Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-422/2006:

D Ó M U R

máli

nr. S-422/2006:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson sýslumannsfulltrúi)

gegn

X

Mál

þetta, sem dómtekið var þann 12. desember sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi

Norðurlands eystra með ákæru lögreglustjórans á Akureyri, útgefinni 10.

nóvember sl., á hendur X,

„fyrir

fíkniefnalagabrot, með því að hafa sunnudaginn 6. ágúst 2006, verið með í

vörslum sínum 1,30 grömm af amfetamíni, að [...] Akureyri, þegar lögreglan

gerði þar húsleit.

Telst

þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr.

65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998

og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr.

233, 2001.

Þess

er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á 1,30

grömmum af amfetamíni, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrám

nr. 10.036 & 10.037, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr.

14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“

Fyrirkall

sl.  Við þingfestingu málsins þann 12.

desember sl. sótti ákærði ekki þing og var málið þá dómtekið að kröfu sækjanda

Upptaka. Ávana- og fíkniefni.

Karlmaður dæmdur til greiðslu sektar fyrir vörslur fíkniefna og til að sæta upptöku efnanna

X

Mál þetta, sem dómtekið var þann 12. desember sl., er höfðað hér fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra með ákæru lögreglustjórans á Akureyri, útgefinni 10. nóvember sl., á hendur X, „fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa sunnudaginn 6. ágúst 2006, verið með í vörslum sínum 1,30 grömm af amfetamíni, að [...] Akureyri, þegar lögreglan gerði þar húsleit.

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til að sæta upptöku á 1,30 grömmum af amfetamíni, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrám nr. 10.036 & 10.037, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.“

Fyrirkall í máli þessu var gefið út þann 28. nóvember sl. og birt ákærða 6. desember sl.  Við þingfestingu málsins þann 12. desember sl. sótti ákærði ekki þing og var málið þá dómtekið að kröfu sækjanda með vísan til 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.  Þykir mega jafna útivist ákærða til játningar hans, sbr. téða lagagrein, enda fer sú niðurstaða eigi í bága við gögn málsins.  Telst sök ákærða því nægjanlega sönnuð og varðar við tilgreind lagaákvæði í ákæruskjali.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins hefur ákærði 13 sinnum hlotið refsingar síðan árið 2000, fyrir brot á hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni.  Þann 30. desember 2002 var hann dæmdur í 15 mánaða fangelsi, þar af 12 mánuði skilorðsbundna, fyrir þjófnað og voru þá fyrri skilorðsdómar teknir upp og dæmdir með.  Þann 11. júní 2004 var hann dæmdur til greiðslu kr. 116.500 fyrir umferðarlaga- og fíkniefnalagabrot og þann 15. júní 2004 var hann dæmdur til greiðslu sektar fyrir hraðakstur.  Þykir refsing ákærða nú hæfilega ákveðin kr. 45.000í sekt til ríkissjóðs og komi 3 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.

Dæma ber ákærða til að sæta upptöku eins og krafist er og nánar greinir í dómsorði.

Enginn sakarkostnaður hlaust af rekstri málsins.

Dóminn kveður upp Freyr Ófeigsson dómstjóri.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði X greiði kr. 45.000í sekt til ríkissjóðs og komi 3 daga fangelsi í stað sektarinnar verði hún eigi greidd innan 4 vikna.

Ákærði sæti upptöku á 1,30 grömmum af amfetamíni samkv. efnaskrám nr. 10.036 og 10.037.