Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-181/2007:

D Ó M U R

nr. S-181/2007:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X

Upptaka. Ávana- og fíkniefni.

Karlmaður dæmdur til greiðslu sektar fyrir vörslur fíkniefna og til að sæta upptöku efnanna.

X

Mál þetta, sem dómtekið var þann 10. júlí sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru lögreglustjórans á Akureyri, útgefinni þann 1. júní sl., á hendur X. „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa sunnudaginn 6. maí 2007 verið með í vörslum sínum 9,51 grömm af hassi þegar lögreglan hafði afskipti af honum í Brekkugötu á Akureyri Telst þetta varða við 2. gr. sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana- og fíkniefna nr. 233, 2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sæta upptöku á 9,51 grammi af hassi sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 11610 samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“

Fyrirkall í máli þessu var gefið út þann 18. júní sl. og birt ákærða 3. júlí sl.  Við þingfestingu málsins þann 10. júlí sl. sótti ákærði ekki þing og var málið þá dómtekið að kröfu sækjanda með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991.  Þykir mega jafna útivist ákærða til játningar hans í málinu, sbr. téða lagagrein, enda fer sú niðurstaða eigi í bága við gögn málsins.  Telst brot hans því nægjanlega sannað og varðar það við tilgreind lagaákvæði.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins á ákærði þó nokkurn brotaferil að baki allt frá árinu 1988 til ársins 1991. Hefur sá brotaferill ekki áhrif á ákvörðun refsingar nú. Þann 17. apríl 2007 var ákærði svo dæmdur í 60 daga fangelsi skilorðsbundið í tvö ár fyrir brot gegn fíkniefnalöggjöfinni og vopnalögum.

Með broti sínum nú hefur ákærði rofið skilorð frá 17. apríl 2007. Með heimild í 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940 þykir rétt að láta þann skilorðsdóm haldast og ákveða refsingu sérstaklega nú.  Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðinn kr. 60.000í sekt til ríkissjóðs og komi 4 daga fangelsi í stað sektarinnar varði hún eigi greidd innan 4 vikna.

Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilvitnaðra ákvæða eru upptæk gerð fíkniefni svo sem í dómsorði greinir.

Enginn sakarkostnaður er í málinu.

Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson, dómstjóri.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði, X, greiði kr. 60.000í sekt til ríkissjóðs og komi 4 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.

Ákærði sæti upptöku á 9,51 grömmum af hassi samkvæmt efnaskrá lögreglu nr. 11610.