Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 23. maí 2007.
Mál nr. S-73/2007:
D Ó M U R
máli
nr. S-73/2007:
Ákæruvaldið
(Guðjón Jóel Björnsson fulltrúi)
gegn
X
Mál
þetta, sem dómtekið var þann 15. maí sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi
Norðurlands eystra með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á Akureyri, þann
19. mars sl., á hendur X;
,,fyrir
líkamsárás, með því að hafa laugardagsmorguninn 5. ágúst 2006, á félagssvæði
íþróttafélagsins Þórs við Skarðshlíð á Akureyri, slegið [A], hnefahögg í
andlitið, með þeim afleiðingum að hann hlaut gríðarmikla blæðingu yfir augnloki
hægra auga og um 3 cm skurð fyrir ofan augnlok, beinbrot í gólfi augntóftar og
blæðingu inn í kinnholur, einnig loft og blæðingu í augntóft. Þá skemmdist tönn 23 sem gera þurfti við.
Telst
þetta varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 11. gr. laga nr.
20, 1981.
Þess
er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Af
hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og að refsing verði
skilorðsbundin. Þá krefst skipaður
verjandi ákærða málsvarnarlauna.
Samkvæmt
rannsóknargögnum kom A, til lögreglunnar á Akureyri þann 8. ágúst 2006 og lagði
fram kæru á hendur ákærða fyrir líkamsárás er hann kvað hafa gerst
laugardagsmorguninn 5. ágúst s.m. Skýrði
hann lögreglu svo frá að hann og félagi hans hefðu verið við tjald ákærða þegar
ákærði hafi stigið út úr tjaldi sínu og eftir stutt orðaskipti slegið A einu
hnefahöggi í andlitið með þeim afleiðingum að mikið fór að blæða úr andliti
hans. Lögregla hafi síðan komið skömmu
síðar á staðinn og A var ekið upp á slysadeild í sjúkrabifreið.
Í
framhaldi af kæru A hófst lögreglurannsókn og voru m.a. yfirheyrð nokkur vitni
svo og ákærði. Við yfirheyrslu hjá
lögreglu kvaðst ákærði ekki muna eftir atvikum þennan morgun, nema að hann hefði
(Jón Egilsson hdl)
Lykilorð
Útdráttur
Karlmaður dæmdur í skilorsbundið fangelsi fyrir líkamsárás
Mál þetta, sem dómtekið var þann 15. maí sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á Akureyri, þann 19. mars sl., á hendur X;
,,fyrir líkamsárás, með því að hafa laugardagsmorguninn 5. ágúst 2006, á félagssvæði íþróttafélagsins Þórs við Skarðshlíð á Akureyri, slegið [A], hnefahögg í andlitið, með þeim afleiðingum að hann hlaut gríðarmikla blæðingu yfir augnloki hægra auga og um 3 cm skurð fyrir ofan augnlok, beinbrot í gólfi augntóftar og blæðingu inn í kinnholur, einnig loft og blæðingu í augntóft. Þá skemmdist tönn 23 sem gera þurfti við.
Telst þetta varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 11. gr. laga nr. 20, 1981.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“
Af hálfu ákærða er krafist vægustu refsingar sem lög leyfa og að refsing verði skilorðsbundin. Þá krefst skipaður verjandi ákærða málsvarnarlauna.
Samkvæmt rannsóknargögnum kom A, til lögreglunnar á Akureyri þann 8. ágúst 2006 og lagði fram kæru á hendur ákærða fyrir líkamsárás er hann kvað hafa gerst laugardagsmorguninn 5. ágúst s.m. Skýrði hann lögreglu svo frá að hann og félagi hans hefðu verið við tjald ákærða þegar ákærði hafi stigið út úr tjaldi sínu og eftir stutt orðaskipti slegið A einu hnefahöggi í andlitið með þeim afleiðingum að mikið fór að blæða úr andliti hans. Lögregla hafi síðan komið skömmu síðar á staðinn og A var ekið upp á slysadeild í sjúkrabifreið.
Í framhaldi af kæru A hófst lögreglurannsókn og voru m.a. yfirheyrð nokkur vitni svo og ákærði. Við yfirheyrslu hjá lögreglu kvaðst ákærði ekki muna eftir atvikum þennan morgun, nema að hann hefði verið að rífast við einhvern strák fyrir utan tjaldið sitt. Vitni báru hins vegar að ákærði hefði slegið árásarþola þannig að hann féll til jarðar við höggið.
Hér fyrir dóminum hefur ákærði viðurkennt brot sitt eins og því er í ákæru lýst, þó með þeim fyrirvara að hann hafni því skemmd á tönn nr. 23 tengist málinu. Fyrir dómi féll fulltrúi ákæruvalds frá þeim þætti ákærunnar er varðar skemmd á tönn nr. 23. Svo breytt þykir brot ákærða nægjanlega sannað með játningu hans, sem er í samræmi við gögn málsins, þ.á.m. framburði vitna fyrir lögreglu. Varðar brotið við lagaákvæði þau er í ákæru greinir.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði alls fimm sinnum sætt refsingu fyrir brot á almennum hegningarlögum og umferðarlögum á árabilinu 2001 til 2003. Brot þessi hafa ekki áhrif á ákvörðun refsingar nú.
Þykir refsing ákærða nú hæfilega ákveðin fangelsi í 2 mánuði, en rétt þykir að fresta fullnustu refsingar og hún falli niður að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22, 1955.
Samkvæmt reikningum sem fyrir liggja í málinu nemur kostnaður af rekstri málsins kr. 53.130- og ber að dæma ákærða til greiðslu þeirrar fjárhæðar í sakarkostnað auk málsvarnarlauna skipaðs verjanda síns, Jóns Egilssonar hdl., sem þykja hæfilega ákveðin kr. 160.000- og er virðisaukaskattur þar innifalinn.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, X, sæti fangelsi í 2 mánuði,en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dómsins, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði kr. 213.130í sakarkostnað þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Jóns Egilssonar hdl., kr. 160.000- og er virðisaukaskattur innifalinn.