Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-52/2008:

D Ó M U R

nr. S-52/2008:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X og

Z

Mál

þetta, sem var dómtekið þann 26. mars sl., höfðaði sýslumaðurinn á Akureyri hér

fyrir dómi með tveimur ákærum á hendur X, og Z.

(Hilmar Ingimundarson hrl)

Ávana- og fíkniefni. Nytjastuldur. Reynslulausn. Umferðarlagabrot.

Karl og kona dæmd fyrir að aka bifreið, sem þau höfðu fengið að reynsluaka, í heimildarleysi til Akureyrar. Karlinn jafnframt dæmdur fyrir að aka sviptur ökurétti og fyrir fíkniefnalagabrot. Við refsinguna var m.a. litið til sakaferils.

„fyrir nytjastuld og umferðarlagabrot, með því að hafa staðið saman að því fimmtudaginn 10. janúar 2008, að taka bifreiðina RM-022, í heimildarleysi frá Reykjavík og aka henni áleiðis til Ólafsfjarðar, uns lögreglan stöðvaði för þeirra skammt frá Dalvík, en bifreið þessa höfðu þau fengið á Bílasölu Bílabúðar Benna á Bíldshöfða í Reykjavík til að fara á henni í stuttan reynsluakstur og gegn ákærða [X] fyrir að hafa ekið greinda leið sviptur ökurétti.

Brot ákærðu beggja telst varða við 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19,1940, sbr. lög nr. 20, 1956 og umferðarlagabrot ákærða [X] við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50,1987, sbr. lög nr. 44,1993.

Þess er krafist að ákærðu verið dæmd til refsingar.“

  1. Ákæruskjal útgefið 8. febrúar 2008, á hendur ákærða X: „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa mánudaginn 19. mars 2007, verið með í vörslum sínum 0,19 grömm af hassi og 0,32 grömm af tóbaksblönduðu hassi í fangaklefa sínum í fangelsinu á Akureyri.

    Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65,1974, sbr. lög nr. 60,1980, sbr. lög nr. 13,1985 og sbr. lög nr. 82,1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233,2001.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á 0,19 grömmum af hassi og 0,32 grömmum af tóbaksblönduðu hassi, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 11.661, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65,1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233,2001.“

    Skipaður verjandi ákærðu krafðist fyrir þeirra hönd vægustu refsingar sem lög heimila, en að auki hæfilegra málsvarnarlauna.  Hann tjáði sig, líkt og sækjandi, um lagaatriði og viðurlög.

I.

Ákærðu hafa fyrir dómi bæði viðurkennt brot sín eins og þeim er lýst í ákærum. Eru játningar þeirra í samræmi við gögn málsins og teljast brot þeirra því nægjanlega sönnuð og varða við tilgreind lagaákvæði.  Að framangreindu virtu þykja efni til að leggja dóm á málið á grundvelli 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

II.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði A hlotið 24 refsidóma frá því á árinu 1996, m.a. fyrir brot á hegningarlögum, umferðarlögum og fíkniefnalöggjöfinni.  Hann fékk reynslulausn 10. mars 2007 í eitt ár á eftirstöðvum refsingar, 150 dögum.

Við ákvörðun refsingar ber m.a. að líta til þess að ákærði X er nú í níunda sinn fundinn sekur um akstur sviptur ökurétti og hafa ítrekunaráhrif aldrei rofnað á milli brotanna.  Ákærði hefur með brotum sínum einnig rofið skilorð framangreindrar reynslulausnar og þar sem ekki þykir fært miðað við sakaferil að láta hana halda sér ber samkvæmt 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 að gera honum refsingu fyrir þau brot sem nú eru dæmd með hliðsjón af hinni óafplánuðu fangelsisrefsingu, sbr. 1. mgr. 65. gr. laga nr. 49/2005.  Að þessu virtu þykir refsing ákærða X hæfilega ákveðin fangelsi í níu mánuði.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins gekkst ákærða Z undir sátt vegna brota á fíkniefnalöggjöfinni þann 28. ágúst 2007.  Eftir atvikum þykir refsing hennar hæfilega ákveðin eins mánaðar fangelsi.  Rétt þykir að fresta fullnustu hennar og skal hún niður falla að liðnum tveimur árum haldi hún almennt skilorð 57. gr. hegningarlaganna.

Gera ber upptæk fíkniefni eins og krafist er í ákæru og nánar er rakið í dómsorði.

Loks ber að dæma ákærðu til að greiða óskipt þóknun skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hrl., sem þykir hæfilega ákveðin 62.500 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, auk ferðakostnaðar, 31.960 krónur, samtals 94.460 krónur.

Dóm þennan kveður upp Ólafur Ólafsson dómstjóri.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði, X, sæti fangelsi í níu mánuði.

Ákærða Z, sæti fangelsi í einn mánuð en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi hún almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Upptæk eru gerð til ríkissjóðs fíkniefni, 0,19 grömm af hassi og 0,32 grömm af tóbaksblönduðu hassi, sbr. efnaskrá lögreglu nr. 11.661.

Ákærðu greiði óskipt þóknun skipaðs verjanda síns, Hilmars Ingimundarsonar hrl., 94.460 krónur.

Heimildaskrá