Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-408/2007:

Ákæruvaldið

(Júlíus Kristinn Magnússon fulltrúi)

gegn

Elíasi Andra Óskarssyni

(Hilmar Ingimundarson hrl)

Skilorðsbundið fangelsi og sekt. Skilorðsrof. Ávana- og fíkniefni. Þjófnaður.

E. var sakfelldur fyrir þjófnað og fíkniefnabrot. Hann rauf skilorð með brotum sínum. Dæmdur til að sæta fangelsi í 9 mánuði, skilorðsbundið til þriggja ára. Hann var einnig dæmdur til greiðslu sektar.

Mál þetta, sem dómtekið var 15. þ.m., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Suðurnesjum, útgefinni 4. maí 2007, á hendur Elíasi Andra Óskarssyni, kt. 000000-0000, Víðimel 34 í Reykjavík „fyrir eftirtalin refsilagabrot á árinu 2006:

  1. Tilraun til þjófnaðar með því að hafa 12. október brotist inn í Skátahúsið að Hringbraut 101, Keflavík, í þeim tilgangi að stela þar verðmætum en við tilraunina urðu skemmdir á peningaskáp í húsnæðinu.

    Telst þetta varða við 244. gr. sbr. 20. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  2. Fíkniefnabrot með því að hafa haft í vörslum sínum 1,54 grömm af amfetamíni þegar lögregla handtók hann í Grindavík 13. október.

    Telst þetta varða við 2. gr. sbr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 sbr. lög nr. 60/1980 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld lyf nr. 233/2001.

  3. Þjófnað með því að hafa 13. október brotist inn í KFUM húsið, Hátúni 36, Keflavík, og stolið þar 13.000 krónum.

    Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  4. Þjófnað með því að hafa 13. október brotist inn í húsið Heiðargarð 4, Keflavík, og stolið þar Dell fartölvu, 90.000 krónum í peningum, tösku með hörðum tölvudiski (svokölluðum flakkara) ásamt fylgisnúrum, hleðslutæki fyrir fartölvu, tölvumús og ávísun að fjárhæð 3.774 krónur útgefin af Richard Woodhead.

    Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“

    Þá er þess krafist að ákærða verði með dómi gert að sæta upptöku á 1,54 grömmum af amfetamíni, sbr. 2. liður ákæru.

    Við þingfestingu málsins gerði ákæruvaldið leiðréttingu á ákæru og að framkominni afstöðu ákærða til sakargifta samkvæmt henni. Tekur hún til þess að tilraunarbrot ákærða samkvæmt 1. lið ákæru hafi átt sér stað 13. október, en ekki 12. svo sem þar greinir.

I.

Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust viðurkennt að hafa gerst sekur um þá háttsemi, sem honum er gefin að sök í málinu. Telst sannað með þeirri játningu, sem er í samræmi við framlögð sakargögn, að ákærði hafi framið þá háttsemi sem í ákæru greinir og að teknu tilliti til leiðréttingar sem á henni hefur verið gerð samkvæmt framansögðu, sbr. 2. málsliður 1. mgr. 117. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Er háttsemi ákærða réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

II.

Ákærði hefur unnið sér til refsingar samkvæmt 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 5. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni.

Ákærði var með dómi 2. september 2005 dæmdur í 6 mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir þjófnaðarbrot og nytjastuld sem hann framdi þegar hann var 15 ára. Þá var hann með dómi 2. febrúar 2006 sakfelldur fyrir líkamsárás samkvæmt 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga en ekki gerð sérstök refsing. Þess utan hefur ákærði þrívegis undirgengist sektargreiðslu vegna fíkniefnabrota, það er 22. desember 2005, 25. október 2006 og 17. apríl 2007.

Refsingu ákærða ber að ákveða að teknu tilliti til 60. gr., sbr. 77. gr. almennra hegningarlaga. Því verður dæmd upp 6 mánaða skilorðsbundin fangelsisrefsing samkvæmt dómi 2. september 2005 og felld inn í þá refsingu sem honum verður nú gerð. Að atvikum virtu og að teknu tilliti til ungs aldurs ákærða, en hann er 17 ára, og þess að þýfið sem hann hafði á brott með sér í innbrotinu að Heiðargarði 4 í Reykjanesbæ komst allt til skila þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 9 mánuði. Þykir mega fresta fullnustu þeirrar refsingar og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga. Þá verður ákærða jafnframt gert að greiða 45.000 krónur í sekt til ríkissjóðs. Verði sektin eigi greidd innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu að telja skal ákærði í hennar stað sæta fangelsi í 4 daga.

Með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 er fallist á kröfu ákæruvalds um upptöku á þeim fíkniefnum sem tilgreind eru í ákæru og lögregla lagði hald á 13. október 2006.

Ákærða verður gert að greiða þóknun til skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, sem þykir að teknu tilliti til virðisaukaskatts hæfilega ákveðin 56.025 krónur. Annar sakarkostnaðar verður ekki felldur á ákærða.

Þorgeir Ingi Njálsson héraðsdómari kvað upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði, Elías Andri Óskarsson, sæti fangelsi í 9 mánuði. Fresta skal fullnustu þeirrar refsingar og hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði 45.000 krónur í sekt til ríkissjóðs og komi fangelsi í 4 daga í sektar stað, verði hún eigi greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins.

Ákærði sæti upptöku á 1,54 grömmum af amfetamíni sem hann hafði í vörslum sínum og lögregla lagði hald á 13. október  2006.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hæstaréttarlögmanns, 56.025 krónur.

Þorgeir Ingi Njálsson