Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-29/2008:

Ákæruvaldið

(Dagmar Ösp Vésteinsdóttir ftr)

gegn

Sasa Zvirblis

Mál

þetta, sem dómtekið var 14. þ.m., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á

höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 15. janúar 2008, á hendur Sasa Zvirblis, kt.

000000-0000, Hátúni 10, Reykjavík „fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn

10. nóvember 2007, í verslun Hagkaupa í Smáralind, Kópavogi, stolið 32” LCD

sjónvarpi að verðmæti 179.990 krónur, PS2 Sony Playstation Two að verðmæti

13.699 krónur, Perfect Make-Over andlitsfarða að verðmæti 2.999 krónur, Philips

DVD tæki að verðmæti 36.990 krónur, Versace Crystal ilmvatni að verðmæti 6.899

krónur, Cartier ilmvatni að verðmæti 6.699 krónur, Adidas Ice rakspíra að

verðmæti 1.699 krónur, Adidas Deep Energy rakspíra að verðmæti 1.699 krónur,

[Dior Sauvage ilmvatni, 2 stk.], hvort að verðmæti 4.119 krónur, Dior Sauvage

svitalyktareyði að verðmæti 2.069 krónur, Dior Sauvage svitalyktareyði án

alkóhóls að verðmæti 1.979 krónur, Dior Sauvage sturtusápu að verðmæti 2.199

krónur, Dior Sauvage rakspíra að verðmæti 2.849 krónur, Adidas Action3 ilmvatni

að verðmæti 1.199 krónur, Adidas Dynam Pulse rakspíra að verðmæti 1.699 krónur,

allt samtals að verðmæti 270.906 krónur.

Telst þetta varða við 244. gr.

almennra hegningarlaga nr. 19/1940.“

Í ákæru er þess krafist að ákærði

verði dæmdur til refsingar.

I.

Ákærði hefur fyrir

dómi skýlaust viðurkennt að hafa gerst sekur um þá háttsemi, sem honum er gefin

að sök í ákæru. Telst sannað með þeirri játningu og framkomnum sakargögnum að

öðru leyti að ákærði hafi, mánudaginn 10. nóvember 2007, í verslun Hagkaupa í

Smáralind í Kópavogi, tekið ófrjálsri hendi þá muni sem tilgreindir eru ákæru.

Er verknaður ákærða þar réttilega heimfærður til 244. gr. almennra

hegningarlaga.

II.

Ákærða

var gerð sektarrefsing og svipting ökuréttar með tveimur dómum og einni

viðurlagaákvörðun árið 2005. Öðrum refsingum hefur hann ekki sætt. Refsing hans

nú þykir hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga, en rétt þykir að fresta fullnustu

hennar og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms

þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr.

laga nr. 22/1955.

Dæma

ber ákærða til að greiða þóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Bj.

Gunnlaugssonar hrl., sem þykir hæfilega ákveðin 49.800 krónur. Við ákvörðun

þóknunar hefur verið tekið tillit til virðisaukaskatts.

Þorgeir Ingi Njálsson héraðsdómari

dæmir mál þetta.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Sasa Zvirblis, sæti fangelsi

í 45 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum

þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr.

almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði þóknun skipaðs

verjanda síns, Stefáns Bj. Gunnlaugssonar hæstaréttarlögmanns, 49.800 krónur.

Þorgeir

Ingi Njálsson

(Stefán Bjarni Gunnlaugsson hrl)

Skilorð. Þjófnaður.

S var sakfelldur fyrir þjófnað og dæmdur í 45 daga fangelsi, en fullnusta refsingar bundin skilorði.

Mál þetta, sem dómtekið var 14. þ.m., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 15. janúar 2008, á hendur Sasa Zvirblis, kt. 000000- 0000, Hátúni 10, Reykjavík „fyrir þjófnað, með því að hafa mánudaginn 10. nóvember 2007, í verslun Hagkaupa í Smáralind, Kópavogi, stolið 32” LCD sjónvarpi að verðmæti 179.990 krónur, PS2 Sony Playstation Two að verðmæti 13.699 krónur, Perfect Make-Over andlitsfarða að verðmæti 2.999 krónur, Philips DVD tæki að verðmæti 36.990 krónur, Versace Crystal ilmvatni að verðmæti 6.899 krónur, Cartier ilmvatni að verðmæti 6.699 krónur, Adidas Ice rakspíra að verðmæti 1.699 krónur, Adidas Deep Energy rakspíra að verðmæti 1.699 krónur, [Dior Sauvage ilmvatni, 2 stk.], hvort að verðmæti 4.119 krónur, Dior Sauvage svitalyktareyði að verðmæti 2.069 krónur, Dior Sauvage svitalyktareyði án alkóhóls að verðmæti 1.979 krónur, Dior Sauvage sturtusápu að verðmæti 2.199 krónur, Dior Sauvage rakspíra að verðmæti 2.849 krónur, Adidas Action3 ilmvatni að verðmæti 1.199 krónur, Adidas Dynam Pulse rakspíra að verðmæti 1.699 krónur, allt samtals að verðmæti 270.906 krónur.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.“

Í ákæru er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.

I.

Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust viðurkennt að hafa gerst sekur um þá háttsemi, sem honum er gefin að sök í ákæru. Telst sannað með þeirri játningu og framkomnum sakargögnum að öðru leyti að ákærði hafi, mánudaginn 10. nóvember 2007, í verslun Hagkaupa í Smáralind í Kópavogi, tekið ófrjálsri hendi þá muni sem tilgreindir eru ákæru. Er verknaður ákærða þar réttilega heimfærður til 244. gr. almennra hegningarlaga.

II.

Ákærða var gerð sektarrefsing og svipting ökuréttar með tveimur dómum og einni viðurlagaákvörðun árið 2005. Öðrum refsingum hefur hann ekki sætt. Refsing hans nú þykir hæfilega ákveðin fangelsi í 45 daga, en rétt þykir að fresta fullnustu hennar og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Dæma ber ákærða til að greiða þóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Bj. Gunnlaugssonar hrl., sem þykir hæfilega ákveðin 49.800 krónur. Við ákvörðun þóknunar hefur verið tekið tillit til virðisaukaskatts.

Þorgeir Ingi Njálsson héraðsdómari dæmir mál þetta.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Sasa Zvirblis, sæti fangelsi í 45 daga, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Bj. Gunnlaugssonar hæstaréttarlögmanns, 49.800 krónur.

Þorgeir Ingi Njálsson