Héraðsdómur Norðurlands vestra
Dómur 28. febrúar 2008.
Mál nr. S-20/2008:
S-20/2008:
Ákæruvaldið
(Birkir Már Magnússon fulltrúi)
gegn
A
B
D
E
F
I
Mál
þetta, sem þingfest var og dómtekið 26. febrúar sl., er höfðað með ákæru
lögreglustjórans á Sauðárkróki hinn 14. janúar 2008 á hendur A, til heimilis á Siglufirði, B, til heimilis á Siglufirði, D, til heimilis
í Skagafirði, E, til heimilis í Skagafirði og F, til heimilis á Skagaströnd,
,,fyrir eftirtalin þjófnaðarbrot:
Gegn ákærðu A, B og
E, fyrir að hafa að kvöldi mánudagsins 3. desember 2007 í sameiningu stolið
gráu bassaboxi með 12” Kicker keilu; Alpine geislaspilara og Banner rafgeymi úr
bifreiðinni KP-287 þar sem hún stóð mannlaus við Borgartún 8 á Sauðárkróki.
Gegn ákærðu D og E
fyrir að hafa að kvöldi mánudagsins 3. desember 2007 stolið í sameiningu gráum
Genesis stereo 100 magnara úr umræddri bifreið, KP-287, þar sem hún stóð
mannlaus við Borgartún 8 á Sauðárkróki.
Gegn ákærðu A og F
fyrir að hafa að kvöldi sunnudagsins 2. desember eða að morgni mánudagsins 3.
desember 2007 staðið sameiginlega að þjófnaði á tveimur ljóskösturum af
bifreiðinni DF-634 þar sem hún stóð mannlaus við hafnargarðinn á Sauðárkróki.
Framangreind brot
teljast varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940.
Þess er krafist að
ákærðu verði dæmdir til refsingar. “
II
Ákærðu sóttu allir þing þegar málið var þingfest hinn
26. febrúar sl. og játuðu skýlaust háttsemi þá sem þeim er í ákæru gefin að
sök. Með játningu ákærðu sem er í samræmi við önnur gögn málsins telst sekt
ákærðu fyllilega sönnuð en háttsemi þeirra er réttilega færð til refsiákvæða í
ákæru.
Við ákvörðun
refsingar ákærðu ber að horfa til þess að þeir voru tveir eða fleiri að verki
þegar þeir frömdu brotin. Þá verður að horfa til þess að þeir eru allir ungir
að árum, hafa ekki áður sætt refsingu, óverulegt tjón hlaust af háttsemi þeirra
og að munir þeir sem þeir stálu komust aftur til eiganda sinna. Að teknu
tilliti til alls þessa þykir rétt að fresta ákvörðun refsingar allra ákærðu
þannig að hún falli niður að liðnum tveimur árum frá dómsuppsögu enda haldi
þeir almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr.
laga nr. 22/1955.
Sakarkostnaður
hefur ekki fallið á málið.
Af hálfu
ákæruvaldsins sótti málið Birkir Már Magnússon fulltrúi lögreglustjórans á
Sauðárkróki.
Halldór
Halldórsson dómstjóri kveður upp dóm þennan.
DÓMSORÐ
Ákvörðun refsingar ákærða A er frestað og skal hún
niður falla að liðnum tveimur árum enda haldi hann almennt skilorð 57. gr.
almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákvörðun refsingar ákærða B er frestað og skal hún
niður falla að liðnum tveimur árum enda haldi hann almennt skilorð 57. gr.
almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákvörðun refsingar ákærða D er frestað og skal hún
niður falla að liðnum tveimur árum enda haldi hann almennt skilorð 57. gr.
(sjálfir)
Lykilorð
Játningarmál. Skilorð. Þjófnaður.
Útdráttur
Fimm unglingspiltar sakfelldir fyrir þjófnað. Ákvörðun refsingar festað skilorðsbundið.
I
Mál þetta, sem þingfest var og dómtekið 26. febrúar sl., er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Sauðárkróki hinn 14. janúar 2008 á hendur A, til heimilis á Siglufirði, B, til heimilis á Siglufirði, D, til heimilis í Skagafirði, E, til heimilis í Skagafirði og F, til heimilis á Skagaströnd, ,,fyrir eftirtalin þjófnaðarbrot:
Gegn ákærðu A, B og E, fyrir að hafa að kvöldi mánudagsins 3. desember 2007 í sameiningu stolið gráu bassaboxi með 12” Kicker keilu; Alpine geislaspilara og Banner rafgeymi úr bifreiðinni KP-287 þar sem hún stóð mannlaus við Borgartún 8 á Sauðárkróki.
Gegn ákærðu D og E fyrir að hafa að kvöldi mánudagsins 3. desember 2007 stolið í sameiningu gráum Genesis stereo 100 magnara úr umræddri bifreið, KP-287, þar sem hún stóð mannlaus við Borgartún 8 á Sauðárkróki.
Gegn ákærðu A og F fyrir að hafa að kvöldi sunnudagsins 2. desember eða að morgni mánudagsins 3. desember 2007 staðið sameiginlega að þjófnaði á tveimur ljóskösturum af bifreiðinni DF-634 þar sem hún stóð mannlaus við hafnargarðinn á Sauðárkróki.
Framangreind brot teljast varða við 1. mgr. 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar. “
II
Ákærðu sóttu allir þing þegar málið var þingfest hinn 26. febrúar sl. og játuðu skýlaust háttsemi þá sem þeim er í ákæru gefin að sök. Með játningu ákærðu sem er í samræmi við önnur gögn málsins telst sekt ákærðu fyllilega sönnuð en háttsemi þeirra er réttilega færð til refsiákvæða í ákæru.
Við ákvörðun refsingar ákærðu ber að horfa til þess að þeir voru tveir eða fleiri að verki þegar þeir frömdu brotin. Þá verður að horfa til þess að þeir eru allir ungir að árum, hafa ekki áður sætt refsingu, óverulegt tjón hlaust af háttsemi þeirra og að munir þeir sem þeir stálu komust aftur til eiganda sinna. Að teknu tilliti til alls þessa þykir rétt að fresta ákvörðun refsingar allra ákærðu þannig að hún falli niður að liðnum tveimur árum frá dómsuppsögu enda haldi þeir almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Sakarkostnaður hefur ekki fallið á málið.
Af hálfu ákæruvaldsins sótti málið Birkir Már Magnússon fulltrúi lögreglustjórans á Sauðárkróki.
Halldór Halldórsson dómstjóri kveður upp dóm þennan.
DÓMSORÐ
Ákvörðun refsingar ákærða A er frestað og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum enda haldi hann almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákvörðun refsingar ákærða B er frestað og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum enda haldi hann almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákvörðun refsingar ákærða D er frestað og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum enda haldi hann almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákvörðun refsingar ákærða E er frestað og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum enda haldi hann almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákvörðun refsingar ákærða F er frestað og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum enda haldi hann almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Halldór Halldórsson.