Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 30. maí 2017.
Mál nr. E-224/2016:
D Ó M U R
nr. E-224/2016:
K
(Andrés Már Magnússon hdl)
gegn
M
Mál
þetta var höfðað 15. desember 2016 og dómtekið 8. maí. Stefnandi er K.
Stefndi er M.
Stefnandi
krefst þess að stefnda verði gert skylt með dómi að gefa út afsal til stefnanda
fyrir 50% eignarhlut í fasteigninni A.
Stefndi
krefst sýknu.
Hvort um sig krefst
málskostnaðar úr hendi hins.
Meðferð
málsins var frestað með úrskurði 6. mars, eftir að aðalmeðferð var hafin.
Úrskurðurinn var ógiltur með dómi Hæstaréttar
27. mars.
I
Aðilar,
sem höfðu verið í hjúskap frá ... 2011, komu fyrir fulltrúa sýslumannsins á
Norðurlandi eystra ... 2015 og sóttu um leyfi til lögskilnaðar.
Ekki var lagður fram sérstakur samningur um
fjárskipti.
Fulltrúi sýslumanns færði til
bókar að samningur væri um þau og síðan að stefnandi fengi í sinn hlut fasteign
að B, A, verbúð og ökutækin ... og ... . Stefnandi fengi fasteign að C og
ökutækin ... og ... .
Neðanmáls er að
finna ákvæði um að hvor aðili um sig taki við skuldum sem hvíli á viðkomandi
eign.
Þar fyrir neðan er rituð
dagsetningin 30/1 ´15 og ógreinilegt letur neðan við.
Leyfi til lögskilnaðar var gefið út ... 2015
og vísað til samkomulags um fjárskipti eins og það hefði verið bókað í
hjónaskilnaðarbók.
Krafa
stefnanda er byggð á þessu samkomulagi.
Samkvæmt
veðbandayfirliti eiga aðilar framangreinda fasteign að jöfnu.
Stefnandi tekur fram að frestur stefnda
samkvæmt 2. mgr. 95. gr. laga nr. 31/1993 sé liðinn.
Leyfi til lögskilnaðar verði ekki hnekkt.
II
Stefndi
segir að hjúskapnum hafi verið slitið að nafninu til og þau stefnandi hafi búið
saman áfram í hálft annað ár frá því að þau fengu lögskilnaðinn.
Stefndi hafi flutt lögheimili sitt til að fá
skilnaðarleyfi.
Eignaskipti hafi verið
til málamynda. Skilnaðinum hafi einungis verið ætlað að hafa þau áhrif í raun
að stefnandi fengi hærri bætur.
Stefndi
hafi því undirritað bókun sýslumanns án þess að velta henni fyrir sér.
Sumarið
2016 hafi slitnað upp úr sambandi aðila.
Hafi stefndi gengið út frá því að gerður yrði
fjárskiptasamningur í kjölfar þess.
Stefndi
kveðst byggja á því að samkomulagið hafi verið málamyndagerningur og
fjárskiptum aðila sé ekki lokið.
Lykilorð
Fjárslit milli hjóna. Hjón. Málamyndagerningur. Skilnaðarsamningur.
Útdráttur
M var dæmdur til að gefa út afsal fyrir eignarhlutdeild í fasteign á grundvelli skilnaðarsamnings
Stefndi krefst sýknu. Hvort um sig krefst málskostnaðar úr hendi hins. Meðferð málsins var frestað með úrskurði 6. mars, eftir að aðalmeðferð var hafin. Úrskurðurinn var ógiltur með dómi Hæstaréttar 27. mars.
I
Aðilar, sem höfðu verið í hjúskap frá ... 2011, komu fyrir fulltrúa sýslumannsins á Norðurlandi eystra ... 2015 og sóttu um leyfi til lögskilnaðar. Ekki var lagður fram sérstakur samningur um fjárskipti. Fulltrúi sýslumanns færði til bókar að samningur væri um þau og síðan að stefnandi fengi í sinn hlut fasteign að B, A, verbúð og ökutækin ... og ... . Stefnandi fengi fasteign að C og ökutækin ... og ... . Neðanmáls er að finna ákvæði um að hvor aðili um sig taki við skuldum sem hvíli á viðkomandi eign. Þar fyrir neðan er rituð dagsetningin 30/1 ´15 og ógreinilegt letur neðan við. Leyfi til lögskilnaðar var gefið út ... 2015 og vísað til samkomulags um fjárskipti eins og það hefði verið bókað í hjónaskilnaðarbók.
Krafa stefnanda er byggð á þessu samkomulagi. Samkvæmt veðbandayfirliti eiga aðilar framangreinda fasteign að jöfnu. Stefnandi tekur fram að frestur stefnda samkvæmt 2. mgr. 95. gr. laga nr. 31/1993 sé liðinn. Leyfi til lögskilnaðar verði ekki hnekkt.
II
Stefndi segir að hjúskapnum hafi verið slitið að nafninu til og þau stefnandi hafi búið saman áfram í hálft annað ár frá því að þau fengu lögskilnaðinn. Stefndi hafi flutt lögheimili sitt til að fá skilnaðarleyfi. Eignaskipti hafi verið til málamynda. Skilnaðinum hafi einungis verið ætlað að hafa þau áhrif í raun að stefnandi fengi hærri bætur. Stefndi hafi því undirritað bókun sýslumanns án þess að velta henni fyrir sér.
Sumarið 2016 hafi slitnað upp úr sambandi aðila. Hafi stefndi gengið út frá því að gerður yrði fjárskiptasamningur í kjölfar þess.
Stefndi kveðst byggja á því að samkomulagið hafi verið málamyndagerningur og fjárskiptum aðila sé ekki lokið. Af yfirliti um færslur á bankareikning stefnda megi sjá að hann hafi greitt stefnanda minnst 2.586.511 krónur frá því að skilnaðarleyfi var gefið út fram á sumar 2016. Hafi stefnandi aðallega séð um fjármál og því hafi verið millifært á reikning hennar. Þau hafi greinilega verið með sameiginlegan fjárhag á þessum tíma.
Þá segir stefndi að stefnandi geti ekki byggt rétt á samkomulagi sem hún hafi vitað að væri til málamynda.
Til vara byggir stefndi á því að samkomulagið sé ósanngjarnt og beri að ógilda það með vísan til 36. gr. laga nr. 7/1936. Ósanngjarnt sé að bera það fyrir sig, sbr. 34. gr. laga nr. 7/1936. Segir hann að stefnandi hafi fengið tvær fasteignir í sinn hlut, báðar með töluverðri ,,eign í“. Stefndi hafi fengið fasteign sem hann hafi átt áður en stofnað var til hjúskapar. Hana hafi hann selt áður en aðilar slitu samvistum. Hún hafi verið svo veðsett að minna en 100.000 krónur hafi komið í hlut stefnda. Hafi hann varið þeim krónum til sameiginlegs heimilishalds aðila.
Þá tekur stefndi fram að hann hafi ekki fengið nægilegar leiðbeiningar frá fulltrúa sýslumanns og sér hafi verið ókunnugt um reglur hjúskaparlaga um fjárskipti.
III
Aðilar gáfu skýrslur fyrir dómi. Þá gáfu skýrslur vitnin D systir stefnda og E stjúpmóðir stefnda. Styður framburður beggja vitnanna staðhæfingu stefnda um að aðilar hafi verið samvistum eftir skilnaðinn.
Þrátt fyrir mótmæli stefnanda bendir það, að aðilar virðast hafa verið saman eftir skilnaðinn sem hjón væru og það að fjárhagur þeirra var að einhverju leyti samtvinnaður, til þess að skilnaðurinn hafi verið til málamynda. Hvort sem svo var eða ekki verður þó að horfa til þess að aðilar eru sammála um að þau hafi nú slitið samvistum. Verður að miða við að samningurinn hafi þá orðið virkur þeirra á milli, enda gerðu þau ekki samkomulag um breytta skipan. Miðað við fullyrðingar stefnda um verðmæti fasteigna var vikið frá helmingaskiptareglu hjúskaparlaga. Stefndi hefur þó ekki skotið nægilegum stoðum undir þessa fullyrðingu með því að leggja fram tæmandi talningu hjúskapareigna hvors aðila um sig og yfirlit um verðmæti þeirra og fjárhæðir skulda. Verður því ekki fallist á að víkja samningnum til hliðar og ekki heldur á það að óheiðarlegt sé að bera hann fyrir sig.
Samkvæmt þessu verður dómkrafa stefnanda tekin til greina. Rétt þykir að málskostnaður falli niður milli aðila. Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari kveður upp dóminn.
DÓMSORÐ
Stefndi, M, skal gefa út afsal til stefnanda, K, fyrir 50% eignarhlutdeild sinni í fasteigninni A. Málskostnaður fellur niður.