Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-448/2006:

Ákæruvaldið

(Guðmundur Siemsen fulltrúi)

gegn

Hunter Immanuel Muscat

(Sigmundur Hannesson hrl)

Hylming. Ávana- og fíkniefni.

Gegn neitun ákærða var talið ósannað að hann hefði haft í vörslum sínum tölvu sem var illa fengin. Þá er ákærði fundinn sekur um að hafa haft í vörslum sínum smávægilegt magn af hassi.

Mál þetta, sem dómtekið var 30. maí síðastliðinn höfðaði lögreglustjórinn í Kópavogi með útgáfu ákæru 16. mars síðastliðinn á hendur Hunter Immanuel Muscat, kt. 000000-0000, Krummahólum 3, Reykjavík, fyrir fíkniefnalagabrot, „með því að hafa haft laugardaginn 4. júní 2005 í vörslum sínum 1,08 grömm af hassi, sem lögregla fann er hún hafði afskipti af honum í Smáralind í Kópavogi.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985, og lög nr. 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni, sbr. reglugerð nr. 484/2002.

b) Fyrir hylmingu, með því að hafa haft miðvikudaginn 25. janúar 2006 í vörslum sínum fartölvu af gerðinni Acer Travel-mate 6000, að verðmæti um 179.000 kr., sem stolin var úr anddyri Menntaskólans í Kópavogi 19. september 2005.

Telst þetta varða við 1. mgr. 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og að ofangreind fíkniefni sem haldlögð voru af lögreglu verði gerð upptæk samkvæmt heimild í 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

Ákærði játaði sök að þeirri háttsemi sem honum er gefin að sök í fyrri ákærulið ákæru.

Ákærði neitaði sök að þeirri háttsemi sem honum er gefin að sök í síðari ákærulið í ákæru.

Verjandi ákærða gerir þær dómkröfur að ákærði verði dæmdur til vægustu refsingar sem lög leyfa vegna þeirrar háttsemi sem hann játar að hafa framið í a-lið í ákæru. Verjandi krefst þess að ákærði verði aðallega sýknaður af þeirri háttsemi sem honum er gefin að sök í b-lið ákæru. Til vara er þess krafist að ákærða verði gerð vægasta refsing sem lög heimila og hún verði skilorðsbundin. Þá krefst verjandi hæfilegra réttargæslu- og málsvarnarlauna sem greiðast eigi úr ríkissjóði.

Málsatvik og skýrslur hjá lögreglu.

Mánudaginn 19. september 2005 barst lögreglunni í Kópavogi tilkynning um þjófnað við austurinngang Menntaskólans í Kópavogi um hádegisbil. Fóru lögreglumenn á vettvang og hittu fyrir brotaþola Fjölni Kvaran Brynjarsson. Í frumskýrslu lögreglu, sem skráð var af Gunnari Scheving Thorsteinssyni 20. september 2005, kemur fram að brotaþoli hafði skilið skólatösku sína eftir fyrir utan skólastofu við austurinngang Menntaskólans í Kópavogi, um klukkan 12:00. Kvaðst brotaþoli hafa sett töskuna í lítið skilrúm á milli glugga við útidyrahurð skólans og nemendaskápa. Tjónþoli kvaðst hafa sett töskuna þarna gagngert til þess að geta fylgst með henni utanfrá á meðan hann var úti. Þegar brotaþoli vitjaði töskunnar nokkrum mínútum síðar var hún horfin. Var lögreglunni tilkynnt um þjófnaðinn. Brotaþoli kvaðst hafa fundið töskuna bak við nemendaskápa og hafi allt verið í töskunni að undanskilinni fartölvu sem faðir hans, Brynjar Kvaran, er skráður eigandi að. Haft var samband við Brynjar Kvaran, sem kvaðst hafa keypt tölvuna hjá Tölvulistanum í ágúst 2004 fyrir u.þ.b. 179.000 krónur. Fartölvan sé af gerðinni Ace, Travel-mate 6000. Brynjar gat ekki upplýst um raðnúmer fartölvunnar. Skráð er í frumskýrslu lögreglunnar að Brynjar Kvaran sé með innbústryggingu hjá Sjóvá-Almennum tryggingum hf. Lögreglan gerði húsleit í íbúð að Vesturbergi 74 í Reykjavík með samþykki Sigurþórs Arnarssonar 25. janúar 2006. Var meðal annars lagt hald á fartölvu, sem síðan var afhent Sjóvá-Almennum tryggingum hf. 1. febrúar 2006. Sjóvá-Almennar tryggingar hf. greiddu skráðum eiganda bætur að fjárhæð 112.900 krónur.

Sigurþór Arnarsson gaf skýrslu hjá lögreglunni í Kópavogi 7. febrúar 2006. Aðspurður kvaðst vitnið ekkert vita um þjófnað á Acer Travel-mate 6000 fartölvu sem hafði verið stolið úr anddyri Menntaskólans í Kópavogi 19. september 2005 og fannst við húsleit á heimili vitnisins 25. janúar 2006. Vitnið kvaðst ekkert geta upplýst um þessa tölvu annað en það að ákærði væri eigandi hennar.

Ákærði gaf skýrslu hjá lögreglu 26. janúar 2006. Aðspurður neitaði ákærði að hafa stolið Acer Travel-mate 6000 fartölvu 19. september 2005 í anddyri Menntaskólans í Kópvavogi. Hins vegar kvaðst hann nýlega hafa keypt Acer fartölvu af manni sem hann vildi ekki nafngreina. Taldi hann sig hafa greitt u.þ.b. 100.000 krónur fyrir fartölvuna. Hann hefði ekki greitt með reiðufé heldur hefði hann látið af hendi heimabíó og nokkra safngripi.

Skýrslur fyrir dómi.

Ákærði bar fyrir dómi að á þessum tíma hafi hann verið djúpt sokkinn í fíkniefnaneyslu. Hann hefði sprautað sig bæði með örvandi og róandi efnum. Hann muni lítið eftir sér frá þessum tíma. Þrátt fyrir að eiga lögheimili hjá móður sinni hafi hann látið fyrirberast á hverjum tíma þar sem hann var niðurkominn. Félagi hans, Sigurþór Arnarsson, leigði íbúð að Vesturbergi 74 og hafi ákærði haldið til þar. Hann kvaðst hafa keypt umrædda fartölvu af þessum félaga sínum. Aðspurður af hverju hann hefði ekki tilgreint nafn Sigurþórs við skýrslutöku hjá lögreglu, bar ákærði að hann hefði fyrst viljað kanna málið sjálfur. Hann kvaðst hafa greitt 60.000 krónur fyrir tölvuna með afborgunum. Hann hefði ekki afhent Sigurþóri heimabíó eins og haft er eftir honum í lögregluskýrslu. Sú frásögn hljóti að hafa byggst á misskilningi. Vera mætti þó að hann hefði afhent Sigurþóri úr, eitt eða fleiri. Hann kvaðst ekki muna það. Aðspurður kvaðst hann ekki geta gefið aðrar skýringar á breyttum framburði sínum nú en þær að á þessum tíma hafi hann verið í mikilli fíkniefnaneyslu. Ákærði bar fyrir dómi að hann hefði ekki hugleitt þann möguleika, þegar hann keypti tölvuna, að hún gæti verið illa fengin. Hann hefði fyrst farið að velta þeim möguleika fyrir sér eftir skýrslutöku hjá lögreglu. Borinn var undir ákærða framburður hans hjá lögreglu, þar sem haft er eftir honum að auðvitað hefði honum dottið í hug að tölvan væri stolin. Ákærði bar að ekki væri rétt eftir sér haft í lögregluskýrslu. Aðspurður kvaðst ákærði vera að taka á sínum málum. Hann kvaðst hafa verið allsgáður síðastliðinn mánuð. Hann hafi farið í meðferð á geðdeild  33A á Landspítala-háskólasjúkrahúsi. Hann hafi verið lagður inn í nokkra daga og í framhaldi sótt göngudeildarmeðferð. Hann hafi nú sótt um að komast á meðferðarheimilið í Krýsuvík.

Vitnið Sigurþór Arnarsson bar fyrir dómi að hann hefði í janúar síðastliðnum verið í mikilli fíkniefnaneyslu og rugli. Hann kvaðst ekki muna eftir að húsleit hefði farið fram í íbúð hans að Vesturbergi 74 í Reykjavík 25. janúar síðastliðinn. Hins vegar kvaðst hann vita að hún hefði farið fram. Vitnið kvaðst ekkert vita um þessa fartölvu og hann mótmælti því að ákærði hefði keypt fartölvuna af honum. Hann mótmælti framburði ákærða sem röngum að hann hefði þegið 60.000 krónur fyrir tölvuna. Þá mótmælti vitnið því að ákærði hafi á þessum tíma dvalið í íbúð hans eins og ákærði hélt fram. Það rétta væri að þeir hefðu verið í mikilli neyslu og menn komið og farið. Ákærði sem aðrir. Það kom fram hjá vitninu að hann væri að taka á sínum málum og væri nýkominn úr vímuefnameðferð.

Vitnið Fjölnir Kvaran Brynjarsson bar fyrir dómi að stolið hefði verið frá honum fartölvu af gerðinni Acer Travel-mate 6000, 19. september 2005, þar sem hann hafði skilið hana eftir í reiðileysi í anddyri Menntaskólans í Kópavogi.

Niðurstaða.

Ákærði játar sök í fyrri ákærulið. Játning ákærða er í samræmi við önnur gögn málsins og verður hann sakfelldur fyrir það brot sitt, sem er réttilega heimfært til refsiákvæða.

Ákærði neitar sök í síðari ákærulið. Bæði ákærði og Sigurþór Arnarsson báru fyrir dómi að þeir hefðu verið í mikilli fíkniefnaneyslu í janúar 2006. Að einhverju marki kennir hann neyslunni um að framburður hans hjá lögreglu er ósamhljóða framburði hans fyrir dómi. Að öðru leyti hefur hann ekki haldbærar skýringar á breyttum framburði. Hins vegar hefur Sigurþór staðfastlega haldið því fram að hann viti ekkert um þessa tölvu. Gegn mótmælum Sigurþórs þykir ósannað að ákærði hafi keypt fartölvuna af honum. Fyrir dómi bar ákærði að hann hefði verið í góðri trú þegar hann keypti tölvuna. Í lögregluskýrslu bar hann efnislega á sama veg, en bætir síðan við: „...jú auðvitað datt mér það í hug en ég tók hann bara á orðinu og nú er ég alveg bálreiður út í þennan mann að selja mér stolna tölvu. Hann var búinn að fullyrða mig um það (sic) að hún væri ekki stolin.“ Af hálfu ákæruvalds er sök ákærða reist á tilvitnuðum orðum ákærða hjá lögreglu, þegar hann var í mikilli fíkniefnaneyslu. Öðrum sönnunargögnum er ekki til að dreifa, hvorki í framburði vitna né í öðrum sönnunargögnum. Samkvæmt framansögðu stangast framburður ákærða fyrir dómi í verulegum atriðum á við það sem eftir honum er haft í lögregluskýrslu. Í sjálfu sér þykir framburður ákærða fyrir dómi ótrúverðugur. Hins vegar verður með hliðsjón af 1. mgr. 48. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála sakfelling ákærða ekki reist á því sem skráð var eftir honum í lögregluskýrslu, nema önnur atriði styðji þann framburð í verulegum atriðum. Því er ekki til að dreifa í máli þessu.

Að þessu virtu telst ekki komin fram lögfull sönnun, sem ekki verði vefengd með skynsamlegum rökum, sbr. 46. gr. laga nr. 19/1991, um að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í b-lið ákæru. Verður hann því sýknaður af henni.

Með dómi í september 2002 var ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, þjófnaðartilraun og eignaspjöll. Var ákvörðun refsingar yfir ákærða frestað skilorðsbundið í 2 ár. Hinn 11. júní 2003 hlaut ákærði 75 daga skilorðsbundið fangelsi í 2 ár fyrir þjófnað, nytjastuld og umferðarlagabrot og var sá dómur að hluta til hegningarauki við fyrrgreinda dóminn, en með sumum brotanna rauf ákærði skilorð dómsins frá árinu áður og var hann dæmdur upp og ákærða gerð refsing í einu lagi fyrir öll brotin. Þá gekkst ákærði undir greiðslu lögreglusáttar fyrir fíkniefnabrot, 25. ágúst 2003 og hlaut sektardóm 25. september 2003 fyrir sams konar brot. Ákærði hlaut næst 4 mánaða fangelsisdóm 23. nóvember 2004 skilorðsbundinn í 2 ár fyrir hylmingu. Rauf ákærði skilorð dómsins frá 11. júní 2003 og var hann dæmdur upp og ákærða gerð refsing í einu lagi fyrir öll brotin, sbr. 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Loks hlaut ákærði dóm 21. september 2005 fyrir þjófnað.

Brot ákærða í a-lið ákæru var framið 4. júní 2005. Verður refsing ákærða ákvörðuð sem hegningarauki, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga, við dóminn frá 21. september 2005. Þykir refsing hæfilega ákveðin 31.000 króna sekt er greiðist í ríkissjóð innan fjögurra vikna frá dómsbirtingu, en ákærði sæti ella  fangelsi í 4 daga.

Ákærða er gert að sæta upptöku á 1,08 g af hassi með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni, sem lögreglan lagði hald á við rannsókn málsins þann 4. júní 2005.

Í ljósi greindra málsúrslita ber samkvæmt  1. mgr. 166. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991 að fella allan málskostnað á ríkissjóð. Réttargæslu- og málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, Sigmundar Hannessonar hæstaréttar lögmanns, þykja hæfilega ákveðinn 149.400 krónur, að teknu tilliti til virðisaukaskatts, sem greiðast úr ríkissjóði.  Annan kostnað leiddi ekki af málinu.

Ólöf Pétursdóttir dómstjóri kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði greiði 31.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins en sæti ella fangelsi í 4 daga.

Ákærði sæti upptöku á 1,08 g af hassi.

Réttargæslu- og málsvarnarlaun skipaðs verjanda ákærða, Sigmundar Hannessonar hæstaréttarlögmanns 149.400 krónur, greiðast úr ríkissjóði.

Ólöf Pétursdóttir