Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-62/2008:

D Ó M U R

máli

nr. S-62/2008:

Ákæruvaldið

(Sigurður Eiríksson fulltrúi)

gegn

X.

Mál

þetta, sem dómtekið var 19. mars sl. er höfðað með þremur ákæruskjölum

sýslumannsins á Akureyri á hendur X.

Gripdeild. Umferðarlagabrot. Ávana- og fíkniefni.

Sakfellt fyrir brot gegn ávana- og fíkniefnalöggjöf, umferðarlögum og gripdeild. Sekt og skilorðsbundið fangelsi

„...fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 21. janúar 2007, verði með í vörslum sínum 0,19 grömm af amfetamíni, á þáverandi dvalarstað sínum að Grófinni [...] í Reykjavík.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1990 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferða ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á 0,19 grömmum af amfetamíni sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 11.193 samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“

  1. Ákæruskjal útgefið 26. febrúar 2008.  Mál nr. S-74/2008.

    Með þessu ákæruskjali er mál höfðað gegna ákærða: „...fyrir eftirtalin gripdeildarbrot:

I.

Með því að hafa þriðjudaginn 9. október 2007, á bensínafgreiðslustöð N1 við Leiruveg á Akureyri, dælt bensíni á bifreiðina LI-089, að andvirði 5.882 krónur og síðan ekið á brott án þess að greiða fyrir það.

II.

Með því að hafa föstudaginn 30. nóvember 2007, á bensínafgreiðslustöð Olís við Tryggvabraut á Akureyri, dælt bensíni á bifreiðinni YD-347, að andvirði 8.320 krónur og síðan ekið á brott án þess að greiða fyrir það.

Telst þetta varða við 245. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“

  1. Ákæruskjali útgefið 26. febrúar 2008:  Mál nr. S-75/2008.

    Með þessu ákæruskjali er mál höfðað á hendur ákærða: „fyrir eftirtalin umferðarlagabrot:

I.

Að hafa fimmtudaginn 8. mars 2007, ekið bifreiðinni AR-345 suður Reykjanesbraut í Kópavogi, með allt að 133 kílómetra hraða miðaða við klukkustund, eftir vegarkafla við Fífuhvammsveg, en þar er leyfilegur hámarkshraði 70 kílómetrar og vera ekki með ökuskírteini sitt meðferðis við aksturinn.

II.

Að hafa sunnudaginn 30. september 2007, ekið bifreiðinni LI-089 austur Njarðarbraut í Reykjanesbæ, með allt að 98 kílómetra hraða miðað við klukkustund, eftir vegarkafla austan við Stekk, er þar er leyfilegur hámarkshraði 50 kílómetrar.

III.

Að hafa þriðjudaginn 8. janúar 2008, ekið bifreiðinni DI-207, sviptur ökurétti, um Ólafsfjarðarveg, uns lögreglan stöðvaði akstur hans.

Telst þetta varða við 1. mgr., sbr. og 3. mgr. 37. gr. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsinar og til sviptingar ökuréttar samkvæmt 101. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. lög nr. 44, 1993.“

Á dómþingi þann 4. mars sl. voru ofangreind mál ákæruvalds sameinuð, sbr. heimildarákvæði 23. gr. laga nr. 19, 1991 um meðferð opinberra mála.

Á dómþingi þann 19. mars var af hálfu ákæruvalds fallið frá sakarefni III. kafla ákæru, sem útgefin var 26. febrúar 2008, sbr. mál  nr. S-75/2008.

Ákærði krefst í máli þessu vægustu refsingar sem lög leyfa.

Ákærði hefur hér fyrir dómi játað brot þau gegn ávana- og fíkniefnalöggjöf, hegningarlögum og umferðarlögum sem sakarefni máls þessa hljóðar um.  Játning ákærða er í samræmi við rannsóknargögn málsins lögreglu  Þykir sök ákærða því nægilega sönnuð og er háttsemi hans réttilega færð til refsiákvæða í ákærum.

Samkvæmt vottorði sakaskrá ríkisins gekkst ákærði þann 10. júlí 2007 undir viðurlagaákvörðun hjá héraðsdómi, sektargreiðslu, fyrir brot gegn fíkniefnalöggjöfinni þann 10. júlí sl. og sama ár, þann 5. desember, gekkst hann undir sektargreiðslu hjá sýslumanninum á Akureyri fyrir smáþjófnað.

Refsingu ákærða ber að ákveða m.a. með hliðsjón af  77. og 78. gr. almennra hegningarlaga og þykir hún með hliðsjón af sakarferli og skýlausri játningu eftir atvikum hæfilega ákveðin 40 daga fangelsi og 150.000 króna sekt til ríkissjóðs.

Fært þykir að fresta fullnustu fangelsisrefsingarinnar skilorðsbundið til tveggja ára frá uppkvaðningu dómsins að telja, haldi hann almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955 og 3. gr. laga nr. 39, 2000.  Ákærða ber að greiða sektina innan fjögurra vikna en ella komi 10 daga fangelsi í hennar stað.

Með vísan til 101. gr. umferðarlaga, sbr. lög nr. 44, 1993 ber að svipta ákærða ökurétti í 2 mánuði frá birtingu dómsins að telja.

Gera ber fíkniefni upptæk líkt og krafist er í ákærumáli nr. S-62/2008, sbr. efnaskrá nr. 11.193.

Málskostnaður reyndist enginn vera samkvæmt yfirlýsingu fulltrúa ákæruvalds fyrir dómi.

Dóm þennan kveður upp Ólafur Ólafsson dómstjóri.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði, X, sæti 40 daga fangelsi en fresta skal fullnustu hennar og hún niður falla að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dómsins að telja haldi hann almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955 og 3. gr. laga nr. 39, 2000.

Ákærði greiði 150.000 króna sekt til ríkissjóðs innan 4 vikna frá birtingu dómsins að telja, en sæti ella fangelsi í 10 daga.

Ákærði er sviptur ökurétti í 2 mánuði frá birtingu dómsins að telja.

Upptæk eru gerð 0,19 grömm af amfetamíni, sbr. efnaskrá lögreglu nr. 11.193.