Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 21. febrúar 2009.
Mál nr. S-26/2008:
Ákæruvaldið
(Júlíus Kristinn Magnússon fulltrúi)
gegn
Róberti Heiðari Georgssyni
Lykilorð
Útdráttur
R var sakfelldur fyrir grófa líkamsárás. Hann var dæmdur í 5 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára.
Mál þetta, sem dómtekið var 15. þ.m., er höfðað með ákæru ríkissaksóknara, útgefinni 18. desember 2007, á hendur Róberti Heiðari Georgssyni, kt. 000000- 0000, nú til heimilis að Vatnsholti 6D í Reykjanesbæ.
Ákærða er gefin að sök sérstaklega hættuleg líkamsárás „með því að hafa, sunnudaginn 11. mars 2007, ítrekað slegið Knút Trausta Hjálmarsson, kt. 000000- 0000, þar sem hann lá í rúmi, í herbergi að Brekkustíg 4, Sandgerði, fyrst með blómavasa úr gleri og síðan myndaramma í andlit og líkama og ennfremur ítrekað sparkað í andlit hans, allt með þeim afleiðingum að hann hlaut 6 cm skurðsár í hægri upphandlegg, tvo djúpa skurði í vör og mar í andlit.
Telst þetta varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20/1981.“
Í ákærunni er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
I.
Samkvæmt gögnum málsins kom Knútur Trausti Hjálmarsson á lögreglustöðina í Reykjanesbæ um klukkan 17:50 sunnudaginn 11. mars 2007. Samkvæmt lögregluskýrslu var hann með sár á efri vör sem mikið blæddi úr. Er í skýrslunni haft eftir honum að hann hafi verið staddur hjá vinkonu sinn að Brekkustíg 4 í Sandgerði þegar ákærði hafi komið þangað og ráðist á hann. Við skýrslugjöf hjá lögreglu þennan sama dag, en hún var tekin upp á mynddisk sem er á meðal gagna málsins, lýsti Knútur Trausti atvikum í umrætt sinn. Er verknaðarlýsing í ákæru í aðalatriðum byggð á þeirrri frásögn. Kemur þar meðal annars fram að ákærði hafi að minnsta kosti fjórum sinnum lamið Knút Trausta í andlitið með blómavasa og að auki sparkað í andlit hans nokkrum sinnum. Þá hafi ákærði tekið myndaramma og slegið honum í andlit hans þannig að hann brotnaði.
Í málinu liggur frammi vottorð læknis um komu Knúts Trausta á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 11. mars 2007 og skoðun sem hann þar gekkst undir. Í vottorðinu kemur fram að tveir skurðir hafi verið á efri vör Knúts Trausta, sem náð hafi frá nefinu og niður að varalínunni „dýpri hliðlægt og grynnri meira hliðlægt“.
Hafi þessir skurðir verið saumaðir saman með 4 og 5 sporum í vörina „og nokkur djúp í hliðlæga skurðinn til að ná vöðvalögunum saman“. Þá hafi verið 6 cm bogalaga skurður á vinstri upphandlegg Knúts Trausta, sem saumaður hafi verið saman með 10 sporum. Loks hafi hann verið marinn á nokkrum stöðum í andliti.
Fyrir dómi hefur ákærði skýlaust játað að hafa sunnudaginn 11. mars 2007, að Brekkustíg 4 í Sandgerði, veist að Knúti Trausta Hjálmarssyni með þeim hætti sem lýst er í ákæru og með þeim afleiðingum sem þar greinir. Gaf ákærði þá skýringu á háttsemi sinni að um afbrýðisemi í garð Knúts Trausta hafi verið ræða og hann hafi misst stjórn á skapi sínu í skamman tíma af þeim sökum. Með þessari játningu ákærða, sem samrýmist frumskýrslu lögreglu, lýsingu Knúts Trausta á atvikum og framlögðu læknisvottorði, teljast viðhlítandi sönnur hafa verið færðar fyrir sakargiftum á hendur ákærða samkvæmt ákæru. Þá er á það fallist að atlaga ákærða hafi verið þess eðlis að heimfæra beri hana undir 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
II.
Ákærði hefur ekki áður sætt refsingu sem þýðingu hefur við ákvörðun refsingar hans í þessu máli, en honum var síðast gerð refsing 26. febrúar 1997 og þá í formi sektar fyrir ölvunarakstur. Fyrir dómi játaði hann brot sitt greiðlega og fram er komið að hann hefur greitt Knúti Trausta Hjálmarssyni 200.000 krónur í bætur. Verður ekki séð að frekari krafa um bætur hafi verið höfð uppi. Horfa þessi atriði til refsilækkunar, sbr. 5. og 8. töluliður 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Á móti kemur að um háskalega árás var að ræða og án tilefnis af hendi þess sem fyrir henni varð. Að þessu og atvikum málsins að öðru leyti virtum þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í fimm mánuði. Þykir mega ákveða að fresta fullnustu refsingarinnar í heild sinni og fellur hún niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Dæma ber ákærða til að greiða 13.000 krónur í sakarkostnað, en þar er um að ræða kostnað vegna áverkavottorðs.
Þorgeir Ingi Njálsson héraðsdómari kvað upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Róbert Heiðar Georgsson, sæti fangelsi í fimm mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þess að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði 13.000 krónur í sakarkostnað.
Þorgeir Ingi Njálsson