Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 16. maí 2007.
Mál nr. S-66/2007:
D Ó M U R
nr. S-66/2007:
Ákæruvaldið
(Guðjón Jóel Björnsson fulltrúi)
gegn
X
Mál
þetta, sem dómtekið var þann 25. apríl sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi
Norðurlands eystra með ákæru lögreglustjórans á Akureyri, útgefinni 5. mars
2007, á hendur X,
„fyrir
líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 1. apríl 2006, á
skemmtistaðnum Sjallanum, Geislagötu 14, Akureyri, gripið í hár A, og skellt
hausnum á henni 3 til 5 sinnum ofan á borð og slegið hana síðar í andlitið, með
þeim afleiðingum að hún hlaut stórt glóðarauga á vinstra auga og aðeins minna
undir því hægra, mjög mikil eymsli í nefinu og í hálsi, yfir vöðvum og skertar
hálshreyfingar.
Telst
þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 10
gr. laga nr. 20, 1981.
Þess
er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar.“
Verjandi
ákærðu krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegra málsvarnarlauna sér
til handa.
Við
fyrirtöku málsins þann 25. apríl sl. kom ákærða fyrir dóminn og viðurkenndi
brot sitt eins og því er lýst í ákæru.
Er játning hennar í samræmi við gögn málsins og þykir sök hennar því
(Sigmundur Guðmundsson hdl)
Lykilorð
Útdráttur
Kona dæmd í skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás.
Mál þetta, sem dómtekið var þann 25. apríl sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru lögreglustjórans á Akureyri, útgefinni 5. mars 2007, á hendur X, „fyrir líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 1. apríl 2006, á skemmtistaðnum Sjallanum, Geislagötu 14, Akureyri, gripið í hár A, og skellt hausnum á henni 3 til 5 sinnum ofan á borð og slegið hana síðar í andlitið, með þeim afleiðingum að hún hlaut stórt glóðarauga á vinstra auga og aðeins minna undir því hægra, mjög mikil eymsli í nefinu og í hálsi, yfir vöðvum og skertar hálshreyfingar.
Telst þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 10 gr. laga nr. 20, 1981.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar.“
Verjandi ákærðu krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegra málsvarnarlauna sér til handa.
Við fyrirtöku málsins þann 25. apríl sl. kom ákærða fyrir dóminn og viðurkenndi brot sitt eins og því er lýst í ákæru. Er játning hennar í samræmi við gögn málsins og þykir sök hennar því nægjanlega sönnuð og varðar við tilgreind lagaákvæði í ákæruskjali. Að framangreindu virtu þykja efni til að dæma málið í samræmi við 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærða ekki áður verið dæmd til refsingar. Með vísan til hreins sakarferils ákærðu og skýlausrar játningar þykir refsing hennar hæfilega ákveðin fangelsi í 30. Rétt þykir að fresta fullnustu refsingarinnar og að hún falli niður að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Í málinu liggur fyrir kostnaður að fjárhæð kr. 12.500vegna læknisvottorðs. Ber að dæma ákærðu til greiðslu þess kostnaðar í sakarkostnað auk þóknunar skipaðs verjanda síns, Sigmundar Guðmundssonar hdl., sem þykir hæfilega ákveðin kr. 90.000að virðisaukaskatti meðtöldum.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærða X sæti fangelsi í 30 daga en fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dóms þessa haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærða greiði kr. 102.500í sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda síns, Sigmundar Guðmundssonar hdl., kr. 90.000- og er virðisaukaskattur þar innifalinn.