (...), Maríubaugi 121,
Reykjavík, Víði Hermannssyni, kt. (...), Mávahlíð 7, Reykjavík, og Þórarni
Ingimundarsyni, kt. (...), Smiðsbúð 7, Garðabæ, „fyrir fíkniefnalagabrot, framin á árinu 2006:
I.
Ákærðu Víði og
Þórarni, með því að hafa sunnudaginn 15. október að Lónsbraut 4 (bil nr. 0127)
í Hafnarfirði haft í vörslum sínum 172 kannabisplöntur, auk 7.873,27 g af
kannabislaufum og hafa um nokkurt skeið fram til þess dags ræktað greindar
plöntur.
Telst þetta
varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65,
1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 14. gr.,
reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001,
sbr. reglugerð nr. 848, 2002.
II.
Ákærða Víði,
með því að hafa á sama tíma á heimili sínu að Mávahlíð 7 í Reykjavík haft í
vörslum sínum 0,38 g af maríhúana og 0,15 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem
lögreglumenn fundu við leit.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og
fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr.,
sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur
eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.
III.
Ákærða Kjartani
Árna:
(Sveinn Andri Sveinsson hrl)
Lykilorð
Sekt dæmd og fangelsi sem vararefsing. Eignaupptaka.
Útdráttur
Sakfellt fyrir ræktun kannabisplantna. Einum dæmd sekt en tveimur dæmd skilorðsbundin fangelsisrefsing. Tæki, búnaður, plöntur og efni gerð upptæk.
Málið, sem var dómtekið 28. mars, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 11. mars sl., á hendur Kjartani Árna Þórarinssyni, kt. (...), Maríubaugi 121, Reykjavík, Víði Hermannssyni, kt. (...), Mávahlíð 7, Reykjavík, og Þórarni Ingimundarsyni, kt. (...), Smiðsbúð 7, Garðabæ, „fyrir fíkniefnalagabrot, framin á árinu 2006:
I.
Ákærðu Víði og Þórarni, með því að hafa sunnudaginn 15. október að Lónsbraut 4 (bil nr. 0127) í Hafnarfirði haft í vörslum sínum 172 kannabisplöntur, auk 7.873,27 g af kannabislaufum og hafa um nokkurt skeið fram til þess dags ræktað greindar plöntur.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.
II.
Ákærða Víði, með því að hafa á sama tíma á heimili sínu að Mávahlíð 7 í Reykjavík haft í vörslum sínum 0,38 g af maríhúana og 0,15 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögreglumenn fundu við leit.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglu gerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.
III.
Ákærða Kjartani Árna:
- Fyrir hlutdeild í broti ákærðu Víðis og Þórarins eins og greinir í ákærulið I., með því að hafa á sama tíma aðstoðað ákærðu við kannabisræktunina með því að aðstoða ákærða Víði við að klippa niður kannabisplöntur, en kærði var handtekinn af lögreglu á vettvangi.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002, sbr. 22. gr. almennar hegningarlaga nr. 19,1940 og 5. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974.
- Á sama tíma á heimili sínu að Maríubaugi 121 í Reykjavík haft í vörslum sínum 3,58 g af maríhúana og 2,22 g af hassi, sem lögreglumenn fundu við leit.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.
IV.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og að ofangreindar 172 kannabisplöntur og 7.873,27 g af kannabislaufum, 0,38 g af maríhúana, 0,15 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 5 stk. skæri, hitablásari, 3 stk. viftur, rakatæki, 12 lampar og 4 stk. flúorljós sem notuð voru til framleiðslu á kannabisplöntum verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“
Við þingfestingu málsins óskaði ákæruvaldið eftir því að gera leiðréttingu á IV. kafla ákærunnar þannig að í stað þess að krafist væri upptöku á 0,38 g af maríhúana væri krafist upptöku á 3,96 g af maríhúana og einnig var bætt við kröfu um upptöku á 2,22 g af hassi. Ákærðu og verjandi mótmæltu ekki þessari leiðréttingu á ákærunni.
Ákærðu krefjast vægustu refsingar sem lög frekast leyfa og málsvarnarlauna til verjenda sinna á rannsóknarstigi málsins og við dómsmeðferð.
Málið er dæmt samkvæmt 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.
Ákærði Kjartan Árni hefur fyrir dómi skýlaust viðurkennt að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákærunni. Með þeirri játningu, sem samrýmist framkomnum sakargögnum, telst sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og eru brot hans þar réttilega heimfærð til refsiákvæða.
Ákærði er fæddur í maí 1977 og hefur hreint sakavottorð. Við ákvörðun refsingar fyrir brot ákærða verður litið til þess að hlutdeild hans í broti ákærðu Víðis og Þórarins fólst einungis í því að aðstoða ákærða Víði við að klippa niður kannabisplöntur. Þegar einnig er litið til þeirra fíkniefna sem fundust á heimili hans á sama tíma þykir refsing hans hæfilega ákveðin 185.000 króna sekt til ríkissjóðs. Verði sektin ekki greidd innan fjögurra vikna, talið frá birtingu dómsins, komi í hennar stað fangelsi í fjórtán daga.
Ákærði Víðir hefur fyrir dómi skýlaust viðurkennt að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákærunni. Með þeirri játningu, sem samrýmist framkomnum sakargögnum, telst sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og eru brot hans þar réttilega heimfærð til refsiákvæða.
Ákærði er fæddur í október 1977 og á að baki nokkurn sakaferil. Í mars 1996 var hann sakfelldur fyrir þjófnað og dæmdur í skilorðsbundið fangelsi. Í desember sama ár var hann einnig dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófnaðar brot. Í september 1998 gekkst hann undir greiðslu sektar fyrir ýmis brot gegn umferðarlögum og var þá einnig sviptur ökurétti í þrjá mánuði. Í mars 1999 var hann sakfelldur fyrir rangar sakargiftir og fyrir umferðarlagabrot og var þá dæmdur í skilorðsbundið fangelsi. Í október 1999 féllst hann á greiðslu sektar fyrir brot gegn umferðarlögum og var jafnframt sviptur ökurétti í sex mánuði. Í september 2000 var honum gerð sekt fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Frá því í júní 2002 og til febrúar 2004 var honum fjórum sinnum gerð sekt fyrir brot gegn umferðarlögum og í þrjú skipti var hann einnig sviptur ökurétti í nokkra mánuði í senn.
Ekkert ofangreindra brota hefur þýðingu við ákvörðun refsingar fyrir það brot sem ákærði er nú sakfelldur fyrir. Við mat á ákvörðun refsingar nú er einkum litið til þess fjölda plantna sem ákærði hafði í ræktun. Ennfremur hefur það áhrif til mildunar að ákærði játaði brot sitt greiðlega bæði hjá lögreglu og fyrir dómi. Þykir refsing hæfilega ákveðin tveggja mánaða fangelsi.
Ekki verður fram hjá því litið að útgáfa ákæru í þessu máli hefur dregist úr hófi en málið virðist hafa verið fullrannsakað 17. nóvember 2006. Það er þó ekki fyrr en 8. mars sl. að ákæra er gefin út. Að teknu tilliti til þessa dráttar á útgáfu ákæru verður refsingin skilorðsbundin að fullu. Skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu þessa dóms haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði Þórarinn hefur fyrir dómi skýlaust viðurkennt að hafa gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákærunni. Með þeirri játningu, sem samrýmist framkomnum sakargögnum, telst sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og eru brot hans þar réttilega heimfærð til refsiákvæða.
Ákærði er fæddur í apríl 1978. Ákærði hefur tvisvar sinnum gengist undir greiðslu sektar fyrir brot gegn umferðarlögum og verið sviptur ökurétti um nokkurra mánaða skeið í hvort sinn. Hann hefur einnig gengist undir greiðslu sektar fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.
Ekkert ofangreindra brota hefur þýðingu við ákvörðun refsingar fyrir það brot sem ákærði er nú sakfelldur fyrir. Við mat á ákvörðun refsingar nú er einkum litið til þess fjölda plantna sem ákærði hafði í ræktun. Ennfremur hefur það áhrif til mildunar að ákærði játaði brot sitt greiðlega bæði hjá lögreglu og fyrir dómi. Þykir refsing hæfilega ákveðin tveggja mánaða fangelsi. Vegna áðurnefnds dráttar á útgáfu ákæru verður refsing hans skilorðsbundin að fullu. Skal hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu þessa dóms haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 68/2001, skal gera upptækar 172 kannabisplöntur og 7.873,27 g af kannabislaufum, 3,96 g af maríhúana, 2,22 g af hassi, 0,15 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 5 stk. skæri, hitablásara, 3 stk. viftur, rakatæki, 12 lampa og 4 stk. flúorljós sem notuð voru til framleiðslu á kannabisplöntum sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins.
Með vísan til 164. gr. laga nr. 19/1991 ber að dæma ákærðu til að greiða allan sakarkostnað. Ákærði Kjartan Árni greiði alls 85.002 krónur í sakarkostnað, þar af 14.002 krónur vegna kostnaðar við rannsókn á efnainnihaldi kannabisplantnanna og 71.000 krónur í þóknun til skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hrl., fyrir verjandastörf á rannsóknarstigi og fyrir dómi og er virðisaukaskattur meðtalinn.
Ákærði Víðir greiði alls 101.100 krónur í sakarkostnað, þar af 30.000 krónur vegna kostnaðar við rannsókn á efnainnihaldi kannabisplantnanna og 43.100 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti í þóknun til skipaðs verjanda síns á rannsóknarstigi, Önnu Lindu Bjarnadóttur hdl., og 28.000 krónur í þóknun til skipaðs verjanda á dómstigi, Sveins Andra Sveinssonar hrl. Tekið var tillit til virðisaukaskatts við ákvörðun þóknunarinnar.
Ákærði Þórarinn greiði alls 101.100 krónur í sakarkostnað, þar af 30.000 krónur vegna kostnaðar við rannsókn á efnainnihaldi kannabisplantnanna og 43.100 krónur í þóknun til skipaðs verjanda síns á rannsóknarstigi, Vilhjálms H. Vilhjálms sonar hdl., og 28.000 krónur í þóknun til skipaðs verjanda á dómstigi, Sveins Andra Sveinssonar hrl. Ingiríður Lúðvíksdóttir, settur héraðsdómari, kvað upp þennan dóm.
DÓMSORÐ:
Ákærði Kjartan Árni Þórarinsson greiði 185.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu en sæti ella fjórtán daga fangelsi.
Ákærði greiði 85.002 krónur í sakarkostnað, þar af 71.000 krónur í þóknun til skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar hrl. Ákærði Víðir Hermannsson sæti fangelsi í tvo mánuði, en fullnustu refsingarinnar skal frestað og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðn ingu dómsins, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði greiði 101.100 krónur í sakarkostnað, þar af 43.100 krónur í þóknun til verjanda síns á rannsóknarstigi málsins, Önnu Lindu Bjarnadóttur hdl., og 28.000 krónur til skipaðs verjanda á dómstigi, Sveins Andra Sveinssonar hrl. Ákærði Þórarinn Ingimundarson sæti fangelsi í tvo mánuði, en fullnustu refs ingarinnar skal frestað og hún falla niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðn ingu dómsins, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði greiði 101.100 krónur í sakarkostnað, þar af 43.100 krónur í þóknun til verjanda síns á rannsóknarstigi málsins, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hdl., og 28.000 krónur til skipaðs verjanda á dómstigi, Sveins Andra Sveinssonar hrl. Gerðar eru upptækar haldlagðar 172 kannabisplöntur og 7.873,27 g af kannabislaufum, 0,38 g af maríhúana, 0,15 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 5 stk. skæri, hitablásari, 3 stk. viftur, rakatæki, 12 lampar og 4 stk. flúorljós sem notuð voru til framleiðslu á kannabisplöntum.
Ingiríður Lúðvíksdóttir Rétt endurrit staðfestir Héraðsdómur Reykjaness 04.04.2008.