Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-245/2007:

D Ó M U R

nr. S-245/2007:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X

Hegningarauki. Ávana- og fíkniefni.

Karlmanni ekki gerð sérstök refsing fyrir fíkniefnabrot.

X

Mál þetta, sem dómtekið var nú í dag, er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru sýslumannsins á Akureyri, útgefinni 10. september s.l. á hendur X: „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudagskvöldið 28. september 2006, verið með í vörslum sínum 0,17 grömm af tóbaksblönduðu hassi að Þórunnarstræti [...] á Akureyri og fyrir að hafa gleypt lítilræði af hassi þegar lögreglan knúði dyra í þeim tilgangi að handtaka hann.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr.laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana- og fíkniefna nr. 233, 2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sæta upptöku á 0,17 grömmum af tóbaksblönduðu hassi, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 10.562, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“

Við þingfestingu málsins féll ákæruvaldið frá þeim þætti ákæru sem varðar neyslu ákærða á hassi með því að gleypa lítilræði af því.

Við þingfestingu málsins kom ákærði fyrir dóminn og kvaðst ekki muna eftir atvikum, en ekki sjá ástæðu til að halda uppi vörnum í málinu. Var honum kynnt að málið yrði dæmt á grundvelli þessarar afstöðu og henni jafnað til þess að hann viðurkenndi brotið eins og því er í ákæru lýst svo breyttri, enda í samræmi við gögn málsins. Þykir brot hans því nægjanlega sannað og varðar við tilgreind ákvæði í ákæruskjali.  Að framangreindu virtu þykja skilyrði til að fella dóm á málið samkvæmt 125. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Ákærði á að baki töluverðan sakaferil, sem ekki er þörf að rekja hér frekar en svo að refsingu hans ber að tiltaka sem hegningarauka við 30 daga fangelsisrefsingu og 210.000 króna sekt sem hann sætti samkvæmt dómi upp kveðnum 5. júlí sl. Þykir ekki ástæða til að gera ákærða sérstaka refsingu í þessu máli.

Gera ber upptækt tóbaksblandað hass eins og krafist er.

Dóminn kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð :

Ákærða, X er ekki gerð sérstök refsing í þessu máli.

Upptæk eru 0,17 grömm af tóbaksblönduðu hassi, með nr. 10.562 í efnaskrá lögreglu.