Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-182/2016:

D Ó M U R

nr. S-182/2016:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X

Mál

þetta var dómtekið 3. nóvember. Það er höfðað með tveimur ákærum

lögreglustjórans á Norðurlandi eystra gegn X.

Fyrri

ákæran var gefin út 29. ágúst sl. Þar er ákærða gefið að sök

,,...umferðarlagabrot, með því að hafa aðfaranótt miðvikudagsins 13. júlí 2016,

frá heimili sínu að verslun 10/11 í Kaupangi og síðan þaðan um Vallargerði þar

sem hann stöðvaði aksturinn við hús nr. 2.

Telst

þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1.

mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum.

Þess

er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls

sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 102. gr.

nefndra umferðarlaga, með síðari breytingum.“

Síðari

ákæran var gefin út 7. september sl. Þar er ákærða gefið að sök

,,...umferðarlagabrot, með því að hafa aðfaranótt mánudagsins 4. júlí 2016,

Lögmannshlíðarvegi við bæinn Hesjuvelli á Akureyri, heldur sneri bifreiðinni

við og ók norður Lögmannshlíðarveg, síðan einbreiðan malarveg sem liggur að

Mýrarlóni, þar sem hann ók bifreiðinni með allt að 102 kílómetra hraða miðað

við klukkustund og fyrir að nota ekki öryggisbelti við aksturinn.

Telst

þetta varða við 3. mgr. 5. gr., 1. mgr. 37. gr., 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr.

(Stefán Karl Kristjánsson hrl)

Akstur án ökuréttar. Ökuréttarsvipting. Ölvunarakstur.

X var sakfelldur fyrir ölvunarakstur og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og dæmdur í 6 mánaða fangelsi að teknu tilliti til sakaferils. Ævilöng ökuréttarsvipting var áréttuð.

Fyrri   ákæran   var   gefin   út   29.   ágúst   sl.   Þar   er   ákærða   gefið   að sök ,,...umferðarlagabrot, með því að hafa aðfaranótt miðvikudagsins 13. júlí 2016, ekið bifreiðinni [...], sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna, (í þvagsýni sem tekið var vegna rannsóknar málsins mældist amfetamín og tetrahýdrókannabínólsýra) frá heimili sínu að verslun 10/11 í Kaupangi og síðan þaðan um Vallargerði þar sem hann stöðvaði aksturinn við hús nr. 2.

Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum.

Þess   er   krafist   að   ákærði   verði   dæmdur   til   refsingar,   til   greiðslu   alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, með síðari breytingum.“

Síðari   ákæran   var   gefin   út   7.   september   sl.   Þar   er   ákærða   gefið   að sök ,,...umferðarlagabrot, með því að hafa aðfaranótt mánudagsins 4. júlí 2016, ekið bifreiðinni [...], sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis (áfengismagn í blóði hans mældist 0,83‰) og undir áhrifum fíkniefna, (í blóðsýni sem tekið var vegna rannsóknar   málsins   mældist   amfetamín   40   ng/ml   og   tetrahýdrókannabínól   0,7 ng/ml), og sinna ekki fyrirmælum lögreglu um að stöðva akstur bifreiðarinnar á Lögmannshlíðarvegi við bæinn Hesjuvelli á Akureyri, heldur sneri bifreiðinni við og   ók   norður   Lögmannshlíðarveg,   síðan   einbreiðan   malarveg   sem   liggur   að Mýrarlóni, þar sem hann ók bifreiðinni með allt að 102 kílómetra hraða miðað við klukkustund og fyrir að nota ekki öryggisbelti við aksturinn.

Telst þetta varða við 3. mgr. 5. gr., 1. mgr. 37. gr., 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a, 1. mgr. 48. gr. og 1. mgr. 71. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, með síðari breytingum.

Þess   er   krafist   að   ákærði   verði   dæmdur   til   refsingar,   til   greiðslu   alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, með síðari breytingum.“

Ákærði hefur komið fyrir dóm og játað sök.  Með játningu hans, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, er nægilega sannað að hann hafi gerst   sekur   um   þá   háttsemi  sem   í   ákæru   er   lýst   og   þar   er   rétt  heimfærð  til lagaákvæða. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu en þegar hefur farið fram, með heimild í 164. gr. laga nr. 88/2008.

Sakaferill ákærða teygir sig aftur til ársins 1999.  Hér verður rakið að þann 18. desember 2008 var hann dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás og dæmdur með eldri skilorðsdómur fyrir þjófnað.  Hann sætti hegningarauka með dómi 2. júlí 2009 er hann var dæmdur í fangelsi í einn mánuð og til greiðslu 140.000   króna   í   sekt,   fyrir   brot   gegn   valdstjórninni   og   1.   mgr.   45.   gr.   a. umferðarlaga.  Jafnframt var hann sviptur ökurétti í fjóra mánuði.  Þann 16. mars 2011 var hann dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir brot gegn 168. gr. og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga og 1. mgr. og a-lið og c-lið 2. mgr. 36. gr. og 3. mgr. 5. gr. umferðarlaga og 19. gr., sbr. 41. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.  Sætti hann jafnframt sviptingu ökuréttar í sex mánuði.  Árið 2011 sætti hann tvívegis sektum fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.  Þann 7. maí 2013 var hann dæmdur til að greiða 210.000 krónur í sekt og sviptur ökurétti í tvö ár fyrir brot gegn 45. gr. a. og 24. gr. umferðarlaga.  Þann 23. apríl 2014 var hann dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni.  Enn sætti hann 6. júní 2014 hegningarauka og var þá dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og 109. gr. almennra hegningarlaga.  Honum var þann 26. júní 2014 veitt reynslulausn í eitt ár á eftirstöðvum refsingar, 85 dögum.  Hann rauf skilorð reynslulausnarinnar og voru eftirstöðvarnar dæmdar með og ákærða gerð refsing í einu lagi með dómi 3. mars 2016, sem hljóðaði um 8 mánaða fangelsi fyrir brot gegn umferðarlögum, þ.á m. gegn 1. mgr. 45. gr. a og 1. mgr. 48. gr., og lögum um ávana- og fíkniefni. Jafnframt var hann sviptur ökurétti ævilangt.  Að lokum var hann dæmdur 22. júní 2016 til að sæta fjögurra mánaða fangelsi sem hegningarauka fyrir brot gegn 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr. a umferðarlaga og 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga og 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni. Refsing verður ákveðin eftir reglum 77. gr. almennra hegningarlaga.

Í ljósi sakaferils ákærða verður hann dæmdur til að sæta fangelsi í 6 mánuði og áréttað að hann er sviptur ökurétti ævilangt.

Dæma ber ákærða til greiðslu sakarkostnaðar eins og greinir í dómsorði.  Við ákvörðun hans er litið til þess að engin ólögleg efni fundust í blóðsýni sem tekið var úr ákærða. Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði, , sæti fangelsi í sex mánuði.

Ákærði greiði 332.874 krónur í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar hæstaréttarlögmanns, 163.680 krónur og ferða kostnað, 34.925 krónur. Áréttað er að ákærði er sviptur ökurétti ævilangt.