Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 19. júlí 2007.
Mál nr. S-151/2007:
Ó M U R
máli
nr. S-151/2007:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
Lykilorð
Útdráttur
Piltur dæmdur til greiðslu sektar fyrir vörslur fíkniefna og til aðsæta upptöku efnisins.
X
Mál þetta, sem dómtekið var þann 10. júlí sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru lögreglustjórans á Akureyri, útgefinni 1. júní 2007, á hendur X, „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa mánudaginn 9. apríl 2007 verið með í vörslum sínum 0,94 grömm af amfetamíni þegar lögreglan hafði afskipti af honum í Hafnarstræti á Akureyri.
Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á 0,94 grömmum af amfetamíni, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 11612 samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“
Fyrirkall í máli þessu var gefið út 28. júní sl. og birt ákærða 29. júní sl. Við þingfestingu málsins þann 10. júlí sl. sótti ákærði ekki þing og var málið þá dómtekið að kröfu sækjanda með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála. Þykir mega jafna útivist ákærða til játningar hans, sbr. téða lagagrein, enda fer sú niðurstaða eigi í bága við gögn málsins. Telst sök ákærða nægjanlega sönnuð og varðar við tilgreind ákvæði í ákæruskjali.
Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins var ákærði dæmdur fyrir nytjastuld og akstur án ökuréttinda þann 9. september 2005 en ákvörðun refsingar hans var frestað skilorðsbundið í 2 ár. Þann 17. febrúar 2006 var hann dæmdur fyrir líkamsárás.
Var þar um hegningarauka að ræða og ákvörðun refsingar var frestað skilorðsbundið í 2 ár. Með broti því sem ákærði er nú dæmdur fyrir hefur hann rofið skilorð fyrri dóma en með heimild í 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir mega láta skilorðsdómana haldast en ákveða ákærða refsingu sérstaklega. Þykir refsing hans hæfilega ákveðin kr. 40.000í sekt til ríkissjóðs og komi 3 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.
Með vísan til kröfugerðar ákæruvalds, gagna málsins og tilvitnaðra ákvæða sæti ákærði upptöku fíkniefna svo sem í dómsorði greinir.
Enginn sakarkostnaður hlaust af rannsókn og rekstri málsins.
Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði X greiði kr. 40.000í sekt til ríkissjóðs og komi 3 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.
Ákærði sæti upptöku á 0,94 grömmum af amfetamíni samkvæmt efnaskrá lögreglu nr. 11.612.