Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-79/2008:

D Ó M U R

nr. S-79/2008:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X

(Gunnar Sólnes hrl)

Skilorð. Umferðarlagabrot. Ávana- og fíkniefni.

Sakfellt fyrir vörslur fíkniefna og umferðarlagabrot

Mál þetta, sem var dómtekið þann 13. mars sl., höfðaði sýslumaðurinn á Akureyri hér fyrir dómi þann 26. febrúar sl., með ákæru á hendur X, „fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudagskvöldið 27. desember 2007, ekið bifreiðinni VD-831, undir áhrifum áfengis (1,13‰) frá heimili sínu um Langholt, Lönguhlíð, Höfðahlíð, Skarðshlíð, Borgarbraut og Merkigil, þar sem hann stöðvaði akstur bifreiðarinnar við hús nr. [...], og vera með í vörslum sínum í greint sinn 0,59 grömm af amfetamíni, en hluta af þessum efnum henti hann frá sér á flótta undan lögreglunni eftir að hann stöðvaði bifreiðina.

Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr. 45. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. lög nr. 48, 1997 og 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana- og fíkniefna nr. 233, 2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. og 102. gr. nefndra umferðarlaga sbr. lög nr. 66, 2006 og til að sæta upptöku á 0,59 grömmum af amfetamíni, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 13.274, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“

Ákærði hefur hér fyrir dómi skýlaust játað sök og þá háttsemi sem rakin er í ákæruskjali. Játning ákærða er í samræmi við rannsóknarskýrslur lögreglu.

Að framangreindu virtu og þar sem ekki er ástæða til að efa að játning ákærða sé sannleikanum samkvæm, er nægilega sannað að hann hafi framið þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til laga. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu með heimild í 125. gr. laga nr. 19/1991.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði þrívegis hlotið refsingu, fyrst þann 24. febrúar 2005 er hann hlaut sekt fyrir brot á fíkniefnalöggjöfinni, næst þann 26. október 2006 er hann var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot á 244. gr. almennra hegningarlaga og loks þann 10. apríl 2007 er hann var dæmdur til greiðslu sektar fyrir brot á fíkniefna- og vopnalöggjöf, en fyrrnefndur skilorðsdómur var þá látinn halda sér. Með broti því sem ákærði er nú sakfelldur fyrir hefur ákærði rofið skilorð dómsins frá 26. október 2006 öðru sinni.

Með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 þykir fært að láta það skilorð ofangreinds skilorðsdóms haldast og ákvarða ákærða sérstaka refsingu nú, en í því efni er m.a. litið til verulegra breyttra aðstæðna ákærða til batnaðar, sbr. ákvæði 70. og 74. gr. almennra hegningarlaga. Þykir refsing ákærða eftir atvikum hæfilega ákveðin 145.000 krónur í sekt til ríkissjóðs og komi 10 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins. Þá er ákærði sviptur ökurétti í 10 mánuði frá birtingu þessa dóms að telja.

Gera ber fíkniefni upptækt eins og krafist er í ákæru og nánar er rakið í dómsorði.

Dæma ber ákærða til að greiða sakarkostnað, 28.287 krónur vegna töku blóðsýnis og rannsóknar á því auk málsvarnarlauna skipaðs verjanda síns, Gunnars Sólness hrl., sem ákveðast með virðisaukaskatti eins og nánar greinir í dómsorði.

Dóm þennan kveður upp Ólafur Ólafsson dómstjóri.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði, X greiði 145.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu þessa dóms að telja, en sæti ella fangelsi í 10 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti í 10 mánuði frá birtingu dómsins að telja.

Ákærði greiði 90.537 krónur í sakarkostnað, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Gunnars Sólness hrl. 62.250 krónur.

Upptæk eru gerð 0,59 grömm af amfetamíni, sbr. efnaskrá lögreglu nr. 13.274.

Heimildaskrá