Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-96/2007:

D Ó M U R

nr. S-96/2007:

Ákæruvaldið

(Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari)

gegn

X

(Hilmar Gunnlaugsson hrl)

Brot gegn valdstjórninni. Skilorð.

Karlmaður dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni.

Mál þetta, sem dómtekið var þann 13. júní sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru ríkissaksóknara, útgefinni 23. apríl 2007, á hendur X, „fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa, aðfaranótt þriðjudagsins 27. desember 2005 í anddyri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga að Auðbrekku 4, Húsavík, veist að [A], lögreglumanni, sem þar hafði afskipti af ákærða vegna starfs síns og slegið hana hnefahögg í brjóstkassa, vinstra megin að framan, með þeim afleiðingum að hún hlaut mar á brjóstkassa.

Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 11. gr. laga nr. 101/1976 og 1. gr. laga nr. 25/2007.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“

Skipaður verjandi ákærða krefst þess aðallega að refsing verði felld niður vegna dráttar á útgáfu ákæru en til vara krefst hann vægustu refsingar sem lög leyfa.  Þá krefst hann málsvarnarlauna samkvæmt mati dómsins.

Við þingfestingu málsins þann 13. júní sl. kom ákærði fyrir dóminn og viðurkenndi þá háttsemi sem í ákæru er lýst að viðstöddum skipuðum verjanda sínum.  Þykir brot ákærða nægjanlega sannað og bera gögn málsins með sér að það varði við tilgreind lagaákvæði.

Gögn málsins bera með sér að verulegur dráttur hafi orðið á rannsókn málsins sem er óútskýrður.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði ekki áður verið dæmdur til refsingar.  Að virtum hreinum sakarferli ákærða og þeim drætti sem varð á rannsókn málsins hjá lögreglu þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 2/1955.

Með vísan til úrslita málsins og 1. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála verður ákærði dæmdur til greiðslu þóknunar skipaðs verjanda síns, Hilmars Gunnlaugssonar hdl., sem þykir hæfilega ákveðin kr. 90.000að virðisaukaskatti meðtöldum.

Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði X sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Ákærði greiði kr. 90.000í þóknun skipaðs verjanda síns, Hilmars Gunnlaugssonar hdl.