Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-540/2007:

Ákæruvaldið

(Júlíus Kristinn Magnússon fulltrúi)

gegn

M

Líkamsárás. Skilorð.

Ákærði dæmdur í 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás gegn sambýliskonu sinni. Við ákvörðun refsingar var litið til ákvæða 3. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Mál þetta, sem dómtekið var 24. september sl., var höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum, dagsettri 12. júní 2007, gegn M, kt. 000000-0000, [...], ,,fyrir líkamsárás með því að hafa síðdegis 14. nóvember 2006 ráðist á sambýliskonu sína, K, kt. 000000-0000, á þá verandi heimili þeirra, [...], tekið hana kverkataki og hent henni í gólfið svo hún marðist og tognaði á hálsi, baki og yfir bringspölum.

Telst þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.”

Ákærði játaði brot sitt skýlaust fyrir dóminum. Farið var með mál þetta samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru.

Ákærði hefur ekki áður gerst sekur um refsiverðan verknað. Þegar litið er til gagna málsins þykir við ákvörðun refsingar ákærða verða að líta til ákvæða 3. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Fram er komið að ákærði braut með refsiverðri háttsemi gegn sambýliskonu sinni á sameiginlegu heimili þeirra. Það er mat dómsins að þessar aðstæður hafi aukið á grófleika brots ákærða enda verður að telja að svo nákominn aðili sem sambýliskona er, hafi síður mátt eiga von á slíkri árás frá ákærða. Með hliðsjón af framangreindu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 2 mánuði. Í ljósi þess að ákærði hefur ekki áður gerst sekur um refsiverðan verknað þykir rétt að fresta framkvæmd refsivistarinnar og ákveða að hún falli niður að liðnum 2 árum, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði allan sakarkostnað málsins sem nemur 10.000 krónum samkvæmt sakarkostnaðaryfirliti.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Júlíus Kr. Magnússon fulltrúi sýslumanns.

Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð:

Ákærði, M, sæti fangelsi í 2 mánuði. Fullnustu refsivistarinnar er frestað skilorðsbundið í 2 ár frá birtingu dómsins að telja og skal hún falla niður að þeim tíma liðnum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði 10.000 krónur í sakarkostnað.

Arnfríður Einarsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 3. mgr. 70. gr.