Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 27. febrúar 2008.
Mál nr. S-1/2008:
S-1/2008:
Ákæruvaldið
(Karl Ingi Vilbergsson ftr)
gegn
Arnari Má Snæbjörnssyni
(Jón Egilsson hdl)
Lykilorð
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og dæmdur í átján mánaða fangelsi skilorðsbundið í þrjú ár.
Mál þetta, sem dómtekið var 22. þ.m., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, útgefinni 28. desember 2007, á hendur Arnari Má Snæbjörnssyni, kt. [...], Höfðabakka 1, Reykjavík, „fyrir eftirtalin brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni:
I. (037-2006-09885) Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa miðvikudaginn 25. október 2006, í bifreiðinni ZP-953, á bifreiðastæði við Furugrund 74 í Kópavogi, haft í vörslum sínum 11,92 g af hassi sem ákærði framvísaði til lögreglu.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
II. (036-2006-13866) Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 23. nóvember 2006 í bifreiðinni NG-625 við Helluhraun í Hafnarfirði, haft í vörslum sínum 34,22 g af vímuefninu MDMA (ecstasy) og 0,80 g af amfetamíni sem fannst við leit lögreglu á ákærða og í bifreiðinni.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. og 6. gr. sömu laga að því varðar meðferð ákærða á vímuefninu MDMA, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
III. (036-2006-14375) Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa laugardaginn 9. desember 2006, í bifreiðinni NG-625 við Dalshraun í Hafnarfirði, haft í vörslum sínum 30 skammta af vímuefninu lysergide (LSD), sem lögregla fann við leit á ákærða.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.“
Í ákæru er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og jafnframt að framangreind fíkniefni, sem lagt var hald á við rannsókn málanna verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.
Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga auk þess sem ákærði tjáði sig um refsiákvörðun.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að hann er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og er brot hans þar rétt heimfært til refsiákvæða.
Ákærði á nokkurn sakarferil að baki og hefur hlotið allnokkra refsidóma allt frá því hann var dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi árið 1998. Þeir refsidómar sem hér skipta einkum máli eru dómur Héraðsdóms Reykjaness frá 10. desember 2004 en þá var ákærði dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir brot gegn almennum hegningarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Hann hlaut reynslulausn á afplánun þess dóms í 1 ár á 150 daga eftirstöðvum refsingar 12. febrúar 2006. Þá hlaut ákærði dóm fyrir brot gegn umferðarlögum 27. september 2006, 40.000 króna sekt og ökuréttarsviptingu í 3 mánuði og loks hlaut hann fangelsisdóm í 30 daga vegna brota á umferðarlögum 14. febrúar 2007.
Til þess er að líta við ákvörðun refsingar að ákærði, sem hafði verið í neyslu og óreglu allt frá 12 ára aldri, hefur samkvæmt framlögðum vottorðum meðferðarfulltrúa og sálfræðings verið í meðferð og staðið sig vel í rúmt ár og ekki er að sjá að hann hafi brotið af sér á þeim tíma. Þá hafa af hálfu ákærða verið lögð fram vottorð frá vinnuveitanda, foreldrum hans og barnsmóður sem öll bera honum góða söguna og vitna um bata hans og góða stöðu í dag. Í vottorðunum koma fram áhyggjur hans nánustu af því að hann muni skaðast mjög af fangelsisvist og að sá árangur sem hann hefur náð í baráttu við neyslu sína yrði þá unninn fyrir gýg. Þá má líta til þess við ákvörðun refsingar að málsmeðferð hjá ákæruvaldinu virðist hafa dregist nokkuð, en rannsókn allra ákæruliðanna var að langmestu leyti lokið á árinu 2006, þó er matsgerð vegna yngsta málsins dagsett 1. febrúar 2007, en ákæra í málinu er útgefin 28. desember 2007, eða um 11 mánuðum eftir lok rannsóknar.
Ákvarða ber refsingu ákærða nú með hliðsjón af 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga vegna dómsins frá 14. febrúar 2007. Þá ber að dæma upp reynslulausn á afplánun 150 daga fangelsisdóms frá 12. febrúar 2006. Þykir refsing ákærða með hliðsjón af ofangreindu hæfilega ákveðin 18 mánaða fangelsi. Með vísan til framlagðra gagna um þau tök sem ákærði hefur náð á lífi sínu og neyslu undanfarið rúmt ár og einnig með tilliti til þess langa tíma sem leið frá brotum þeim, sem hér er ákært fyrir, til útgáfu ákæru, en óútskýrt er í málinu hvað þar veldur, þykir mega skilorðsbinda refsinguna að fullu í 3 ár.
Með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni er fallist á upptökukröfu ákæruvalds samkvæmt ákæru.
Dæma ber ákærða til að greiða allan sakarkostnað málsins, samtals 283.556 krónur, þar af er þóknun skipaðs verjanda ákærða, Jóns Egilssonar hdl., 70.000 krónur og hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts.
Anna M. Karlsdóttir, settur héraðsdómari, kveður upp dóminn.
Dómsorð:
Ákærði, Arnar Már Snæbjörnsson, sæti fangelsi í 18 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði sæti upptöku á 11,92 g af hassi, 34,22 g af vímuefninu MDMA (ecstasy), 0,80 g af amfetamíni og 30 skömmtum af vímuefninu lysergide (LSD).
Ákærði greiði 283.556 krónur í sakarkostnað, þar með talda þóknun skipaðs verjanda síns, Jóns Egilssonar héraðsdómslögmanns, 70.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti.
Anna M. Karlsdóttir