Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 27. júní 2006.
Mál nr. S-341/2006:
Ákæruvaldið
(Guðmundur Siemsen ftr)
gegn
Katrínu Lillý Sveinsdóttur
Lykilorð
Útdráttur
Dæmd í skilorðsbundið 10 mánaða fangelsi fyrir skjalafals.
Mál þetta, sem dómtekið var 8. júní sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans í Kópavogi 24. febrúar 2006 gegn Katrínu Lillý Sveinsdóttur, kt. 000000-0000, Furugrund 70, Kópavogi, „I.
Fyrir skjalafals, með því að hafa í febrúar 1998, gefið út skuldabréf til Sparisjóðsins í Kópavogi, að fjárhæð kr. 1.700.000, og falsað á bréfið nafn eiginmanns síns Kristins Ragnarssonar, kt. 000000-0000, sem sjálfskuldarábyrgðarmanns og nöfn bræðra sinna Alberts Sveinssonar, kt. 000000-0000 og og Oddgeirs Sveinssonar, kt. 270169-, sem votta að réttri dagsetningu, undirskrift og fjárræði ábyrgðaraðila og skuldara.
II.
Fyrir skjalafals, með því að hafa í mars 2001 falsað nafn eiginmanns síns Kristins Ragnarssonar, kt. 000000-0000, og nöfn bræðra sinna Alberts Sveinssonar, kt. 000000-0000, og Oddgeirs Sveinssonar, kt. 000000-0000 á skilmálabreytingu ofangreinds skuldabréfs, og þannig framvísað skilmálabreytingunni hjá eiganda þess, Sparisjóði Kópavogs.
III.
Fyrir skjalafals, með því að hafa í mars 2001, selt Lífeyrissjóðnum Hlíf, kt. 000000-0000, veðskuldabréf að fjárhæð kr. 1.000.000, tryggt með veði í fasteigninni að Gnitaheiði 21 í Kópavogi, og falsað á bréfið nafn eiginmanns síns Kristins Ragnarssonar, kt. 000000-0000, sem lántakanda og nafn bróður síns Alberts Sveinssonar, kt. 000000-0000, sem votts að réttri dagsetningu, undirskrift og fjárræði lántakanda.
IV.
Fyrir skjalafals, með því að hafa í júní 2001, selt Lífeyrissjóðnum Hlíf, kt. 000000- 0000, veðskuldabréf að fjárhæð kr. 500.000, tryggt með veði í fasteigninni að Gnitaheiði 21 í Kópavogi, og falsað á bréfið nafn eiginmanns síns Kristins Ragnarssonar, kt. 000000-0000, sem lántakanda.
V.
Fyrir skjalafals, með því að hafa í október 2002, gefið út skuldabréf til Ingvars Helgasonar hf., kt. 000000-0000, að fjárhæð kr. 941.000, og falsað á bréfið nafn eiginmanns síns Kristins Ragnarssonar, kt. 000000-0000, sem sjálfskuldar ábyrgðarmanns.
VI.
Fyrir skjalafals, með því að hafa í desember 2002, gefið út skuldabréf til Landsbanka Íslands hf., að fjárhæð kr. 3.845.000, og falsað á bréfið nafn eiginmanns síns Kristins Ragnarssonar, kt. 000000-0000, sem sjálfskuldarábyrgðarmanns.
VII.
Fyrir skjalafals, með því að hafa í apríl 2003 í Íslandsbanka hf., útibú við Smiðjuveg í Kópavogi, framvísað sjálfskuldarábyrgðaryfirlýsingu vegna yfirdráttarheimildar á tékkareikningi nr. 2980, að fjárhæð kr. 700.000, og falsað á yfirlýsinguna nafn eiginmanns síns Kristins Ragnarssonar, kt. 000000-0000, sem sjálfskuldarábyrgðarmanns.
VIII.
Fyrir skjalafals, með því að hafa í júní 2003 í Búnaðarbanka Íslands, útibú nr. 0313, framvísað sjálfskuldarábyrgðaryfirlýsingu vegna yfirdráttarheimildar á tékkareikningi nr. 2061, að fjárhæð kr. 2.000.000, og falsað á yfirlýsinguna nafn eiginmanns síns Kristins Ragnarssonar, kt. 000000-0000, sem sjálfskuldarábyrgðarmanns.
IX.
Fyrir skjalafals, með því að hafa í júlí 2003 í Búnaðarbanka Íslands, útibú nr. 0313, framvísað sjálfskuldarábyrgðaryfirlýsingu vegna yfirdráttarheimildar á tékkareikningi nr. 2061, að fjárhæð kr. 400.000, og falsað á yfirlýsinguna nafn eiginmanns síns Kristins Ragnarssonar, kt. 000000-0000, sem sjálfskuldarábyrgðarmanns.
X.
Fyrir skjalafals, með því að hafa í ágúst 2003 falsað nafn eiginmanns síns Kristins Ragnarssonar, kt. 000000-0000, á skilmálabreytingu skuldabréfs, sem Kristinn gaf út til Lífeyrissjóðsins Hlífar, kt. 000000-0000, 21. febrúar 2000, en ákærða sjálf greiddi af, og þannig framvísað skilmálabreytingunni hjá eiganda bréfsins, Sameinaða Lífeyrissjóðinum.
XI.
Fyrir skjalafals, með því að hafa í ágúst 2003 í Landsbanka Íslands hf., útibú 0115, framvísað sjálfskuldarábyrgðaryfirlýsingu vegna yfirdráttarheimildar á tékkareikningi nr. 2980, að fjárhæð kr. 250.000, og falsað á yfirlýsinguna nafn eiginmanns síns Kristins Ragnarssonar, kt. 000000-0000, sem sjálfskuldarábyrgðarmanns.
XII.
Fyrir skjalafals, með því að hafa í janúar 2004, selt Frjálsa fjárfestingabankanum, kt. 000000-0000, veðskuldabréf að fjárhæð kr. 2.500.000, tryggt með veði í fasteigninni að Gnitaheiði 21 í Kópavogi, og falsað á bréfið nafn eiginmanns síns Kristins Ragnarssonar, kt. 000000-0000, sem skuldara bréfsins.
XIII.
Fyrir skjalafals, með því að hafa í júní 2004, gefið út skuldabréf til Íslandsbanka hf., að fjárhæð kr. 215.000, og falsað á bréfið nafn eiginmanns síns Kristins Ragnarssonar, kt. 000000-0000, sem sjálfskuldarábyrgðarmanns.
Háttsemi ákærðu telst varða við 1. mgr. 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar.”
Af hálfu ákærðu er krafist vægustu refsingar og að hún verði skilorðsbundin. Málsvarnarlauna er krafist.
Ákærða hefur skýlaust játað brot sín og eru þau rétt færð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærða gaf skýrslu fyrir dómi og vitnin Margrét Herborg Nikulásdóttir, Katla Björk Rannversdóttir og Guðjón Páll Sigurðsson.
Af framburði þeirra má ráða að ákærða hefur gengið í gegnum andlega erfiðleika undanfarin ár. Hún kynntist eiginmanni sínum, kæranda málsins, 1991 og var þá nýlega skilin eftir 6 ára sambúð með tveggja ára son sinn á framfæri. Hún bjó þá í leiguhúsnæði og var með þunga skuldabirgði frá fyrri sambúð. Kærandi og ákærða ákváðu að hafa aðskilinn fjárhag og gerðu kaupmála þar sem fasteign, bifreið, sumarbústaður og tjaldvagn var skráður sem séreign kæranda. Ákærða segir að lán frá fyrri tíð hafi farið að falla á hana eftir að hún hafi hafið sambúð með eiginmanni sínum. Hann hafi ætlast til að hún stæði sjálf skil á þessum lánum og tæki auk þess þátt í rekstri heimilisins. Hún hafi hins vegar haft litlar tekjur og eignast barn í mars 1993 og annað barn í ágúst 2001. Í kjölfar þess hafi hún fengið mikið fæðingarþunglyndi og að lokum verið lögð inn á geðdeild. Í málinu er einnig vottorð Kvennaathvarfs þar sem kemur fram að ákærða hefur sótt 16 viðtöl í Kvennaathvarfi. Ákærða er nú einstæð með forsjá þriggja barna sinna.
Ekki er upplýst í málinu hve mikið tjón hlaust af háttsemi ákærðu og engar skaðabótakröfur hafa komið fram. Af gögnum málsins má sjá að í sumum tilfellum, sem ákært er fyrir, er um skuldbreytingu að ræða og ákærða heldur því einnig fram að hún hafi greitt eitthvað af þeim lánum sem ákæra lýtur að. Ákærða hefur ekki sætt refsingu áður.
Refsing ákærðu þykir hæfilega ákveðin 10 mánaða fangelsi, en þegar allt framangreint er virt, þykir megar skilorðsbinda refsinguna og falli hún niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærða greiði kostnað sakarinnar sem er málsvarnarlaun skipaðs verjanda hennar, Guðmundar Ómars Hafsteinssonar hdl., 130.000 krónur.
Gunnar Aðalsteinsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
DÓMSORÐ:
Ákærða, Katrín Lillý Sveinsdóttir, sæti fangelsi í 10 mánuði. Fresta skal fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá dómsuppsögu haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.
Ákærða greiði kostnað sakarinnar sem er verjandalaun skipaðs verjanda hennar, Guðmundar Ómars Hafsteinssonar hdl., 130.000 krónur.
Gunnar Aðalsteinsson