Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-152/2007:

D Ó M U R

nr. S-152/2007:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X

Mál

þetta, sem dómtekið var hinn 28. júní sl., er höfðað hér fyrir héraðsdómi

Norðurlands eystra, með tveimur ákærum lögreglustjórans á Akureyri á hendur X.

Með

ákæru útgefinni 5. júní sl. er ákærða gefið að sök fíkniefnalagabrot, með því

að hafa aðfaranótt sunnudagsins 6. maí 2007 verið með í vörslum sínum 1,86

Umferðarlagabrot. Upptaka. Ávana- og fíkniefni.

Karlmaður dæmdur til greiðslu og sektar fyrir umferðarlagabrot og vörslur fíkniefna og jafnframt til að sæta upptöku efnanna.

X

Mál þetta, sem dómtekið var hinn 28. júní sl., er höfðað hér fyrir héraðsdómi Norðurlands eystra, með tveimur ákærum lögreglustjórans á Akureyri á hendur X.

Með ákæru útgefinni 5. júní sl. er ákærða gefið að sök fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 6. maí 2007 verið með í vörslum sínum 1,86 grömm af tóbaksblönduðu hassi þegar lögreglan hafði afskipti af honum á Kjarnavegi í Kjarnaskógi á Akureyri.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13,1985 og sbr. lög nr. 82,1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.

Með ákæru útgefinni 6. júní sl. er ákærða gefið að sök umferðarlaga- og fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudaginn 3. maí 2007 ekið bifreiðinni OO- 829, án þess að nota öryggisbelti, vestur Þingvallastræti frá gatnamótum Mýrarvegar og fyrir að hafa verið með í vörslum sínum 0,61 gramm af tóbaksblönduðu hassi er lögreglan hafði afskipti af honum á Skógarlundi á Akureyri greindan dag.

Brot þessi teljast varða við 1. mgr. 71. gr. sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987 og 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á 1,86 grömmum af tóbaksblönduðu hassi, sem tilgreint er í efnaskrá nr. 11.609 og 0,61 grammi af tóbaksblönduðu hassi, sem tilgreint er í efnaskrá nr. 11.611, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.

Við þingfestingu málsins, þann 28. júní sl., kom ákærði fyrir dóminn og viðurkenndi brot sín eins og þeim er í ákæru lýst.  Er játning hans í samræmi við gögn málsins og þykja brot hans því nægjanlega sönnuð og varða við tilgreind lagaákvæði.  Að framangreindu virtu þykir mega leggja dóm á málið á grundvelli 125. gr. laga um meðferð opinberra mála nr. 19/1991.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins var ákærði dæmdur fyrir þjófnað og tilraun til þjófnaðar þann 15. júní 2006 en ákvörðun refsingar var frestað skilorðsbundið í 2 ár.  Með brotum sínum nú hefur ákærði rofið skilorð þess dóms en með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með síðari breytingum, þykir mega láta skilorðsdóminn haldast en dæma ákærða refsingu sér í lagi.  Þykir refsing hans hæfilega ákveðin kr. 40.000í sekt til ríkissjóðs og komi 3 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.

Með vísan til lagaákvæða þeirra er í ákærum greinir ber að dæma ákærða til að sæta upptöku fíkniefna svo sem nánar greinir í dómsorði.

Enginn sakarkostnaður hlaust af rannsókn og rekstri málsins.

Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði X greiði kr. 40.000í sekt til ríkissjóðs og komi 3 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.

Ákærði sæti upptöku á samtals 2,47 grömmum af tóbaksblönduðu hassi samkvæmt efnaskrám nr. 11.609 og 11.611.