Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 24. apríl 2007.
Mál nr. S-266/2007:
Ákæruvaldið
(Þuríður B. Sigurjónsdóttir ftr)
gegn
Friðþjófi Arnari Hafsteinssyni
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Ökuréttarsvipting.
Útdráttur
Tvítugur karlmaður dæmdur til að greiða 50.000 króna sekt og til að sæta sviptingu ökuréttar í 4 mánuði vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna.
Mál þetta, sem dómtekið var 18. þ.m., höfðaði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu með ákæru, útgefinni 20. mars 2007, á hendur ákærða, Friðþjófi Arnari Hafsteinssyni, kt. 000000-0000, Lækjarhvammi 1, Hafnarfirði, fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot, með því að hafa að kvöldi fimmtudagsins 16. nóvember 2006 ekið bifreiðinni TH-852 undir áhrifum tetrahýdrókannabínól um Elliðavatnsveg í Hafnarfirði uns akstri lauk á vegarslóða við Heiðmörk, og á sama tíma haft í vörslum sínum 1,0 g af hassi, sem ákærði framvísaði við leit lögreglu.
Framangreind háttsemi ákærða er talin varða við 1. mgr. 45. gr. a, sbr. 1. mgr. 100. gr. laga nr. 50/1987, sbr. lög nr. 66/2006, og 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
Í ákæru er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993, 2. gr. laga nr. 23/1998, 8. gr. laga nr. 84/2004 og 18. gr. laga nr. 66/2006 og jafnframt er þess krafist að gerð verði upptæk 1,0 g af hassi, sem hald var lagt á, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.
I.
Mál þetta er dæmt sem játningarmál án frekari sönnunarfærslu samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, en ákærði hefur fyrir dómi skýlaust viðurkennt að hafa gerst sek um þá háttsemi, sem honum er gefin að sök í málinu. Telst sannað með þeirri játningu, sem er í samræmi við framlögð sakargögn, að ákærði hafi gerst sek um þá háttsemi sem í ákæru greinir og þar er réttilega færð til refsiákvæða.
II.
Ákærði hefur ekki áður sætt refsingu svo kunnugt sé. Refsing ákærða þykir hæfilega ákveðin sekt í ríkissjóð að fjárhæð 50.000 krónur er ákærði greiði innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins, en sæti ella 4 daga fangelsi.
Þá ber að svipta ákærða ökurétti og þykir sviptingartími hæfilega ákveðinn 4 mánuðir frá birtingu dómsins að telja.
Þá skal ákærði sæta upptöku á 1,0 g af hassi er lögregla lagði hald á.
Loks ber að dæma ákærða til að greiða allan sakarkostnað sem nemur 61.258 krónum.
Finnbogi H. Alexandersson héraðsdómari kveður dóminn upp.
DÓMSORÐ:
Ákærði, Friðþjófur Arnar Hafsteinsson, greiði 50.000 krónur í sekt í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins, en sæti ella 4 daga fangelsi.
Ákærði skal sviptur ökurétti í 4 mánuði frá birtingu dómsins.
Ákærði sæti upptöku á 1,0 g af hassi er lögregla lagði hald á.
Ákærði greiði sakarkostnað, 61.258 krónur.
Finnbogi H. Alexandersson