Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-236/2012:

D Ó M U R

nr. S-236/2012:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X

(Ólafur Rúnar Ólafsson hrl)

Bifreiðir. Líkamsmeiðing af gáleysi. Ökuréttur. Skilorð.

Ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi. Ökuréttarsvipting.

„fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot, með því að hafa föstudaginn 10. ágúst 2012, ekið bifreiðinni [...] suður þjóðveg 1 í Öxnadal, við býlið Efstaland, án nægilegrar varúðar, og yfir á öfugan vegarhelming götunnar, þar sem hún ók á hjólreiðamanni [A], fæddan […] 1987, sem var að hjóla norður sama veg, með þeim afleiðingum að hann hlaut brot á C:2 og C:3 hálshryggjarliðum, brot á baugfingri vinstri handar og kramningsáverka á litlafingri og baugfingri vinstri handar, þar sem sinar höfðu slitnað í sundur.

Telst þetta varða við 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940 og 1. mgr. 4. gr. og 1. mgr. 14. gr. sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, með síðari breytingum.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum.“

Ákærða hefur komið fyrir dóm og játað sök.  Með játningu hennar, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, er nægilega sannað að hún hafi gerst sek um þá háttsemi sem í ákæru er lýst og þar er rétt heimfærð til laga.

Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu en þegar hefur farið fram, með heimild í 164. gr. laga nr. 88/2008.

Ákærða er á áttræðisaldri. Hún hefur ekki sætt refsingum. Með tilliti til sakaferils hennar og aldurs, sbr. 4. og 5. tl. 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, þykir rétt að fresta ákvörðun refsingar hennar skilorðsbundið eins og greinir í dómsorði.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með síðari breytingum ber að svipta ákærðu ökurétti. Ákveðst sviptingartíminn þrír mánuðir frá birtingu þessa dóms að telja.

Dæma ber ákærðu til að greiða allan kostnað sakarinnar, sem samkvæmt yfirliti nemur 13.800 krónum. Skipaður verjandi krafðist ekki þóknunar sér til handa.

Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð :

Ákvörðun refsingar ákærðu, X, er frestað og skal hún falla niður að liðnum þrem árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærða er svipt ökurétti í þrjá mánuði frá birtingu dómsins að telja.

Ákærða greiði 13.800 krónur í sakarkostnað.